Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.02.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1984 37 Sænski ofurstinn Stig Wenner- ström var afkastamikill njósn- ari fyrir KGB, sem borgaði honum tvöföld ofurstalaun. Taliö er, aö Tre- holt hafi verið enn þýðingarmeiri fyrir Sovétmenn. sem okkur hefur verið falið, en það er rétt að benda á, að það eru stjórnvöldin, sem ákveða leikregl- urnar. Okkar aðalstarf er gagn- njósnir auk þess sem við berjumst gegn hryðjuverkum og gætum ör- yggis erlendra þjóðhöfðingja, sem koma í heimsókn." Er ykkur stjórnað af CIA? „Við höfum góða samvinnu við starfsbræður okkar á Norðurlönd- um og í ríkjum Atlantshafsbanda- lagsins. Meðal annars þess vegna fáum við tækifæri til að ræða við KGB-njósnara, sem hafa leitað hælis á Vesturlöndum. Að vísu vita þeir yfirleitt ekki mikið um Noreg, en þeir gefa okkur hins vegar mik- ilvægar upplýsingar um starfs- hættina hjá KGB. Norska leyni- þjónustan er í góðu áliti erlendis. Hún er norsk stofnun og auðvitað ekki stjórnað af neinum öðrum en Norðmönnum." Hvernig gengur að þegja um allt, sem þú veist, gagnvart konunni þinni? „Það er nokkuð, sem ég verð að Arne Treholt. „Hann hefur unnið landi sínu mikið tjón,“ sagði Káre Willoch forsætisráðherra, þegar hann skýrði frá því, að Treholt hefði njósnað fyrir KGB. Mér fannst hver einasti maður á götunni mæla mig út og vita upp á hár hvað ég var að gera. Þannig er það alltaf í byrjun og þetta starf er ákaflega vandasamt. Því (engum við að kynnast í Gunvor-málinu þegar við notuðum alla, sem gátu staulast um á tveimur fótum." gera, hvort sem mér er það ljúft eða leitt, og líklega gera fáir sér grein fyrir hvað fjölskyldur leyni- þjónustumanna eiga erfitt að þessu leyti. Mín eigin börn vissu t.d. ekki, að ég var í leyniþjónustunni fyrr en þau voru vaxin úr grasi, vissu bara að ég var í lögreglunni." Norsku leyniþjónustunni hefur verið hrósað fyrir framgönguna í Treholt-málinu, en stundum eruð þið skammaðir fyrir að vakta vinstriróttæklinga. „Það kemur fyrir, að okkur er úthúðað fyrir að vinna það verk, Hjónaskilnaðir hljóta þá að vera tíðir í ykkar hópi? „Nei, raunar ekki, svo undarlegt sem það er. Ætli það sé ekki af því að við eigum svo góðar fjölskyld- ur,“ segir Örnulf Tofte og brosir. Iþessum fangaklefa var Gunvor Haavik, sem sést ár Ijósmyndinni. Hún njósnaði fyrir Sovétmenn í 30 ár og var handtekin 27. janúar árið 1977. Að morgni 5. ágúst sama ár var komið að henni látinni í rúminu. Læknar töldu banameinið hjartaslag, en það þótti þó aldrei fullsannað. Ekki var heldur vitað til þess, að Gunvor væri veil fyrir hjarta. Slökkvilið Hafnarfjarðar: 76 útköll á síðasta ári Á SÍÐASTA ári var Slökkvilið Hafn- arfjarðar kallað út 76 sinnum, þar af 63 sinnum vegna elds. Árið 1982 voru útköllin 74, 66 vegna elds. Á síðasta ári skiptust útköllin þannig að 56 voru í Hafnarfirði, 11 í Garðabæ, 9 í Bessastaðahreppi og utan byggðar. Mestu eldsvoð- arnir á þessu svæði urðu 10. janú- ar í Hverfisgötu 54, 21. janúar í Sædýrasafninu, 21 ágúst í íþrótta- húsi Hauka, 6. október í vélbátn- um Þorsteini við Óseyrarbryggju og 1. desember á Norðurbraut 41. Flutningar með sjúkrabifreið urðu 1.119 árið 1983, en voru 1.156 árið á undan. í fyrra voru af þess- ari tölu 249 bráðatilfelli. SPRAUTUKLEFI í stöölubum einingum Við höfum hafið framleiðslu á sprautu- klefum fyrir bílamálun. Klefarnir eru framleiddir í einingum og geta þannig verið af breytilegum stærðum, allt eftir óskum kaupenda. Klefarnir eru búnir kröftugu útsogi fyrir sprautuvinnu og hitunarmöguleikum til bökunar. Tæki eru útbúin sjálfvirkum stjórnbúnaði. BilKKVER Skeljabrekka 4, 200 Kópavogur. Sími 44100 * SCHIPH0L í innsta hring Schiphol-flugvöllurinn í Amsterdam er lykillinn að vel heppnaðri viðskiptaferð. Staðsetning hans er frábær. Þar fara um 200 þotur í loftið á hverjum degi til áfangastaða í yfir 90 löndum, þannig að farþegar geta stigið úr einni flugvél í aðra án allra óþarfa tafa, og náð áfangastöðum samdægurs. Ódýrir bíla- leigubílar og fullkomið hraðbrautakerfi Evrópu, auk stöðugra lestarferða út frá Amster- dam, tryggja að þú ert einnig eldfljótur að ferðast landleiðina um nánast alla Evrópu. Þegar við bætist að fríhöfnin er sú stærsta í heimi og að flugvöllurinn er ár eftir ár kjörinn sá besti í veröldinni af lesendum virtustu ferðatímarita - þá fer það ekkert á milii mála: Schiphol er fyrsti áfangastaðurinn í öllum við- skiptaferðum - um allan heim. Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, slml 84477 Vegalengdir frá Amsterdam í klst. með flugi, lest eða bíl. 0:45 1:00 1:15 * 1:30 1:45 2:00 1:30 4:15 9:00 14:00 19:00 24:00 1:00 ■M ' 3:30 •— 7:00 11:00 15:00 19:00

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.