Morgunblaðið - 30.03.1984, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984
15
Hitaveita Akureyrar:
„Hækkun gjaldskrár
leysir ekki vandann“
— segir Sigurður J. Sigurðsson, stjórnarmaður HA
Akureyri, 28. mars.
FRETT MBL. í gær þess efnis að hver Akureyringur skuldi vegna Hitaveitu
Akureyrar um 80 þúsund krónur, hefur vakið mikla athygli á vandamálum
veitunnar, sem ýmsir höfðu grun um en héldu þó að ekki væru jafn alvarleg
og komið hefur í Ijós. Af þessu tilefni hafði Mbl. samband við Sigurð J.
Sigurðsson, bæjarfulltrúa og stjórnarmann í Hitaveitunni.
„Hitaveitan tekur fyrst til
starfa á árinu 1977 og á árinu 1979
var núverandi uppbyggingu dreifi-
kerfis og annars lokið. Síðan hefur
ekki verið aukið við dreifikerfið.
Samhliða lagningu kerfisins um
bæinn fór fram mikil og erfið
vatnsleit á Eyjafjarðarsvæðinu og
varð hún mun dýrari en áætlanir
okkar gerðu ráð fyrir. Má í því
sambandi nefna að gert var ráð
fyrir að bora 8 vatnsholur og
kostnaður við hverja þeirra talin
verða um 12 millj., en við urðum
að bora alls 29 holur til að afla
nægilegs vatns, þótt við nýtum að-
eins 9 þeirra nú. Vatnsöflunar-
kostnaður veitunnar varð því alls
um 400 millj. kr. á núvirði í stað
eitthvað á annað hundrað millj.
sem gert var ráð fyrir. Þetta er
hluti af vandanum. Auk þess má
nefna að við tókum þá ákvörðun
að leggja tvöfalt dreifikerfi í
stærri hluta bæjarins en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Þá má nefna að í
áætlunum var gert ráð fyrir að
eigið fé, fengið með heimtauga-
gjöldum, næmi um 20% af stofn-
kostnaði og að afgangur yrði fjár-
magnaður með erlendum lánum.
Þessi hlutföll röskuðust öll veru-
lega við þessar breyttu aðstæður.
Einnig má nefna, að í áætlunum
okkar gerðum við ráð fyrir 10%
vöxtum af erlendum lánum en sá
útgjaldaliður allt að því tvöfaldað-
ist frá áætlununum auk þess sem
lánsupphæðir voru mun hærri en
gert var ráð fyrir. Auk alls þessa
gerðum við ráð fyrir mun meiri
vatnssölu en reyndin hefur orðið,
og munar þar allt að 30%. Allt
hefur þetta leitt til þess að tekjur
veitunnar hafa ekki nægt til
greiðslu afborgana og vaxta.
í byrjun síðasta árs lá ljóst fyrir
hvert stefndi um fjárhag veitunn-
ar og var því farið fram á og
fékkst samþykkt samtals 35%
hækkun á gjaldskrám veitunnar,
sem komu til framkvæmda í byrj-
un ársins (20%) og á miðju ári
(12,5%). Frekari grunnverðs-
hækkanir eru að mati veitustjórn-
ar það mikil þynging á greiðslu-
byrði notenda veitunnar að slíkt
kemur vart til greina, enda greiða
þeir nú hæsta verð sem þekkist á
landinu og er það aðeins sambæri-
legt við verð Hitaveitu Borgar-
ness.
Það er ljóst nú, að hækkun sú
sem koma átti til framkvæmda
um þessar mundir vegna hækkun-
ar á byggingarvísitölu og átti að
nema 12,5%, breytir ekki þessum
vanda svo við verði unað. Ég vil þó
sérstaklega geta þess að þetta
fjárhagsvandamál Hitaveitu Ak-
ureyrar er ekki sérstakt að því
leyti að allar veitur sem byggðar
hafa verið upp á sama tíma eiga
við samskonar vanda að etja. Það
verður að leita lausna á vanda
þessara veitna allra sameiginlega,
eins og Sverrir Hermannsson, iðn-
aðarráðherra, hefur reyndar verið
að gefa í skyn að undanförnu að til
stæði," sagði Sigurður J. Sigurðs-
son að lokum.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyr-
ar í gær var samþykkt að fara
þess á Ieit við stjórn Hitaveitunn-
ar að hún kæmi á fund bæjar-
stjórnar hið fyrsta og þar yrðu
mál veitunnar rædd.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér mun veru-
legur hluti lána veitunnar, sem
samtals nema um 1150 millj. kr.,
vera í dollurum, eða 67%, 22%
munu vera í yenum og 10% í þýsk-
um mörkum. Meirihluti erlendu
lánanna mun vera til sa. 10 ára og
lítið um erlend skammtímalán.
G. Berg.
Stykkishólmur:
Hressandi heim-
sókn Karlakórs
Keflavíkur
Stykkishólmi, 26. mars.
KARLAKÓR Keflavíkur kom til
Stykkishólms á laugardaginn og
söng hér í félagsheimilinu við ágæt-
ar undirtektir. Karlakórinn var
skipaður 36 söngvurum og er söng-
stjóri hans Steinar Guðmundsson,
ungur maður, og undirleikari Ragn-
heiður Skúladóttir.
Tveir félagar, þeir Sverrir Guð-
mundsson og Haukur Þórðarson,
sungu einsöngva eftir hlé við und-
irleik Ragnheiðar. Karlakórinn
söng bæði innlend og erlend lög og
að lokum aukalög.
Var hressandi og gaman að fá
þessa heimsókn og eru þeim félög-
um færðar hér með þakkir áheyr-
enda.
Arni
Innri Njarðvík:
Sveitakeppni
skákmanna á
Suðurnesjum
Sveitakeppni skákmanna a Suður-
nesjum hefst á morgun, laugardag, í
Safnaðarheimilinu i Innri-Njarðvík
kl. 14.00.
Til keppninnar hafa boðað
þátttöku sína skáksveitir frá
Grindavík, Vogum. Sandgerði.
Njarðvíkum og Keflavík. en Kefla-
vík verður skipt um Tjarnargötu
og keppir ein sveit frá hvorum
bæjarhluta. Segir í tilkynningu
um mótið að líklegast sé um að
ræða fjölmennasta skákmót sem
til þessa hafi verið haldið á Suður-
nesjum og er í ráði að gera það að
árvissum viðburði. Hver sveit er
skipuð fjórum mönnum og hafa
keppendur hálftíma til umhugsun-
ar í hverri skák.
(Úr frétutilkynningu.)
íslendingur opnar
fiskbúð í Færeyjum
UM MIÐJAN marzmánuð var
opnuð í Þórshöfn í Færcyjum
fyrsta eiginlega fiskbúðin í Færeyj-
um, Fiskabúðin. Eigendur hennar
eru Rosa Winther og Vigfús Jóns-
son, en eins og nafnið ber með sér
er Vigfús íslenzkur að uppruna, en
hann hefur dvalið í Færeyjum í um
8 ár.
Vigfús Jónsson sagði í samtali
við Morgunblaðið, áð það væru
um 8 ár síðan hann hefði komið
til Færeyja og nær allan tímann
hefði hann unnið í fiski hjá
Bacalao. Hann hefði verið orðinn
heldur leiður á því og því gripið
til þess ráðs að stofna fiskbúð
með konu sinni. Hann sagði
verzlunina ganga vel og fólk
ánægt með að fá þessa þjónustu,
sem legið hefði niðri síðan Baca-
lao hætti að selja ferskan fisk.
Hins vegar yrði ekki aðeins
ferskur fiskur til sölu í Fiska-
búðinni, heldur einnig saltaðar
kinnar, siginn fiskur, fugl og
grind, svo eitthvað væri nefnt.
Þá yrðu einnig seldar þar kart-
öflur og fleira sem málsverði [
heyrði til.
Vigfús sagði, að búðinni hefðu
þau komið á fót í samstarfi við
frystihúsið Bacalao, Fiskasöluna
og Heilsufröðiligu Starvsstov-
una, en vörurnar fengi búðin frá
Fiskasölunni, Bacalao, Samm-
Fisk og smáum dagróðrabátum.
Vigfús sagðist bjartsýnn á fram-
tíðina og bað að lokum að heilsa
heim til íslands
„Vid skulum bara hringja núna og tilkynna þátttökuna," sagði Muhamed
Makkawy í gamansömum dúr, en Hrafnhildur Valbjörns situr við hlið
hans. Morgunblaðið/Gunnlaugur.
„Stefni á heimsmeistara
keppnina í vaxtarrækt“
— segir Hrafnhildur Valbjörns.
„Hrafnhildur á hiklaust að
stefna á heimsmeistarakeppnina í
vaxtarrækt og byrja í keppni, sem
fram fer í Evrópu eftir rúma tvo
mánuði. Ég er sannfærður um að
hún gæti náð einu af þrem fyrstu
sætunum í heimsmeistarakeppn-
inni núna og því fyrsta í framtíð-
inni,“ sagði heimsmeistari vaxtar-
ræktarmanna, Muhamed Makk-
awy, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Það eru nokkrir keppendur
hérna, sem eru nálægt því að
vera hæfir í toppkeppni erlendis.
Það eru menn í öllum þyngdar-
flokkum, sem gætu spjarað sig.
Jón Páll Sigmarsson á að halda
áfram og með meiri reynslu get-
ur hann náð langt. Hann hefur
góða hæð, en vantar að fínisera
nokkra hluti og fá meiri reynslu,
sem er mikilvægust í svona
keppni. Hrafnhildur stendur það
vel í dag að hún verður endilega
að stefna hærra,“ sagði Muh-
amed Makkawy. Er ummæli
Makkawy voru borin undir
Hrafnhildi kvaðst hún hafa mik-
inn áhuga á því að halda utan.
„Ég stefni að því að fara utan, en
kemst ekki nema ég fái styrk,
því ég hef einfaldlega ekki efni á
utanlandsferð þessa stundina.
Það væri gaman að prófa þetta,
fyrst ég náði að sigra aftur
núna,“ sagði Hrafnhildur Val-
björns. GR.
Greió
er gámaleió
Gamar, stórir gámar, litlir gámar, opnir gámar,
lokaðir gámar. þurrgamar. Jrystigámar, gajl-
gámar. tankgámar... Nefndu bara hvers konar
gám þú þarft undir vöruna. Við höfum hann.
Og auðvitað höfum við öll fultkomnustu tæki til
þess að Jlgtja gámana að ogjrá skipi — og heim
að dyrum hjá þér, ejþú vilt.
Við tryggjum þér öruggaJlutninga. því að þá vit-
um við. að þú skiptir ajtur við okkur.
Skipadeild Sambandsins annast flutníngaJyrir
Þig■
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVIK SÍMI 28200