Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.02.1984, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1984 Afmæliskveöja: Aðalheiður Bjarna dóttir á Tjörn Fréttir úr Dölum Búdardal i janúar. Hún Heiða „á Tjörn" átti 80 ára afmæli í gær, 1. febrúar. Hún er alltaf kennd við þann stað þó ein tuttugu ár séu síðan hún bjó á Tjörn á Eyrarbakka, en þar ólst hún upp hjá foreldrum sínum sem þar bjuggu, ásamt tveimur yngri bræðrum sínum þeim Eggert og Árna. Hún var einkadóttir þeirra merkishjóna Hólmfríðar Jóns- dóttur frá Þorlákshöfn og Bjarna Eggertssonar frá Vaðnesi. Hún ber svipmót mikilla ætta, höfð- ingleg og djörf, ástrík og mild „verður ekki gömul kona, hvorki í fasi né orðræðu þótt árin færist yfir“. Hún var glæsileg ung stúlka hún Heiða, bæði í sjón og raun, sterkgreind og allra manna glöð- ust. Hún var eftirsóttur kvenkost- ur. „Væna konu, hver hlýtur hana, hún er miklu meira virði en perl- ur.“ Heiða giftist ekki, örlögin ætluðu henni annað hlutskipti. Hún eignaðist eina dóttur, Hjör- dísi, sem er gift og búsett hér í borg og á tvo syni sem eru auga- steinar ömmu sinnar, og hafa fjöl- skyldur þeirra fært henni mikið yndi. Sorgin fór ekki hjá garði á Tjörn. Báðir bræðurnir, giæsilegir ungir menn, iétust innan við þrí- tugsaldur og Hólmfríður móðir þeirra, þessi sterka og mikilhæfa kona lést langt um aldur fram. Eftir lát móður sinnar bjó Heiða með pabba sínum á Tjörn meðan hann lifði. Þau óiu saman upp dóttur hennar, höfðu Iítið bú og ræktuðu kartöflur. Snyrti- mennska og myndarskapur var með eindæmum. Hvergi var þvott- urinn hvítari, hvergi voru kökurn- ar betri. Allt var unnið af alúð og ræktarsemi. Það er mikil blessun hverju borgarbarni að eiga vísa sumar- dvöl hjá góðu fólki. Frá sjö ára aldri og fram yfir fermingu var mér fagnað á Tjörn jafn fölskva- laust og lóunni á vorin. „Kemur blessaður sumarfuglinn okkar," sagði Bjarni á Tjörn, þessi öðling- ur með barnshjartað og sinn stóra kærleiksríka faðm. Svo lá vísa til mín á náttborðinu næsta morgun. Það verður því miður æ sjaldgæf- ara að geta umgengist börn og unglinga frjálst og áreynslulaust, en þá eiginleika hafði Heiða og hefur enn. Hún var félagi manns og vinur, skildi mann á erfiðum aldri, varð sjálf eins og táningur þegar leysa þurfti unglingavanda- málin, ástrík og mild eins og besta móðir þegar á þurfti að halda. Ungt fólk laðaðist að Tjarnar- heimilinu. Þar var oft þröngt set- inn bekkur í litla eldhúsinu, en glaðværir hlátrar ómuðu út á hlað í kvöldkyrrðinni. Unga fólkið sótt- ist eftir félagsskap þessa höfð- ingsfólks, sem skildi gleði þess og sorgir. Eftir að Hjördís, dóttir Heiðu giftist og flutti til Vestmannaeyja, seldi hún Tjörnina, og fór þangað líka. Um árabil var hún matráðs- kona á barnaheimilinu Sóla. Þar nutu eðliskostir hennar sín vel og þar eignaðist hún marga góða vini. Eftir gosið fluttist hún til Reykjavíkur og býr nú á Laugar- nesvegi 88. í álagi þessarar tilveru sem nú- tíminn hefur skapað er það mikil lífsfylling að eiga sjóð minninga um það góða mannlíf, sem var á Eyrarbakka á fjórða áratugnum. Það á ég henni Heiðu að þakka, eins og svo margt annað, að hafa fengið að njóta samvista við þetta grandvara og undirhyggjulausa fólk. Til eru dagar svo blíðir að liðnir þeir laufgast á vorin létt verða minninga sporin. Fegurðin gleymst aldrei getur. Hún grær eins og björk eftir vetur. (Hulda) Á þessu merkisafmæli þakka ég henni Heiðu fyrir að hafa gefið mér glaða bernskudaga og dýr- mætar minningar. Megi ellin verða henni mild og hlý eins og hún sjálf hefur verið samferðafólkinu. Ester Kláusdóttir. Jólaundirbúningur var hér í fyrra lagi, jólaljós sett upp úti, og glugga- skreytingar á heimilum með meira móti, en mesta athygli vakti þó stór upplýstur kross og varð þetta fagra tákn til mikillar gleði þeim sem um þorpið fóru, en staðurinn er áber- andi og var eins og Ijósið risi úr myrkrinu í kring. Krossinn var settur upp af sóknarpresti, séra Friðriki J. Hjartar og organista kirkjunnar, Kjartani Eggertssyni með aðstoð RARIK-manna hér á staðnum. Á þeim stað sem krossinn stendur er fyrirhugað að safnaðarheimili verði byggt. Jólatré var sett upp á lóð félags- heimilisins og jólasveinar komu í heimsókn á Þorláksmessu. Friðarljós voru tendruð úti á að- fangadagskvöld á flestum heimil- um hér í þorpinu. Aftansöngur var í Hjarðarholtskirkju kl. 6 á að- fangadagskvöld var þá þokkalegt veður, en er fólk fór úr kirkju var byrjað að snjóa og hélst sú snjó- koma yfir hátíðirnar og var því ekki hægt að messa á öðrum kirkjustöðum hér í nágrenninu um jólin. Á gamlárskvöld var hér kveikt í brennu og var þá komið versta veður með skafrenningi og ofan- hríð. Hefur það veður haldist meira og minna síðan, þó var nokkuð gott veður hér á nýársdag. Á annan í nýári fór svo fólk sem hingað kom til að vera um jólin að huga að suðurferð, enda voru þá starfsmenn Vegagerðarinnar farnir að ryðja vegi, en þegar leið á daginn spilltist veður og allt varð ófært á ný. Nú, þriðja janúar var veður heldur skárra, þó að nokkur skafrenningur væri fram- an af degi. Um kl. 7 um morguninn fóru tæki Vegagerðarinnar og mannskapur frá Búðardal að ryðja veginn yfir Heydal og fylgdi bílalestin fast á eftir og gekk það allt vel. Ekki mátti það þó tæpara standa, því næsta dag, 4. janúar, skall hér á blindhríð með miklu hvassviðri, urðu þó ekki teljandi skaðar, enda Veðurstofan búin að vara við þessu veðri, en nokkrar rafmagnstruflarnir urðu þó, en þær voru lagaðar og allir búnir að fá rafmagn um kvöldið. Svona veðrátta er mjög þreyt- andi, en við hérna í Dölum gerum okkur grein fyrir þeim árstíma sem er og sættum okkur við óblíða veðráttu. Nýlega var staðsettur hér snjóbíll hjá RARIK og þykir tals- vert öryggi í því, þó vel sé búið að sjúkraflutningum hér í sýslu þá geta þeir verið erfiðir að vetrar- lagi. Heilsufar er hér sæmilegt og ég held að flestum hafi liðið vel um þessar hátíðir. Undanfarna daga hefur frost verið mikið, allt upp í 20 gráður og er nú fjörðinn að byrja að leggja. Kristjana. Samband ungra sjálfstæðis- manna og Heimdallur: Ráðstefna um ólögleg fíkniefni ÓLÖGLEG fíkniefni er yfirskrift ráðstefnu, sem Samband ungra sjálfstæðismanna og Heimdallur gangast fyrir nú um næstu helgi. Ráðstefnan verður haldin í Valhöll við lláaleitisbraut og hefst kl. 13.30 á laugardag þann 4. febrúar. Fjögur framsöguerindi verða flutt á ráðstefnunni. Ásgeir Frið- jónsson sakadómari fjallar um þróun fíkniefnamála á fslandi, Kjartan Gunnar Kjartansson heimspekinemi rekur siðferðilegar forsendur laga um fíkniefni, Jó- hannes Bergsveinsson yfirlæknir fjallar um orsakir, áhrif og afleið- ingar fíkniefna og Þórarinn Tyrf- ingsson yfirlæknir segir frá út- breiðslu, meðferð og fyrirbyggj- andi aðgerðum í fíkniefnamálum. Á ráðstefnunni verður einnig sýnd kvikmynd um hið svokallaða „englaryk" en myndin er gerð fyrir tilstuðlan Paul Newman, sem missti son sinn af völdum þessa efnis. Ráðstefnan er öllum opin og bent er á að barnagæsla verður á staðnum. Ráðstefnustjórar verða þeir Auðun S. Sigurðsson læknir og Sigurbjörn Magnússon laga- nemi. (Fréttatilkynning.) Dagana 1. — 3. febrúar efnum við, í húsakynnum okkar í Sundaborg, til sýningar á tækjum, borðbúnaði og áhöldum fyrir veitingasali, þvottahús og stór eldhús (mötuneyti). Á sýningunni verða m.a. kynntar vörur frá ZANUSSI ' n»j:m*:< • • Sj • villeroy&boch * Mielc o JÓHANN ÓLAFSSON & C0 |43 Sundaborg -104 Reykjavík • Sími 82644 í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁOHÚSTORGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.