Morgunblaðið - 26.01.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.01.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 1984 35 starfsfélaga, en óhætt er að full- yrða, að þjóðin öll syrgir þá og þakkar mikilvæg störf þeirra. Af hálfu Slysavarnafélags Islands er þeirra minnst sem starfsfélaga, er unnu með félaginu að björgun- arstörfum, þegar þeir hlýddu kalli frá því og beiðnum um björgunar- og sjúkraflug, oft við hinar erfið- ustu aðstæður. Ætíð, þegar skil- yrði voru fyrir hendi, var slíkum beiðnum vel tekið og málin tekin föstum og öruggum tökum. Þessir menn og félagar þeirra hjá Land- helgisgæslunni hafa svo sannar- iega átt sinn stóra þátt i að sýna fram á, hve mikilvæg björgunar- tæki þyrlur geta verið, ekki síður hér en annars staðar. Jafnframt því sem Slysavarna- félag Islands minnist allra fram- angreindra manna með þakklæti og virðingu hlýtur það sérstaklega að minnast Björns Jónssonar, flugstjóra. Auk þess að vera tengdur félaginu á ofangreindan hátt vegna samstarfs í björgun- armálum var hann og lengi virkur þátttakandi i félagsstarfinu. Hann var um hríð í stjórn slysavarna- deildarinnar Ingólfs í Reykjavik og einnig um skeið í aðalstjórn Slysavarnafélagsins. Hann hafði lifandi áhuga á slysavarna- og björgunarmálum og lagði þar margt gott til mála. Var málflutn- ingur hans jafnan rökfastur og drengilegur. Það var félaginu mik- ill fengur að hafa hann í sinni for- ystusveit, einmitt á fyrstu árum þyrluflugs hér á landi. Hann var fyrsti þyrluflugmaður landhelg- isgæslunnar og flaug manna mest fyrstu þyrlunum, sem hingað voru keyptar og SVFÍ átti að hálfu á móti ríkinu. Ávann Björn sér óskorað traust og virðingu allra landsmanna fyrir störf sín á þess- um vettvangi, enda sýndi hann ætíð mikla hæfni og öryggi í öllum sínum gerðum. Hann hafði og óbilandi trú á þessum nýja þætti í björgunarmálum okkar og hafði brennandi áhuga á eflingu hans til frambúðar. Innan félags okkar naut hann mikilla vinsælda og þakklætis fyrir mikilvæg braut- ryðjandastörf á þessu sviði. Til marks um það má geta þess, að á fimmtugsafmæli hans fyrir rúm- um tveimur árum var hann sæmd- ur þjónustumerki félagsins úr gulli. Þessa mæta og trausta fé- laga okkar er sárt saknað. öllum aðstandendum, vinum og starfsfélögum Björns Jónssonar og félaga hans, er fórust með TF- Rán, er hér með voítuð dýpsta samúð og hluttekning. Jafnframt eru færðar fram hugheilar þakkir fyrir fórnfús störf þeirra og mik- ilvægt framlag til íslenskra björg- unarmála. Minning þeirra mun lengi lifa. Maraldur Henrysson Björn Jónsson, flugstjóri, fædd- ist í Reykjavík 10. nóvember 1931, Iést í Jökulfjörðum 8. nóvember 1983 við skyldustörf. Foreldrar: Séra Jón Jakobsson, sóknarprest- ur á Bíldudal, og frú Margrét Björnsdóttir. Bjorn var tví- kvæntur og lét eftir sig konu og þrjú stálpuð börn. Þannig gæti minning. Björns Jónssonar geymst í æviskrám, en hann á merka sögu að baki sem vert væri að minnast. Eins og fyrr getur voru foreldr- ar Björns séra Jón Jakobsson, sóknarprestur á Bíldudal, og frú Margrét Björnsdóttir, hann ætt- aður frá Galtafelli í Hrunamanna- hreppi en hún frá Hvammstanga. Eftir ellefu ára prestsþjónustu á Bíldudal drukknaði séra Jón er skipið Þormóður fórst á Faxaflóa með allri áhöfn. Þá stóð frú Mar- grét uppi ekkja með þrjú börn í ómegð, elstan Björn, ellefu ára. Frú Margrét brá búi og fluttist til Reykjavíkur, sjálfsagt með léttan mal, enda prestslaun þá naumt skömmtuð. Hverri konu reynist ærinn starfi að annast þrjú börn á bernskuskeiði, en hér vantaði fyrirvinnu. Það hefði verið and- stætt eðli frú Margrétar að leggja hendur í skaut, enda stofnaði hún lítið fyrirtæki, vann að því með atorku og sá sér og sínum þannig farborða. En hún stóð ekki ein. Þótt Björn sonur hennar væri ungur að árum gerðist hann henni ótrúlega fljótt stoð og stytta. Björn lauk farmannaprófi frá Sjómannaskóla íslands, réðst stýrimaður á farskip og hefði átt vísan frama á þeirri braut. En þá brá hann á það ráð að læra flug í Englandi og starfaði um skeið sem flugmaður í Þýskalandi. Síðar réðst hann til Landhelgisgæslunn- ar og hefur stjórnað þyrlu hennar mörg undanfarin ár. Hún hefur bjargað fjölda manns frá bráðum voða, oft við verstu skilyrði. Og svo kom reiðarslagið vestur í Jökulfjörðum þann 8. nóvember 1983. Við bestu skilyrði hvarf þyrlan Rán með allri áhöfn, fjór- um vöskum mönnum. Einn þeirra var Björn Jónsson. Tveimur dög- um síðar hefði hann orðið 52 ára ef aldur hefði enst. Björn kvæntist Ingu Dóru Guð- mundsdóttur og áttu þau þrjú börn, nú fulltíða. Þau slitu sam- vistir, en Björn kvæntist öðru sinni, Elísabetu Kristjánsdóttur. Systkini Björns eru: Heba, sem á þrjú stálpuð börn og Jakob verk- fræðingur og listmálari. Auk þess átti Björn tvö stjúpsystkini, Hall- dóru og Ingvar flugmann, börn Þorgilsar Ingvarssonar. fslensk þjóð hefur misst mætan starfsmann langt um aldur fram, en nánir ættingjar og venslamenn syrgja ljúfan ástvin, eiginkona, börn, systkini og síðast en ekki síst aldurhnigin móðir. Fyrri mað- ur hennar, séra Jón, hvarf henni í hafið í blóma lífs þeirra, síðari mann sinn, Þorgils Ingvarsson bankafulltrúa, missti hún fyrir tíu árum eftir farsæla sambúð og nú reiðarslagið þyngsta. Frú Margrét er því margreynd kona en óbuguð. Eg leyfi mér að beina til frú Margrétar orðum sem ég heyrði biskup vorn, séra Sigurbjörn Ein- arsson, segja við aldraða móður við líkar aðstæður: „Kysir þú að sonur þinn hefði aldrei fæðst og þú þannig losnað undan sorg þeirri sem þig nú hrjáir?" Svar frú Margrétar yrði hiklaus neitun, enda hugljúfar minningar um ástkæran son henni fjársjóður sem aldrei glatast. Við hjón sendum aðstandendum einlægar samúðarkveðjur. Frú Margréti þökkum við langa og fölskvalausa vináttu, en hún og kona mín eru tryggðavinir allt frá æskudögum. Jón Á. Gissurarson „Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt eins sviplega og nú, og aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“ Matth. Joch. Björn Jónsson fæddist í Reykja- vík 10. nóvember 1931 og vantaði því tvo daga til að vera 52 ára, en hann lézt hinn 8. nóvember síð- astliðinn. Foreldrar Björns voru hjónin séra Jón Jakobsson og Margrét G. Björnsdóttir. Séra Jón fæddist að Galtafelli í Hrunamannahreppi 10. mars 1903, og voru foreldrar hans Jakob Jónsson smiður og bóndi frá Galtafelli og Guðrún Stefánsdótt- ir frá Ásólfsstöðum í Gnúpverja- hreppi. Séra Jón lauk guðfræðiprófi ár- ið 1930. Árið 1932 var hann vígður sóknarprestur í Bíldudalspresta- kalli og gegndi hann því embætti, unz hann lézt í sjóslysi 18. febrúar 1943, tæplega fertugur að aldri. Margrét, móðir Björns, fæddist á Hvammstanga 26. nóvember 1905 og voru foreldrar hennar Björn Þorláksson og Ingibjörg Jónasdóttir. Þau séra Jón og Margrét eign- uðust tvö börn auk Björns — Hebu, bankaritara, og Jakob, verkfræðing og listmálara. Þegar eftir lát séra Jóns, fluttist Margrét ásamt börnum sínum til Reykjavíkur. Nokkrum árum síðar giftist hún Þorgilsi Ingvarssyni, bankafulltrúa. Hann hafði f fyrra hjónabandi eignast þrjú börn, Halldóru húsmóður, Viggó er lézt ungur og Ingvar flugstjóra. Þor- gils lézt árið 1973. Þegar á unglingsárum gerðist Björn vinnufús og var hann móður sinni mikil stoð. Að loknu barna- skólanámi stundaði hann nám í Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Síðan réðst hann til Eimskipafé- lags íslands og var háseti og sfðan stýrimaður á skipum þess frá 1949—1957. Á þeim árum stundaði hann einnig nám í farmannadeild Stýrimannaskóla Islands og lauk þaðan prófi árið 1953. Þar kom, að hugur Björns stefndi inn á aðrar brautir. Hann hætti því störfum hjá Eimskipafélaginu, hélt út til Englands og lauk þar prófi atvinnuflugmanns árið 1958. Síð- an starfaði hann sem atvinnuflug- maður bæði í Englandi og í Þýska- landi um eins árs skeið, hvarf þá heim til íslands árið 1959 og réðst sama ár til Landhelgisgæzlu Is- lands sem stýrimaður og flugmað- ur. Árið 1960 lauk Björn þyrlu- prófi sem atvinnuflugmaður í Bandaríkjunum. Hann hafði mikla trú á því, að þyrlur kæmu að góðum notum hér á landi, bæði til björgunarstarfa og annarra nota, og má með réttu kalla hann forgöngumann á sviði þyrluflugs hér á landi og varð hann fyrsti þyrluflugmaður Landhelgisgæzl- unnar og flugstjóri árið 1965. Björn hafði því starfað hjá Land- helgisgæzlu Islands nokkuð á þriðja áratug, er hann var kallað- ur burt, ásamt félögum sínum, með svo snöggum og sviplegum hætti. Á þessu árabili náði hann að leggja sitt lið við ýmiss konar björgunaraðgerðir bæði til sjós og lands og þá einatt, ásamt sam- starfsmönnum sínum, lagt lff að veði. Björn var tvíkvæntur. Með fyrri konu sinni eignaðist hann þrjú börn, Margréti, fædda 1956, Þor- lák, f. 1962 og Ingunni, f. 1965. Margrét er gift Guðmundi Vigni Óskarssyni, slökkviliðsmanni í Reykjavík, þau eiga tvö börn, Björn Elmar og Ingu Dóru. Þor- lákur er menntaskólanemi, en Ing- unn, sem er yngst, er heima hjá móður sinni. Síðari kona Björns var Elisabet SJÁ NÆSTU SÍÐU + Móöir okkar og tengdamóöir, STEINUNN JÓNSDÓTTIR, Smyrlahrauni 25, Halnarfiröi, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi, föstudaginn 27. janúar kl. 13.30. Guörún Sigurmannsdóttir, Stefán Rafn, Hafdís Sigurmannsdóttir, Myral G. Williams. Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og útför systur minnar, ÖNNU J. LOFTSDÓTTUR, hjúkrunarkonu. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Björn Loftsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför JÓHANNS KRISTJÁNSSONAR frá Bugöusfööum. Systkini hins látna og aörir vandamenn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför EINARS ÁGÚSTSSONAR, stórkaupmanns, Safamýri 65. Sigriöur Einarsdóttir, María Á. Einarsdóttir, Traustí Ólafsson, Einar S. Einarsson, Guöbjörg Einarsdóttir, Valdimar Valdimarsson, Ágúst Einarsson, Hanna Valdís Guömundsd. og barnabörn. + Þökkum af alhug sýnda samúö og vinarhug viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, KRISTINS ÞORSTEINSSONAR. Anna Ágústa Jónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Þórir Ólafsson, Karl Kristinsson, Bjarndís Friöriksdóttir, Guölín Kristinsdóttir, Kristján B. Guöjónsson, Sigríöur Kristinsdóttir, fsak Kristinsson, Tómas Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö andtát og útför eiginmanns mins, fööur, sonar, tengda- fööur og afa, ÞORSTEINS HALLFREÐSSONAR, Gránufálagsgötu 28, Akureyri. Sérstakar þakkir til lögreglumanna á Akureyri og eiginkvenna þeirra fyrir þeirra miklu hjálp. Ásta Baldvinsdóttir, Þorsteinn B. Þorsteinsson, Anna Lára Þorsteinsdóttir, Egill Bragason, Margrét Þorsteinsdóttir, Snorri Bragason, Anna Stefánsdóttir, Hallfreö Sigtryggsson, Ásta Laufey Egilsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö, hlýhug og vináttu viö andlát og útför KRISTINS SVEINSSONAR, Vallarbraut 21, Seltjarnarnesi. Guölaug Sigmarsdóttir, Sveinn Kristinsson, Elin Snorradóttir, Björgvin Sveinsson, Valgeröur Sveinsdóttir, Gunnar Sveinsson, Líney Sveinsdóttir, Snorri Sveinsson, Berglind Sveinsdóttir, Kristinn M. Sveinsson, Nikolína Konráösdóttir, Valgeröur Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.