Morgunblaðið - 23.12.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983
23
einleik með hljómsveitinni á þess-
um tíma. Margir þessara lista-
manna eru í hópi fremstu tónlist-
armanna heims og þeir leika ein-
leik með helztu hljómsveitum.
Mariss Jansons getur ekki boðið
þeim því að slíkt væri ögrun við
Sovétkerfið. Þess vegna koma þeir
ekki til Ósló, segir Farmann.
Síðan segir í greininni: Þegar
Sovétborgari ákveður að verða
kyrr á Vesturlöndum telst hann
ekki lengur vera til í Sovétríkjun-
um. Nafn Vladimir Ashkenazys
hefur verið afmáð í öllum upp-
sláttarritum og það er ekki lengur
með á listanum yfir þá sem hlotið
hafa Tsjaikovskí-verðlaunin. í
Sovétríkjunum er hann ekki leng-
ur til sem persóna. Og Mariss Jan-
sons getur ekki stjórnað hljóm-
sveit með einleikara sem ekki er
til...
Forráðamenn Fílharmóníunnar
í Ósló svara því til að Vladimir
Ashkenazy sé bitur af því að hann
sé ekki ráðinn til að leika einleik í
Ósló (það er verið að tala um þann
píanóleikara sem mest er sótzt
eftir í heiminum nú um stundir).
Önnur röksemd er sú að hljóm-
Vladimir Ashkenazy, sá píanóleikari
sem mest er sótzt eftir í heiminum,
er hvorki til í Moskvu né Ósló.
sveitin hafi ekki ráð á að fá hann
til að leika einleik og því er líka
haldið fram að hann hafi ekki
tíma til að koma. í nóvember var
Ashkenazy fenginn til að leika
Mariss Jansons, honum er fjarstýrt
frá Moskvu.
ásamt Harmóníunni í Björgvin —
þar voru næg fjárráð.
Nú virðist sem Mariss Jansons
sé farinn að örvænta, segir Far-
mann. Til að snúa aftur heim til
Moskvu með sigurbros á vör beitir
hann listamenn frá A-Evrópu,
sem dveljast á Vesturlöndum,
þrýstingi til að fá þá til að leika
með hljómsveitinni í Ósló. Þrýst-
ingurinn felst í því að fjölskyldur
þessara listamanna eru enn á bak
við járntjaldið.
Tímaritið hefur snúið sér til
Jasper Parrotts, sem rekur meiri-
háttar umboðsfyrirtæki fyrir
listamenn á sviði sígildrar tónlist-
ar, Harrison & Parrott í Lundún-
um, og spurt hann álits á þeirri
gagnrýni sem Mariss Jansons hef-
ur orðið fyrir.
„í Sovétríkjunum er menning-
arlíf háð hugmyndafræði ríkis-
valdsins. Sérhver listgrein er póli-
tískt vopn í þágu Sovétkerfisins.
Því er barnalegt að gera ráð fyrir
því að sovézkur hljómsveitarstjóri
geti starfað á Vesturlöndum án
þess að það hafi neikvæð áhrif á
starfsemi viðkomandi hljómsveit-
ar,“ segir Parrott.
Hann segir ennfremur að það sé
ekki einungis í Ósló sem vitað sé
til þess að sovézk yfirvöld hafi
beitt áhrifum sínum í gegnum sov-
ézka hljómsveitarstjóra. Um slíkt
séu einnig nýleg dæmi frá Japan
og Austurríki.
„Sovézkir listamenn vilja kom-
ast til útlanda," segir Parrott, af
því að það hjálpar þeim á iista-
brautinni og vegna þess að þar fá
þeir hærri laun en heima fyrir. En
brottfararleyfi fá þeir ekki ókeyp-
is. Gos Koncert og menningar-
málaráðuneytið gera kröfu til þess
að stjórna listamönnum sínum í
einu og öllu. M.a. þýðir þetta að
sovézkur hljómsveitarstjóri er
skyldugur til að senda allar tón-
leikaskrár og gera grein fyrir
hverju smáatriði hjá Gos Koncert
til að fá samþykki þeirra. Eðli
málsins samkvæmt getur sovét-
listamaður ekki aðhafzt neitt sem
fellur ekki í kramið hjá Gos Kon-_
cert,“ segir Parrott.
Spurningu um það hvort Fíl-
harmónían í Ósló sé þar með kom-
in undir stjórn sovézkra aðila
svarar Parrott á þá leið að stjórn
hljómsveitarinnar hafi verið
nægilega saklaus til að áskilja sér
ekki rétt til að ráða hvaða lista-
mann sem er hvort sem Jansons
líkaði það betur eða verr.
Jólagjöfin í ár
Þaö er sama hvaöa starf þú vinnur, vöövar veröa stífir og þreytuverkur kemur. Clairol
líkamsnuddtækiö er ráö viö því. Nudd mýkir haröa vööva og eykur blóöstreymiö.
Þreytuverkir hverfa og vellíöan streymir um líkamann. Clairol líkamsnuddtæknu fylgja
fjórir mismunandi nuddpúöar.
Jólatilboð kr. 1200.
Þetta er tæki sem enginn veröur þreyttur á.
Kálfavöövarnir eru
oft mjög stífir. þá er
sérlega gott aö
nudda.
10. og 11.
Fram og afturvöövar
læris eru notaöir á
hjóli, skíöum og viö
gang. ________
Nuddaöu alla lengdina
meö hringhreyfingum.
14.
Vöövar á sitjandanum
rýrna oft hjá þeim sem
sitja mikiö. Reglulegt
nudd örvar vöðvana.
Til þess aö losna viö \
aukakíló um mjaómir, '
sitjanda og læri þá er
best aö stunda æfingar
ásamt nuddi auk léttr-
ar faaöu.
4.
Djúpu hálsvöóvana er
ekki haagt aö sjá né finna
meö höndunum, en
Clairol nuddtækió nær
til þeirra og mýkir þá.
7.
Þessir vöövar tengj-
ast undir hendina og
geta verió þraut
þreyttum þeim sem
hafa krampa eöa litió
notaöa vööva. einnig
geta þeir veriö aumir
eftir stifa megrun.
Nuddíö hressir þá
heldur betur viö.
8. \
Best er aö renna nudd- \
tækinu hér i sveiqjur
eftir mittinu og minnk-
ar þaó fitu.
K
3.
Hja þeim sem sitja mikió
eru axla- og hálsvöövarnir
oft aumir. Þessir vöövar eru
oft þandir eins og fióki-
strengir. Nudd á þessa
vööva fjariaagir þreytu og
verki á skammri stund.
5.
Vöövar tengdir
heróablaöinu veróa
oft aumir ef iþróttir
eru stundaóar
oreglulega
6.
Best er aó nudda
axlavöövana meö
hringhreyfingu. .
Svæöanudd á iljunum
gerir öllum likamanum
gott, best er þá aö nota
Clairol fótanuddbaóiö
fyrir iljarnar.
Efri bakvöövarnir
bæöi mýkjast og
styrkjast viö nudd.
Skipholt 19, sími 29800.