Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.01.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1984 Þakkarávarp Hjartans þakkir færi ég öllum elskulegum vinum mín- um og vandamönnum fyrir heimsóknir, skeyti, símtöl og gjafir, á 85 ára afmœlinu, 20. janúar 198U. Guð blessi ykkur öll. Þórhildur Jóhannesdóttir, Fíladelfíu. Gefjun AKUREYRI Verð frá kr. 1984 289.800 Hagstæðir greiðsluskilmálar MUNIÐ AÐ VARAHLUTAÞJÓNUSTA OKKAR ER í SÉRFLOKKI Bifreiðar og Landbúnaðarvðlar hf Suðurlandsbraut 14 - Simi 38 600 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SVEIN SIGURÐSSON Pol Pot á.samt skæruliðum Rauðra khmera. Myndin var tekin skömmu eftir að Víetnamar steyptu af stóli stjóminni í Phnom Penh. Víetnamar komnir í ógöngur í Kambódíu Fimm ár eru nú liðin siðan víetnamska hervélin steypti af stóli hinni alræmdu stjórn Rauðra khmera í Kambóidíu til að koma þar á „friði og framförum“. Ástandið er að vísu skárra en þegar morðingjar Pol Pots héldu landsfólkinu i járngreipum en þrátt fyrir það er framtíðin ekki björt fyrir Kambódíumenn. Horfur eru á að til nýrrar hungursneyðar komi á þessu ári og enn falla ungir menn í skæruhernaðinum, sem fer vaxandi með ári hverju. Flóttafólk frá Kambódiu segir margar sögur um kúgun víetnömsku herranna, sem nú ráða landinu, og embætt- ismanna stjórnarinnar i Phnom Penh, en þær eru þó ekkert á við það sem var eftir valdatöku Rauðu khmeranna. Landsmönn- um hefur t.d. aftur verið leyft að rækja trú sina og gamla siði og í höfuborginni, Phnom Penh, er margt það látið viðgangast, sem annars er bannað í kokkabókum kommúnista. „Ástandið er að sjálfsögðu miklu betra en á valdadögum Rauðu khmeranna, en það væri þó enn betra ef fundist hefði pólitísk lausn á málum þjóðar- innar," sagði vestrænn sendi- maður. „Ef það hefði orðið, hefði ekki staðið á alþjóðlegri hjálp við landið." Með pólitískri lausn er átt við brottflutning vietnamska her- liðsins, 150—170.000 mana, en það er hins vegar greinilega ekk- ert á förum. Samfara auknum skæruhernaði hefur víetnamska setuliðið gripið til æ harkalegri aðgerða gegn almenningi úti á landsbyggðinni, sem grunaður er um að styðja skæruliða. íbúar í heilu þorpunum hafa flúið und- an víetnamska innrásarliðinu og leitað hælis á þeim svæðum, sem skæruliðar ráða, eða yfir landa- mærin til Thailands. Þegar Víetnamar réðust inn í Kambódíu var svo illa komið fyrir kambódísku þjóðinni, að hún hugsaði um það eitt að kom- ast hjá hungurdauða, en nú, þeg- ar aftur hefur hægst um, lifnar hatrið, sem lengi hefur ríkt á milli þessara tveggja þjóða. Ví- etnamar eiga mesta sök á því. Bæði er, að þeir koma fram við landsmenn eins og undirsáta sína og, sém verra er, þeir eru sjálfir farnir að setjast að í land- inu. Stjórnin í Phnom Penh gef- ur upp töluna 40.000, en sérfræð- ingar í málefnum Kambódíu telja fjöldann vera einhvers staðar á bilinu 150—200.000. Þurrkatíminn er nú að ganga í garð í Kambódíu og ber öllum heimildum saman um, að Víet- namar séu nú að undirbúa nýja sókn á hendur skæruliðum, lík- lega þá mestu frá því að þeir réðust inn í landið. Miklum vopnabirgðum hefur að undan- förnu verið skipað upp úr sov- éskum skipum í Kompong Som, skriðdrekum, brynvögnum og stórskotaliðsvopnum, og hafa þau verið flutt að landamærun- um við Thailand, þar sem átta af ellefu herfylkjum Víetnama eru nú niðurkomin. Skæruliðahreyfingarnar í Kambódíu eru þrjár, Rauðir khmerar, sem eru stærsta fylk- ingin og hafa nærri 50.000 manns undir vopnum, Hvítir khmerar, sem eru andkommún- ísk samtök, og fylgismenn Si- hanouks, fyrrum fursta og ráða- manns í Kambódíu. Flestir telja, að Víetnamar ætli að freista þess nú að ráða niðurlögum tveggja síðasttöldu hreyf- inganna en láta Rauða khmera eiga sig að sinni. Tilgangurinn með því er augljós. Víetnamar vilja gjarnan koma því þannig fyrir, að andspyrnan í landinu verði eingöngu af hálfu Rauðra khmera, sem alþýðan í landinu minnist ekki fyrir annað en morð og glæpaverk. Skæruliðar vita hins vegar á hverju þeir eiga von og þeir eru ekki vanir því að leyfa Víetnöm- um að ráða átökunum. Þess vegna munu þeir forða sér á burt, til Thailands eða annarra landshluta, og bíða þess að sókn Víetnama renni út í sandinn. Ástandið í Kambódíu er mjög alvarlegt um þessar mundir og líkur á nýrri hungursneyð í land- inu. Á styrjöldin sinn þátt í því og ekki síður óhagstætt veður- far, gífurlegar rigningar og flóð annars vegar og miklir þurrkar hins vegar, og rotturnar taka svo líka sinn toll. Landbúnaðar- stofnun SÞ telur, að á þessu ári muni vanta 300.000 tonn af korni til að þjóðin geti brauðfætt sig og skorturinn á áburði og skor- dýraeitri má heita algjör. Mat- argjafir og önnur alþjóðleg hjálp, sem var mikil fyrst eftir fall Pol Pot-stjórnarinnar, er nú sáralítil og stjórnin í Phnom Penh eingöngu komin upp á að- stoð Sovétmanna og fylgiríkja þeirra. Rússar hafa hins vegar ekki orð á sér fyrir að bregða skjótt við til hjálpar nema hern- aðarlegir hagsmunir þeirra séu í veði. Víetnamar eru komnir í ógöngur í Kambódíu, fastir í feni og komast hvorki fram né aftur. Engin von er til um, að þeir vinni þar hernaðarlegan sigur, þvert á móti fer andstaðan dag- vaxandi gegn þessari nýju herra- þjóð, sjálfum erfðafjendum Kambódíumanna. Um það ber skýrast vitni aukinn flótti stjórnarhermanna yfir í raðir skæruliða. Frá síðasta sumri er t.d. vitað um 2.000 hermenn, sem hafa hlaupist undan merkjum, en fram til þess tíma skiptu þeir aðeins nokkrum tugum eða hundruðum. Kostnaðurinn við að halda úti 150—170.000 manna herliði er að sjálfsögðu gífurlegur og þungur baggi á víetnömsku þjóðinni. Kínverjar neyða svo Víetnama til að hafa annan eins her á landamærunum við Kína. Á meðan hrakar efnahag og at- vinnuvegum Víetnama og það er langt í frá, að landið geti brauð- fætt þegna sína, þetta land, sem einu sinni var hrísgrjónaforða- búr Suðaustur-Asíu. Heimildir: AP, Observer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.