Morgunblaðið - 23.12.1983, Side 2

Morgunblaðið - 23.12.1983, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983 Finnsku vöruskiptakartöflurnar: 5—15% dýrari en bjóðast ann arsstaðar í dag ÚTIMARKAÐUR verndaða vinnustaöarins í Hrísalundi, sem rekinn er frá Vistheimilinu Sólborg, stendur þessa dagana á göngugötunni á Akureyri. Þar selja þroskaheftir ýmiss konar varning, sem þeir hafa unnið í vetur, svo sem bastvörur, kerti og ýmislegt fleira. Er þarna um mjög vandaða vinnu að ræða, enda mikil aðsókn í hluti sem þar eru á boðstólum. Frumvörp til fjárhagsáætlana fyrir árið 1984: Útsvör í Hafnarfirði lækki úr 11,88% í 10,5% Áfram 10,5 á Seltjarnarnesi, fasteignagjöld lækka „ÞAÐ ER algengt að aðrir aðilar sjái um innflutning kartaflna, sérstak- lega þegar um kaup frá austurblokk- inni er að ræða. Heildsalar hafa oft haft milligöngu um innflutning það- an. I þessu tilviki eru kaupin tengd sölu dilkakjötsins sem Sambandið hefur með að gera og svo koma skipamálin þarna inní; ég reikna með að þeir flytji þetta sjálfir,“ sagði Gunnlaugur Björnsson forstjóri Grænmetisverslunar ríkisins í sam- tali við Morgunblaðið er hann var inntur eftir því hvort það væri ekki óalgengt að aðrir aðilar en Græn- metisverslunin sæu um innflutning kartaflna, en, eins og sagt var frá hér í blaðinu á fimmtudag, hefur SÍS milligöngu um innflutning kartaflna frá Finnlandi sem keyptar voru í skiptum fyrir íslenskt dilkakjöt. Gunnlaugur sagði, að Grænmet- isverslunin væri raunverulegur kaupandi kartaflnanna, enda dreifingaraðili þeirra hér á landi, en SÍS fengi sín umboðslaun með samningum við seljandann úti. Aðspurður um verð kartaflnanna sagði Gunnlaugur að þær væru 5—15% dýrari eftir sendingum, hingað komnar, miðað við þær kartöflur sem Grænmetisverslun- in hefði verið að kaupa að undan- förnu annars staðar frá. Sagði hann að Grænmetisverslunin hefði sett þau skilyrði að þær SALA lceland Seafood, dótturfyrir- tækis Sambandsins í Bandaríkjunum fyrstu II mánuði ársins nemur 112,9 milljónum dollara eða rúmlega 3,2 milljörðum íslenzkra króna. Á sama tíma í fyrra nam salan 92,1 milljón dollara. Er það aukning, sem nemur 22,6%. í magni nemur salan 39.100 lestum en á sama tíma í fyrra var hún væru keyptar á svipuðu verði og aðrar kartöflur. Við samanburð- inn þyfti að hafa það í huga að búist væri við hækkun kartafln- anna eftir því sem á veturinn líð- ur, en finnsku kartöflurnar koma til landsins í janúar, febrúar og mars. Aðspurður hvort útboð færi fram á flutningi þessara kartaflna eins og við kaup á kartöflum fyrr í vetur, sagði Gunnlaugur að svo væri ekki. Grænmetisverslunin keypti þessar kartöflur hingað komnar og verðsamanburðurinn færi fram á cif-verði þeirra þann- ig að lækkun flutningsgjaldanna fyrr í vetur kæmi óbeint til góða við þessi kaup nú. Finnsku kart- öflurnar eru af „rekord", „sabina" og „binté" tegundum sem Gunn- laugur sagði að væru svipaðar að gæðum og þær kartöflur sem nú væru á markaðnum, samkvæmt þeim sýnishornum sem komið hefðu. Gunnlaugur sagði einnig að með kaupum á þessum finnsku kartöflum væri séð fyrir kartöflu- neyslu landsmanna fram til vors og þá sagðist hann vonast til að hægt yrði að fá nýjar kartöflur, jafnvel á lægra verði en nú væri hægt að fá þær á. Þessi 2100 tonn sem keypt hafa verið af Finnum kosta 3.787 þúsund norskar krónur sem samsvara 14 milljónum ís- lenskum. 32.200 lestir. Nemur sú aukning 21,4%. Guðjón B. Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood, sagði í samtali við Morgunblaðið, að birgðastaðan í þorskafurðum væri í lægra lagi en öðrum afurð- um nokkuð eðlileg. Birgðir af Útsvarsprósenta í frumvarpi til fjárhagsáætlunar Hafnarfjarðar fyrir árið 1984 er 10,5% en hún var í ár 11,88%. Þá er og reiknað með þorskflökum væru í lágmarki en birgðir af þorskblokk eðlilegar, það er, dygðu til að fleyta fyrirtækinu yfir það tímabil, sem minnst fram- leiðsla er hér heima, það er í des- ember og janúar. Ekki væru neinar umframbirgðir hjá fyrirtækinu. Hann taldi að fyrirtækið gæti selt meira af fiski fengist hann að | heiman og þá helzt meira af þorskflökum. Aðspurður um það hvort verð- lækkun á fimmpunda pakkningum af þorski hefði skilað sér í sölu- aukningu, sagði Guðjón, að erfitt væri að svara því beint. Skoðun hans væri óbreytt í því, að lækkun hefði verið óhjákvæmileg ráðstöf- un til að koma í veg fyrir áfram- haldandi minnkandi markaðshlut- deild íslands á þessum markaði. Verðmunurinn hefði aldrei verið orðinn meiri og lækkun því óhjá- kvæmileg. Það þyrfti ekki snjallan reiknimeistara til að sjá, að með því að selja vöruna nokkuð eftir hendinni, þó það kostaði eitthvað lægra verð, væri það hagkvæmara en að liggja með vöruna mánuðum saman. Vextirnir einir væru fljótir að éta upp mismuninn. Þá sagði Guðjón, að hann myndi varla eftir harðari verðsamkeppni á þessum markaði og því miður hefði neyzla dregizt heldur saman á síðustu tveimur árum í stað þess að aukast eins og menn hefðu von- azt til. Hann væri þó heldur bjart- sýnn á það, að næsta ár gæti orðið hagstætt. Mikil vinna hefði verið lögð í kynningu nýrra afurða, 49 tegundir alls og vonir stæðu til að hún skilaði sér fljótlega í aukinni sölu. lækkun á fasteignagjöldum. í frum- varpi til fjárhagsáætlunar Seltjarn- arness er reiknað með að útsvars- prósentan verði áfram 10,5%. Þar er og áætlað að gefa hæsta leyfilega afslátt á fasteignagjöldum íbúðar- húsnæðis, þ.e. 25% í stað 20% eins og nú er. Fasteignagjöld í Hafnarfirði eru áætluð 0,4% á árinu 1984, þau eru nú 0,421%. Á atvinnuhúsnæði eru þau áætluð 1% í stað 1,15% eins og nú er. Á Seltjarnarnesi er áætluð álagning fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði 0,375% í stað 0,4%. Er með því gefinn hæsti leyfilegi afsláttur, þ.e. 25%, en í ár nam hann 20%. Fasteignagjöld á at- vinnuhúsnæði verða áfram 1%. Fyrsta umræða um frumvarp til fjárhagsáætlunar Seltjarnarness fór fram í fyrradag. Niðurstöðu- tölur fjárhagsáætlunarinnar eru liðlega 73 millj. kr. að sögn Sigur- geirs Sigurðssonar bæjarstjóra á Seltjarnarnesi, sem er um 45% hækkun frá síðasta ári. Sigurgeir sagði ennfremur, að á komandi ári yrði aðaláherslan lögð á að lag- 37 ÁRA gamall starfsmaður ís- bjarnarins í Reykjavík hefur verið úrskurðaður í gæzluvarðhald fram á aðfangadag að kröfu Rannsókn- arlögreglu ríkisins vegna rann- sóknar á mointum stuldi á fiski úr frystihúsinu. Forráðamenn Isbjarnarins fóru fram á við RLR að meintur þjófnaður á fiski yrði rannsak- aður og beindist grunur að starfsmanninum. Þá krafðist RLR í gær gæzluvarðhalds yfir 38 ára gömlum manni, sem grunaður er um að hafa keypt fiskinn, en Sakadómur hafði ekki tekið afstöðu til kröfunnar í gærkvöldi. Rannsóknin beinist meðal annars að því að kanna hvort fiskurinn hafi verið seldur úr landi, en grunur leikur á að svo sé. færa slæma fjárhagsstöðu bæjar- ins, þannig að framkvæmdir yrðu litlar. Eignabreytingar myndu lækka í krónutölu og eins framlög til verklegra framkvæmda. Þá sagði Sigurgeir að haldið yrði áfram að gefa elli- og örorkulíf- eyrisþegum afslátt af eigin íbúð- arhúsnæði. Frumvarp til fjárhagsáætlunar Hafnarfjarðar fyrir árið 1984 var lagt fram á fundi bæjarráðs í gær. I frumvarpinu er reiknað með, að sameiginlegar tekjur ársins 1984 verði 268,8 millj. kr. Rekstrargjöld eru 233,2 millj. kr. Útgjöld til eignfærðrar fjárfestingar eru áætluð 41,9 millj. kr., á móti koma 17,7 millj. kr. sem framlög ríkis- sjóðs. Einar Halldórsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar sagði í viðtali við blm. Mbl. í gær, að bæjarsjóður stæði nú þokkalega. Bærinn væri vel staddur hvað varðar áhvílandi skuldir og því vildu menn koma til móts við bæjarbúa á þrengingar- tímum og láta þá njóta þessarar stöðu. Starfsmaður ísbjarnarins er grunaður um að hafa selt að minnsta kosti tvö tonn af fiski, einkum ýsuflök, sem höfðu verið unnin til útflutnings. Tveir menn voru í yfirheyrslum hjá RLR í gærkvöldi vegna rann- sóknar málsins. Strokufangi gómaður MAÐUR sá sem strauk úr hegn- ingarhúsinu á Skólavörðustíg í síðustu viku náðist í gær. Hann hafði verið úrskurðaður í gæzlu- varðhald að kröfu Rannsóknar- lögreglu ríkisins vegna síbrota. Brauð handa hungruðum heimi: Lokaátakið verður í dag SÉRSTAKT átak veróur gert í dag í Landssöfnun lljálparstofnunar kirkjunnar, Brauó handa hungruó- um hcimi. Um sex milljónir króna hafa þcgar safnast en Hjálpar- stofnunin býst vió aó fjölmargir vilji gera skil í dag og hafa verió geróar sérstakar ráóstafanir til aó auóvelda fólki aó koma af sér baukum og framlögum. í Reykjavík verða söfnunarbíl- ar við stórverslanir og á Lækj- artorgi. Einnig verða söfnunar- bílar í miðbæ Akureyrar, ísa- fjarðar og Keflavíkur. Söfnunar- bauka verður vitjað á heimilum m.a á Grundarfirði, Flateyri, Eskifirði, Reyðarfirði og Rauf- arhöfn. Milli kl. 18 og 21 í kvöld mun kirkjan á öðrum þéttbýlisstöðum hafa opna móttöku á söfnunar- baukum og framlögum, annað- hvort við kirkjudyr eða við versl- anir. Fermingarbörn og æskulýðs- félög kirkjunnar ásamt fjöl- mörgum sjálfboðaliðum aðstoða við söfnunina og móttöku söfn- unarfjár, segir í fréttatilkynn- ingu frá Hjálparstofnun kirkj- unnar. Iceland Seafood Corporation: 22,6% söluaukning það sem af er árinu Gætum selt meira af þorskflökum, fengjust þau að heiman, segir Guðjón B. Ólafsson Fiskhvarf úr ísbirninum til rannsóknar hjá RLR Starfsmaður úrskurðaður í gæzlu og krafa sett fram um gæzlu yfir 38 ára gömlum manni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.