Morgunblaðið - 24.12.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1983
27
Myndin að ofan er tekin í Amsterdam á dögunum er
mikill eldur kom upp í næturklúbbi í hinu svonefnda
„rauða hverfi" borgarinnar. Þrettán manns létu lífið í
brunanum og sést eitt fórnarlambanna liggjandi á
bakinu við neyðarútgang.
Fleiri lík fínnast
Madrid, 23. desvmber. Al*.
Slökkvilirtsmenn fundu í dag lík
tveggja pilta í rústum diskóteksins,
sem brann í Madrid um síóustu
helgi, og er tala þeirra sem fórust í
brunanum því komin í 81.
Líkin tvö fundust í lyftuhúsi og
er talið að piltarnir hafi kafnað er
þeir reyndu að brjótast út úr
brennandi skemmtistaðnum í
miðborg Madrid.
Haldið er áfram leit að stúlku
sem saknað er. Eigendur og fram-
kvæmdastjóri diskóteksins, „Al-
cala 20“, voru settir á bak við lás
og slá meðan rannsókn á eldsvoð-
anum stendur yfir. Slysið er eitt
hið mannskæðasta á Spáni á þess-
ari öld.
Flúðu til V-Berlínar
Berlín, 23. des. AI\
TVEIR austurþyzkir landamæra-
verðir flýóu til Vestur-Berlínar
snemma í morgun med því að synda
yfir Teltow-skurðinn á mörkum
austur- og vesturhluta borgarinnar.
Þetta er fyrsti flóttinn, sem tek-
izt hefur frá Austur-Berlín frá því
í september sl., en þá tókst fjórum
Austur-Þjóðverjum að komast
heilu og höldnu til Vestur-Berlín-
ar.
Þremur skipum sökkt
STYRJÖLD írana og íraka hefur
harðnað síðasta sólarhring, á iandi,
sjó og í lofti. írakar segjast hafa
sökkt þremur írönskum herskipum
og Iranar segjast hafa skotið niður
eina íranska herdugvél.
Báðir aðilar beittu stórskotaliði
í átökum á víglínunni sem er 1,180
km löng. írakar sögðust hafa fellt
27 frana og íranar kváðust hafa
fellt 25 íraka.
Talsmaður írönsku herstjórnar-
innar sagði að tveimur írönskum
herskipum hefði verið eytt þegar
þau sigldu frá smáeynni Khor
Mousa skammt frá hafnarborg-
inni Bandar Khomeini. Þriðja
herskipi írana var sökkt þegar það
var á leið til Bandar Khomeini.
íranskar orrustuflugvélar skutu
niður frakska MIG-23-herþotu
syðst á vígstöðvunum. Borgin
Basra á suðurvígstöðvunum varð
fyrir harðri árás stórskotaliðs ír-
ana og borgin Abadan, einnig á
suðurvígstöðvunum, varð fyrir
harðri stórskotaliðsárás íraka.
Talsvert tjón varð á olíumann-
virkjum og í íbúðarhverfum í Aba-
dan.
Falsari dæmd-
ur í góðverk
Noel, Mis.souri, 23. desembcr. AP.
TIIGIR fjölskyldna stóðu í bið-
röð til að fá ókeypis nýlenduvör-
ur, leikfóng og fot á kostnað auð-
ugs kaupsýslumanns, sem féllst
á að veita snauðum ýmsar góð-
gjörðir í stað þess að dúsa í fang-
elsi fyrir ávísanamisferli.
Kaupsýslumaðurinn, Donald
O’Brien, játaði að hafa misnot-
að sjóði bankans í Noel, sem
hann er einn aðaleigandi að.
Hlaut hann skilorðsbundinn
dóm, sem m.a. gerði O’Brien að
veita 100 fátækum fjölskyldum
í McDonald-sýslu, sem er
dreifbýlishérað í Missouri,
ýmsan glaðning.
Samtals verður O’Brien að
leggja út 90 þúsund dollurum í
þessu skyni. Verður hann að
borga um 45 kíló af matvörum
fyrir hverja fjölskyldu, þar af
20 kíló af skinku. Einnig verð-
ur hann að leggja út fyrir
leikföngum og fatnaði að upp-
hæð 300 dollara á fjölskyldu,
og loks verður hann að greiða
hverri fjölskyldu sem svarar
500 dollurum vegna kostnaðar
við vetrarkyndingu.
Bankarán á Jótlandi
kolding, 23. deuember. Al\
LÖGREGLA leitaði í dag með að-
stoð þyrlu að bankaræningja, sem
sleppti tveimur gíslum í morgun á
Suður-Jótlandi.
Bankaræninginn skaut a.m.k.
tveimur skotum þegar hann rændi
útibú Den Danske Bank í Frede-
ricia. Engan sakaði og gíslarnir
voru heilir á húfi þegar þeim var
sleppt.
Ostaðfestar fréttir herma að
bankaræninginn hafi komizt und-
an með tvær milljónir danskra
króna.
Ræninginn fór með gísla sína,
bankavörð og starfskonu útibúsins
burtu í blárri Fiat Ritmo-bifreið.
Hann sleppti þeim síðan í Kolding
hálfri klukkustund síðar. Bíllinn
fannst yfirgefinn í nágrenninu
skömmu síðar.
Samkvæmt óstaðfestum frétt-
um óskaði bankaræninginn gísl-
unum gleðilegra jóla þegar hann
lét þá lausa.
Fyrr á þessu ári kynnti bankinn tölvuþjónustu fyrir húsfélög, sem hefur
mælst mjög vel fyrir.
Nú bjóðum við, enn með fulltingi tölvunnar okkar, nýja GIRO inn-
heimtuþjónustu.
Hún er sérstaklega sniðin fyrir þá sem þurfa að innheimta húsaleigu, félags-
gjöld, áskriftargjöld og önnur afnotagjöld með reglulegu millibili.
rwáðgé^
tölvan
fyrir Þj9?
1. Hún skrifar út A-GIRO seðil sem sendur er til greiðenda. Giro-
seðilinn má síðan greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Einn
hluti seðilsins er kvittun til greiðanda og ber með sér skýringu á greiðslu.
2. Hún getur breytt upphæðum í samræmi við vísitölur og reiknað
dráttarvexti, sé þess óskað.
3. Eigandi innheimtu getur fengið stöðulista skrifaðan úr tölvunni.
Hann upplýsir m.a. hverjir eru búnir að greiða og hvenær síðast var greitt.
GIRO innheimtuþjónustan er enn ein þjónustunýjungin frá Verzlunar-
bankanum, kynntu þér hana. Upplýsingar eru fúslega veittar á öllum
afgreiðslustöðum bankans.
UŒZlUNflRBANKINN
Bankastræti 5 Grensásvegi 13 Umferöarmiöstööinni Vatnsnesvegi 13, Keflavik Húsi verslunarinnar,
Arnarbakka 2 Laugavegi 172 v/Hringbraut Þverholti, Mosfellssveit nýja miöbænum
AUK hf Auglysingastofa Kristínar 43 52