Morgunblaðið - 30.03.1984, Side 12

Morgunblaðið - 30.03.1984, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 Þingflokkur Alþýöuflokksins skrifar fjármálaráöherra: Tillögur um hvern- ig bregðast skal við skattsvikum ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokksins hefur sent fjármálaráðherra tillögur um hvernig bregðast skuli við skattsvikum hér á landi. Að stofni til eru þessar tillögur byggðar á tveimur þingsályktunartillögum, sem nú eru í meðförum Alþingis. Það er von þingflokksins að fjármálaráðherra stuðli að samþykkt þessara tillagna svo þannig megi vinna gegn skattsvikum, sem þingflokkur- inn telur einhverja mestu meinsemd þjóðlífsins um þessar mundir. Þingflokkurinn leggur til að byrjað verði á því að gera sér grein fyrir umfangi skattsvika og í hvaða atvinnugreinum líklegt sé að þau séu einkum stunduð. Endurskoða verði allt skipulag söluskattskerfisins og sérdeild við Sakadóm Reykjavíkur eða sér- dómstóll fjalli um skattsvik og bókhaldsbrot. Einnig sé nauðsyn- legt að endurskoða refsilöggjöf og refsiákvæði einstakra laga, svo sem skatta- og bókhaldslaga, til að samræma þau og beita í stóraukn- um mæli sektarákvæðum og hækkuðum sektum fyrir afmörkuð brot í stað tímafrekra rannsókna á flóknum og umfangsmiklum málum. Breytingar þurfi að gera, sem miði að því að tryggja gleggri og áreiðanlegri fylgiskjöl með skýrum upplýsingum fyrir skatt- rannsóknarmenn. Breyta þurfi lögum um tekju- og eignaskatt til að tryggja áreiðan- legri og traustari upplýsingar um fyrirtæki og einstaklinga í at- vinnurekstri. Sérstaklega þurfi að endurskoða frádrátt vegna tekna af atvinnurekstri. Taka þurfi upp aukna hagræðingu og tölvuvæð- ingu við upplýsingaöflun við úr- vinnslu skattframtala og veita verði auknu fjármagni til skatt- athugana. Loks er bent á að ís- lendingar kynni sér ítarlega þær skatteftirlitsreglur sem best hafa gefist í nágrannalöndunum. Hross leidd til slátninar. Morgunbiaíia/HBj Tilraunasending á hrossakjöti til Danmerkur: — u Opnast möguleikar á útflutningi lifandi hrossa til slátrunar? Korgarnesi, 27. mars. f DAG, þriðjudag, er verið að slátra um 40 hro8sum upp í tilraunasend- ingu á hrossakjöti til Danmerkur. Út úr þessu koma um 6 tonn af hrossa- kjöti sera er kslt og sent uppihang- andi í kæligámi með flugi til Dan- merkur. Jóhann Steinsson, deildarstjóri í búvörudeild SÍS, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins að kaup- andi væri virt sláturhús í Kaup- Hrossakjötsskrokkarnir uppihang- andi í kæli í sláturhúsinu í Borgar- nesi, tilbúnir til flutnings til Dan- merkur. mannahöfn sem falast hefði eftir lifandi hrossum til slátrunar þar ytra, og ef þeim líkaði þetta kjöt — en þeir vilja fá það eins magurt og mögulegt er — þá gætu opnast möguleikar á að selja þeim einn skipsfarm af lifandi hrossum, þ.e. nokkur hundruð hross til slátrun- ar ytra. Það væri síðan undir bændum komið hvort þeir vildu senda hestana lifandi út. Það hefðu þeir ekki viljað í haust þeg- ar talað var um að senda einn 700 hesta skipsfarm til slátrunar í Hollandi en nú hefðu margir þeirra skipt um skoðun vegna þess hversu erfitt hefði reynst að flytja hrossakjötið út. Jóhann sagði að skrokkarnir væru hlutaðir niður í fernt og væri kjötið komið í búðir í Dan- mörku á 7. degi frá slátrun hross- anna. Fyrir kjötið fæst, að frá- dregnum flutningskostnaði, um 50% af heildsöluverði hér heima, eða 25—26 krónur fyrir kílóið af HR-l-flokki, en heildsöluverðið á kílói af þeim flokki er 52 krónur. Mismuninum er mætt með út- flutningsbótum úr ríkissjóði. - HBj. Búrhvelið, snævi þakið Morgunblaiib/ Arnór Ragnarason Hvalrekinn á Hvalsnesi: Má kannski hirða tennurnar — segir Sigurbjörn Stefánsson í Nesjum „Við sjáum til hvort við fjarlægj- um hræið eða ekki. Það fer eftir . lyktinni, ef hún verður óþolandi verður að gera eitthvað í málinu," sagði Sigurbjörn Stefánsson í Nesjum, annar eigenda Bursta- staða á Hvalsnesi, þar sem búr- hvelið rak á fjörur fyrir skömmu. Sigurbjörn sagði, að sá mögu- leiki hefði verið ræddur að fá jarðýtu til að róta upp gröf á staðnum fyrir hvalinn, en einnig kæmi til greina að flytja hræið burt með vörubíl. En fyrst um sinn yrði sem sagt beðið átekta og kannað hvort dýrið verði svo daunillt að ekki megi við una. „Hvalreki er ekki alltaf eins jákvæður og orðtakið „hvalreki á fjörur einhvers" gefur til kynna,“ sagði Sigurbjörn. „Þessi hvalur er ónýtanlegur, hann er orðinn gamall og úldinn og nýt- ist ekki í skepnufóður. Það er helst að hægt sé að hirða af hon- um tennurnar, það leynast kannski einhver verðmæti í þeim.“ Að sögn Sigurbjarnar er fugl- inn ekki farinn að gæða sér á hræinu enn sem komið er. „Hann þarf að úldna meira áður en það gerist," sagði hann. „Hins vegar nýtur hvalurinn mikilla vinsælda hjá almenningi, en margir hafa gert sér ferð hingað til að skoða dýrið og síðast í gær kómu fjórar rútur með skóla- börn frá Keflavík til að berja hvalinn augum." 4,2 milljóna króna orkusparnaður grunnskóla í Reykjavík: Arangurinn m.a. þakk- aður aukinni fræðslu ORKUKOífrNAÐUR við grunnskól- ana í Reykjavík var 4,2 milljónum krónum minni veturinn 1982—1983 en hann var veturinn 1979—1980. Að sögn Björns Friðfinnssonar, for- stöðumanns lögfræði- og stjórnsýslu- deildar Reykjavíkurborgar, má m.a. þakka þennan sparnað aukinni fræðslu, en ennfremur endurbættum kyndibúnaði. Húsvörðum grunnskóla var á sínum tíma boðið að sitja nám- skeið um orkusparnað og þótti það heppnast vel. Nýverið er lokið öðru sambærilegu námskeiði. Notkun heits vatns var 1,55 tonn á hvern rúmmetra húsnæðis veturinn 1982—83, en var 2 tonn veturinn 1979—80. Sparnaðurinn nemur tæpum 25% og er metinn á 2,4 milljónir króna. Þá var raf- magnsnotkun á hvern fermetra 37,3 Kw-stundir í fyrravetur en var 42—43,5 Kw-stundir saman- burðarveturinn 1979—80. Sparn- aðurinn um 16% og metinn á 1,8 milljónir króna. Björn sagði, að þótt sparnaður- inn leiddi til minni tekna borgar- innar af orkusölu til grunnskól- anna leiddi minni orkuþörf það óneitanlega af sér, að minna fjár- magn þyrfti að leggja í boranir eftir heitu vatni. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð í Borgarfírði: Hátt í þúsund manns á söng kórsins hlýddu Borgarnesi, 27. mars. KÓR Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgeröar Ingólfsdóttur var í Borgarfírði um heígina. Var kórinn með söngskcmmtanir og söng við ýmis önnur tækifæri. Var góð aðsókn þar sem kórinn söng og hvarvetna góðar undirtektir. Talið er að hátt í þúsund manns hafí hlýtt á söng kórsins yfír helgina. Kórinn söng á hljómleikum í Borgarneskirkju og í Logalandi í Reykholtsdal á vegum Tónlistar- félags Borgarfjarðar og tók þátt í messu í Borgarneskirkju. Kórinn söng í Grunnskólanum og á Dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi og fyrir framhaldsskólanemendur í Borgarfirði í Þinghamri í Staf- holtstungum. Þá tók kórinn þátt í kvöldvöku á sunnudagskvöldið með félögum úr kórunum í Borg- arnesi, þ.e. karlakórnum, kirkju- kórnum og Samkór verkalýðsfé- lagsins. Friðjón Sveinbjörnsson sem ásamt Jakobi Jónssyni er I stjórn Tónlistarfélagsins sagði að almenn ánægja hefði verið með heimsókn Hamrahlíðarkórsins og hefði kórinn, undir frábærri stjórn Þorgerðar, hvarvetna gert mikla lukku. Á vegum Tónlistarfélags Borg- arfjarðar verða eftirtaldir hljóm- Kyjabátum síðustu vikurnar og öðru hvoru komið góð útskot. Trollbátar hafa landað ágætum afla í gær og í dag. Má þar nefna Frá með 65 tonn, Smáey með 50 tonn og Helgu Jóh. með 32 tonn. Skuttogarinn Klakkur landaði í leikar á næstunni: Símon ívars- son, gítarleikari, leikur í Reyk- holtsskóla fimmtudaginn 29. mars og er Héraðsskólinn í Reykholti aðili að þeim tónleikum. Sunnu- daginn 1. apríl kl. 16. syngur Kristinn Sigmundsson í Borgar- neskirkju. Undirleikari verður Jónas Ingimundarson. gær 160 tonnum en togararnir hafa verið með mjög jafngóðan afla upp á síðkastið. Afli netabáta, sem lönduðu í gær, var frekar mis- jafn. Nokkrir bátar voru þó með ágætan afla. Suðurey var með 30 tonn, Bjarnarey 26 tonn og Gjafar 24 tonn, svo nokkrir séu nefndir. — HBj. Ágætur afli Eyjabáta Vestmannaeyjum, 27. mars. IKJKKALEGUR afli hefur verið hjá

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.