Morgunblaðið - 09.03.1984, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.03.1984, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1984 21 LJtgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavtk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, simi 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakið. Stjórnmálamenn- irnir og kerfið etta vissum við alltaf og þetta hefur alltaf vérið svona. Þið skulið bara snúa ykkur til stjórnmála- mannanna." í þessum dúr tala embættismennirnir þeg- ar fjölmiðlar snúa sér til þeirra og spyrja um gatið á ríkissjóðnum, þá staðreynd að skömmu eftir að alþingi afgreiddi hin „raunhæfu" fjárlög skuli vanta sem svar- ar til rúmlega 10% af niður- stöðutölu þeirra til að endar nái saman. Stjórnmála- mennirnir setjast nú niður og reikna fjárlagadæmið upp á nýtt, lofa sparnaði og leggja á hærri skatta, en hjólin í kerf- inu snúast áfram eins og ekk- ert hafi í skorist. Úr því að sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá ríkisstjórninni að ræða að minnsta kosti um gatið á ríkissjóði í stað þess að dæla bara meira fé í sjóð- inn jafnóðum og það streymir sjálfkrafa úr honum ættu stjórnmálamennirnir jafn- framt að líta á eyðslukerfið sjálft. Þeir sem hafa mesta hags- muni af því að ekki sé hróflað við neinu í kerfinu eru fljótir að gera allar tillögur um breytingar tortryggilegar. Haldbesta úrræðið til að drepa sparnaðartillögur felst í því að básúna hve mikið ein- staklingar eigi undir því að ekkert sé gert sem til breyt- inga horfi. Hvort heldur rætt er um rekstur á rafmagns- veitum eða ræstingu á sjúkrahúsum má helst engu breyta. Þótt undarlegt sé eru það „róttæklingarnir" í þjóð- félaginu, hinir vinstrisinnuðu „gáfumenn", sjálfskipaðir leiðbeinendur fjöldans, sem harðast bregðast við þegar rætt er um breytingar, og þeim mun ofsafengnari verða viðbrögð þeirra eftir því sem breytingatillögurnar eru róttækari. Nýjasta dæmið um þetta er sá samblástur sem verið er að efna til gegn hugmyndum um breytingar hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Ættu þeir sem áhuga hafa á að fylgjast með því hvaða ráðum er beitt til að drepa opinbera hagræð- ingu í fæðingu að fylgjast ná- ið með nýjustu rimmunni í eilífðarslagnum um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Stjórnmálamenn geta brugðist við vanda eins og þeim sem nú hefur komið upp á tvennan hátt. í fyrsta lagi geta þeir sagt sem svo: Við höfum lagt spilin á borðið, allir eru sammála um að þetta sé óviðunandi og einnig hitt að ekki megi draga sam- an seglin, þess vegna leggjum við til að skattar verði hækk- aðir. í öðru lagi geta þeir sagt: Við sættum okkur ekki við að kerfið taki af okkur völdin og reki okkur hvað eft- ir annað til þess að íþyngja borgurunum með meiri skött- um, nú er það kerfið sem verður að láta undan. Með hliðsjón af því sem lagt hefur verið á launþega og skattgreiðendur í átökun- um við verðbólguna til þessa, og hve menn hafa möglunar- laust gengið til þess óþrifa- verks að hreinsa út eftir vinstri stjórnir undanfarinna ára, er stjórnmálamönnum sem annt er um umbjóðendur sína ekki fært að krefjast meiri fórna af þeim að sinni. Áður fyrr sættu menn sig betur við það en núna að stjórnmálamennirnir ákvæðu fyrst hve miklu ætti að eyða og færu síðan ofan í vasa al- mennings eftir peningunum — þetta er gamla framsókn- araðferðin við stjórn ríkis- fjármála og hún á ekki lengur upp á pallborðið. Sjómenn og þeir sem eiga afkomu sína að mestu undir fiskveiðum og vinnslu hafa með lögum frá alþingi verið skyldaðir til að draga saman seglin af því að það finnst ekki nægilega mikill þorskur í sjónum. Nýju kerfi hefur verið hrundið í framkvæmd með þátttöku sjómanna og útgerðarmanna. Aðilar sjálf- ir hafa tekið þátt í að þrengja eigin hag. Hvers vegna er ekki gripið á vanda ríkissjóðs með sama hætti? Hvað gerð- ist ef embættismennirnir gætu ekki alltaf vísað öllu til stjórnmálamannanna? Af hverju er ekki gerð atlaga að kerfinu í því skyni að skera niður fjárþörf þess af sama krafti og tekið var á stjórn fiskveiða í þágu þorsksins? Fjármunir landsmanna eru af jafn skornum skammti og þorskurinn. Enginn trúir því að opinbera kerfið á íslandi sé svo fullkomið að auglýsa þurfi í fjölmiðum eftir því hvernig unnt sé að vinna að hagræðingu innan þess. Stjórnmálamennirnir eiga hvorki að vera verndarar né skotspónn kerfisins heldur eiga þeir að sjá til þess að það sé bæði skilvirkt og ódýrt. Athugun á starfsemi og rekstri Lánasjóðs ísl. námsmanna: Fjárþörfín fjórfaldast á árabilinu 1971—1984 — mun hraðar en útgjöld ríkissjóðs eða menntamálaráðuneytis FJÁRPÖRF Lánasjóés íslenskra námsmanna hefur rúmlega fjórfaldast að raungildi á tímabilinu 1971—1984 og vaxið þannig mun hraðar en út- gjöld ríkissjóðs eða menntamálaráðu- neytis á þessum sama tíma. Þá sinnir Lánasjóðurinn nú orðið ýmsum verk- efnum, sem almennt heyra undir trygginga- og skattakerfið í landinu. Þetta kemur m.a. fram í niðurstöðum athugunar á starfsemi og rekstri sjóðs- ins, sem unnin hefur verið fyrir menntamálaráðherra á vegum Könn- unarstofunnar hf. Úttektin var mest- megnis unnin af Árdísi Þórðardóttur, rekstrarhagfræðingi, á tímabilinu frá september 1983 til febrúar 1984. Hér fer á eftir samandregin niður- staða skýrslunnar: „Athugun þessi beinist að þróun Lánasjóðs íslenskra námsmanna (Lín) á árunum 1971—1984. Vandi sjóðsins er einkum þessi: 1. Eftirspurn eftir námsaðstoð hef- ur aukist mjög hratt og meðal- aðstoð hefur hækkað mun meir en hlutfall „láns“ af umframfjár- þörf eða fjárþörf. Fjárþörf Lín hefur rúmlega fjórfaldast að raungildi á tímabilinu og vaxið þannrg mun hraðar en útgjöld ríkissjóðs eða menntamálaráðu- neytis á þessum sama tíma. (Sjá meðf. línurit). 2. Verksvið Lín hefur víkkað út. Nú miðast námsaðstoðin ekki bara við námsframvindu nemenda á háskólastigi. Nemendur í ýmsum sérskólum hér á landi og erlendis sem ekki áttu möguleika á aðstoð úr sjóðnum í upphafi rannsókn- artímabilsins eiga nú kost á að- stoð hjá Lín Ennfremur er nú tekið tillit til fjölskylduað- stæðna, tekna o.þ.h. í sífellt meiri mæli en áður var. Því má segja að sjóðurinn sinni nú orðið ýms- um verkefnum sem almennt heyra undir tryggingakerfið og skattakerfið í landinu. 3. Fyrirkomulag rekstrarins, þ.e. aukin lántaka sjóðsins sjálfs, vaxtaleysi „útlána" og afskrift á einhverjum hluta þeirra, verða til þess að framlag ríkissjóðs Þróun 1971—1984 Samanburður á aukningu: ■ Rikisútgjalda: R en áriö 1983 nam Iram'ag rikissjóös lil Lin 362 m kr eða 2 3% rikisúlgjalda og 13 9% úlgjalda mennlamálaráðuneylis skilar sér illa til aukningar á höf- uðstól sjóðsins. 4. Rekstrarkostnaður skrifstofu Lín hefur vaxið hraðar en heildar- fjárþörf sjóðsins. Á árunum 1971-1976 kostaði 1,59% af heildarúthlutun fjár úr sjóðnum að reka skrifstofuna, en á árun- um 1977—1984 tekur skrifstofu- reksturinn 2,22% af heildarút- hlutun „lána“ og styrkja Lín. Helstu tillögur til úrbóta eru þessar: 1. Að efla starfsemi Háskóla Is- lands svo nýta megi betur fjár- festingu í landinu með það fyrir augum að háskólanám verði stundað í auknum mæli hér heima. 2. Að endurskoða lög um námsað- stoð með það að leiðarljósi að greina skýrt milli lána og styrkja til námsmanna. Upphæð styrkja yrði þá ákveðin árlega af alþingi. Lán til námsmanna yrðu með hliðstæðum kjörum og önnur fjárfestingarlán. 3. Áð einfalda mjög úthlutunar- reglur um „lán“ til námsmanna þannig að úthlutun gæti færst til bankanna, reynist þeir bjóða þjónustuna á lægra verði en skrifstofa sjóðsins getur veitt hana. 4. Að endurskipuleggja starfsemi skrifstofu Lín með það að mark- miði að skrifstofukostnaðurinn verði 1,0—1,5% af heildarúthlut- un námsaðstoðar. Þessi rekstrarlega úttekt á Lín er unnin að ósk og fyrir tilstuðlan menntamálaráðherra, Ragnhildar Helgadóttur. Úttekin var unnin á vegum Könnunarstofunnar hf. mestmegnis af Árdísi Þórðardóttur, rekstrarhagfræðingi, á tímabilinu frá september 1983 til febrúar 1984. Markmið þessarar úttektar á Lín er að gera grein fyrir þróun sjóðsins og huga að hagræðingu í rekstri hans. Gagnasöfnun hefur verið tíma- frek og viðamikil. Einkum hefur verið leitað til menntamálaráðu- neytis, Hagstofu og skrifstofu Lín. Umbeðnar upplýsingar hafa verið afhentar okkur án undantekningar og hvarvetna hjá þessum stofnun- um hefur starfsfólk verið velviljað." Askell Másson kynntur á tónleikum í Wigmore Hall í London: Tvö verk frumflutt Vinnur að óperu eftir Klakahöll Vesaas TÓNLIST eftir Áskel Másson verð- ur kynnt í London á tónleikum í Wigmore Hall þann 20. mars nk. I samtali við Mbl. sagði Áskell að aðdragandi að þessum tón- leikum væri orðinn næstum tvö ár. Archie Newman hafi átt hug- myndina, en hann sér um al- mannatengsl fyrir The Royal Philharmonic Orchestra í Lond- on. Hann viðraði þessa hugmynd við Einar Benediktsson, sendi- herra, sem tók henni vel. Áskell kvað menntamálaráðuneytið hafa styrkt tónleikahaldið. Einn- ig styrkja tónleikana ýmis fyrir- tæki, Flugleiðir hf., Scandi- navian Bank, Hafskip hf., Lands- banki íslands, Eimskipafélags íslands hf., Rolf Johansen & Company, SÍS, Hilda hf., Eggert feldskeri, Almennar tryggingar hf., O. Johnson & Kaaber hf. og Ávöxtun sf. Áskell kvað Ármann Reynisson hafa annast fjár- málahlið tónleikanna og þetta hafi reynst framkvæmanlegt með þeim góða stuðningi sem of- angreindir aðilar hafa lagt fram. Áskell kvað tónleikana leggj- ast óskaplega vel 1 sig, allir sem við sögu kæmu væru mjög færir á sínu sviði, bæði hljómlistar- menn og aðrir og nefndi þar til Jane Grey sem er umboðsmaður tónleikanna. Hann kvað elsta verkið á efnisskránni vera frá 1977 og gat þess einnig að frum- flutt yrðu tvö verk, annað, Kad- enza, væri einleiksverk fyrir ví- ólu samið fyrir Unni Sveinbjarn- ardóttur, víóluleikara, en það væri aðallega byggt á síðustu Kadenzunni úr Víólukonsertin- um sem frumfluttur verður 5. maí nk. af Sinfóníuhljómsveit ís- lands. Hitt verkið kvað hann vera „Tríó“, samið fyrir íslenska Áskell Másson tónlistarmaður hljóðfæraleikara, þau Guðnýju Guðmundsdóttur, Unni Svein- bjarnardóttur og Einar Jóhann- esson. Áskell kvaðst um þessar mundir dvelja við tónsmíðar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Hann er að semja óperu byggða á „Klakahöllinni“ eftir Vesaas sem út kom fyrir nokkuð mörgum ár- um í þýðingu Hannesar Péturs- sonar. Áskell sagðist einnig hafa samið nýtt verk fyrir Svíann Gert Mortensen sem hann flutti á tónleikaför sinni um Dan- mörku og Svíþjóð. Tónleikunum var útvarpað bæði í Svíþjóð og Danmörku. Áskell sagðist vera á förum til London til að undirbúa tónleik- ana í Wigmore Hall. Hann kvað liggja óhemju mikla vinnu í slík- um undirbúningi og væri ekki vinnandi vegur nema til kæmi aðstoð margra manna. Einleik á tónleikunum í Lond- on leika þau Guðný Guðmundsd- óttir, konsertmeistari, Unnur Sveinbjarnardóttir, víóluleikari, Einar Jóhannesson, klarinettl- eikari, Roger Carlsen, James Hollan og David Johnson, slag- verksleikarar, og Judith Hall og Kelen Kenn, flautuleikarar. ÞORSKAFLI A ÍSLANDSMIÐUN 1950 1984 (íþús tonnum) Þorskafli á Islandsmiðum: Helmingsminnkun þorsk- afla á þremur árum Tafla þessi sýnir hvern veg þorskafli hefur mælst (í þúsundum tonna) 1950—1984. Hlutur útlendinga í heildarafla er mikill fram undir útfærslu fiskveiði- landhelgi í 200 mílur. Síðan er veiðisóknin nær ein- vörðungu okkar. Kngu að síður stefndi veiðisókn umfram veiðiþol þorskstofninum í hrunhættu, sam- anber veiðisamdrátt hin síðustu árin. í heimildarriti Þjóðhagsstofnunar, Úr þjóðarbúskapnum (janú- ar/1984), segir: „Enda þótt reiknað sé með því, að ný fiskveiðistefna haldi aftur af sóknartengdum kostnaði að því marki sem ætlað er að draga úr afla 1984, blasir engu að síður mikill rekstrarhalli við togurunum, en rekstur bátaflotans stendur í járnum. Botnfiskveiðar í heild væru reknar með tapi sem næmi a.m.k. 7—10% af tekjum. Dragi ekki úr sókn yrði tapið mun meira. Rekstrarhaliinn er þó aðeins hluti vandans. Útgerðin er í vanskilum með 1.100 m.kr. vegna stofnlána í árslok 1983, en 500 m.kr. vegna viðskiptaskulda.“ Ríkissjóður gefur út ríkisvíxla fyrir 30 millj. kr.: Lágmarkstilboð 10 víxlar að nafnvirði 500 þús. kr. RÍKISSJÓÐUR hefur ákveðiö að leita eftir auknu lánsfé með útgáfu ríkisvíxla að nafnvirði samtals 30 millj. kr. Víxlarnir verða seldir í Seðlabanka íslands á útboðsgrund- velli og er öllum frjálst að bjóða hvaða verð sem er í þá, og eru þeir ekki háðir neinum vaxtaákvæðum. Hver víxill verður 50 þús. kr. að nafnvirði en lágmarkstilboð 500 þús- und krónur og binditími 90 dagar. Víxlarnir verða stimpilfrjálsir, án þóknunar og vextir af þeim skatt- frjálsir. Ríkisvíxlar þessir eru gefnir út samkvæmt lögum nr. 79/1983 en þar er fjármálaráðherra heimiluð útgáfa slíkra víxla og getur han'n ákveðið að þeir verði boðnir út í stað þess að vera bundnir forvöxt- um. Á blaðamannafundi sem full- trúar fjármálaráðuneytis og Seðlabanka boðuðu til í gær var gerð grein fyrir þessari ákvörðun. Kom þar m.a. fram í máli Hösk- uldar Jónssonar ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytis, að sala spari- skírteina ríkissjóðs, sem gefin voru út 9. febrúar sl., hefði gengið sæmilega. Skírteini bundin láns- kjaravísitölu hafa selst fyrir tæp- ar 65 millj. kr. á tímabilinu, en með viðmiðun við SDR gengis- skráningu fyrir 13—14 millj. kr. Samkvæmt lánsfjáráætlun ársins er gert ráð fyrir innlendri lántöku að upphæð 945 millj. kr., en þar af 200 millj. í spariskírteinum. Útgáfudagur víxlanna verður 21. marz nk. en gjalddagi 21. júní. Tilboðum skal skila til lánadeildar Fulltrúar Seólabankans og fjármálaráðuneytis sem kynntu nýju ríkisvíxlana á blaðamannafundinum í gær. Seðlabankans fyrir kl. 14 19. marz nk. Gera skal bindandi tilboð í a.m.k. 10 víxla, þ.e. að nafnverði samtals 500 þús. kr. Tilboðunum skal fylgja tíu þúsund króna trygging. Gangi tilboðsgjafi frá tilboði sínu glatar hann fjárhæð- inni, ella gengur hún upp í ríkis- víxlaviðskipti, en fjárhæðin er endursend ef tilboði er hafnað. Undanþegnir greindri innborgun- arskyldu eru: Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris- sjóðir og tryggingafélög. Ríkissjóður áskilur sér rétt til að birta gild tilboð, án þess að vísa til nafns tilboðsgjafa. Einnig áskilur hann sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Tilboðsgjöfum verð- ur tilkynnt fyrir kl. 16 hinn 20. marz 1984, hvort tilboðum þeirra hefur verið tekið eða hafnað. Ráðuneytisstjóri var spurður á fundinum í gær, hvort ekki væri hætta á að víxilútgáfa þessi hefði áhrif á almenna vexti til hækkun- ar. Einnig var hann spurður, hvort ríkissjóður hefði í hyggju að veita með þessum víxlum betri kjör en bankar gera í dag. Hann svaraði því til að ríkissjóður gæfi ekki upp hvernig hann hygðist standa að úrvinnslu tilboðanna, en þess bæri að geta að með þess- ari útgáfu væri verið að gefa mönnum kost á skammtímabind- ingu lausafjár, en spariskírteini ríkissjóðs væru bundin til þriggja ára. Hann var einnig spurður af hverju aðilum væri mismunað varðandi tilboðstryggingu. Sagði hann þá aðila sem ekki væru bundnir tryggingargreiðslum vera háða opinberu eftirliti og teldi ríkissjóður því ekki ástæðu til að ætla að þeir stæðu ekki við tilboð sín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.