Morgunblaðið - 01.02.1984, Side 2

Morgunblaðið - 01.02.1984, Side 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 Átta Icelander ullarverzl- anir í Bandaríkjunum „Ullarflíkurnar eiga langt líf“, segir Dorette Egilsson eigandi verzlananna víða um Bandaríkin Dorette Egilsson og maður hennar, Árni Egilsson, bassa- leikari, reka nú átta verzlanir víðs vegar í Bandaríkjunum undir nafninu The Icelander, en íslenzkur ullarfatnaöur og önnur íslenzk framleiðsla er aðalþátturinn í því sem þessi verzlanahringur býður upp á og á þessu ári hyggst Dorette opna tvær nýjar verzlanir. Fyrsta The Icelander-verzl- unin var opnuð fyrir tveimur árum og í samtali við Morg- unblaðið sagði Dorette að reksturinn gengi mjög vel í öllum búðunum, enda kvaðst hún áætla að hún þyrfti að kaupa íslenzkar ullarvörur hérlendis fyrir 500 þúsund dollara á þessu ári til þess að anna eftirspurn í búðum sín- um, eða fyrir alls 15 millj. kr. Verzlanirnar átta sem þegar starfa eru í Sun Valley og í Ketch- um í Idaho, í Edina og Minneapol- is í Minnesota, í Mammoth Lakes í Californíu, í Seattle í Washington, í Anchorage í Alaska og í Aspen í Colorado. Þá kvaðst Doretta ætla að opna verzlanir á þessu ári í San Fransisco og Utah. „90% af vörunum í búðunum eru íslenzkar ullarvörur," sagði Dorette. „Allt vörur sem ég kaupi frá ýmsum prjónastofum á ís- landi. Það er mikið spurt um ís- lenzka ull, hún er í tízku og er þá alveg sama hvort verzlanirnar eru á skíðastöðum eða í stórborgum, en segja má að verzlanirnar skipt- ist til helminga á sérstaka ferða- mannastaði og stórborgir. Auk ullarvörunnar er ég einnig með nokkuð af framleiðslu Glit og ann- að af íslenzkri framleiðslu sem tengist ferðamannaiðnaði, því segja má að allar búðirnar geri það og einnig er ég með svolítið af öðrum norrænum vörum eins og til dæmis frá Kosta Boda. Hugmyndina að þessum búðum Ljósm. Mbl. RAX. Dorette er byrjuð aó auglýsa ís- lenzka ullarfatnaðinn skipulega og hér eru meðfylgjandi tvær auglýs- ingasíður úr kunnu blaði, Sun Valley Magazine. fékk ég frá Hauki Gunnarssyni í Rammagerðinni. Ég hef í mörg ár haft gaman af að koma inn í Rammagerðina og skoða það sem þar er á boðstólum og einu sinni spurði Haukur með sinni skemmtilegu framtakssemi af hverju ég opnaði ekki slíka búð í Bandaríkjunum. Og það varð úr,“ sagði Dorette, sem er þýzk en tal- ar mjög vel íslenzku þótt hún hafi aldrei búið á íslandi. Hún hefur hins vegar íslenzkan ríkisborgara- rétt eins og maður hennar sem hún kvað aðstoða sig mjög dyggi- lega í verzlanarekstrinum þótt hann hefði mikið að gera í hljóm- listarflutningi í hinum ýmsu upp- tökusölum meðal annars. Dorette stjórnar verzlunum sín- um í gegnum síma, en hún sagðist einnig heimsækja þær nokkrum sinnum á ári. Alls starfa 24 starfsmenn í The Icelander-verzl- „Á skíðastöðunum eru það auð- vitað mest ferðamenn héðan og þaðan sem kaupa íslenzku ullar- vörurnar, en í stórborgunum er það yfirleitt fólk sem vill vandaða hluti og dýra má segja, því ullar- fatnaðurinn er dýr og flokkast að því leyti undir lúxusvöru. íslenzki ullarfatnaðurinn er að ávinna sér traust sem hlýr, vandaður og góð- ur um leið og hann er persónu- legur. Fólk kaupir ef til vill peysu og kemur síðan og bætir vettling- um við eða húfu og þannig mynd- ast samstæður af því að fólk finn- ur að ullarflíkurnar eiga langt líf. Það fólk sem verzlar mest í okkar búðum er á aldrinum 37—65 ára, en einnig eru litaðar lopapeysur nú mjög vinsælar fyrir ungt fólk. Mest selst þó af fóðruðum jökkum, en ég komst fljótt að raun um það að það skiptir máli að hafa við störf f verzlununum fólk sem er þjálfað og þekkir gæði og mögu- leika íslenzku ullarinnar, því það er nauðsynlegt að lýsa þeim kost- um fyrir þeim sem kynna sér það sem er á boðstólum. Nú hef ég fengið eina íslenzka konu til starfa og vænti mikils af því. Mín von er sú að þetta gangi vel áfram og verði bæði mér og íslandi til sóma, íslenzka ullarframleiðslan býður upp á það.“ — »j- Frá The Icelander-verzluninni í Seattle. The The Icelander-verzluninni f Kaliforníu. Frá The Icelander-verzluninni í Alaska. Vinsælu tréklossarnir meö beygjanlegu sólunum komnir aftur, margar nýjar gerð- ir. GEfsfB H

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.