Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
295. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jesús kross-
festur 3.
aprfl árið 33
London, 22. desember. AP.
LENGI hefur verið deilt um hvenær
nákvæmlega Jesús hafi verið kross-
festur en samkvæmt grein í brezka
vísindaritinu Nature, sem byggð er á
stjörnufræöireikningum og biblíutil-
vitnunum og öðrum sögulegum skír-
skotunum, var Kristur krossfestur
fostudaginn 3. apríl árið 33.
Greinarhöfundar segjast hafa
unnið sig aftur eftir dagatali Gyð-
inga og tímasett tunglmyrkva, sem
Biblían og aðrar heimildir herma
að fylgt hafi í kjölfar krossfest-
ingarinnar.
Hið eina, sem vitað hefði verið
með vissu, var að Kristur hefði
skilið við á árunum 26—36, þegar
Pontíus Pílatus var landstjóri
Rómverja í Júdeu. Nú er hins vegar
sýnt að Kristur hafi verið kross-
festur 3. apríl árið 33, fáum stund-
um fyrir upphaf sabbatsdaga Gyð-
inga, sem hefjast á föstudags-
kvöldi, og daginn fyrir páska Gyð-
inga.
EBE hættir að
refsa Rússum
Yasser Arafat leiðtogi Palestínuskæruliða og Hosni Mubarak forseti Egyptalands fallast í faðma í upphafi fundar
síns í Kairó í gær. Talið er aö fundurinn sé til marks um að skammt sé í heila sátt PLO og Egyptalands, sem er eina
Arabaríkið sem viðurkennir Ísraelsríki. AP/S(mamynd.
Biskup
myrtur?
Managua, 22. desember. AP.
Stjórnvöld í Nicaragua fullyrtu að
lík kaþólsks biskups af bandarísk-
um ættum hefði fundist í norðaust-
urhluta landsins og sögðu hann hafa
verið veginn af skæruliðum sem
njóta stuðnings Bandaríkjanna.
Fullyrðingar ráðamanna í Man-
agua hafa hins vegar verið dregn-
ar í efa og sagði leiðtogi indíána-
samtaka í Hondúras að biskupinn,
Salvador Schláfer, væri ljóslifandi
í Nicaragua. Væri hann í hópi 750
indíána á leið til landamæra
Hondúras. Hefði hann þjónað
indíánunum og myndu þeir verja
hann til hins síðasta.
Háttsettur embættismaður í
Washington sagðist hafa fengið
skilaboð um að biskupinn, sem
fæddur er í Bandaríkjunum, hefði
verið myrtur. Hins vegar væru
fullyrðingar sandinistastjórnar-
innar um að morðingjar hans
væru úr röðum skæruliða sem
vildu stjórnina feiga á engum rök-
um reistar.
Misjafiilega brugðist við
fúndi Arafats og Mubaraks
Washington. Kairó, Beirút, Tel Aviv. 22. deaember. AP.
Brussel, 22. desember. AP.
Efnahagsbandalag Evrópu hefur
ákveðið að hætta refsiaðgeröum sem
gripið var til gagnvart Sovétríkjun-
um til að mótmæla setningu herlaga
í Póllandi. Verður aögerðum hætt
frá og með næstkomandi áramótum.
Af hálfu EBE þykja aðgerðirnar
þegar hafa náð tilgangi sínum og
því ekki þörf fyrir þær lengur. Til-
gangur aðgerðanna var að láta í
ljós viðurstyggð vestrænna ríkja á
þætti Sovétmanna í setningu her-
laganna í desember 1981.
Aðgerðirnar voru m.a. í því
fólgnar að banna innflutning á
ýmsum sovézkum vörum og munu
Rússar hafa orðið fyrir 140 millj-
óna dollara útflutningstekjutapi á
ári vegna þeirra. Á sama tíma
styrktu aðgerðirnar framleiðend-
ur í EBE-ríkjunum sem átt hafa í
beinni samkeppni við innflutning
frá Sovétríkjunum.
VITAÐ var í kvöld um 72 menn sem
látist hafa af völdum fimbulkulda og
fannfergis í Bandaríkjunum síðustu
daga. Iskaldir vindar hafa blásið
ofan af heimskautasvæðum og hörð-
ust hafa frostin orðið í Wisdom og
Butte í Montana, 46 stiga frost í
Wisdom og 41,6 stig í Butte.
Frostharkan hefur verið mikil í
Kanada og á stórum svæðum
Bandaríkjanna. Jafnframt kuld-
unum hefur veðurhæð verið mikil
svo kæligildi vindanna hefur kom-
ist niður í 62 gráður. Almenningur
hefur verið varaður við að vera
lengur úti í einu en 10 mínútur.
Mældist frost allt suður til Dall-
as í Texas, en verst hefur óveðrið
verið í Texas, Missouri, Nebraska,
Kansas, Illinois, Indiana, Kent-
ucky, Ohio og Pennsylvania. í Am-
Bandaríkjastjórn lýsti vel-
þóknun sinni á viðræðum Yass-
er Arafats skæruliðaleiðtoga og
Hosni Mubaraks Egyptalandsf-
orseta í Kairó og kvaðst binda
vonir við að þær yrðu til að Ara-
fat sveigði af braut hryðjuverka
og sannfærðist um að friðar-
samningar innan ramma til-
arillo í Texas mældist mesta frost
frá 1916,18 gráður.
Um stóran hluta Bandaríkjanna
er 25 sentimetra djúpur snjór og í
veðurhamnum í dag komst frostið
í 39 gráður á Celsíus í Caspar í
lagna Heagans Bandaríkja-
forseta um lausn deilunnar í
Miðausturlöndum væru bezta
leiðin til að tryggja hagsmuni
Palestínumanna.
Yitzhak Shamir forsætis-
ráðherra í ísrael sagðist undr-
andi og harmi sleginn yfir því
að Mubarak tók á móti Arafat
Wyoming, sem er met fyrir des-
ember þar í borg. Eldri kuldamet
hafa ýmist verið slegin eða jöfnuð
í 33 stórborgum víða um Banda-
ríkin í vetrarhörkunni síðustu
daga.
þar sem „Arafat og hans
menn hefðu dansað á götum
Beirút" eftir morðið á Anwar
Sadat fyrrum forseta Egypta-
lands. Palestínuleiðtogar, sem
aðsetur hafa í Damaskus, for-
dæmdu Arafat fyrir að fara
til fundar við Mubarak og
sögðu hann hafa brotið gróf-
lega samþykktir þjóðarráðs
Palestínumanna, sem bannað
hefði öll samskipti við Egypta
eftir Camp David-samkomu-
lagið.
Israelskir embættismenn
fullyrða að fundurinn muni
ekki hafa áhrif á sambúð ís-
raela og Egypta, en fundurinn
er talinn til marks um batn-
andi sambúð PLO og Egypta.
Mjög vel fór á með Arafat og
Mubarak er þeir hittu frétta-
menn í fundarlok.
Öfgasamtök shíta, sem að-
hyllast Khomeini erkiklerk í
íran, lýstu ábyrgð á hendur
sér á sprengjutilræði við
stöðvar franska friðargæzlu-
liðsins í morgun, þar sem 20
óbreyttir borgarar og einn
franskur hermaður týndu lífi.
Tugir óbreyttra slösuðust og
16 hermenn. Var vörubifreið
hlaðin sprengiefni ekið inn í
stöðvar franska gæzluliðsins.
Samtökin veittu frönsku og
bandarísku gæzluliðunum 10
daga frest til að yfirgefa Líb-
anon. Þau lýstu ábyrgð á
samskonar tilræðum við
stöðvar Bandaríkjamanna og
Frakka fyrr í vetur.
Stjórn Gemayels kom sam-
an til fundar um ástandið í
Líbanon og hvaða aðgerða
væri þörf til að sporna við
nýjum ögrunum hryðju-
verkamanna. Weinberger
varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna sagði „meiriháttar"
tilraun hafa verið gerða til að
fá fleiri ríki til að senda frið-
argæzluliða til Líbanon en um
15 hefðu þegar hafnað bón-
inni. Bettino Craxi forsætis-
ráðherra Ítalíu gaf í skyn í
dag að ítalir drægju gæzlulið
sitt frá Líbanon ef frekari
óöld brytist þar út.
Sjá vettvangsgrein, „Ekki
blasir framtíðin björt við
Arafat“, á bls. 10.
Fékk skaðabætur vegna
misheppnaðs sjálfsmorðs
New York, 22. deseraber. AP.
GEÐSJÚKLINGI, sem ætlaði að fremja sjálfsmorð
fyrir 6 árum, hafa verið dæmdar 650.000 dollara bæt-
ur. Það kemur í hlut borgarjárnbrautanna að inna
þessa greiðslu af hendi.
Er mál sjúklingsins var tekið fyrir í dómstólum
varð niðurstaðan sú, að járnbrautarlestin, sem
hann varpaði sér fyrir með sjálfsmorð að augna-
miði, hefði átt að stansa áður en hún ók yfir hann.
Sjúklingurinn, Milo Stephens, missti annan
handlegginn og annan fótinn í sjálfsmorðstilraun-
inni. Otlimamissirinn kom þó ekki í veg fyrir aðra
sambærilega tilraun hans í fyrra. Þá slapp hann
nær ómeiddur.
Kuldar valda dauða
72 í Bandaríkjunum
New York, 22. desember. AP.