Morgunblaðið - 26.01.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.01.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1984 Fyrsti viðskipUvinur Sparisjóðs Hafnarfjaröar fær afhentan gjaldeyri í gærdag. Það er Ingimar Haraldsson, deildarstjóri gjaldeyrisdeildar, sem afhendir Jóhanni Petersen, skrifstofustjóra Sjóvá, feröagjaldeyri. MorgunblaAið RAX. Sparisjóðir hófu gjald- eyrisviðskipti í gærdag FIMM sparisjóöir hófu gjaldeyris- viöskipti í gærdag, en þaö voru Sparisjóöur Hafnarfjarðar, Spari- sjóöur Reykjavíkur og nágrennis, Sparisjóöur vélstjóra, Sparisjóöur- inn í Keflavík og Sparisjóöur Mýra- sýslu, að sögn Guðmundar Guð- mundssonar, sparisjóðsstjóra Spari- sjóös Hafnarfjaröar. „Við munu fara hægt af stað og auka gjaldeyrisviðskipti okkar jafnt og þétt. Þessi breyting á starfi sparisjóðanna er óneitan- lega til mikilla bóta fyrir við- skiptavini þeirra, sem ekki hafa getað fengið gjaldeyri afgreiddan hingað til nema í tveimur bönk- um,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins munu aðrir stærri sparisjóðir landsins fylgja í kjöl- farið á næstu mánuðum og taka upp gjaldeyrisviðskipti. Ólafsvík: Kostnaður við ormatínsluna 4,4 milljónir kr. Ólafsvík, 24. janúar. UNDANFARNA mánuði hefur mikil vinna verið hjá fiskverkun- arstöðvunum við að ormhreinsa saltfisk. Nú hefur öll framleiðsla síðasta árs farið í gegnum þessa skoðun og er Ijóst, að kostnaður- inn er afar mikill. Stofnlánadeild landbúnaðarins: Fimmtán sóttu um FIMMTÁN manns sóttu um starf forstööumanns Stofnlánadeildar landbúnaöarins, aö því er Stefán Valgeirsson, formaöur stjórnar Stofnlánadeildarinnar, sagði í sam- tali við blaöamann Morgunblaðsins í gær. Stefán sagði ekki unnt að svo stöddu að gefa upp nöfn umsækj- enda, en sumir þeirra hefðu óskað nafnleyndar. Nýr forstöðumaður mun taka við störfum af Stefáni Pálssyni, sem nýlega var ráðinn bankastjóri Búnaðarbanka ís- lands, svo sem kunnugt er af frétt- um. Jón Sigurðarson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, talar fyrir tillögu um stór- iðju við Eyjafjörö á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag. Nær 80 bæjarbúar sátu fundinn, sem er óvenjulegt á Akureyri — yfirleitt sitja aöeins tveir blaðamenn á áheyrendabekkjum. Morpinbi^>i*/G.B«rg. — segir Lev Alburt, stórmeistari sem kom hingaö til lands í gær ásamt landa sínum Shamkovich „ÉG KR ákaflega ánægður aó vera kominn hingaö til lands. Ég náöi að bera sigur úr býtum á Reykjavík- urskákmótinu 1982. Það var ákaf- lega ánægjulegur sigur — bæöi mór- alskt séð og eins fjárhagslega. Kn hvort ég næ að endurtaka sigurinn frá 1982 er fullkomlega óvíst — raunar verð ég ánægöur ef ég næ einhverju af efstu sætunum," sagöi Lev Alburt, hinn landflótta Sovét- maður í samtali við Mbl. í gær, en hann kom hingað til lands í gær ásamt landa sínum, stórmeistaranum Shamkovich. Þeir tefla á skákmóti Búnaðarbankans og Reykjavíkur- skákmótinu. „Reykjavíkurskákmótið hefur skipað sér veglegan sess í skák- heiminum. Hingað koma öflugir skákmenn og því er mikill heiður að bera sigur úr býtum. Ég hef í vaxandi mæli snúið mér að skák- blaðamennsku. Skrifa í New York Tribune og hef því ekki getað sinnt skákinni eins og ég hefði viljað. En Tveir landflótta Sovétmenn — Lev Alburt til vinstri og Leonid Shamkovich, yfir tafli á Hofi í gær og Shamkovich hefur við hlið sér bók sína, sem nýkomin er út. Morgunblaðiú/KÖE. vonandi er ég hungraður í sigur — verð ferskur og næ mér vel á strik,“ sagði Lev Alburt. í dag verður dregið um töfluröð í skákmóti Búnaðarbanka Islands og verður 1. umferð tefld á morgun á Hótel Hofi. Þær breytingar hafa orðið á mótinu, að Friðrik ðlafsson hefur hætt við þátttöku og Bragi Kristjánsson einnig. Þeirra skörð fylla Sævar Bjarnason og Jón Kristinsson. Meirihlutasamstarfið á Akureyri ekki í hættu — þrátt fyrir klofninginn í stóriðjumálinu Akureyri, 25. janúar. FORMLKGT meirihlutasamstarf vinstri flokkanna í bæjarstjórn Akur- eyrar mun ekki í hættu þótt meiri- hlutinn hafi klofnað í afstöðunni til stóriðju við Eyjafjörð. Á bæjarstjórnarfundi hér í gær greiddu fulltrúar Kvennaframboðs og Alþýðubandalags atkvæði gegn tillögu um stuðning við byggingu álvers við Eyjafjörð en tillagan hlaut stuðning fulltrúa Framsókn- arflokks og Sjálfstæðisflokks, eins og frá var greint í Morgunblaðinu í dag. Við upphaf meirihlutasam- starfsins var bókaður í málefna- samningi samstarfsflokkanna ágreiningur um afstöðuna til stór- iðju — þeir voru m.ö.o. sammála um að vera ósammála í þessum málaflokki, eins og þá var sagt. í blaðinu Degi hér á Akureyri, sem út kom í dag, segist þó Val- gerður Bjarnadóttir, forseti bæjar- stjórnar og bæjarfulltrúi Kvenna- framboðsins, vera hálf miður sín yfir þessari álverssamþykkt en tel- ur að hún skemmi ekki meirihlut- ann. Sigríður Stefánsdóttir, full- trúi Alþýðubandalagsins, segist þar harma stuðning framsóknar- manna við þessa tillögu og Jón Sigurðarson, fulltrúi Framsóknar, tekur fram að flokkarnir hafi gengið óbundnir til samstarfsins varðandi afstöðu til stóriðju. Sig- urður J. Sigurðsson, einn bæjar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, telur hins vegar að úrslit máls þessa sýni þann veikleika vinstri meiri- hlutans að flokkarnir geti ekki verið samstíga í atvinnuuppbygg- ingu bæjarfélagsins. Hrói hf. í Ólafsvík, sem á síð- asta ári verkaði 1150 tonn af salt- fiski, hefur látið gera úttekt á kostnaðinum. Var sú úttekt gerð hjá Sölusambandi íslenskra fisk- framleiðenda (SÍF). Samkvæmt stærðarskiptingu voru þetta alls um 900 þúsund fiskar. Gefnar for- sendur eru að þriðjungur fiskanna hafi verið ormalaus en hinir hlut- arnir með fjóra orma pr. fisk og tvo galla að auki. Kostnaður Hróa hf. vegna ormatínslunnar verður Verkfall á miðnætti í álverinu SAMNINGAFUNDUR í kjaradeilu starfsmanna álversins í Straumsvík og viðsemjenda þeirra stóð til mið- nættis án þess að samkomulag tæk- ist. Smærri hópar deiluaðila voru boöaðir aftur til fundar klukkan níu í morgun og svo almennur fundur aftur kl. 17 í dag, að því er Guölaug- ur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöld. „Þetta hefur gengið hægt og er varla hægt að segja að sé komið á rekspöl," sagði Guðlaugur. „Við höfum í dag og kvöld skipulagt vinnuna og skipt aðilum í smærri hópa, til að fjalla um einstök mál. Matarhlé var gert hér milli kl. 21 og 22 í kvöld en svo vinnum við til miðnættis." Takist samningar ekki i dag eða kvöld má að óbreyttu búast við að verkfall skelli á í álverinu á mið- nætti. skv. úttekt þessari 4,4 milljónir og skiptist þannig: 2,0 milljónir í launakostnað, 1,6 milljónir í aukavaxtakostnað vegna tafa, 0,6 milljónir í viktar- tap vegna tafa og 0,2 milljónir í kælikostnað. Þetta eru háar tölur en tæplega vanmetnar. Samkvæmt fréttum frá Vestfjörðum er ormafjöldi þar tvöfaldur á við það, sem reiknað er með hjá Hróa hf. og væri eðlilegra að reikna með þeirri tölu fyrir Breiðafjarðarsvæðið, sem er þekkt að miklum ormi í fiski. Göngufiskur vertíðarinnar er sem betur fer nokkuð hreinn en sumar- og haustfiskur getur verið svo þakinn að þunnildi þurfi að skera frá í miklum mæli. Trúlega mætti því tvöfalda launakostnað- inn í áætluninni og auka viktar- tapið. Þess má geta, að hér er mjög mikið um sel og má segja, að hvar sem komið sé í fjöru megi koma auga á einn eða fleiri seli á svamli. — Helgi. Tvö erlend við veiðar við landið TVÖ ERLEND fiskiskip eru nú við veiðar hér við land, samkvæmt upplýsingum er blaðamaður Morgunblaðsins fékk hjá stjórn- stöð Landhelgisgæslunnar. Um er að ræða togara frá Belgíu, og voru þeir að veiðum á Reykjanesgrunni síðast er til þeirra sást. —G.Berg. „Er ánægður ef ég næ einu af efstu sætunum*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.