Morgunblaðið - 24.12.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1983
Seðlabankabyggingin:
Fjögur tilboð bárust
í glugga og álkápu
— eitt frá íslenzku fyrirtæki, þrjú frá
vestur-þýzkum í samvinnu við íslenzk
FJÖGIIR tilboð bárust í glugga nýju Seðlabankabyggingarinnar og álkápu á
hluta byggingarinnar. Kitt tilboðanna er frá Gluggasmiðjunni í samvinnu við
sænskt fyrirtæki, en hin þrjú eru frá vestur-þýzkum fyrirtækjum í samvinnu
við íslenzk. Tilboðin eru öll í kringum 30 millj. kr. en það er ekki langt frá
kostnaðaráætlun.
Lægsta tilboðið er frá Glugga-
smiðjunni, 30,1 millj. kr., sem er
frávikstilboð, en aðaltilboð
Gluggasmiðjunnar var hins vegar
næsthæst eða 33,2 millj. kr.
Hæsta tilboðið, 33,4 millj. kr., er
frá Koller í Vestur-Þýzkalandi í
samvinnu við ístak. Hin tilboðin
sem eru á milli lægsta og hæsta,
eru frá Feldhaus Fenster und
Fassaden í Vestur-Þýzkalandi í
samvinnu við íslenzka fyrirtækið
Töggur hf. og Georg Glos, einnig í
Vestur-Þýzkalandi, í samvinnu við
Blikksmiðjuna Vog.
Að sögn Stefáns Þórarinssonar
hjá Seðlabankanum var lögð
áhersla á það í útboðinu, að inn-
lendi hluti verksins yrði sem
stærstur. Á næstu dögum verða
hinir ýmsu þættir tilboðanna at-
hugaðir og bornir saman og sagði
Stefán að á þessu stigi væri ekki
hægt að segja um, hvert þeirra
væri hagkvæmast.
Verk þetta innifelur gler og
gluggakarma í alla nýbygginguna
og álkápu á hluta hennar, þ.e. á
fimm hæða skrifstofubyggingu.
Gluggakarmar verða úr áli og er
gert er ráð fyrir lituðu og sér-
staklega styrktu gleri á neðstu
hæð.
Orgeltónleikar
í Kristskirkju
BJÖRN Steinar Sólbergsson heldur
orgeltónleika í Kristskirkju, Landa-
koti, annan dag jóla klukkan 18.
Á efnisskránni eru verk eftir
Bach og frönsku tónskáldin
Dupré, Messiaen og d’Aquin.
Björn stundar nám í orgelleik í
París um þessar mundir en nam
áður orgelleik í Rómaborg.
Myndin sýnir aðstæður, þar sem bifreiðin hrapaði fram af klettunum.
Ljósm.: Jón Svavarsson.
Bifreið hrapaði 15—20 metra:
Móðir haföi nýtekið
barn sitt úr bílnum
HONDA-bifreið gereyðilagðist
þegar hún hrapaði 15 til 20 metra
niður af klettabeltinu við Vatna-
garða og niður á athafnasvæði
Kimskipafélags Islands við Sunda-
höfn. Ung kona var á bifreiðinni
og lagði henni við Vatnagarða.
Hún var með ungbarn í bílstól í
aftursæti bifreiðarinnar og hugðist
skreppa frá og sinna erindum sín-
um.
Á leiðinni snerist henni hugur
og sótti barn sitt og sinnti erind-
um sínum. Skipti það engum
togum að skömmu síðar rann
bifreiðin af stað og hrapaði fram
af hamrabeltinu og gereyðilagð-
ist. Atburðurinn átti sér stað á
þriðja tímanum í gær.
Mynd Mbl. Jón Svavarsson
Gjaldeyrisöflun landsmanna eftir atvinnugreinum:
Hlutur þjónustugreina
fer stöðugt vaxandi
— Mestur samdrátturinn í sjávarafurðum
HLUTIIR þjónustu í gjaldeyrisöflun
landsmanna hefur farið mjög hratt
vaxandi síðustu árin, sem sést bezt á
því, að hlutur þjónustunnar var
23,3% árið 1980, 26,5% árið 1981 og
á árinu 1982 var hlutfallið komið upp
í 35,1%. Þessar upplýsingar er að
finna í Hagtölum iðnaðarins, sem
Félag íslenzkra iðnrekenda gefur út.
Hlutur „vara“, þ.e. sjávaraf-
urða, iðnaðarvara, landbúnaðaraf-
urða og annarra vara hefur hins
vegar á sama tíma farið minnk-
andi. Hlutur „vara“ var 76,7% árið
1980, 73,5% árið 1981 og var komið
niður í 64,9% á síðasta ári.
Ef einstakir þættir eru skoðaðir
kemur í ljós, að aðalsamdráttur-
inn er í sjávarafurðum, en hlutur
þeirra var 57,5% árið 1980 og
reyndar sá sami 1981, en féll síðan
niður í 48,7% á síðasta ári. Hlutur
iðnaðarvöru hefur hins vegar ver-
ið breytilegur. Var 16,6% árið
1980, 14,2% árið 1981 og síðan
14,5% á síðasta ári.
Hlutur landbúnaðarafurða hef-
ur stöðugt farið minnkandi síð-
ustu árin. Á árinu 1980 var hlutur
landbúnaðarafurða um 1,3%, árið
1981 var hlutur þeirra í heildinni
kominn niður í 1,0% og á síðasta
ári var hlutdeild landbúnaðaraf-
urða um 0,8%. Hlutur svokallaðra
annarra vara var 1,3% árið 1980,
0,8% árið 1981 og 0,9% árið 1982.
í þjónustunni gefa samgöngur
mest af sér, en hlutur þeirra í
heildinni var 10,7% árið 1980, var
síðan 13,6% árið 1981 og síðan
17,5% á síðasta ári. Gjaldeyrisöfl-
un vegna varnarliðsins hefur einn-
ig farið vaxandi. Hlutur varnar-
liðsins í heildinni var 5,7% árið
1980, 5,6% árið 1981 og síðan 8,3%
á síðasta ári. Aðrir liðir eru minni.
Safnaði fé á
fölskum forsendum
MAÐUR var handtekinn í Þingholtunum í gær þegar hann var að safna fé á
fölskum forsendum; kvaðst vera á vegum Hjálparstofnunar kirkjunnar að
sækja söfnunarbauka. „Maðurinn kom til mín og kvaðst vera að reka á eftir
fólki þar sem það hefði trassað að leggja fé inn á banka úr söfnunarbaukum
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Hann falaðist eftir fé, en ég sagði að maðurinn
minn hefði farið í banka og lagt féð inn á banka,“ sagði Ragnheiður
Davíðsdóttir, lögreglukona í samtali við Mbl. en hún lét vita af ferðum
mannsins, sem síðan leiddi til handtöku hans.
„Ég gerði mér grein fyrir að það Ragnheiður við. Maðurinn hafði
var maðkur í mysunni og lét því safnað saman eitthvað um 800
lögregluna vita og maðurinn var krónum þegar hann var gómaður.
handtekinn skömmu síðar," bætti
Dregið í síma-
happdrættinu
DREGIÐ var í gær hjá borgarfóg-
eta í Símanúmerahappdrætti
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra. Dregið var um 6 F’IAT Uno-
bifreiðar og komu upp eftirtalin
númer; 96-44189, 91-25536, 91-
39519, 92-2538, 91-10750 og 96-
25822. (Birt án ábyrgðar.)
Tilmæli þjóðkirkjunnar:
Tendrum friðarljós í kvöld
ÞJÓÐKIRKJAN hvetur alla lands-
menn til þess að tendra friðarljós í
kvöld, aðfangadagskvöld, klukkan
níu. Að menn haldi á lifandi Ijósi
úti við glugga, fyrir utan dyr eða
hvar sem það helst ber fyrir sjónir
nágrannans, sem tákn um vináttu
og frið við alla menn fjær og nær.
Þessi athöfn er þáttur í friðarjól-
um, sem nú eru haldin víða um
heim í annað sinn.
Upphaf friðarjólanna má
rekja til hreyfingar sem hófst í
borgarhverfi í Genf í Sviss á að-
fangadagskvöld árið 1979. Söfn-
uðir kaþólskra og mótmælenda
höfðu byggt þar saman kirkju-
miðstöð. Eitt af hinum sam-
eiginlegu verkefnum safnaðanna
var að endurbyggja sjúkrahús.
Til þess að lýsa samstöðu sinni
var ákveðið að tendra samtímis
jólaljósið á heimilum umrætt
aðfangadagskvöld. Var það gert
JÓL 1983
Friðarloginn, tákn friðarjólanna.
þannig að fólkið hélt ljósinu út
að glugganum og lét það lýsa út
til nágrannans.
Þessi einfalda og látlausa at-
höfn hafði geysileg áhrif. Óper-
sónulegt og drungalegt borgar-
hverfi ummyndaðist á svip-
stundu. Jólaljósið og uppljómun
borgarhlutans greip hugi manna
og staðfesti samstöðu sem
myndast hafði. Á næstu jólum
gerðist hið sama. Hreyfingin um
friðarjólin náði brátt mikilli út-
breiðslu og líknarþjónustan varð
víðtækari. Nú hafa allar kirkju-
deildir lýst áhuga á þátttöku
sinni.
Alþjóðlegar stofnanir, eins og
Alkirkjuráðið og ýmsar stofnan-
ir Sameinuðu þjóðanna, hafa
veitt stuðning til þess að „ljósa-
keðja friðarins umvefji heiminn
á aðfangadagskvöld," eins og
segir í frétt frá Þjóðkirkjunni.
Að lokum er rétt að minna
fólk á að fara varlega með log-
andi ljós, sérstaklega í gluggum,
því eldhættan leynist alls staðar.