Morgunblaðið - 10.03.1984, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MARZ 1984
9
ÉíteiMináD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 234. þáttur
í auglýsingu í íslensku blaði
mátti lesa ekki fyrir löngu:
„Segðu EUBOS (Jú-boss) í
staðinn fyrir sápu!“
Auðvitað er ekki bannað að
kenna enskan framburð á ís-
landi, það er gert í enskutím-
um í skólum, en þessi auglýs-
ing jaðrar við að vera tilræði
við tunguna. Ef við ætlum
okkur að taka upp orðið eubos,
sem er reyndar ekki frýnilegt
nýyrði, þá er sú lágmarkskraf-
an, að við berum orðið fram að
lögum íslenskrar tungu, en
ekki enskrar. Fyrri hlutinn
ætti þá að vera eins og í Evr-
ópa, en seinni hlutinn með
löngu o-i og stuttu s-i eins og í
los og tos.
Ég hef áður minnst á fram-
burðinn júrókard sem er sama
skelfingin, og fyrir skömmu
gerði fréttastofa útvarpsins
heiðarlega tilraun að festa
orðið krítarkort í málinu. Burt
með smekkleysuna júrókard
kreditkort!
★
Víkjum svo lítillega að með-
ferð erlendra staðanafna í ís-
lensku. Hún getur verið nokk-
uð vandasöm. Þegar heitin eru
af sama málaflokki og ís-
lenska, liggur beinast við að
nota sem íslenskulegasta gerð,
einkum þegar löng hefð er
fyrir henni. Við segjum Kaup-
mannahöfn og Stokkhólmur og
beygjum þessi orð eftir ís-
lensku lagi, svo og Þórshöfn og
Hamborg. Að sama hætti segj-
um við Edinborg, með aðal-
áherslu á fyrsta atkvæði og
aukaáherslu á þriðja, en ekki
Edinborró, eða eitthvað sem
næst því, eins og Englendingar
segja. Þegar orð eru fjarskyld-
ari, vandast málið. Hvað um
borganöfn eins og Moskva,
Jakarta og Fisa. Eigum við að
hafa þau óbeygð, eða eigum við
að beygja þau og bera fram
eins og veik kvenkynsorð í
máli okkar og segja í Moskvu,
Jakörtu og Písu? Ég vildi
gjarna heyra skoðanir manna
á þessu. Þegar staðanöfn verða
mjög framandi, eins og Teguc-
igalpa í Honduras, held ég að
við látum þau óbeygð. Varla
förum við að segja í Tegúsig-
ölpu í Honduras(s)i. Enn fjær
lagi er að beygja orð eins og
Kabul, Isfahan, Idaho eða Nuq.
Verst þykir mér í þessu efni,
þegar menn taka úr öðrum
málum en „heimamálinu" nöfn
staða og borga. Ef okkur þykir
of mikið gert að kalla Bayern í
Þýskalandi Bæjaraland, höld-
um við þýskunni óbreyttri, en
öpum ekki eftir Englendingum
að kalla landið Bavaria, og
Múnchen breytum við ekki í
Munich að sama hætti eða
Köln í Cologne. Hins vegar
notum við ómengaða ensku í
heiti eins og New York, ef
okkur þykir Nýja Jórvík of
langt eða hátíðlegt. Of mikið
má að öllu gera, svo sem þegar
Heine skáld var nefndur Hæn-
ir og Dússeldorff Þuslaraþorp
og Basel Buslaraborg, sem
vafalítið hefur verið gert í
spaugi. Hitt þykir mér
skemmtilegt og „klassískt" að
kalla ána Elbe í Þýskalandi
Saxelfi og Seine í Frakklandi
Signu. Kirkwall á Orkneyjum
vildi ég kalla Kirkjuvöll og er
nú kominn í hring og kannski
ekki alltaf samkvæmur sjálf-
um mér.
★
Þegar svo er komið gef ég
öðrum orðið. Halldór Krist-
jánsson frá Kirkjubóli skrifar
mér svo:
„Sæll vertu Gísli.
Kröfugerðir kærra vina
kveikja hjá mér litla stöku
virðist mér um valkostina
vanti ákvarðanatöku.
Algengt fréttamál í útvarpi
og blöðum gæti verið svona:
Ákvörðunartaka launþega-
samtaka hefur dregist, en nú
hefur kröfugerð þeirra verið
lögð fram og eru þá tveir val-
kostir fyrir hendi.
Þetta mætti líka orða svo:
Samtök launþega drógu nokk-
uð að ákveða sig en nú hafa
þau lagt fram kröfur sínar og
er þá tveggja kosta völ.
Ég las í Þjóðviljanum um
skoðun „sem á eftir að prófa“.
Ég á margt ógert og þá er það
ógert. Vonandi segir enginn:
Það á ógert. En hvers vegna
þá: Það á eftir?
í sama blaði stendur: ...
„voru algengir sitt hvorum
megin við heimsstyrjöldina
síðari og í henni sjálfri." Hvers
vegna ekki „beggja megin við“
eða „fyrir og eftir styrjöldina."
Og í Morgunblaðinu byrjar
óskapleg frétt með þessum
orðum: „Tveir ölvaðir menn
um tvítugt með sitt hvora
haglabyssuna." Af hverju var
ekki skrifað: „hvor með sína
haglabyssu", eða „með sína
byssuna hvor“?
Ég les í Morgunblaðinu í dag
(8. febrúarj, að Jón Gíslason
segir að Flóaáveitunni fylgdi
það að „var gerð mikil vega-
gerð“. Þá varð mér ljóð á
munni:
Karlar geröu kröfugerö,
kröfugerð um vegagerö,
um þaö ritagerðargerö
geymda í Mogganum þú sérð.
Þurfi maður að umgangast
leiðinlega menn er mikil bless-
un ef maður getur þó haft
gaman af þeim. Reynum það.
Bestu kveðjur og þakkir fyr-
ir góða og fróðlega skemmt-
un.“
Ég þakka Halldóri Krist-
jánssyni skrif hans til mín
fyrr og síðar, og nú man ég í
bili ekki eftir öðru að setja á
blað en vísu sem Þóroddur
Jónasson á Akureyri kenndi
mér. Hann segir að hún sé að
öllum líkindum upprunnin á
Langanesi. Hún birtist hér til-
efnislaust, skýringalaust og af
því bara (eða þannig):
Gættu aö þeirra glæpavef,
Göngu-Hrólfur minn kæri.
Hugsaðu um þeirra hrekkjastef
hér um bil eins og svo sem að ef
barasta ekki nokkur skapaöur hrærandi
Vegna veikinda umsjónarmanns
birtist þátturinn óreglulega á
næstunni.
HELLA
Hús í byggingu til sölu. Fullfrágengiö aö utan.
5 herb. 153 fm auk 30 fm bílskúrs.
Verd kr. 1.900.000,- Utborgun eftir
samkomulagi.
Uppl. í síma 99-5888.
Skákkeppni
framhaldsskóla 1984
hefst aö Grensásvegi 46, föstudag, 16 mars kl. 19.30.
Keppninni veröur fram haldið laugardag, 17. mars kl.
13—19, og lýkur, sunnudag, 18. mars kl. 13—17.
Keppt er í fjögurra manna sveitum (fyrir nemendur f.
1982 og síðar) og er öllum framhaldsskólum heimil
þátttaka í mótinu.
Þátttöku í mótiö má tilkynna í síma Taflfélags Reykja-
víkur, á kvöldin kl. 20—22, í síöasta lagi fimmtudag,
15. mars.
Taflfélag Reykjavíkur,
Grensásvegi 44—46, Reykjavík.
Símar 8-35-40 og 8-16-90.
Opið 1—4
Stórt einbýlishús í
vesturbænum óskast
Höfum fjársterkan kaupanda aö stóru húsi í vestur-
bænum þar sem möguleiki er á 4 íbúðum ásamt
bílskúr. Góöar greiöslur í boöi fyrir rétta eign.
Séreign,
Baldursgötu 12,
íi? símar 29077 — 29736.
SIMAR 21150-21370
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0ROARS0N HDL
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Á góðu verði í Hafnarfirði
raöhús í smíöum í Hvömmunum. Selst fokhelt. Innbyggöur bílskúr á
neðri hæö meö 5 herb. íbúö á tveim hæöum. Mjög gott verö ef samið er
fljótlega. Teikning og nánari upplýsingar aöeins á skrifstofunni.
Tvíbýlishús í Suðurhlíðum — Nú fokhelt
Glæsilegt raöhús á þremur hæöum alls um 270 fm. Séríbúö á 1. hæö
um 100 fnt 3ja—4ra herb. Sér íbúö á 2. hæö og rishæö um 170 tm 6
herb. Bílskúr fylgir stærri íbúöinni. Allir veöréttir lausir. Teikning og
nánari upplýsingar á skrifstofunni.
2ja herb. stór og góð íbúð
á 2. hæö um 65 fm viö Laugarnesveg. Allar innréttingar nýjar og öll
tæki ný af bestu gerö. Útsýni út á sundin. Eignin er skuldlaus.
Á góöu verði við Keilufell
vel byggt timburhús, hæð og rishæö um 150 fm. Snyrting á báðum
hæðum. Góöur bílskúr um 30 fm. Ræktuö glæsileg lóö. Verð aðeins
krónur 3,1 millj.
í gamla góða Austurbænum
Viö Bergstaðastræti 3ja herb. endurnýjuö íbúö á 2. hæö um 85 fm.
Rúmgóö herb. Danfoss kerfi. Óvenjulítil útborgun.
Viö Grettisgötu 3ja herb. rishæö um 60 fm. Nokkuö endurnýjuð. Léleg
sameign. Útborgun aöeins kr. 950 þús.
Viö Lindargötu 2ja herb. samþ. kjallaraibúö um 65 fm. Sér hitaveita.
Sér inngangur. Nýleg teppi.
Ný íbúð við Kársnesbraut
2ja herb. á annarri hæö um 75 fm. Góð innrétting. Danfoss kerfi. Mikiö
útsýni.
Glæsilegt raðhús við Bakkasel
meö 6 herb. íbúö á tveim hæöum. Sér íbúö 2ja herb. i kjallara, ennfrem-
ur rúmgott föndurherb. Góöur bílskúr fylgir. Verölaunalóö. Skipti
möguleg á minni séreign — einbýlishúsi eöa raðhúsi.
4ra herb. íbúð við Holtsgötu
á 3ju hæð um 90 fm. Nokkuð endurnýjuð. Danfoss kerfi.
3ja herb. góö íbúð við Hraunbæ
á 3ju hæð um 85 fm. Sér þvottaaöstaöa á baöi. Danfoss kerfi. Útsýni.
Gott einbýlishús í Garðabæ
i igætri samgönguleiö alls um 170 fm. Innbyggöur bílskúr undir svefn-
álmu. Glæsileg innrétting. Öll eins og ný.
Ennfremur tll sölu i Garðabæ nýleg einnar hæöar raöhus við Asparlund
og Ásbúö.
Þurfum að útvega traustum kaupendum
m.a.:
skrifstofu eöa verslunarhúsnæöi í borginni 150—200 fm.
3ja til 4ra herb. íbúö í Kópavogi. Má þarfnast endurbóta.
3ja til 4ra herb. íbúö í borginni. Má þarfnast endurbóta.
3ja til 4ra herb. íbúö í Seljahverfi meö bílhýsi.
Raðhús eöa einbýlishús á einni hæð i Borginni eöa nágrenni.
Ný söluskrá alla daga.
Heimsendum nýja söluskrá í pósti. Hringiö og leitiö upplýsinga og þiö
fáiö söluskrána heimsenda. Fjöldi annarra eigna á skrá Margskonar
eignaskipti möguleg.
Opiö í dag laugardag kl. 1—5
síðdegis.
Lokað á morgun sunnudag.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370