Morgunblaðið - 18.02.1984, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
9
j&kcdMoDDlö
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 231. þáttur
Uppistaða þessa þáttar, svo
að ég falli ekki í fleirtölufenið,
eru tvö bréf. Hið fyrra er svo-
hljóðandi, að slepptu ávarpi:
„Ég vísa til 226. þáttar þíns,
þar sem þú birtir vísu Berg-
þóru Sölvadóttur: „Hyllum
snjalla stöllu allar" o.s.frv.
En svo bar við fyrir nokkr-
um árum, að íslendingur einn
ónefndur sat í bíl með fleira
fólki á ferðalagi suður á Balk-
anskaga og virti ýmist fyrir
sér landslagið, eftir því sem
birtan leyfði, eða tók þátt í
slitróttum viðræðum við sam-
ferðamenn. Annars varð ís-
lendingi það helst fyrir að
hlusta eftir daufum ómi úr út-
varpi af þeirri sérstæðu tón-
list, sem setur mark sitt á
Balkanlönd, Grikkland og
Tyrkland og allan þann heims-
hluta. Þessum • „býsanska"
ljóðasöng fylgdu strengleikar
og trumbusláttur og lét langt
að komnum manni vel í eyrum.
Einn þessara söngva var öðr-
um angurværari og vakti því
fremur athygli gests af Is-
landi, að ljóðið var eins og sí-
bylja af orðum með tvöföldu
essi (ss) og þar með blístri, en
orkaði umfram allt svæfandi á
framandi mann. í syfjuðum
eyrum útlendingsins fóru að
heyrast hin furðulegustu orð
og reyndar heilar ljóðlínur, ef
svo má segja, og endaði með
því að taka á sig fast form áð-
ur en bílferðinni lauk, svofellt:
Fossar piss úr hryssuhlussu,
hossar í sessi bossa prests.
Hjassi þessi mass í mussu
messaði í krassi hrossabrests.
Þessi samsetningur nálgaðist
það að verða breiðhenda eða
nýlanghenda, sem þú kallar
svo. Miðill ofanritaðs skáld-
verks flokkar það annars undir
tegundarheitið anti-pastorale
(ef það er þá til) ásamt öðru
verki af breiðhendukyni og
hljóðar þannig:
Rollur lulla fellin fullar,
fjallaþöllum bella spjöll.
Sollin Tröllá sullar, bullar
syllur, stalla, velli, faöll.
Kær kveðja,
Hringfari."
Umsjónarmaður þakkar
Hringfara þetta merkilega
bréf, einkum lokavísuna sem
gerð er af augljósri íþrótt. Hún
er langhenda (með meiru) eins
og Sigurður Breiðfjörð kvað
gjarna undir í Númarímum. Þá
eru 1. og 3. braglína 4 réttir
tvíliðir, en 2. og 4. braglína
þrír réttir tvíliðir og stúfur:
SkipU fínum skerfi mátti,
skyldi þeygi munur á.
Þúfur sínar sérhvor átti
sem að eyjar voru þá.
Breiðhenda (nýlanghenda)
er fjórum sinnum fjórir réttir
tvíliðir, sbr. áður tilvitnaða
vísu Bergþóru Sölvadóttur.
Sigurður Breiðfjörð bjó víst til
nýhenduna, en þar eru 1. og 3.
braglína þrír réttir tvíliðir og
stúfur, en hinar fjórir réttir
tvíliðir
Til að seðja fýsna feikn
flesU kosti þá er völ um.
BrjósUkrossa, titla og teikn
tekst að fá með ríkisdölum.
Þennan hátt skopgerði Jón-
as Hallgrímsson eins og fleira
í rímnakveðskap:
Er hann að syngja enn sem fyrr,
arnar-vélið sá hann — attan:
„Klingling" hringja kleprarnir
við karlinn hélugráan — skratUnn.
★
Þá er bréf Haralds Guðna-
sonar í Vestmannaeyjum með
þeim skemmtilega hætti sem
honum er laginn. Verður reynt
að leggja út af því, þótt síðar
verði:
„Heill og sæll og enn þakka
ég þætti þína í Mbl. Ekki líkar
mér að slá í gegn sem þrástag-
ast er á. Og heldur ekki að slá
á þráðinn. Ég læt nægja að
tala við mann í síma eða þá
hringja til hans. Er þessi þráð-
arsláttur fínt mál? Og ef ég
hringi til manns og sá hinn
sami á ákaflega annríkt —
eins og nær allir — þá er svar-
að: Hann tekur ekki síma. Nú
skil ég vel að menn séu ekki að
handfjatla símatækið að
óþörfu, en er ekki rétt að segja:
Hann (eða hún) svarar ekki í
síma?
Staglorð, þingorð: Til skoð-
unar, málið verður skoðað
o.s.frv. „Það er til skoðunar í
ráðuneytinu", Tíminn 30. des-
ember. Starfshópur, nefnd
varla nefnd lengur. Langt og
ljótt orð, atvinnutækifæri
komið í staðinn fyrir starf
(störf).
í sunnudagsprédikun heyrði
ég talað um lífsreynslur og í
útvarpsþætti talaði einhver
nemandi um framtök.
Annars er talsmátinn í út-
varpi oft „ómulegur" eins og
stundum er sagt á þeim bæ. Og
þeir ríkisskipuðu í dagskrár-
stjórn láta allt viðgangast. í
poppi 5. des. sagði „stjórnand-
inn“ um einhverja útlenda
poppara, að „þá hlakkaði mikið
til að koma til Islands". „Er
þig ekki farið að hlakka til jól-
anna“, annar „stjórnandi" í
öðrum þætti.
Áður sögðu menn að þetta
eða hitt liðið hefði sigrað
naumlega, nú tapa þau líka
naumlega.
Séra Jón Thorarensen lék „á
alls oddi“ í Keflavík (blaðið
Faxi) og einhver lék á alls oddi
í Helgarpóstinum nýlega.
Ég hef víst áður minnst á
stjórnunar-staglið. Allt er að
verða stjórnun, stjórnir útlæg-
ar.
Til þess að leiða menn í allan
sannleika um hina einu sönnu
stjórnun kom á liðnu ári út
bókin Mínútustjórnun. Á
frummáli heitir þetta lær-
dómskver One Minute Manag-
er. f minni orðabók er Manag-
er stjórnandi eða stjórnari.
Þarna er hann kannski stjórn-
unaraðili! En bókin gefur
fyrirheit: „Allir eru búnir
hæfileikum til að verða ofaná.“
í blaði nýlega mátti lesa, að
nú ætlaði Nútíminn (Tímaklík-
an nýja) að „taka yfir“ Tím-
ann. Félagið Nútíminn ætlaði
að taka að sér útgáfu Tímans.
Það er svo annað mál, að ekki
sýnist þessi yfirtaka hafa orð-
ið átakalaus.
Hundar og hundalíf hefur
verið miög til umræðu þessa
daga. Islendingar eru líka
miklir hundavinir að eigin
sögn þó sitthvað bendi til ann-
ars. í sambandi við þessi
hundamál vil ég segja þér það,
að ég hef alla tíð kunnað illa
við lýsingarorðið hundleiðin-
legur. Hundar eru ekki leiðin-
legir; oftast hið gagnstæða.
Gæti þessi notkun orðsins
flokkast undir hundavaðshátt?
Svipað finnst mér gilda um
orðið hrútleiðinlegur, sem t.d.
blaðamenn þrástagast á. Hrút-
ar eru fallegar skepnur og á
sínum tíma var ort um þá
lofkvæði sem geymist í bók-
menntum okkar, „Þér hrút-
ar“.“
P.S.
Ég birti fyrir skemmstu vísu
sem hófst á orðunum: Sódóm-
iskur sat við disk. Halldór
Halldórsson prófessor leyfir
mér að hafa eftir sér að hann
hafi lært hana öðruvísi og sé
hún eftir Þórð Eyjólfsson:
Sódómiskur sat við disk,
saup á wisky fínu.
Át þar biskup blautan fisk
með bölvuðu hyski sínu.
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Þinghólsbraut
4ra herb. sólrík risíbúö í tvibýl-
ishúsi. Laus fjótlega. Verö
1.450 þús.
Engihjallí
3ja herb. falleg og vönduö íbúð
á 6. hæð. Svalir. Þvottahús á
hæöinni. Ákv. sala. Verö 1.600
þús.
Jörö — eignaskipti
Hef kaupanda aö góöri bújörö á
Norðurlandi í skiptum fyrir 5
herb. einbýlishús á Akureyri.
Hverageröi
Parhús, 5 herb., 130 fm auk
bílskúrs 25 fm. Nýleg vönduð
eign.
Helgi Ólafsson
löggiltur fasteígnasalí
Kvöldsími 21155.
Blaöburóarfólk
óskast!
Vesturbær úthverfi
Tjarnargata 39— Sævarland
SIMAR 21150-21370
SOIUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N H0L
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Gott einbýlishús í Garðabæ
Húsiö er alls um 170 fm að meðtöldum innb. bílskúr undir svefnálmu. 4
svefnherb. ræktuó lóö. Teikn. á skrifst. Nánari upp. aöeins á skrifst.
Glæsileg íbúð viö Ljósheima
rúmir 100 fm ofarlega í háhýsi. Sérinng. Útsýni.
Ágæt íbúð við Engihjalla
3ja herb. á 2. hæö í 3ja hæóa fjölbýllshúsi. Stærö um 90 fm. Góö
sameign.
íbúöir við Álfhólsveg Kóp.
4ra herb. jaröhæö um 100 fm. Inng. hiti, þvottahús. Allt sér. ibúöinni
fylgir aukarými um 36 fm.
Ennfremur nýleg 3ja herb. íbúö á 2. hæð með stórum svölum og útsýni.
Stærð um 75 fm. Vel skipulögö. Sérhiti, sérþvottehúe. Bílakúr í smiöum
fylgir. Verö aöeins kr. 1450 þús.
2ja herb. íbúð við Kríuhóla
á 4. hæö í háhýsi um 65 fm. Ljós viöarinnr. Fullgerö sameign. Utsýni.
Næstum skuldlaus.
Eitt af vinsælu raðhúsunum í Mosfellssveit
Húsiö er nýtt meö Ijósri viöarinnr. og parket á gólfum meö 3ja herb. tbúö
um 85 fm. Sólverönd um 17 fm. Mjög sanngjörn útb. Teikning é skrifst.
Tvíbýlishús óskast í borginni
þarf ekki aö vera fullgert. Seltjarnarnes kemur til greine.
Nýtt glæsilegt einbýlishús á Hornafiröi
Húsiö er um 130 fm steinhús ein hæö auk bílskúrs um 34 fm. Vandeö eö
öllum búnaöi. Skipti möguleg á íbúó i Reykjavík eöa nágrenni. Horna-
fjöröur er uppgangspiéae meö miklum atvinnumöguleikum. Teikn. og
myndir á skrifst.
Læknir nýfluttur til landsins
óskar eftir góöu einbýlis- eöa raöhúsi. Heist miösvæöis í borginni eöa i
góöri samgönguleiö.
Opið í dag laugardag 1—5.
Lokaó á morgun sunnudag.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
FA5TEIGIM AIVIIO LUIM
Sverrir Kristjánsson
Hús Verslunarínnar 6. hæö.
Sðtum. Quðm. D*ð4 ÁgúltN. 78214.
Lðgm. Hafstomn B«ldvins»on hri.
Símatími 13—16
MEIST AR A VELLIR
4. hæö. Ákveöin sala.
Til sölu 4ra herb. 115 fm íbúö á
2ja herb. íbúðir
ÁSBRAUT, 55 fm á 2. hæö,
útborgun ca. 750 þús.
LAUFVANGUR. Ca 70 fm
á 2. hæð. Þvottah. á hæð.
MÁVAHLÍÐ. Ca. 70 fm ibúð
i kjallara (jaröhæð). Nýtt gler og
nýjar innr. Sérinng. Verö
1300—1350 þús.
3ja herb. íbúðir
HVERFISGATA. Til sölu
mjög falleg risíbúö. Öll nýstand-
sett. Losun samkomul.
HRAUNBÆR. 90 fm falleg
íbúö á 2. hæð. Verö 1,5 millj.
Lítiö áhv.
ORRAHÓLAR, 96 fm á 2.
hæö, góö íbúö.
GRETTISGATA, 73 fm
nýstandsett á 2. hæö, ásamt 20
fm geymslu. Akveöin sala.
HAMRABORG, 100 fm á 3.
hæö, bílskýli, ákveóin sala.
4ra herb. íbúðir
SUÐURVANGUR HF.
Ca. 117 fm falleg ibúð á 2.
hæð, 4ra—5 herb. Suöur-
svalir. Verö 1900—1950
þús.
SELJABRAUT. Ca. 110 fm
íbúö á 3. hæö ásamt bílskýli.
Faileg íbúö. Góöar innr. Verö
1900—1950 þús. Ákv. sala.
LYNGMÓAR, ca 100 fm
íbúö, bílskúr, ákveöin sala.
ÁLFTAHÓLAR, ca 120
fm, lyfta á 6. hæð, btlskúr.
SELJABRAUT, 120 fm fal-
leg ibúö á 1V4 hæö, bílskýli,
ákveöin sala.
EGILSGATA, 100 fm. 1.
hæö, góö íbúó, ákveðin sala.
BARMAHLÍÐ, ca. 100 fm.
nýstandsett, vönduö og falleg
risíbúö, ákveöin sala.
HRINGBRAUT HF., 90 fm
rúmgóð risíbúð, mikið útsýni.
5 herb. íbúðir
HERJÓLFSGATA HF. 100
fm efri hæö i tvibýlishúsi, ásamt
bílskúr. Hátt manngengt
geymsluris. Möguleiki á kvist-
um. Mikiö útsýni.
Raðhús
SELJAHVERFI. 210 fm
raöhús á 3 hæöum, ásamt
bílskýli. Verö 3,5 millj.
KJARRMÓAR. Mjög vand-
aö endaraðhus 125 fm á 2 hæö-
um. Bílskr. Ákv. sala.
STÓRITEIGUR MOS., ca
140 fm á einni hæð ásamt 70
fm í kjallara. 35 fm bilskúr.
VÖLVUFELL
147 fm vandaö raöhús á
einni hæö ásamt bílskúr.
Ákv. sala.
Einbýli
TÚNGATA ÁLFTANESI.
Til sölu 180 fm einbýli á 1 haaö
meö innb. bilskúr. 4 svefnherb.
o.fl. Mikið útsýni. Ákv. sala.
SEILUGRANDI, 150 fm
hæð og ris, innbyggöur
bflskúr.
Vantar
Vandaö raöhús eöa einbýlishús
á góóum staö á verðbilinu 4—6
millj.
VANTAR — VANTAR
Raöhús — einbýlishús meö 5—6 svefnherb. fyrir mjög góöan
kaupanda. Skipti möguleg á raöhúsi i Fossvogi.
Hef einnig kaupanda aó stóru og vönduöu einbýiishúsi.