Morgunblaðið - 31.01.1984, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
VÉLFLUGFÉLAG ÍSLANDS KYNNIR
NAV.-SYSTEM
LORAN-C
Nýjasta tækni og framtíðarþróun Loran-C flugleiðsögukerfis.
Frummælendur:
William Polhemus verfcfMrá Polhemus and Associates Wermount USA.
Dr. Þorgeir Pálsson verkfr.
Fundarstaður: Hótel Loftleiðir, mið. 1. febrúar 1984 kl. 20.00.
Stjórn VFFÍ
íslenska
hljómsyeitin
Tónlist
Jón Asgeirsson
Þriðju tónleikar íslensku
hljómsveitarinnar voru haldnir í
Bústaðakirkju sl. fimmtudag og
eins og nafnið „Fjöltefli" á tón-
leikunum bendir til, var teflt fram
fjölda verka af ýmsum gerðum.
Tónleikarnir hófust á forleik eftir
Rameau að óperunni Pygmalíon,
sem sögð er ballett í efnisskrá.
Textann samdi Savot nokkur, er
þurfti að heyja einvígi við söng-
geldinginn Caffarelli. Deilan
tengdist „búffastríðinu"
svonefnda, því Caffarelli mun
hafa látið hafa eftir sér að frönsk
tónskáld ættu að stæla ítalska
tónlist til að ná betri tökum á
tónsmíði. Savot var samstarfs-
.ýjffllA 20-70'
UTJMÁ of/láttw
u
n
//
U
Snorrabraut s. 13505 Glæsibæ s. 34350 Miövangi s. 53300 Hamraborg s. 46200
maður Rameau, er á þeim tíma
var forvígismaður franskrar tón-
listar. Hjá Frökkum var óperan
óhugsandi án dansþátta og voru
slíkar óperur oft nefndar óperu-
ballettar. Það sem gæti hér hafa
valdið misskilningi er að nokkru
fyrr hafði Graun samið ballett-
gerð um sama efni. Annað verkið
var frumflutningur á Consertino
fyrir flautu, klarinett og strengja-
sveit, eftir Hallgrím Helgason.
Verkið er í þremur þáttum og
hefst á tilbrigðaþætti. Annar
þátturinn er næturljóð en loka-
kaflinn, eins og stendur í efn-
isskrá, „byggist aðallega á tveim-
ur andstæðum stefjum sem kalla
mætti söngstef og stríðnisstef".
Ritháttur verksins er mjög fjöl-
raddaður, svo mjög að raddirnar
vinna meira gegn hvor annarri en
saman. Oft brá þó fyrir fallegum
köflum, einkum þar sem rithátt-
urinn var hljómrænn og bæði í
öðrum þætti og lokakaflanum var
mikil „dramatísk" spenna. Það er
ekki aðeins að of flókinn radd-
fleygun dragi athyglina frá
grunnhugmyndinni, heldur veldur
andstætt hrynferli hverrar raddar
því að hljóðfallsleg framvinda
verksins verður ekki markviss.
Þriðja atriðið á efnisskránni var
Trompetkonsert eftir Johann F.
Fasch og lék Ásgeir H. Stein-
grímsson einleik á trompet. Ás-
geir er mjög góður trompetleikari,
nýkominn frá námi og hefur nú í
JTlorjjunliInínT>
BRUNABÓTAFÉLAG (SLANDS
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055