Morgunblaðið - 31.01.1984, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
Skákmót Búnaðarbankans:
„Með fjármálateóríur
í kollinum en
ekki skákteóríur“
drottningu og hrók
og hvítur hefur heldur betri
stöðu. Áætlun sú sem Sævar vel-
ur er mjög hægfara og hvítur
fær nú rúma og þægilega stöðu.
10. DÍ3 — 0-0, 11. (MH) — c6, 12.
Rc3 — Rd5, 13. Be5 — Rxc3, 14.
Dxc3 — f6
Hvítur hótaði 15. d5.
15. Bg3 - Bd7, 16. Bc4 — b5, 17.
Bb3 — He8, 18. Hhel — Bf8, 19.
Df3 - Kh8, 20. He4! - b4, 21. a4
— Da5, 22. Hh4 — Df5, 23. De2 —
h6
Svartur er án mótspils og get-
ur aðeins beðið eftir hvítu atlög-
unni.
24. Bc4 — Dg6, 25. b3 — Had8,
26. Bd3 — Df7, 27. De4?!
Þessi leikur verðskuldar
spurningarmerki því nú hefði
svartur getað unnið lið með 27 ..
g5!, t.d. 28. Hh3 — f5 og næst
29 ... f4, eða 28 ... e5. Upphróp-
unarmerkið fær leikurinn hins
vegar fyrir að ná þeim tilgangi
sínum að veikja svörtu stöðuna
enn meira.
f5?, 28. De3 — Be7, 29. Hh3 -
Bc8, 30. Be5 — Kg8, 31. Be2 —
Kh7, 32. Bh5 - g6
33. Dxh6+!! — Kxh6, 34. Be2+ —
Bh4, 35. Hxh4+ — Kg5, 36. f4+!í
— Kxh4,37. Hd3 og svartur gafst
upp. Flétta sem flestir héldu að
aðeins gæti komið fyrir í
kennslubókum.
Hvítt: Lev Alburt
Svart: Nick deFirmian
Benoni-byrjun
I. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. g3 —
c5, 4. d5 — exd5, 5. cxd5 — d6, 6.
Rc3 - g6, 7. Bf4 - Bg7, 8. Da4+
Alburt hrærir saman mörgum
afbrigðum gegn Benoni. Þetta
bar þann árangur að deFirmian
eyddi miklum tíma en fékk aftur
á móti góða stöðu.
Bd7, 9. Db3 - Dc7, 10. Rf3 - 04),
II. Rd2 — Rh5, 12. Be3 — f5!
Svartur er reiðubúinn til að
sækja á kóngsvæng.
13. Rc4 - Ra6, 14. Bg2 - Hea8,
15. Bf3 - f4, 16. gxf4 — Rxf4
Hvíti kóngurinn á nú engan
öruggan samastað.
17. 0-0 - Bxc3!, 18. Dxc3 - Bh3,
19. Hfel — Dd8, 20. Khl — b5,
21. Ra5 — Rc7, 22. Dd2 — Dh4,
23. Rb7
Nú var ekki rétti tíminn fyrir
peðaveiðar, heldur hefði hvítur
átt að reyna að treysta varnirn-
ar með 23. Hgl.
He5!, 24. Rxd6 — Rcxd5, 25.
Bxc5?
Hér var bráðnauðsynlegt að
leika 25. Hgl, en Alburt hefur
yfirsézt vinningsfleíta svarts:
Bg2H, 26. Bxg2 — Hh5, 27. h3 —
Rxg2, 28. Dd3 — Rge3! og Alburt
gafst upp, því ein mínúta nægir
svörtum til að máta í stöðunni.
Laugardagurinn var því dagur
fléttna og árása enda var fullt út
úr dyrum á Hótel Hofi á sunnu-
daginn þegar þriðja umferðin
var tefld. Þá náðist enginn vinn-
ingur fyrir bið, en Pia Cramling
hefur gjörunna biðskák gegn
Shamkovich, stúlkan sneri á
gamla manninn í tímahraki eftir
að hafa átt verri stöðu lengst af.
Allt útlit er því fyrir að hún
verði í efsta sæti eftir að bið-
skákir hafa verið tefldar.
Fjórða umferð Búnaðarbanka-
mótsins verður tefld kl. 17 í
kvöld á Hótel Hofi við Rauðar-
árstíg. Þá tefla saman Pia
Cramling og Jóhann, Knezevic
og Shamkovich, Jón Kristinsson
og Sævar, Margeir og deFirmi-
an, Guðmundur og Helgi, Jón L.
og Alburt.
LOFT var Isevi blandið á Hótel Hofi
á laugardag þegar 2. umferð hins
alþjóðlega skákmóts Búnaðarbank-
ans fór fram. Fjöldi áhorfenda fyllti
salinn í kjallara hússins — undir
lokin mátti heyra saumnál detta
þegar Guðmundur Sigurjónsson og
De Firmian náðu mátsóknum í
skákum sínum við Sævar Bjarnason
og Lev Alburt. Kliöur fór um salinn
þegar Guðmundur fórnaöi drottn-
ingu og neyddi kóng Sævars út á
boróið — í kjölfarið fórnaði hann
hrók og óverjandi mát blasti við
Sævari þegar hann lagði upp laup-
ana.
De Firmian átti í miklu tíma-
hraki gegn sigurvegaranum frá
Reykjavíkurskákmótinu 1982 —
Lev Alburt. En hann fann engu að
síður skemmtilega leið til máts og
Alburt játaði sig sigraðan. Jón L.
Árnason lék illa af sér í flókinni
stöðu — misreiknaði sig og tapaði
liði og varð að játa sig sigraðan
aðra skákina í röð.
„Ég var ávallt með trausta
stöðu gegn Jóni L. en hann taldi
sig eiga sleggjufórn á mig, en hún
reyndist feigðarflan," sagði Helgi
Ólafsson. Hann hefur byrjað mjög
vel — hlotið 2 vinninga úr þremur
fyrstu skákunum, en þriðja um-
ferðin var telfd á sunnudag.
„Kæmi mér á óvart
ef ég yrði í einu af
þremur efstu sætunum"
„Ég er mjög ánægður með byrj-
unina í mótinu. Teflt við þrjá
stigahæstu skákmenn mótsins; þá
De Firmian, Alburt og Jón L.
Árnason og hlotið tvo vinninga.
En það er svo sem engin ný bóla
að ég byrji vel — á Reykjavík-
urskákmótinu fékk égóskabyrjun,
Guðmundur fórnaði
Fjöldi manns fylgdist með skákunum um helgina og ríkti mikil spenna
þeirra á meðal, enda margar spennandi skákir tefldar.
en dalaði þegar á leið. Vonandi
tekst mér nú að halda mínu striki.
Það verður hart barist í mótinu
og í sannleika sagt þá kæmi það
mér á óvart ef ég yrði í einu af
þremur efstu sætunum. Ég telfdi
lítið síðastliðið ár — aðeins sjö
kappskákir en náði þó góðum ár-
angri. Hlaut 5‘Æ vinning. Mótið er
ákaflega skemmtilegt. Greinilegt
að menn leggja allt í sölurnar til
þess að ná góðum árangri. Mér
virðist Margeir Pétursson og Jó-
hann Hjartarson í góðu formi og
De Firmian er geysiöflugur,"
sagði Helgi.
Á sunnudag tefldi Helgi við Al-
burt og menn áttu von á hörku-
skák; höfðu í huga mikla baráttu-
skák þeirra á Reykjavíkurskák-
mótinu þegar Alburt vann eftir
skemmtilega skák. Það kom því á
óvart að þeir sömdu jafntefli eftir
Texti: Hallur Hallsson
Skákskýringar: Margeir
Pétursson
aðeins 17 leiki. „Ég vildi ekki taka
áhættu gegn Alburt — er í fremur
lítilli æfingu," sagði Helgi um við-
ureign sína við Alburt.
„Lagði allt í sölurnar"
Pia Cramling syndi á sunnudag
að sigur hennar yfir Jóni L. Árna-
syni í 1. umferð var engin tilvilj-
un. Eftir að hafa gert jafntefli við
Júgóslavann Knezevic í 2. umferð
tefldi hún við bandaríska stór-
Margcir Pétursson þungt hugsi í viðureign sinni við Sævar Bjarnason —
Helgí Óiafsson fylgist með. MorgunblaM/FriAþjórur.
meistarann Leonid Shamkovich í
3. umferð. Hún fékk snemma
slæma stöðu, átti mjög undir högg
að sækja, en í tímahraki tókst
henni á skemmtilegan hátt að
snúa taflinu sér í vil og þegar
skákin fór i bið hefur hún alla
vinningsmöguleika. „Ég gerði mér
grein fyrir því að ég var að tapa
og lagði því allt í sölurnar. Og það
tókst — Shamkovich hafði hug-
ann um of við tímahrak mitt og
missti því af beztu leikjunum og
skyndilega hafði ég náð frum-
kvæðinu. Ég verð að segja að það
kom mér nokkuð á óvart," sagði
Pia Cramling í samtali við blaða-
mann Mbl.
„Fjármálateóríur í kollin-
um en ekki skákteóríur“
Sá íslenzkra skákmanna, sem
hefur komið mest á óvart, er án
efa Jón L. Árnason. Hann hefur
byrjað afleitlega. Tapaði fyrir Piu
Cramling í 1. umferð og Helga
Ólafssyni í 2. umferð. Hann kom í
mótið beint úr prófum, stundar
nám í viðskiptafræðideild Há-
skóla tslands og ef til vill er það
helsta skýringin á slæmri byrjun.
„í sannleika sagt átti ég ekki von
á að byrja vel — má segja að ég
hafi enn fjármálateóríur í kollin-
um en ekki skákteóríur. En von-
andi rætist úr,“ sagði Jón L. í
samtali við blaðamann Mbl.
Þeir fjölmörgu áhorfendur sem
lögöu leið sína á Búnaðarbanka-
skákmótið um helgina fóru ekki
erindisleysu. Baráttan var geysi-
lega hörð og aðeins í tveimur skák-
um af tólf var samið jafntefli á lítið
tefldar skákir. Hápunkturinn var
án efa glæsilegur fórnarsigur Guð-
mundar Sigurjónssonar á Sævari
Bjarnasyni. Fyrst fórnaði Guð-
mundur drottningunni, síðan hrók
og lék svo rólegum leik, en samt
var engin leið fyrir Sævar til að
sleppa úr mátnetinu.
Önnur æsispennandi skák á
laugardaginn var viðureign
tveggja stigahæstu þátttakend-
anna á mótinu, þeirra Lev Al-
burts og Nick deFirmians.
DeFirmian náði snemma sókn-
arfærum, en lenti í geigvænlegu
tímahraki. Hann linaði þó ekki
tökin en þegar Alburt var óverj-
andi mát átti deFirmian aðeins
rúma mínútu eftir á 12 leiki.
Tvær aðrar skákir unnust á
laugardaginn. Nafnarnir Jón
Kristinsson og Jón L. Árnason
áttu slæman dag, lentu báðir
fljótlega í erfiðleikum og töpuðu
fyrir þeim Shamkovich og Helga
Olafssyni.
f þessari stöðu misreiknaði
Jón L. sig herfilega:
Svart: Helgi Ólafsson
Hvítt: Jón L. Árnason
21. Hxd6? — Rxe4!, 22. Rxe4 —
Dxe4
Rf5 og Hd6 standa nú báðir í
uppnámi og eitthvað hlýtur því
undan að láta.
23. Rh6+ - Kh8, 24. Hxe6 -
Hxe6, 25. Bd3 — Rxd3, 26. Rxl7+
— Kg8, 27. Rh6 — Hxh6, 28. Bxh6
— Dg6! og svartur hélt mannin-
um yfir og vann auðveldlega.
Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson
Svart: Sævar Bjarnason
Frönsk vörn
1. e4 - e6, 2. d4 - d5, 3. Rc3 -
Bb4, 4. Rge2!?
Leikur Aljekíns sem alltaf
sézt öðru hvoru.
dxe4, 5. a3 — Be7
Það er ekki lengur mælt með
því að reyna að hanga á peðinu
með 5 .. Bxc3+, 6. Rxc3 — f5.
6. Rxe4 - Rd7, 7. Bf4 — Rgf6, 8.
Dd3 — Rxe4, 9. Dxe4 — Rf6
í frægri skák Mestels og
Renmans á Ólympíumótinu 1980
reyndi svartur virkari áætlun:
9... 0-0, 10. 0-0-0 — c5, 11. Rc3
— Rf6, 12. Del! - cxd4, 13. Be5