Morgunblaðið - 30.03.1984, Page 33

Morgunblaðið - 30.03.1984, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984 33 Reagan og Thatcher. Samtal þeirra falsart með því að klippa saman brot úr ræðum þeirra við ýmis tækifæri. hópa fölsuð af sovésku leyni- þjónustunni KGB og með þess- um hætti vilji Rússar gera Vest- urlönd tortryggileg og ráðamenn þeirra samansafn af eiginhags- munaseggjum sem kæri sig koll- ótta um alla alþýðu manna. Engar sannanir Larry Semakis stýrir nefnd á vegum bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sem hefur með þessi mál að gera og hann segir að Rússar hafi fært sig verulega upp á skaftið í þessum efnum síðustu misserin, -~*en fyrir dómstólum myndum við eiga í hinu meta basli, að sanna eitt eða neitt á þá,“ bætir Semakis jafnframt við. Hann segir hins vegar, að það sem bendi mest til þess að Rússar séu með puttana í þessu, sé ákveðið mynstur fals- ananna. Bandaríska utanríkis- ráðuneytið er sannfært um, að falsanirnar heyri undir „fyrstu deild" KGB, sem þýðir að æðstu Þannig m.a. kemur KGB sögusögnunum á kreik Hljóöbandiö er mjög bjagaö og truflanir miklar. Þó má greina raddir, raddir Ronalds Reagan, forseta Bandaríkjanna, og Margrétar Thatcher, forsætisráöherra Bretaveldis. Rödd Reagans segir eitthvað á þessa leið: „Ef til stríös kemur, munum viö skjóta eldflaugum á árásarmenn okkar og tryggja þannig aö Sovétmenn fari ekki út fyrir landamæri sín.“ Svar Thatchers: „Þú meinar Þýskaland?" og röddin hljómar vantrúuö. Ekki stendur á svarinu: „Frú Thatcher, ef okkur er ógnað, þá afmáum við vandamáliö meö sprengjuregni. Samtalið á greinilega aö fara fram meðan á stríöi Breta og Argentínumanna um Falklandseyjar stóö yfir. Ef hárin rísa ekki á höfði lesenda viö það sem á undan er skráö, hvaö þá nú, er Thatcher segir við Reagan, að hún hafi rétt í þessu verið að skipa herskipum aö sökkva argentínska skipinu Belgrano, svona bara til þess aö koma í veg fyrir allar hugsanlega viöræöur við Argentínumenn í bráö. „Guö minn almáttugur," er tilsvar Reagans. Klippt og skorið hver annar en rússneski björn- mnvern tíma hafa þau Reag- *nn. * líki KGB. nOh God,“ Reag- ans er til dæmis klippt úr til- vitnun hans í sálminn „Oh god of love, oh king of peace". Segul- band það, sem innihélt ofan- greint samtal, skaut upp kollin- um í Hollandi skömmu fyrir e: I an og Thatcher sagt allt sem þarna kemur fram, en ekki í því samhengi sem þarna er. Samtal- ið er falsað frá upphafi til enda. Og hver ætti svo sem að hafa áhuga á að gera slíkan grikk. Jú, þingkosningarnar síðustu í Bretlandi þar sem íhaldsflokkur Margrétar Thatcher vann stór- sigur. Hollenskir blaðamenn fengu bandið í hendurnar og enginn vissi hver sent hefði eða hver hefði tekið það upp. Blaða- mennirnir hollensku vildu ekki trúa sínum eigin eyrum er þeir hlýddu á boðskap bandsins. Ekki verður það sama sagt um starfs- bræður hollensku frétta- mannanna víða um heim. Það færist í vöxt, að óvandaðir fréttamenn, eða blöð, sjái sér leik á borði og annaðhvort trúa svona boðskap eins og nýju neti, eða trúa honum ekki, en vita hins vegar að þeir muni geta selt varning sinn. Bandaríska utan- ríkisráðuneytið heldur því fram, að segulbönd þessi séu upp til ráðamenn Sovétríkjanna verða að leggja blessun sína yfir þær. Falsanirnar sem fram hafa komið hafa reynst ýmist góðar, hlægijegar og allt þar á milli. Þær leiða hugann að breskri nefnd í síðari heimsstyrjöldinni, sem hafði það hlutverk að senda erlendum dagblöðum lygafréttir um ástandið 1 stríðinu. En bandaríska stjórnin fékk áþreifanlega að finna fyrir því að blekkingar geta verið með furðulegum hætti. Snemma á síðasta ári heyrði bandarískur embættismaður í Indlandi og Egyptalandi, að bandaríski geimfarinn Neil Armstrong hefði heyrt raddir þegar hann steig á tunglið hér um árið og þegar hann kom til jarðarinnar á ný, hefði hann sannfærst um að hann hefði heyrt raddir mú- hameðstrúarmanna í bæn. Átti Armstrong að hafa verið svo hrifinn og svo sannfærður, að hann gerðist umsvifalaust mú- hameðstrúarmaður. Bandaríska utanríkisráðuneytið var lítt hrif- ið af tiltækinu og þótti maðurinn ekki sýna skapfestu og geðstill- ingu. Var hann rekinn og reynt var að þagga málið niður. Síðan hefur KGB verið bendlað við málið, enda hefur Armstrong aldrei haldið því fram að hann hafi „bænheyrt" múhameðstrú- armenn á tunglinu. Trúlegar og langlífar lygar Bandarískur embættismaður segir um þetta mál: — Lygar af þessu tagi geta verið lygilega þrautseigar. Þetta er sú tegund- in af lygi sem margir vilja heyra. Múhameðstrúarmenn vilja beinlínis trúa því að þetta sé satt og rétt, lygasagan heillar þá. Svona sögusagnir er erfitt að kveða niður og svo rammt kvað að orðróminum, að við urðum að beina spurulum blaðamönnum til Armstrongs sjálfs. Hann vildi ólmur losna við flugufregnina, svaraði því fréttamönnum og öðrum forvitnum og sagði þeim sem var, að hann hefði alls ekki heyrt bænagjörðir múhameðs- trúarmanna á tunglinu, hvað þá að hann hefði verið rekinn frá Geimferðastofnuninni. Lygasaga setn verður sönn ... Reyndar verður lygasaga aldrei sönn, en svo illur getur misskilningurinn orðið þegar lygasögum er lævíslega stráð, að sögurnar öðlast eigið lif. Þannig var til dæmis, er Ed Koch, borg- arstjóra New York, og Caspar Weinberger, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, lenti sam- an. Þannig var mál með vexti, að Weinberger var á ferðalagi í Saudi-Arabíu og dagblað í Beirút í Líbanon birti grein um fund hans og varnarmálaráð- herra Saudi-Arabíu, fund sem aldrei var haldinn. En líbanska blaðið fékk eina af umræddum falsfréttum og í henni voru Weinberger lögð í munn alls kyns yfirlýsingar sem allar gengu út á að smjaðra fyrir Saudi-Aröbum. Koch borgar- stjóri frétti af öllu saman og lenti þeim saman, enda er Koch mikill vinur ísraela og þótti hon- um Weinberger hafa farið langt út fyrir meðalveginn með fram- komu sinni. En allt voru þetta ósannindi. Sannkallaður óskabmnnur _______ frá Quelle Stærsta póstverslun í Evrópu. Quelle pöntunarlistinn með vor- og sumartískunni ’84 er yfir600 litprentaðar blaðsíður, uppfullaraf vönduðum þýskum varningi. Úrvalsfatnaðuráalla fjölskylduna, skórog töskur. Alltgæðavörurá hagstæðu verði. Öruggur afgreiðslumáti. Vinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hringið - ef þór viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 125.- auk póstburðargjaldsins. Quelle-umboðið, Pósthólf 136, | Njarðvík. Sími 92-3576. í Afgreiðsla í Kópavogi, Auðbrekku 12, sími 45033. Nafn sendanda l heimilisfang I sveitarfélag póstnúmer Quelle umboðið sími 45033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.