Morgunblaðið - 01.02.1984, Side 5

Morgunblaðið - 01.02.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 37 Njósnamálið skaðar V erkamannaflokkinn Osló, 26. janúar. Fri Jan Erik Lauré, rréttaritara Mbl. áhrif á vinstri flokksvængnum, en í þeim hópi telst Einar Förde varaformaður Verkamannaflokks- ins. Förde og Treholt voru nánir vinir, og Treholt þekkti einnig vel flesta helztu menn flokksins. Hann naut virðingar þeirra flestra og á hann var hlustað þótt ekki væru allir sammála róttækri afstöðu hans í ýmsum málum. Flestir stjórnmálaskýrendur í Osló eru sammála um að afhjúpun um- fangsmikillar njósnastarfsemi Arne Treholts eigi eftir að valda Verka- mannaflokknum tjóni. Óljóst er þó hversu miklu tjóni hún á eftir að valda, en Treholt hafði mikil áhrif og á drjúgan þátt í aukinni róttækni Verkamannafiokksins í afstöðunni til Atlantshafsbandalagsins og mót- un varnarmálastefnu flokksins. Gallup-skoðanakönnun sýnir einnig augljóslega að njósna- hneykslið hefur haft neikvæð áhrif fyrir Verkamannaflokkinn. Samkvæmt könnuninni telja 8% aðspurðra að málið hafi stórskað- að flokkinn og tiltrú manna á stefnu flokksins í varnar- og ör- yggismálum, 16% segja málið draga úr trausti manna á stefnu flokksins í þessum málum, en 66% segja uppljóstrunina engu máli skipta fyrir varnarmálastefnu flokksins. Þegar aðeins eru taldir stuðn- ingsmenn Verkamannaflokksins töldu 14% þeirra uppljóstrunina hafa dregið úr trausti manna á flokkinn. Þá svöruðu 55% aðspurðra ját- andi spurningunni um hvort flokkunnn ætti í kjölfar upp- ljóstrunarinnar að leggja meiri áherzlu á að marka stefnu sína gagnyart aðild að NATO. Aðeins 21% aðspurðra töldu óþarft fyrir flokkinn að gera hreint fyrir sín- um dyrum í þessum efnum. Leiðtogar Verkamannaflokksins með Gro Harlem Brundtland í fylkingarbrjósti hafa óspart reynt að gera sem minnst úr áhrifum Treholts í flokknum. Benda þau á að hann hafi engu mikilvægu flokksembætti að gegna og hafi verið sendiráðunautur í New York þegar flokkurinn ræddi og mótaði núgildandi afstöðu sína í varn- armálum. Daginn eftir uppljóstrunina - sagði framkvæmdastjóri flokksins að nauðsynlegt væri að ræða mál Treholts í flokknum til þess að átta sig á því hvaða tjóni hann hefði valdið. Fundurinn hefur enn ekki verið haldinn, og allt bendir til að Gro Harlem Brundtland neiti að halda fund af þessu tagi til að gera sem minnst úr áhrifum Treholts og láta líta svo út sem hann hafi yfirhöfuð ekkert haft með flokksákvarðanir að gera. Enda þótt Treholt hafi ekki gegnt mikilvægum embættum í flokknum hafði hann gífurleg Tvö mál munu veikja Verka- mannaflokkinn mest í framhaldi af uppljóstruninni. Annars vegar tillaga Evensens um kjarnorku- vopnalaus svæði á Norðurlöndum og hins vegar afstaða flokksins til nýrra kjarnaflauga NATO í Evr- ópu. Því er haldið fram að Treholt hafi samið ræðu Evensens og sé höfundur tillögunnar sem hann setti fram í október 1980, um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norð- Treholt og Evensen urlöndum, þótt Evensen beri á móti því sjálfur. Upplýst hefur verið að Treholt dvaldist samtímis Evensen í Genf í nokkrar vikur sumarið 1980 þegar Evensen und- irbjó ræðu sína, sem olli miklum deilum. Þótt Treholt hafi ekki skrifað ræðuna var hann í aðstöðu til að hafa áhrif á Evensen. Varðandi eldflaugamálið þá voru haldnir margir fundir rót- tæklinga í röðum flokksmanna haustið 1982 og allt til landsfund- ar Verkamannaflokksins vorið 1983. Arne Treholt og Jens Even- sen tóku drjúgan og virkan þátt í þessum fundum. Vinstri flokks- vængurinn vildi að flokkurinn lýsti andstöðu við áætlanir um staðsetningu nýrra eldflauga Atl- antshafsbandalagsins í Evrópu. Flokkurinn markaði ekki ein- dregna stefnu, heldur fór millileið. Það má því segja að útsendari KGB hafi a.m.k. átt þátt í að hindra að norskir jafnaðarmenn tækju eindregna afstöðu með stað- setningu meðaldrægu eldflaug- anna í Evrópu. Vafalaust mun það hafa áhrif á afstöðu norskra kjós- enda til Verkamannaflokksins. Jo Benkow, leiðtogi Hægri flokksins, hefur lýst því yfir að njósnamálið sé ekki flokkspóli- tískt mál. Það hefur aftur á móti ekki komið í veg fyrir að ýmis hægrisinnuð blöð hafa bent á ábyrgð Verkamannaflokksins, og að litlu hafi munað að Treholt og KGB fengju stefnumálum sínum framgengt innan flokksins. Rúmt ár er þangað til næstu þingkosningar verða í Noregi. Enda þótt öruggt sé að afhjúpun Treholts muni valda Verkamanna- flokknum tjóni, er ekki víst að það hafi mjög mikil áhrif á viðhorf kjósenda haustið 1985. Rétt er þó að hafa í huga að á þessu tímabili á Treholt eftir að koma fyrir rétt, og mál hans verður þá á ný áber- andi í norskum fjölmiðlum. Rydens kaffi Pillsbury’s hveiti Spar rauökál Edelfix kakómalt Jacobs tekex California rúsínur Bessa harðfiskur Bessa bitafiskur Flatkökur Tvátta þvottaduft Revlon Flex sjampó Revlon Flex hárnæring Family handsápa 250 g 21.00 5 Ibs 45.90 680 g 39.50 800 g 68.80 200 g 16.95 1 kg 59.10 100 g 36.90 pr.pk. 44.90 pr.pk. 10.95 80 dl 149.90 43.95 49.95 3 í pk. 39.95 Opiö i Skeifunni til kl. 19 HAGKAUPS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.