Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984 15 Ljóam. Mbl./FriAþjórur. Björn Fridfinnsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga (t.v.), og Alexander Stefánsson, félagsmálaráðherra, undirrita samstarfssáttmálann. Við hlið félagsmálaráðherra situr Hallgrímur Dalberg, ráðuneytisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu. Samstarfssáttmáli ríkis og sveitarfélaga SAMSTTARFSSÁTTMÁLI ríkis og sveitarfélaga var undirritaður í gær af þeim Alexander Stefánssyni, fé- lagsmálaráðherra, og Birni Frið- finnssyni, formanni Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. í fyrstu grein sáttmálans, sem gildir til ársloka 1985, segir að að- ilar séu sammála um að ríki og sveitarfélög samræmi, eftir því sem kostur er, stefnu sína í opin- berum rekstri með það fyrir aug- um að ná efnahagsmarkmiðum ríkisstjórnar og Alþingis hverju sinni. Þá segir enfremur að sam- starfið felist í reglulegum sam- ráðsfundum og gerð sameigin- legra yfirlýsinga, þar sem ríkis- stjórnin hafi frumkvæði um nánar tiltekin atriði í löggjöf eða stjórn- arframkvæmd, en Samband ís- lenskra sveitarfélaga fylgi nánar umsaminni stefnu í eigin fjármál- um. Reglulegir samráðsfundir verða haldnir tvisvar á ári, í lok apríl og í októberlok. Af hálfu ríkisins sitja félagsmálaráðherra, fjár- málaráðherra, heilbrigðismála- ráðherra og menntamálaráðherra fundina, en fyrir hönd sveitarfé- laganna 223 situr stjórn Sam- bands íslenskra sveitarfélaga samráðsfundina. Samráðssáttmáli þessi er byggður á fyrirkomulagi sem tíðk- ast hefur í Finnlandi frá 1975. BÚR: „Aflaleysi verður ekki um kennt“ sagði borgarfulltrúi Alþýðuflokksins við umræður í borgarstjórn Á fundi borgarstjórnar Reykja- víkur á fimmtudag komu málefni Bæjarútgerðar Reykjavíkur til um- ræðu. Sigurður E. Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, sagði m.a. að Ijóst væri að hvorki almenn aflatregða né heldur svo- kölluð lög um kvótaskiptingu væru nægileg rök fyrir stöðvun togaraflota BUR og að hann teldi að hrikaleg mistök hefðu átt sér stað í þessu efni, sem ekki yrðu eingöngu skrifuð á reikning fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, held- ur miklu fremur á reikning borg- arstjóra og formanns útgerðar- ráðs. Gerði hann tillögu um að borgarstjórn samþykkti að fela framkvæmdastjóra BÚR að senda þá togara fyrirtækisins, sem til- búnir væru, þá þegar til veiða. Ragnar Júlíusson, borgar- fulltrúi og formaður útgerðar- ráðs BÚR, minnti á það í máli sínu að allir flokkar hefðu staðið að þessari ákvörðun í útgerðar- ráði. Kvaðst hann ekki skilja fullyrðingar Sigurðar um að aflaleysi væri ekki um að kenna, heldur ætti aðeins að herða sóknina. Tölur um afla togar- anna töluðu sínu máli, en hann hefði verið á bilinu 23 tonn til 100 tonn eftir 14 daga úthald. Nefndi hann sem dæmi afkomu Ingólfs Arnarsonar sem fór á veiðar 27. desember og kom inn aftur 9. janúar sl. Tapið af þeirri ferð hefði numið 1.670.750 krón- um þegar vextir og afskriftir væru reiknaðar með, en afla- verðmætið hefði numið rétt um 597 þúsund krónum. Nauðsyn- legt væri að stýra veiðum og vinnslu en það markmið væri loksins að komast í framkvæmd. Ráðlegra væri að leggja skipun- um þegar aflaleysi ríkti og veð- ur væru vond fremur en í sumar þegar von væri um betri aðstæð- ur. Kvað hann Sigurð þverskall- ast við öllum þeim upplýsingum sem honum væru gefnar varð- andi þetta mál. Þrettán borgarfulltrúar studdu frávísunartillögu Sjálfstæðisflokksins á tillögu Sigurðar með þeim rökum að út- haldi togara BÚR verði ekki stýrt frá degi til dags af borgar- stjórn Reykjavíkur. Slíkt væri verkefni framkvæmdastjórans að höfðu samráði við útgerðar- ráð. Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, gerði grein fyrir at- kvæði sínu þannig, að þar sem fyrir lægi að fyrsti togarinn héldi út til veiða á föstudag (í gær) og síðan hver af öðrum næstu daga og stefnt væri að því að vinna í fiskiðju BÚR verði komin í fullan gang fyrir næstu mánaðamót, teldi hann ekki ástæðu til samþykktar í borgar- stjórn um málið. Sjávarútvegsráðuneytið: Ekki er skylt að taka á móti loðnuafla í réttri löndunarröð sé loðnan nýtt til hrognatöku MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá sjáv- arútvegsráöuneytinu um breytingu á reglugerð um löndun á loðnu. Til- kynningin er dagsett 18. janúar: Sjávarútvegsráðumeytið hefur í dag gefið út reglugerð um breyt- ingu á reglugerð um löndun á loðnu til bræðslu, frystingar og hrognatöku. Samkvæmt breytingu þessari er vinnslustöðvum nú ekki skylt að taka á móti loðnuafla í réttri lönd- unarröð, þegar loðnan er nýtt til hrognatöku. Skipstjórar veiðiskipa skulu þó eftir sem áður tilkynna afla til loðnunefndar en geta sérstaklega ef afla skal landað til hrognatöku, ennfremur skal tilkynnt frá vinnslustöðvum um þróarrými fyrir loðnu, sem ekki er nýtt til hrognatöku. Stjórnendur vinnslustöðva og útgerðarmenn loðnuskipa skulu fyrir lok janúar gera loðnunefnd grein fyrir hvernig þeir hyggjast standa að tillögum um veiðar á loðnu til hrognatöku og vinnslu þeirra. Reglugerðarbreyting þessi, sem gerð er í samráði við útgerðar- menn, sjómenn og vinnsluaðila, er gerð í því skyni að auðvelda skipu- lag loðnuveiða til hrognatöjcu og vinnslu hrogna þannig að sem mest af hrognunum nýtist til vinnslu og gæði þeirra verði sem mest. Að lokum skal lögð áhersla á að breyting þessi tekur ekki til gild- andi reglna um löndun á loðnu, sem eingöngu fer til bræðslu eða til frystingar. Vinsælustu bíltæki í heimi TS 162Dx Hátalarar 16 sm. Niöurfelldir, tvöfaldir. TS 106 Hátalarar 10 sm. Passa i fiestar gerðir bíla. Innfelldir eöa niöur- 40—20.000 Hz, 20 W. Verð kr. 990.- stk. felldir. 50—16.000 Hz, 20 W. Verð kr. 880,- stk. PIONEER HLJÖMBÆR .. HVERFISGOTU 103 HLJOM'HEIMIUS-SKRIFSTOFUTÆKI SÍMI 25999 KP 3230 Útvarpskassettutæki LW/MW/FM STERÍÓ. Sjálfvirk endurspólun. Hrað- spólun í báöar áttir. Verð kr. 7.110.-. KP 4230 Útvarpskassettutæki. LW/MW/FM STERjÓ. Spilar báöum megin. „PNS“- truflanaeyöir. ,ATSC“-öryggiskerfi. „ARC lll“ „Loud ness“. Verð kr. 8.470.-. TS 1655 Hátalarar, NÝTT 16 sm. Niöurfelldir, þrefaldir. 30—20.000 Hz. 90 W. Verð kr. 2.160.- etk. KE 8300 Útvarpskassettutæki, NÝTT LW/MW/FM STERÍÓ. Spilar báöum megin. „Dolby Metal", Sjálfvirkur lagaleitari, „Loudness“ o.fl. Verð kr. 16.260.-. KE 4300 Útvarpskassettutæki LW/MW/FM STERÍÓ. Fast stöövarval. „ARC“ stjórn- ar móttökustyrk. Spilar báðum megin. „Loudness", „PNS“. Verð kr. 12.230.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.