Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.02.1984, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. Raforkuverðið og launin Ium það bil tuttugu ár hafa alþýðubandalagsmenn fjargviðrast yfir álverinu í Straumsvík. Þegar rætt var um að reisa þessa miklu verk- smiðju spáðu forkólfar Al- þýðubandalagsins því að hún myndi breyta íslandi í lág- launasvæði. Þannig yrði hald- ið á málum að starfsmenn í álverinu fengju lægri laun en almennt tíðkaðist á íslenskum vinnumarkaði. Þessar stað- hæfingar hafa auðvitað reynst rangar eins og rækilega hefur verið vakin athygli á í tilefni af verkfalli álversmanna nú. Alþýðubandalagið fór með stjórn iðnaðarmála í landinu í tæp fimm ár, 1978 til 1983. Allan þennan tíma reyndi iðn- aðarráðherra flokksins að gera álverið eins tortryggilegt og frekast var kostur, hann vildi helst hafa lokað því. Bar- átta Hjörleifs Guttormssonar fyrir hærra raforkuverði bar engan árangur og varð að lok- um honum og þjóðinni til skammar. Nú berst Þjóðvilj- inn fyrir því að laun starfs- manna álversins verði hækkuð meira en þjóðarbúið þolir og alþýðubandalagsmenn mega ekki heyra á það minnst að þannig sé staðið að málum að samræmi sé milli launa starfsmanna í álverinu og þeirra sem starfa við sam- bærileg störf. Sverrir Hermannsson, iðn- aðarráðherra, hefur gengið fram fyrir skjöldu og bent á tvískinnunginn í málflutningi Alþýðubandalagsins, Þjóðvilj- ans og áhangenda í kjaradeil- unni í Straumsvík. Ráðherr- ann hefur sýnt að kommúnist- ar vilja nú beita verkamönn- um í álverinu fyrir vagninn til að brjóta á bak aftur efna- hagsstefnu ríkisstjórnarinnar, kommúnistar vilja í raun gera samning við eigendur álvers- ins í Sviss um að hafa settan launaramma hér á landi að engu. Taki Vinnuveitendasam- bandið við forræði samninga- mála í Straumsvík yrði ekki hægt að gera slíkan samning. Þetta vita kommúnistar og forkólfar Alþýðusambandsins. Um þessa hlið málsins sagði Sverrir Hermannsson rétti- lega hér í blaðinu í gær: „Ef Alusuisse hefur efni á að borga meira fyrir aðstöðu sína, þá verður það að borga mér fyrst meira fyrir raf- magnið. Ég þarf fyrst að fá hærra orkuverð til þess að nota þá peninga til að létta álögum skatta af fátæka fólk- inu, fólkinu hennar Aðalheið- ar Bjarnfreðsdóttur, fólkinu hans Bjarna í Iðju, fólkinu hans Guðmundar í Dagsbrún, fólkinu hér í Verkakvennafé- laginu Sókn. Ég þarf fyrst að fá þá peninga fyrir þetta fólk, áður en fólkið suður í Straumsvík, sem hefur þreföld laun þess, fær kjarabætur. Það er þetta sem er meginat- riði þessa máls.“ Lífefnaiðnað- ur og hugvit Hópur atvinnurekenda er nýkominn frá Japan, Hong Kong og Singapore þar sem menn hagnast á því að fjárfesta í hugviti. Hér í Morg- unblaðinu á sunnudaginn var rætt við dr. Jón Braga Bjarna- son og fleiri um rannsóknir í þágu lífefnaiðnaðar sem stundaðar eru meira af vilja en mætti vegna fjárskorts. Á því er enginn vafi að þessi iðn- aður á eftir að skila af sér miklum arði þegar fram líða stundir. Á fáum sviðum sýnist skynsamlegra að fjárfesta í hugviti en einmitt þarna. Um leið og menn og þá ekki síst atvinnurekendur krefjast minni ríkisumsvifa geta þeir ekki vænst þess að með skattfé sé staðið undir öllum rann- sóknum til dæmis á jafn heill- andi sviði og lífefnaiðnaðurinn er. Með öllu er ástæðulaust að einblína á ríkishítina þegar hugað er að framtíð rann- sókna á þessu sviði hér á landi hvort heldur á vegum Háskóla íslands eða annarra. Hér er gullið tækifæri til að fjárfesta í hugviti. í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að stóll hannaður af Valdimar Harðarsyni, ís- lenskum arkitekt, hefði vakið athygli á sýningu í Vestur- Þýskalandi. Enginn atvinnu- rekandi hér á landi vildi fjár- festa í hugviti Valdimars og gera honum þar með kleift að fullhanna þennan stól, þess vegna sneri hann sér til þýsks fyrirtækis sem nú sýnist ætla að fá ríkulegan arð af því fé sem það festi í hugmyndinni um „klappstólinn". Það er ekki að ófyrirsynju sem viðtalinu við Valdimar Harðarson lýkur með þessum orðum hans: „Síst af öllu má láta sem hugvitið sé einskis virði, því það er ein- mitt það, sem allir hinir þætt- irnir byggjast á.“ Tugir umsókna bárust um heiðurslaun BÍ Jón Ásgeirsson tónskáld, Sigurður Þorsteinsson veðurfræðingur og Ragnhildur Þorsteinsdóttir myndhöggv- ari hlutu verðlaunin að þessu sinni BRUNABÖTAFÉLAG íslands út- hlutaði í gær heiðurslaunum sín- um fyrir árið 1984. Þrír einstakl- ingar hlutu launin að þessu sinni: Jón Ásgeirsson tónskáld í 6 mán- uði til að vinna að óperu um Galdra-Loft, Sigurður Þorsteins- son veðurfræðingur í 3 mánuði til að sinna rannsóknum á áhrifum fjalllendis á veðurfar, og Ragn- hildur Stefánsdóttir myndhöggv- ari í 3 mánuði, í því skyni að auð- velda henni að gera höggmyndir og lágmyndir í Listasmiðju Glits. Ragnhildur er fyrsta konan sem hlýtur þessi heiðurslaun. Þetta er í þriðja skipti sem Brunabótafélag Islands veitir heiðurslaun, fyrst var það árið 1982 á 65 ára afmæli fyrirtækis- ins. Þá hlutu launin fjórir ungir skákmenn, sem unnið höfðu til alþjóðlegs meistaratitils í skák, en í fyrra hlutu fjórir einstakl- ingar, hver úr sinni áttinni, launin. Ingi R. Helgason, forstjóri BÍ, sagði á fundi með frétta- mönnum í gær, að tugir um- sókna hefðu borist og væru allir umsækjendur verðugir þess að hljóta launin. í reglum um heið- urslaunin segir að megintil- gangur þeirra sé að gefa ein- staklingum kost á að sinna sér- stökum verkefnum, sem til hags og heilla horfa fyrir íslenskt samfélag, hvort sem það er á sviði lista, vísinda, menningar, íþrótta eða atvinnulífs. Þau verkefni koma ein til greina, sem kostuð eru af viðkomandi einstaklingi sjálfum. Sá sem heiðurslauna nýtur skuldbindur sig til að gera stjórn BÍ grein fyrir starfi sínu og hverju hann fékk áorkað meðan launanna naut við. BÍ áskilur sér rétt til Ljósm. Mbl. Ol.K.M. Frá opnun sýningarinnar: A myndinni eru frá vinstri: Herra Pétur Sigurgeirsson biskup og kona hans, Sólveig Ásgeirsdóttir, forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, Geir Hallgrímsson utanríkisráöherra, Kristinn Hallsson fulltrúi í menntamálaráðuneytinu og Leifur Þorsteinsson Ijósmyndari. Kjarvalsstaðir: Norræna ljósmynda- sýningin „Frozen Image“ opnuð í gær Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, opnaði í gær á Kjarvalsstöð- um norrænu Ijósmyndasýninguna „Frozen Image“, en þetta er ein þeirra listsýninga sem boðið var upp á á Norrænu menningarkynningunni „Scandinavia Today“ sem haldin var í Bandaríkjunum á síðasta ári. Meðal þeirra, sem viðstaddir voru opnunarathöfnina auk for- seta íslands, voru Geir Hallgríms- son utanríkisráðherra, herra Pét- ur Sigurgeirsson biskup, Kristinn Hallsson fulltrúi í menntamála- ráðuneyti, en Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra var erlendis. Þá voru við opnunarat- höfnina ýmsir innlendir og erlend- ir gestir. I opnunarávarpi sínu sagði for- seti Islands m.a. að samnorræna menningarkynningin, „Scandina- via Today", hefði verið talin með merkustu menningarviðburðum vestanhafs í fyrra. Nefndi Vigdís að í kjölfar opnunarathafnanna vestanhafs hefðu verið opnaðar ýmiskonar listsýningar í fjöl- mörgum borgum þar. í menning- arkynningunni hefðu samtals 400 listviðburðir verið í 32 fylkjum Bandaríkjanna. Sagði forsetinn að aldrei fyrr hefði tekist að kynna menningu Norðurlanda jafn ræki- lega utan þeirra og með norrænu menningarkynningunni „Scand- inavia Today“, og þá sérstaklega ísland. Auk forseta íslands ávörpuðu þeir Kristinn Hallsson fulltrúi og Leifur Þorsteinsson ljósmyndari sýningargesti. Sagði Kristinn m.a. að hingað kæmi Ijósmyndasýning- in „Frozen Image" frá Chicago, en fsland væri fyrsti viðkomustaður sýningarinnar á Norðurlöndum. Leifur Þorsteinsson fór nokkrum orðum um sýninguna og nefndi hann m.a. að ekki væri hægt að lýsa sýningunni sem slíkri, en hver sýningargestur yrði að skoða hana og dæma fyrir sig. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 25 Morgunbladið/Fridþjófur Helgason. að skýra opinberlega frá árangri og niðurstöðum af starfi þess, sem launanna hefur notið, en gerir ekki tilkall til höfundar- réttar, eða annars framlags af hálfu umsækjanda, en að hann af alúð og samviskusemi takist á við það verkefni sem sótt er út á. Hluti stjórnar Brunabótafélags íslands ásamt heiðurslaunaþegunum. Aftari röð frá vinstri: Þórð- ur Jónsson, Ingi R. Helgason forstjóri, Guðmund- ur Oddsson, Stefán Reykjalín formaður, Andrés Valdimarsson, Björgvin Bjarnason og Pétur Már Jónsson deildarstjóri. Fremri röð frá vinstri: Jón Ásgeirsson, Ragnhildur Stefánsdóttir og Jón Bjarni Þorsteinsson, en hann tók við heiðurs- laununum fyrir hönd bróöur síns Sigurðar Þor- steinssonar, sem staddur er í Osló. spurt og svarad I Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINSI Hér birtast spurningar lesenda um skattamál og svör ríkisskattstjóra, Sigurbjarnar Þorbjörnssonar. Þeir lesendur, sem hafa spurningar fram að færa, geta hringt í síma 10100 milli klukkan 2 og 3 alla virka daga. Framtöl sambýlisfólks Hafsteinn Eyjólfsson, Tjarnar- götu 10, Reykjavík, spyr: Gerir sambýlisfólk sameigin- legt skattframtal? Ef sambýlis- fólk hefur keypt saman íbúð, er því þá skylt að gera sameiginlegt skattframtal? Ef sambýlisfólk gerir sameiginlegt skattframtal, er þá nauðsynlegt að það eigi iögheimili á sama stað? Svar: Karl og kona, sem búa saman í óvígðri sambúð, eiga rétt á að telja fram og vera skattlögð sem hjón ef þau uppfylla eftirfarandi skilyrði: eiga sameiginlegt lögheimili, hafa átt barn saman eða kon- an þunguð, eða sambúðin varað samfleytt í a.m.k. tvö ár. Sambýlisfólk, sem keypt hefur saman íbúð en uppfyll- ir ekki ofangreind skilyrði, skal telja eignarhluta hvors um sig fram á sínu framtali ásamt þeim skuldum sem hvort um sig hefur stofnað til vegna íbúðarkaupanna. Frádráttarbær skyldusparnadur Ingi Einarsson, Furugrund 73, Kópavogi, spyr: Er skyldusparnaður, sem inn- heimtur var á síðasta ári, frá- dráttarbær frá skatti? Ég keypti íbúð árið 1982 og fékk þá skyldu- sparnað minn til þess tíma til frádráttar. Síðan seldi ég íbúð- ina í fyrra og ekki var önnur keypt í staðinn og því er spurt hvort skyldusparnaður síðasta árs sé frádráttarbær, þrátt fyrir að önnur íbúð hafi ekki verið keypt. Svar: Þar sem undanþága fyrir- spyrjanda frá skyldusparnaði telst fallin niður við sölu á íbúðinni leyfist skyldusparn- aður hans á árinu 1983 frá söludegi íbúðar til frádráttar tekjum. Jón L. náoi sér á strik Skák Margeir Pétursson LOKSINS kom að því að íslensku þátttakendurnir á Búnaðarbanka- skákmótinu fóru að leggja útlendingana að velli. Er upp var staðið frá biðskákunum í gærkvöldi lágu tveir stigahæstu keppendur móts- ins í valnum. Jón L. Árnason vann stórmeistarann^Lev Alburt og Margeir vann alþjóðlega meistarann Nick deFirmian. Jón L. rétti heldur betur úr kútnum í gær þegar biðskákir voru tefldar. Hann byrjaði á því að máta Alburt og síðan tók hann til viö skák sína gegn öðrum bandarískum stórmeistara, Leonid Shamkovich. í henni stóð Jón höllum fæti, en hafði greinilega rannsakað biðstööuna mjög nákvæmlega því hann náði mótspili sem dugði til jafnteilis. Úrslit í öðrum biðskákum urðu þau, að Sævar Bjarnason ákvað að gefa stöðu sína gegn Jóni Krist- inssyni og þeir Alburt og Guð- mundur Sigurjónsson sömdu jafn- tefli fljótlega .eftir að þeir tóku til við skák sína að nýju. Staðan í mótinu hefur því mjög skýrst, en hún er þannig: 1. Pia Cramling 314 v. 2. -6. Milorad Knezevic, Nick deFirmian, Helgi Ólafs- son, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson 3 v. 7.-8. Leonid Shamkovich og Guðmundur Sigurjónsson 214 v. 9. Jón L. Árnason 2 v. 10. —12. Sævar Bjarnason, Lev Alburt og Jón Kristinsson 114 v. Pia trónar því enn á toppnum og fyrir þá sök hefur mótið vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Sænska útvarpið og þar- lend dagblöð hringja daglega til að fá fréttir og sækjast líka eftir skákum hennar, því það er ekki á hverjum degi sem tvítug stúlka leggur stórmeistara að velli. Slök frammistaða Alburts kem- ur einnig á óvart og hann virðist ekki vera búinn að ná sér upp úr þeirri lægð sem hann hefur verið í síðasta hálfa árið. E.t.v. er skýr- ingin sú að hann helgar skák- kennslu og skrifum of mikið af kröftum sínum. íslensku þátttakendurnir hafa ennþá staðið fyrir sínu. Þrír þeirra eru í 2.-6. sæti og Jón L. virðist hafa náð sér eftir áföllin í byrjun. í kvöld kl. 17 verður sjötta um- ferðin tefld á Hótel Hofi. Þá tefla saman Pia Cramling og deFirmi- an, Knezevic og Sævar, Shamko- vich og Jóhann, Jón Kristinsson og Helgi, Margeir og Alburt, Jón L. og Guðmundur. Sérstaklega má búast við harðri viðureign hjá þeim Piu og deFirmian, því Bandaríkjamaðurinn er mjög baráttuglaður og hyggst gera stóra hluti á mótinu. Sigurskákir íslendinganna yfir útlendingunum frá í gær fara hér á eftir. DeFirmian gleypti eitrað peð í ellefta leik og sá ekki til sól- ar eftir það. Eftir að hafa verið í miklu tímahraki í erfiðu tafli fékk hann vonlausa biðstöðu, en þráað- ist samt við í tuttugu leiki. Þá lauk hann skákinni ekki með því að gefast upp, heldur lék hann sig viljandi í mát, áhorfendum til skemmtunar. Skák þeirra Jóns og Alburts varð snemma flókin. Bandaríkj- amaðurinn virtist fá góða stöðu eftir byrjunina, en Jón flækti tafl- ið og tók frumkvæðið í sínar hend- ur. I 26. leik brá Alburt á það ráð að fórna manni og í tímahrakinu upphófust síðan miklar svipt- ingar. Er skákin fór í bið hafði Jón þó enn yfirhöndina og náði síðan mátsókn gegn berskjölduðum Al- burt. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Nick deFirmian Tarrasch-vörn I. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3 — c5, 4. e3 — d5, 5. cxd5 — exd5, 6. Be2 — Rc7, 7. (M) — cxd4, 8. Rxd4 - Bd6, 9. b.3 Algengara er 9. Rc3, en þá jafn- ar svartur taflið án erfiðleika. Nú hugðist deFirmian refsa hvítum fyrir þessa óvenjulegu leikjaröð, en grefur sína eigin gröf í staðinn. 9. — Rxd4?!, 10. I)xd4 — Dc7, 11. Bb2 — Bxh2+?, 12. Khl — Bd6, 13. Rc3 — De7, 14. Bb5+ — Kd8, 15. Hfdl! - Rg4, 16. Kgl — I)h4 17. Re4! — Be6, 18. Dxg7 — Ke7, 19. I)g5+ — Dxg5, 20. Rxg5 — Be5, 21. Bxe5 — Rxe5, 22. Be2 — h6, 23. Rf3 — Rxf3+, 24. Bxf3 — Hhd8, 25. Hd2 — Hac8, 26. g3 — b6, 27. Kg2 — Hc5, 28. Hhl — Hdc8, 29. Bdl — Hh8, 30. Hh5 - Kf6, 31. Bf3 - Kg6, 32. Hh4 - Kf6, 33. Hhd4 - Ke5, 34. Be2 — Bf5?, 35. g4 — Bg6, 36. f4 — Kf6, 37. f5 - Bh7, 38. Hxd5 - Hxd5, 39. Hxd5 - h5, 40. Kg3 — He8, 41. Kf4 - hxg4 Hér fór skákin í bið. 42. Bxg4 — Kg7, 43. Hd7 - a5, 44. Hb7 - Hd8, 45. Hxb6 - Hd2, 46. a4 — f6, 47. Hb7+ — Kh6, 48. HI7 — Hd6, 49. Be2 — Bg8, 50. Hb7 — Hd2, 51. Bc4 - Bxc4, 52. bxc4 — Ha2, 53. Hf7 — Hf2+, 54. Ke4 — Kg5, 55. Hg7+ - Kh5, 56. Hg6 - Ha2, 57. Hxf6 - Hxa4, 58. Kd5 - Kg5, 59. Hf8 — Hal, 60. Ke5 — a4, 61. Hg8+ — Kh6, 62. e4 — a3, 63. Kf6 — Kh7, 64. Ha8 - Kh6!?, 65. Hh8 Mát. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Lev Alburt Aljekínvörn I. e4 — Rf6, 2. e5 — Rd5, 3. d4 - d6, 4. Rf3 — g6, 5. Bc4 — Rb6, 6. Bb3 - Bg7, 7. Rg5 — e6, 8. f4 — dxe5, 9. fxe5 — c5, 10. c3 — cxd4, II. 0-0 — 0-0, 12. cxd4 - Rc6, 13. Rf3 - f6, 14. exf6 — Dxf6, 15. Be3 - Rd5, 16. Bf2 - Rf4, 17. Khl — b6, 18. Rc3 — Bb7, 19. Re4 — De7, 20. Hel - Ra5, 21. Bc2 — Db4, 22. Hbl — Had8, 23. Bh4 - Hc8, 24. a3 - Db5, 25. Be7 - Hf7, 26. Bd6 - Rxg2?!, 27. Kxg2 — Df5, 28. Bd3 — Dg4+, 29. Bg3 - Hcf8, 30. Rh4 - Dg5? Með 30. — Dxdl og síðan 31. — g5 hefði svartur unnið manninn til baka. 31. Khl — Bxd4, 32. Rg2 — Dd5, 33. De2 — Bf2, 34. Hfl — Bxg3, 35. Hx(7 — Hxf7, 36. hxg3 — Rb3, 37. Hfl - Rd4, 38. Ddl - Rf5, 39. Kh2 — De5, 40. Dg4 — Hd7 Hér fór skákin í bið. 41. Bbl — Bxe4, 42. Bxe4 — Hd2, 43. I)f3 — Hxb2, 44. Bxf5 — exf5, 45. Da8+ - Kg7, 46. Dxa7+ - Kh6, 47. I)a8 - I)c5, 48. Df3 — Kg7, 49. Hdl — Kf6, 50. Hd5 — Dcl, 51. Hd6+ - Ke7, 52. Hdl — Dc2 53. Db7+ — Kf6, 54. Hd6+ — Kg5, 55. De7+ — Kg4, 56. Hd4+ og svartur gafst upp. BúnaAarbankaskákmót 1984 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röó 1 l’ia Oamling l'i 1 2 Knezevic B1-’ 1 3 Shamkovic (!'.>■ 4 Jóhann Hjartarson 1 5 Sævar Bjarnason ': 0 '2 0 6 I)e l'irmian fl': 1 0 1 7 Ilelgi Olafsson 1 2 1 2 1 1 8 Lev Alburt ': 0 0 9 Cuómundur Sigurjónsson 0 1 ■ 10 Margeir Pétursson 1 't 11 Jón Kristinsson « 0 ': 1 0 ■ 12 Jón L. Arnason (1 « 1 m Nýtt skipulag á svæði í Vesturbæ BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingu á deili- skipulagi á svæði sem afmarkast af götunum Ána- naust, Vesturgata, Seljavegur og Holtsgata og jafnframt hefur vcrið samþykkt að kaupa húseign- ir tveggja iðnfyrirtækja á svæðinu, en það eru Eimur sf. og Kolsýruhleðslan sf. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Davíð Oddssyni, borgarstjóra, er megin breyt- ingin samfara samþykkt þessa nýja skipulags sú, að svæðinu er breytt úr iðnaðarsvæði í íbúðasvæði. Samfara þeirri breytingu myndu fyrirtækin Eimur sf. og Kolsýruhleðslan sf. flytja af svæðinu, en samþykkt hefði verið að kaupa upp eignir þessara fyrirtækja á svæðinu, og bindandi samningur hefði verið um það gerður. Á meðfylgjandi uppdrætti sést hið nýja skipulag, sem afmarkast af götunum fjórum. Dökku reitirnir á myndinni eru íbúðabygg- ingar, en ljósu reitirnir eru græn svæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.