Morgunblaðið - 18.02.1984, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1984
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakiö.
Endurvinnsla
og lífskjör
jóðartekjur hafa dregizt
saman þriðja árið í röð.
Þjóðarframleiðsla hefur rýrnað
um 12% á þessu tímabili. Verð
sjávarvöru fer lækkandi. Hins-
vegar höfum við stigið mikilvæg
skref upp úr öldudalnum í lækk-
un verðbólgu, í lækkun vaxta og
í lækkun viðskiptahalla við út-
lönd.
Ekkert er svo með öllu illt að
ekki fylgi eitthvað gott, segir
máltækið. Þær þrengingar sem
við göngum nú í gegn um hafa
aukið á verðskyn þjóðarinnar og
beint huga hennar að margvís-
legum verðmætum, sem vannýtt
lÍKRja; hafa raunar runnið í súg-
inn um langt árabil, illu heilli.
Nefna má tvö dæmi:
Fyrirtækið Sindra-Stál hefir
eftir ítarlega könnun ákveðið að
hefja skipulega söfnun á úr-
gangspappír hér á landi og
endurvinna til útflutnings á er-
lenda markaði. Endurvinnsla af
þessu tagi er í senn verðmæta-
björgun og náttúruvernd; skap-
ar atvinnutækifæri og eykur
þjóðartekjur.
Fyrirtækið ísbrek í Keflavík
hefur á hálfu öðru ári flutt út til
endurvinnslu um 300 tonn af
netadræsum og hugar nú að
hagkvæmni þess að endurvinna
þennan úrgang hér heima.
Minna má jafnframt á tillögu
til þingsályktunar um betri nýt-
ingu á fiskúrgangi, sem Björn
Dagbjartsson flutti fyrr á þessu
þingi, og hefur þann tilgang að
tryggja betur nýtingu á slógi,
hrognum, lifur, ýmsum kolateg-
undum, gulllaxi o.fl. Ennfremur
hliðstæða tillögu Guðmundar G.
Þórarinssonar frá 1981 um líf-
efnavinnslu, m.a. úr fiskinnyfl-
um.
Stærsta dæmið um vannýtt
verðmæti er hin óbeizlaða orka
fallvatna okkar, sem breyta má í
störf og bætt lífskjör. Staðið var
á öllum bremsum í málefnum
orkuiðnaðar 1978—1983. Sá
þvergirðingsháttur, sem þá réð
ríkjum, hefur seinkað bættum
lífskjörum í landinu um all-
nokkur ár.
Þau eru ófá tækifærin, stór og
smá, sem í framkvæmd væru
spor upp úr kjaralægð. Endur-
vinnsla á úrgangspappír og
netadræsum eru dæmi þar um.
Og hvað um margvíslegt úr-
gangsgler? Má ekki endurvinna
það í markaðsvöru? Þá má að
ósekju minna á ýmsar fornar
dyggðir: nýtni, hófsemd í líferni
og varðveizla margs konar verð-
mæta sem við höfum handa á
milli.
Takist okkur að þróa efna-
hagslíf til stöðugleika og frjáls-
ræðis í þjóðarbúskapnum, þíða
klakabönd hafta og kerfisstjórn-
unar, mun hugvit og framtak
fólks í landinu vísa veginn til
bættra lífskjara. Það er hyggi-
legra fyrir þegna þjóðfélagsins
að standa saman að vexti þjóð-
artekna, sem lífskjörum ráða í
raun, hvað sem öllum samning-
um líður, en slást innbyrðis um
rýrnandi þjóðartekjur.
Þræðirnir
liggja víða
IMorgunblaðinu í dag birtist
grein sem ber fyrirsögnina:
„Fréttin um ófullgerðu stýri-
flaugina flaug víða" en þar er
sagt frá því hvernig frétt í sjón-
varpinu 13. nóvember 1983 hefur
orðið kveikjan að umræðum í
Noregi og Danmörku um að
Bandaríkjamenn hafi í hyggju
að koma þar fyrir stýriflaugum.
í danska blaðinu Politiken telja
menn sig geta séð skugga Nik-
olai Gribins, KGB-foringja í
Danmörku, á bak við það að
fréttin komst í hámæli þegar
dró til kosninga í Danmörku.
Það var ekki íslenska sjón-
varpið sem stóð fyrir því að
frétt þess, sem átti rætur að
rekja til frásagnar í skoska
blaðinu Scotsman af bók ein-
hliða afvopnunarsinna, breyttist
í pólitískt bitbein á alþingi ís-
lendinga eða annars staðar,
heldur má rekja það til Þjóðvilj-
ans og forystumanna Alþýðu-
bandalagsins. Skrif og ummæli
kommúnista hér á Iandi urðu
olía á lygaeldinn sem Sovét-
menn kynda hvarvetna á Vest-
urlöndum. Sá sem stendur fyrir
sendingu á lygafréttum héðan er
enginn annar en E. Barbukho,
forstöðumaður Novosti, áróð-
ursskrifstofu sovéska sendiráðs-
ins í Reykjavík. í frásögn Morg-
unblaðsins í dag kemur fram að
hann hefur að minnsta kosti
sent tvær lygafréttir um ófull-
gerðu stýriflaugina til Rauðu
stjörnunnar, málgagns sovéska
hersins.
Gegn miðlun lygafrétta eru fá
ráð haldbær í frjálsum og
opnum þjóðfélögum. Mestu
skiptir að blaðamenn sýni ár-
vekni og láti ekki blekkjast þeg-
ar ætlunin er að beita þá prett-
um, en KGB hefur lagt sig fram
við þá iðju undanfarin misseri.
Hitt á ekki að þola að risaveldi
hreiðri um sig á íslandi með
áróðursskrifstofu sem gegnir
því hlutverki helst að koma
lygafréttum á framfæri við ís-
lenska fjölmiðla og senda lyga-
fréttir út úr landinu. Novosti
getur ekki einu sinni sagt satt
um heilsufar Sovétleiðtoga. Er
tími til kominn fyrir stjórnvöld
að stemma stigu við þeim ósköp-
um.
Samið í Járn-
blendifélaginu
UNDIRRITAÐIR hafa verió
kjarasamningar milli stjórnar ís-
lenska járnblcndifélagsins og
verkalýðsfélaganna sem hlut eiga
aó máli.
„Samningurinn gildir frá 1.
janúar sl. til 1. mars 1985.
Grundvallaratriði samnings-
ins er, að hann er óbreyttur frá
því sem verið hefur, miðað við
venjuleg afköst verksmiðjunnar.
í samninginn eru hins vegar
tekin upp ákvæði, sem færa mun
starfsmönnum auknar tekjur þá
mánuði, sem framleiðslumagn
og framleiðni er meiri.
Samið er um, að grunnkaups-
breytingar, sem kunna að verða
á almennum vinnumarkaði á
samningstímanum, komi núver-
andi launum til hækkunar á
þeim tímum, sem þar um
semst,“ segir í fréttatilkynningu
sem Morgunblaðinu hefur bor-
ist.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun samning-
urinn um bónusinn þýða um 6%
hækkun á launum starfsmanna
á ársgrundvelli.
Tilboð og gagntilboð í kjaradeilu ÍSAL:
Tölur eru ekki
sambærilegar
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist fréttatilkynning frá íslenska
álverinu í tilefni af fréttum um
3% launahækkunarboð þess til
starfsmanna sinna, sem svaraó
var með gagnboði um 7,5%. Seg-
ir þar að til viðbótar 3% bráða-
birgðahækkun ÍSAL skyldi
endurskoða kaupliðinn til sam-
ræmis við almenna samninga,
eigi síðar en einum mánuði eftir
að þeir næðust. Þá hefði verið
tilgreindur samningstími til 31.
janúar 1985 og annað það sem
samkomulag hefði náðst um
skyldi gilda, en þar hefði verið
um nokkur atriði að ræða sem
verulegu máli skiptu fyrir kjör
starfsmanna.
Þessu hefðu verkalýðsfélög-
in svarað með kröfu um 7,5%
kauphækkun. Samningstími
hefði ekki verið tilgreindur en
boðið upp á að áfangahækkan-
ir, samningstími, verðlags- og
gengisforsendur yrðu ræddar.
Síðar hefði komið í ljós að við-
semjendur hefðu haft 1. maí
eða 1. júlí í huga án endur-
skoðunarákvæða eða samn-
ingstíma fram á haustið með
tryggingarákvæðum.
Framangreindar tölur væru
því ekki sambærilegar.
Fulltrúar Sements-
verksmiðju á fundi
FUNDUR hefur verið boðað-
ur hjá rikissáttasemjara með
fulltrúum Sementsverk-
smiðju ríkisins klukkan tíu á
mánudaginn, þ. 20. febrúar.
Rædd verða atriði er varða
breytingu á vinnutilhögun,
sem varð í kjölfar þess að
tekin var upp brennsla kola í
stað olíu í Sementsverksmiðj-
unni.
llnnið að því að tengja víra á milli Sandeyjar II og tveggja ýta í Engey, sem notaðar verða til að rétta skipið við í dag og snúa því
á réttan kjöl á morgun, ef allt gengur að óskum. Morgunbiaðið/ól.K.M.
Reynt að velta Sandey
við á sunnudaginn
SENN fer að draga til tíðinda við
björgun dæluskipsins Sandeyjar II,
sem marað hefur í kafi austur af Eng-
ey frá því í októberlok, er skipinu
hvolfdi með sviplegum afleiðingum.
í gærdag unnu starfsmenn
Björgunar hf. að því að tengja víra
út í skipið frá eynni, en meiningin
er að rétta skipið af í dag og leggja
því þannig, að sem best átak náist
þegar lagt verður í að velta skipinu.
Tvær ýtur í Engey eru notaðar til
að toga í skipið, en fyrst er sjónum
þrýst út með því að fylla það lofti.
Ef allt gengur að óskum í dag og
sunnudag, má búast við að tilraun
verði gerð til að velta skipinu síð- Vatnsdreki Björgunar hf. kemur að góðum notum við björgunaraðgerðirnar. Þetta
degis á sunnudag á háflóði. er eins konar „bílbátur", jafnvígur á sjó og land.
Iðnþróunarsjóður:
Vöruþróun efld
í íslenskum
fyrirtækjum
Iðnþróunarsjóður hefur undanfarið ár
staðið fyrir verkefni um vöruþróun í ís-
lenskum fyrirtækjum, sem lýkur um
næstu mánaðamót. Verkefnið er unnið í
samvinnu við Félag íslenskra iðnrek-
enda, l.andsamband iðnaðarmanna og
Statcns Teknoiogiske Institutt í Osló,
sem annaðist skipulagningu verkefnis-
ins. Tilgangur þess er m.a. að gefa þátt-
ökufyrirtækjum, sem voru níu talsins,
kost á að tileinka sér skipulega aðferð
með vöruþróun, að undirbúa íslenska
aðila til að sjá um samskonar verkefni
og vekja stjórnendur fyrirtækja til um-
hugsunar um nauðsyn þess að leita sí-
fellt að nýjum framleiðsluvörum.
Statens Teknologiske Institutt hef-
ur áður skipulagt sambærilegt verk-
efni i Noregi. Það sem verkefnið
byggir á er nauðsyn vöruþróunar,
með tilliti til þess að lífdagar hverrar
vöru eru nú fyrr taldir en áður var
vegna vaxandi samkeppni og aukinna
krafa neytenda. Sýna markaðsrann-
sóknir fram á að eftir fimm ár verði
75% þeirra vara, sem nú eru á mark-
aði horfnar þaðan, eða þá að á þeim
verði gerðar verulegar endurbætur.
Því verða framleiðslufyrirtæki í öll-
um greinum að vera vakandi fyrir
nauðsyn vöruþróunnar og veita til
hennar nægilegu fé.
Fræðslan fyrir hina níu þáttakend-
ur var þannig byggð upp að blandað
var saman fræðilegu efni og raun-
hæfri vinnu, með tilliti til aðstæðna
hjá sérhverju fyrirtæki. Hófst verk-
efnið með námskeiði um stefnumótun
fyrirtækja og síðan var lagður grunn-
ur að vöruþróuninni. Settu fyrirtækin
þá fram þau lágmarksskilyrði varð-
andi fjármál, tækni, framleiðslu og
markað, sem vara eða vörutegund
þurfti að uppfylla til að teljast
áhugaverð og arðbær fyrir þau. Því
næst var kallaður saman hópur
manna við hvert fyrirtæki, sem hafði
sérþekkingu á framleiðslusviði á
hverjum stað. Var þannig reynt að
leita eftir almennri þróun komandi
ára í tækni, þörfum og kröfummark-
aðsins, þannig að hvert fyrirtæki
gæti gert þær breytingar á núverandi
vöruvali, eða þróað nýjar tegundir, til
að uppfylla betur kröfur markaðsins.
Fyrirtækin sem tóku þátt í verk-
efninu voru Blikk og Stál hf., Krist-
ján Sigurgeirsson hf., Málning hf.,
Plastprent hf., Sápugerðin Frigg hf„
Smjörlíki hf., Ullardeild Iðnaðar-
Nokkrir af aðstandendum verk-
efnisins. F.v. Eggert Hauksson,
framkvæmdastjóri Plastprents hf.,
Bragi Hannesson, bankastjóri og
formaður Iðnþróunarsjóðs, Óskar
Maríusson, framkvæmdastjóri
Málningar hf., Páll Kr. Pálsson,
hagfræðingur og ráðgjafi í verk-
efninu, Guðmundur Kr. Tómas-
son, viðskiptafræðingur, Þorvarð-
ur Alfonsson, framkvæmdastjóri
Iðnþróunarsjóðs og Knut
Gráthen, verkfræðingur STI í
Noregi og ráðgjafi í verkefninu.
Ljésm. Mbl./ÓLK.M.
deildar Sambandsins, Vélsmiðjan
Oddi hf. og Örtölvutækni hf.
Á blaðamannafundi, sem aðstand-
endur verkefnisins héldu nýlega, kom
það fram að forráðamenn fyrirtækj-
anna hefðu talið verkefnið bæta úr
brýnni þörf. Eru í flestum fyrirtækj-
anna nú þegar uppi hugmyndir að
nýjum vörum eða breytingum á nú-
verandi framleiðslu.
Kostnaður við verkefnið er áætlað-
ur um þrjár milljónir króna og er
hann að mestu greiddur af Iðnþróun-
arsjóði. Forsvarsmenn sjóðsins hafa
nú í ráði að samskonar verkefni verði
komið á með útflutning íslensks iðn-
aðar í huga.
Davíð Oddsson borgarstjóri:
Miðum við að hefja
framkvæmdir við báða
skólana árið 1985
„VIÐ stefnum að því núna að hefja
framkvæmdir við báða þessa skóla á
árinu 1985 og getum þá vonandi tek-
ið í gagnið hluta húsnæðisins 1986
til 1987“, sagði Davíð Oddson í við-
tali við Mbl. í gær vegna gagnrýni
sem fram hefur komið hjá Foreldra-
og kennarafélagi Vesturbæjarskól-
ans þess eðlis að borgarstjórn hygg-
ist láta byggingu nýs skóla í Grafar-
vogi ganga fyrir byggingu nýs Vest-
urbæjarskóla þar sem ástandið væri
óviðunandi. Davíð lagði þó áherslu á
að þetta væri háð fyrirvara eins og
þeim, að ríkisvaldið setti ekki stól-
inn fyrir dyrnar. Davíð sagði að á
undanförnum árum hefði vegna
fjölgunar í hverfinu verið bætt við
húsnæði skólans þremur lausum
kennslustofum og því hefði húsrými
skólans verið aukið um 50 af hundr-
aði.
„Hönnunarvinna er hafin við
nýtt skólahúsnæði í Vesturbæn-
um, en borgin hefur náttúrulega í
mörg horn að líta í þeim efnum.
Við þurfum að ganga frá fram-
kvæmdum við Hólabrekkuskóla og
Seljaskóla, jafnframt því sem við
þurfum að hefjast handa við þenn-
an skóla og skóla í Grafarvogi. En
við miðum okkar plön, með fyrir-
vara þó, við að hefja framkvæmd-
ir við báða þessa skóla á árinu
1985“, sagði Davíð Oddsson.
Fögnum því ef skólarnir
verða byggðir samtímis
segir Stefán Thors, formaöur foreldra-
og kennarafélags Vesturbæjarskóla
„VIÐ FÖGNUM því náttúrulega
innilega ef tilfellið er að þessir skól-
ar eigi að byggjast upp samtímis,
þ.e.a.s. að Vesturbæjarskólinn hafi
einhvern forgang. Hins vegar kemur
það fram í fjárhagsáætlun fyrir
stofnkostnað fræðslumála í Reykja-
vík, að á þessu ári er veitt einni
milljón í hönnun á Grafarvogsskóla
og milljón í hönnun á Vesturbæjar-
skóla. Síðan er ráðgert að veita 22
milljónum í framkvæmdir við Graf-
arvogsskóla en aðeins 200.000 í
framkvæmdir við Vesturbæjarskóla
á næsta ári. Það er samþykkt
fræðsluráðs að gera þetta svona,"
sagði Stefán Thors, formaður for-
eldra- og kennarafélags Vesturbæj-
arskólans, í viðtali við Mbl. vegna
yfirlýsinga Davíðs Oddssonar, borg-
arstjóra, varðandi byggingu nýs
Vesturbæjarskóla.
„Við erum ekki að setja út á það
að framkvæmdir við Hólabrekku-
skóla og Seljaskóla séu forgangs-
verkefni, það eina sem við viljum
er að Grafarvogsskóli hafi ekki
forgang fram yfir okkur, því þar
eru engin börn. Hérna eru 300
börn sem búa við þessar óviðun-
andi aðstæður sem við höfum ver-
ið að lýsa,“ sagði Stefán Thors.
Dalvík:
Hráefnisskortur og
fólki sagt upp störfum
Dalvík 17. tebrúar.
HRÁEFNASKORTUR er nú hjá
frystihúsi Kaupfélags Eyfirðinga á
Dalvfk og hefur starfsfólki verið
sagt upp störfum. Fiskleysi þetta
stafar af því að annar togara útgerð-
arfélags Dalvíkinga, Björgvin, hefur
verið frá veiðum frá 1. febrúar. Við
þessa bilun bætist, að lítill afli var
hjá Björgúlfi í síðustu veiðiferð og
landaði hann aðeins 60 tonnum nú I
vikunni. Nú í kvöld fór Björgúlfur
aftur til veiða. Unnið verður í frysti-
húsinu á mánudag og ef til vill á
þriðjudag, en þá mun allur fiskur
verða unninn. Ekki er enn Ijóst
hvenær Björgvin fer til veiða aftur,
en alvarleg vélarbilun varð í togar-
anum.
Atvinnuleysi er allnokkurt á
Dalvík um þessar mundir og í síð-
ustu viku voru 92 skráðir atvinnu-
lausir. Munar hér mikið um að
engin vinnslá fer nú fram í fisk-
verkun Söltunarfélags Dalvíkur
en þar er unnið að því að hefja
vegna beinbrots
„VID vorum að sýna leikþætti úr
Brúðubílnum á harnaheimili á Seifossi
nú í vikunni, þegar ég datt ofan af
sviðinu og braut á mér vinstri hand-
legginn," sagði Helga Steffenssen,
sem flestir krakkar þekkja úr Leik-
brúðulandi í spjalli við blm. Mbl. í gær.
En vegna þessara meiðsla Helgu verð-
ur sýning á Tröllaleikjum, sem itti að
vera í Iðnó á morgun, sunnudag, að
falla niður.
Tröllaleikjum verður því frestað
rækjuvinnslu. í fyrradag kom
Dalborg, togari félagsins, með um
25 tonna rækjuafla og verða Dal-
víkingar enn að sætta sig við að
sjá á eftir afla Dalborgar til
FÉLAG íslenskra atvinnuflug-
manna sendi frá sér fréttatilkynn-
ingu í gær, þar sem gagnrýnd er
yfirlýsing Flugmálastjórnar um
rannsókn á óhappinu á Keflavík-
til næsta sunnudags, 26. febrúar.
„Við erum búin að gera ráðstafanir
til þess að ég fái aðstoð við aö
stjórna brúðunum," hélt Helga
áfram. Okkur þykir afskaplega leið-
inlegt að þurfa að fella niður þessa
sýningu. Það var uppselt á hana og
hefur raunar verið uppselt á allar
sýningar frá því þær hófust í haust,
en ég hef nú hægri höndina í góðu
lagi og get því gert ýmislegt. Með
góðra manna hjálp ætti sýningin
þann 26. febrúar því að ganga alveg
eins og í sögu!“
vinnslu á Akureyri. Vonandi verð-
ur þess ekki langt að bíða að
rækjuvinnsla hefjist í verksmiðju
söltunarfélagsins.
Fréttaritari
urflugvelli á sunnudag, er Flug-
leiðaþotan Langfari fór út af flug-
braut í lendingu. Fréttatilkynning-
in er svohljóðandi:
„FÍA mótmælir eindregið
ótímabærri yfirlýsingu Flug-
málastjórnar um rannsókn á
lendingu Langfara, DC-8-þotu
Flugleiða.
Fl A lítur svo á, að það sé í
einskis manns þágu að rannsókn
á óhöppum í flugi sé rekin í fjöl-
miðlum. Mál sem þessi krefjast
nákvæmrar og yfirvegaðrar
rannsóknar. Framburður sjón-
arvotta einn sér, í þessu tilviki,
hlýtur að orka tvímælis.
Fram að þeim tíma er niður-
stöður rannsóknarinnar liggja
fyrir verður að telja bæði rétt og
sanngjarnt að rannsóknaraðili
bíði með yfirlýsingar sínar.
Ohapp Langfara á Keflavíkurflugvelli:
FIA gagnrýnir
Flugmálastjórn
„Tröllaleikir“ falla niður