Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 14

Morgunblaðið - 23.12.1983, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983 AMERÍKA PORTSMOUTH/NORFOLK Bakkafoss 10.jan City of Hartlepool 19.jan Bakkafoss 30. jan City of Hartlepool 8. febr NEW YORK Ðakkafoss 9. jan City of Hartlepool 18. jan Bakkafoss 29. jan City of Hartlepool 7. febr HALIFAX City of Hartlepool 5. jan City of Hartlepool 22. jan BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Eyrarfoss 18. des. Álafoss 8. jan. Eyrarfoss 15. jan. FELIXSTOWE Eyrarfoss 19. des. Eyrarfoss 2. jan. Alafoss 9. jan. Eyrafoss 16. jan. ANTVERPEN Eyrarfoss 20. des. Eyrarfoss 3. jan. Álafoss 10.jan. Eyrarfoss 17. jan. ROTTERDAM Eyrarfoss 21. des. Eyrarfoss 4. jan. Álafoss 11. jan. Eyrarfoss 18. jan. HAMBORG Eyrarfoss 22. des. Eyrarfoss 5. jan. Álafoss 12. jan. Eyrarfoss 19. jan. WESTON POINT Helgey 26. des. LISSABON Skeiösfoss 20. jan. LEIXOES Skeiösfoss 21. jan. BILBAO Skelösfoss 23. jan. NORDURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN Dettifoss 23. des. Dettifoss 6. jan. Manafoss 13. jan. KRIST1ANSAND Dettifoss 27. des. Mánafoss 2. jan. Dettifoss 9. jan. Mánafoss 16. jan. MOSS Dettifoss 23. des. Mánafoss 3. jan. Dettifoss 6. jan. Mánafoss 17. jan. HORSENS Dettifoss 28. des Dettifoss 11. jan. GAUTABORG Dettifoss 28 des. Mánafoss 4. jan. Dettifoss 11. jan. Mánafoss 18. jan. KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 29. des. Mánafoss 5. jan. Dettifoss 12. jan. Mánafoss 19. jan. HEL8INGJABORG Dettifoss 30. des. Mánafoss 6. jan. Dettifoss 13. jan. Mánafoss 20. jan. HELSINKI irafoss 5. jan. GDYNIA iratoss 7. jan. ÞÓRSHÖFN Dettifoss 21. jan. r*-® ■ • J v • n C tr - ■ \ -iJZTl VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka fra REYKJAVlK alla mánudaga frá ÍSAFIRÐI alla þriðjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP Erfiðleikar steðja að Kohl kanslara úr öllum áttum Þótt óánæfya í V-Þýskalandi með handarísku eldflaugarnar hafi e.t.v. ekki orðið jafn mikil og búist var við og öldurnar séu teknar að lægja fer fjarri að framtíðin blasi vandamálalaus við Helmut Kohl kanslara. Óánægjuraddir með stjórnar- hætti kanslarans hafa magnast stig af stigi og nú telja margir að ekki verði lengur unað við núver- andi ástand. Þjóðverjar kunna vel að meta röggsama stjórn, en Kohl stendur frammi fyrir því að jafnvel flokksbræður hans eru ekki sáttir við vinnubrögð hans. Sú árátta Kohl að fresta ákvörðunum hefur verið gagnrýnd. Óánægju veldur að hann telur ríkisstjórnarfundi að mestu til óþurftar, svo og lin- kind í stefnumótun. „Hann vill gera öllum tii hæfis og fyrir vikið fer það orð af honum að hann sé lítils nýtur og aðgerða- lítill kanslari," segir einn flokksbróðir hans. Síðan Kohl tók við hefur hann náð betri tengslum við Washing- ton en fyrirrennari hans, Schmidt. Stefnunni hefur Kohl haldið óbreyttri þrátt fyrir ásakanir um að stríða gegn v-þýskum hags- munum. Tilraun Kohls til að sannfæra almenning um að hann geti fylgt kjarnorkustefnu Bandaríkja- manna um leið og hann styrki tengslin við Rússa hefur ekki tek- ist eins vel. Nýlega vitnaði hann í bréf Yuri Andropov og sagði að þar væri staðfest að Sovétmenn hygðust hefja aftur viðræður um meðal- drægar flaugar. Þessari túlkun var harðlega mótmælt í Moskvu og hann var sakaður um „grófa rangtúlkun". „Ummæli Kohl voru dæmigerð fyrir barnslega einfeldni hans og bjartsýni," sagði einn flokksbróðir hans.“ Kohl hefur látið deilur um fjár- hagsáætlun EBE afskiptalausar. Á leiðtogafundi bandalagsins í Aþenu færðist Kohl undan að leggja fram málamiðlunartillögu til að styggja ekki Thatcher eða Mitterrand. Til að bæta gráu ofan á'svart var Otto Lambsdorff efnahagsráð- herra ákærður fyrir aðild að mútumáli. Kohl hefur sagt að af- sögn Lambsdorffs kunni að verða óumflýjanleg fari mál hans fyrir dómstóla. Á sama tíma hefur Kohl verið harðlega gagnrýndur af sósí- aldemókrötum fyrir að krefjast ekki afsagnar Lambsdorff. Víki Lambsdorff er næsta víst að Franz Josef Strauss sæki fast að komast í embætti Lambsdorffs. Skæðasti keppinautur Kohls er Gerhard Stoltenberg fjármálaráð- herra, sem er sáróánægður með fumkennd vinnubrögð kanslarans, sem stinga í stúf við örugg vinnu- brögð hans sjálfs. Aukist óánægj- an með Kohl og mútuhneykslið er allt eins talið víst að fylgi stjórn- arinnar við Kohl minnki en fylgið við Stoltenberg aukist þegar kanslari verður kjörinn næst. Hangiketið í pottinn og syo á ströndina Miimi, 22. denember. Frá l*óri S. (Iröndal, fréttariUra Mbl. ÞETTA verða hilfgerð brandajól hjá okkur hér í henni Ameríku. Þar sem jóladag ber nú upp á sunnudag er gefið frí á mánudaginn. Venjulega vinnum við annan jóladag. Jólaundirbúningi er nú að ljúka Kanadastjórn krefur Sovétmenn um bætur OtUwa, Kanada, 22. desember. AP. KANADASTJÓRN tilkynnti sovéskum yfirvöldum formlega í dag, að hún krefðist 1,7 milljóna Bandaríkjadollara í skaðabætur vegna kanadískra fórn- arlamba flugslyssins, sem varð þann 1. september sl. er Sovétmenn skutu Boeing-747-þotu kóreska fiugfélagsins niður. Allir farþegar vélarinnar svo og áhöfn hennar, alls 269 manns, létu lífið. Sendiherra Sovétríkjanna í Kanada hafnaði kröfunni alfarið er honum var skipað að koma í utanríkisráðuneytið og taka við henni. Kanadastjórn tilkynnti Sovét- ríkjunum strax eftir árásina, að hún myndi fara fram á skaðabæt- ur vegna þeirra Kanadmanna, sem-r létu lífið. Bótaupphæðin hefur hins vegar ekki verið gerð ljós fyrr en nú með þessari formlegu kröfu. og kunna kaupmenn sér ekki læti, svo vel hefur salan gengið. Stöðugur straumur fólks er hingað að norðan, en þar ríkja nú miklar frosthörkur, eins og skýrt hefur verið frá í fréttum. Sumir koma akandi eftir hraðbrautunum á snjódekkjunum með bílana gráa af salti, aðrir siglandi á bátum og snekkjum. Flestir koma þó flug- leiðis og eru fljótir að fletta sig vetrarklæðunum þegar á flugvöll- inn er komið. Hitastigið hefur ver- ið um 20° gráður á celcius á dag- inn og 10° á nóttunni. Allt er gott að frétta af íslend- ingum hér um slóðir. Sumt náms- fólk og einhleypingar eru flognir heim til Fróns til að eyða þar jól- unum í faðmi fjölskyldu og vina. Hinir, sem eftir eru, hafa undir- búið jólin eins og vanalega og halda þau með svipuðum hætti og þeir gerðu á íslandi. Þeir eru bún- ir að baka, pakka inn jólagjöfun- um og skreyta tréð. Flestir hafa orðið sér úti um hangiket og verð- ur því nú dengt í pottinn. En á jóladag breyta þeir kannski út af íslenskum venjum og fara á ströndina. Gleðileg jól. Myrtu Frakkar Rudolf krónprins í Mayerling? ÚTSENDARAR Frakka myrtu Rudolf krónprins, erfingja austurrísku krúnunnar, sem menn hafa lengi talið að hafi fyrirfarið sér ásamt ást- konu sinni, samkvæmt nýbirtum skjölum Habsborgar-ættarinnar. Lík Rudolfs prins og 17 ára ástkonu hans, Maríu Vetsera, fundust í veiðihúsi í Mayerling skammt frá Vín 1889 og síðan hefur verið deilt um þá opinberu skýringu á atburðinum, að um sjálfsmorð hafi verið að ræða. Síðasta keisaradrottning Austurríkis, Zita, sem er 91 árs gömul, tilkynnti fyrr á þessu ári að skjöl, sem sönnuðu að Rudolf prins hefði verið myrtur, yrðu birt í nýrri ævisögu eiginmanns hennar, Karls keisara, sem lézt á Madeira 1924. Eitt þessara skjala er bréf, sem Rudolf sendi frænda sínum með lýsingu á því hvernig Georges Clemenceau, síðar for- sætisráðherra Frakka (í fyrri heimsstyrjöldinni), hefði hvatt krónprinsinn til að gera stjórn- arbyltingu svo að Áusturríkis- menn gætu rofið tengslin við þýzka keisararíkið og gengið í bandalag með Frökkum. Rudolf prins var kunnur fyrir vináttu í garð Frakka og fyrir- litningu á prússneskri hernað- arstefnu. En þrátt fyrir það og þótt honum fyndist nóg um hve háðir Austurríkismenn voru orðnir Þjóðverjum neitaði hann að verða við áskoruninni. Clem- enceau hótaði þá að myrða hann, segir í bréfinu. Auk þessa bréfs er birt fyrsta skýrsla Vínarlögreglunnar um málið. Þar er talað um „óyggj- andi sannanir fyrir því að krónprinsinn hafi lent í átökum við fjóra tilræðismenn." Zita segir að báðum þessum skjölum hafi verið haldið leynd- um til þess að koma í veg fyrir að sannleikurinn um vináttu Rudolfs prins við Frakka spillti sambúð Austurríkismanna og Þjóðverja. Birting skjalanna hefur vakið efasemdir og jafnvel vantrú í Austurríki. Greifi nokkur sagði: „Þetta eru okkar Hitlers-dag- bækur." Krónprins Rudolf og Vetsera. Nokkrir sagnfræðingar velta fyrir sér þeim möguleika að Zita vilji reyna að má blett sjálfs- morðs af heiðri Habsborgar-ætt- arinnar og greiða fyrir því að eiginmaður hennar verði tekinn í heilagra manna tölu. Ævi Karls keisara hefur verið rann- sökuð um nokkurra ára skeið í Páfagarði með það fyrir augum að gera hann að dýrlingi. En fólk af Habsborgar-ætt- inni í Austurríki harðneitar þessu og segir að keisaradrottn- ingin vilji aðeins kveða niður Mayerling-þjóðsöguna og binda enda á væmnar hugmyndir um atburðinn. (The Times)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.