Morgunblaðið - 30.03.1984, Síða 48
j\pglýsinga-
síminn er 2 24 80
wgmiiritafrife
TIL DAGLEGRA NOTA
FOSTUDAGUR 30. MARZ 1984
VERÐ I LAUSASOLU 20 KR.
Sár Guðlaugs Friðþórs-
sonar óðum að gróa:
Fer von-
andi heim
eftir viku
VONIK standa til að Guðlaugur
Kriðþórsson, sjómaðurinn ungi úr
V estmannaoyjum, sem vann það
rrækilcga afrek að synda 3 mílna
vegalengd í land eftir að Hellisey
VE sökk fyrir hálfri þriðju viku, fái
að fara heim af sjúkrahúsi um
miðja næstu viku.
„Það liggur við að maður sjái
framfarir í hvert sinn, sem skipt
er um umbúðir. Ef vel gengur
gerum við okkur vonir um að
Guðlaugur fái að fara heim af
sjúkrahúsi eftir rétta viku,“
sagði faðir hans, Friðþór Guð-
laugsson, er blm. Mbl. ræddi við
hann í gær.
Sagði hann jafnframt, að
heilsa sonar síns væri eins og
best yrði á kosið í Ijósi aðstæðna
og hann hefði í fyrsta sinni eftir
slysið fengið leyfi til að ganga sl.
sunnudag. „Hann tók það full-
geyst og ofgerði fótunum, hefur
vafalítið ætlað að ganga heim, en
er nú aftur farinn að geta gengið
lítillega um,“ sagði Friðþór.
Ljóst er að Guðlaugur mun
halda öllum tám og sár hans eru
sem óðast að gróa. Sagði Friðþór,
að hvorki hníf né nál hefði verið
beitt við meðferðina á fótum
Guölaugs. „Þetta hefur gengið
ótrúlega vel,“ sagði hann.
Afrek Guölaugs hefur vakið
mikla athygli jafnt innanlands
sem utan. Kandískir sjónvarps-
menn komu til Eyja í síðustu
viku vegna afreks hans og í gær
voru sænskir blaðamenn þar á
ferð í sömu erindagjörðum.
Bandarfskt skipafélag:
Hyggst yfirtaka flutn-
inga til varnarliðsins
Ógnun við siglingar íslendinga segja forstjórar Eimskips og Hafskips
NÝSTOFNAÐ bandarískt skipafé-
lag, Rainbow Navigation Inc., hefur
í hyggju að hefja reglubundnar sigl-
ingar til íslands og m.a. taka að sér
alla flutninga á vegum Bandaríkja-
hers lil herstöðvarinnar á Keflavík-
urflugvelli. íslensk skipafélög hafa
annast þessa flutninga í 17 ár, Eim-
skip um 70% þeirra og Hafskip um
30%. Samkvæmt bandarískum lög-
um frá 1904 er skylt að flytja her-
varning með bandarískum skipum
sé þess kostur.
Forráðamenn Eimskips og Haf-
skips hafa lýst þungum áhyggjum
vegna þessara fyrirætlana banda-
ríska skipafélagsins enda hafa fé-
lögin hér heima haft verulegan
hluta tekna sinna af þessum flutn-
ingum, eða um 300 milljón krónur
(10 milljón dali) árlega. Hörður
Sigurgestsson, forstjóri Eimskipa-
félags íslands, sagði í samtali við
blaðamann Mbl. í gærkvöldi, að ef
yrði af því að Rainbow Navigation
Inc. yfirtæki umrædda flutninga
væri það „raunveruleg ógnun við
siglingar íslenskra skipa milli ís-
lands og Bandaríkjanna".
Sem stendur eru 5—6 skip í
föstum siglingum milli landanna.
Þau sigla utan með sjávarafurðir
að mestu og heim að mestu með
varning fyrir Bandaríkjaher.
Hörður sagði að ef af yrði myndu
2—3 þessara skipa verða verk-
efnalaus. „Fjárhagslegum grund-
velli yrði kippt undan siglingum
Flugleidir panta hljóðdeyfi-
búnað á DC-8-þoturnar
Flugleiðir hafa pantað hljóðdeyfi-
búnað í DC-8-þotur sínar vegna nýrra
hávaðareglna, sem taka gildi 1. janú-
ar nk. í Bandaríkjunum. Slíkur
búnaður kostar sennilega um 75
miiljónir króna fyrir hverja vél.
Ef búnaðurinn reynist vel og
hlýtur samþykki flugmálayfirvalda
í Bandaríkjunum verður þetta sú
lausn, sem Flugleiðir grípa til í
þessu máli. Sá er þó hængurinn á
að þessi búnaður verður ekki til-
búinn í tæka tíð og ætla því Flug-
leiðir að fara fram á undanþágu
um tíma ef unnt er.
Aðrar leiðir, sem koma til
greina, eru að setja nýja hreyfla í
DC-8-þoturnar. Slík hreyflaskipti
kosta í kringum 540 milljónir
króna fyrir hverja vél, auk þes sem
margir eru efins um að borgi sig að
setja nýja hreyfla í vélar, sem eru
komnar nokkuð til ára sinna.
Þriðji möguleikinn er að kaupa
DC-10-breiðþotur. Þær myndu
samkvæmt könnun henta vel en
vera dýrar í rekstri.
Sjá í mióopnu frétt af aðalfundi
Flugleiða í gær og blaðamanna-
fundi.
íslensku skipafélaganna á milli ís-
lands og Bandaríkjanna," sagði
hann.
Björgóifur Guðmundsson, for-
stjóri Hafskips, sagði að flutn-
ingarnir fyrir herinn hefðu
„tryggt hagkvæmni og öryggi í að
koma okkar vörum á markað er-
lendis. Ef af þessu verður hlýst af
umtalsvert tekjutap, sem myndi
veikja islensku skipafélögin
rekstrarlega. Við höfum sjálfir
annast samgöngur milli landanna
og þessa flutninga í hartnær tvo
áratugi. Enginn hefur viljað gera
það fyrir okkur, enda skiptir það
okkur miklu máli sem sjálfstæða
þjóð að hafa samgöngur í okkar
eigin höndum. Þetta gæti veikt
allar okkar samgöngur vestur um
haf,“ sagði hann.
Fylgst er gaumgæfilega með
þessu máli af hálfu íslenska sendi-
ráðsins í Washington, skv. upplýs-
ingum Mbl. Ekki tókst í gærkvöld
að ná tali af Geir Hallgrímssyni,
utanríkisráðherra, vegna þessa
máls.
Sjá nánar um málið og Rain-
bow Navigation Inc. á bls. 26.
Byggingarnefnd samþykkir
niðurrif Fjalakattarins
tillagan hefði verið samþykkt með
fjórum atkvæðum gegn tveimur
en einn setið hjá.
„Ég er þeirrar skoðunar að
byggingarnefnd hafi ekki getað
gert neitt annað, miðað við þá um-
fjöllun sem málið fékk í borgar-
ráði og borgarstjórn, en það eru
víst ekki allir sammála um það,“
sagði Hilmar Guðlaugsson, for-
maður byggingarnefndar.
Cí-'v' ■
Byggingarnefnd Reykjavíkur sam-
þykkti í gær tillögu þar sem eiganda
Aðalstrætis 8, (Fjalakattarins), er
heimilað að rífa húsið. Ákvörðun
byggingarnefndar þarf að staðfesta í
borgarstjórn til að öðlast gildi, en
fundur um það verður eftir viku.
í viðtali sem blm. Mbl. átti við
Hilmar Guðlaugsson eftir fund
byggingarnefndar sagði hann að
Kvótaleiðréttingunni lokið:
Heildarþorskkvótinn
hækkar um 6.200 lestir
Heildarþorskkvótinn hækkar
um rúmlega 6.200 lestir í kjölfar
þeirra leiðréttinga, sem gerðar
hafa verið á áður úthlutuðum
kvóta einstakra fiskiskipa. Vegna
leiðréttinganna eru dæmi um
rúmlega helmings hækkun ein-
stakra skipa. Heildarkvóti ann-
arra kvótaskyldra fisktegunda
hækkar einnig nokkuð, en þar
sem leyfilegt er að flytja 10% af
heildarþorskígildi skipa milli teg-
unda eftir ákveðnum verðmæta-
stuðli, er erfitt að gera sér grein
fyrir væntanlegu heildarmagni
hverrar tegundar.
Breytingar á kvóta eru aðal-
— kvóti Akureyrinnar
rúmlega tvöfaldast
lega af þremur ástæðum. Flutn-
ingi skipstjóra og meirihluta
áhafnar milli skipa, vegna
kaupa á nýjum skipum, sem af
er 5 mánaða reynsla eða meira
og vegna nýrra skipa, sem kom-
ið hafa í stað úreltra og njóta
kvóta þeirra.
í fyrsta dæminu má nefna
Viðey RE, sem hafði fengið ut-
hlutað 3.173 lestum, en fær nú
4.987 og Akureyrina EA, sem
hafði fengið úthlutað 1.769 lest-
um, en fær nú 4.308. í öðru
dæminu má nefna Jóhannes
Gunnar GK, sem hafði fengið
úthlutað 56,5 lestum, en fær nú
111.5 lestir, Sléttanes ÍS, sem
hafði fengið úthlutað 2.610 lest-
um en fær nú 3.205,5 lestir og
Gullver NS, sem hafði fengið
úthlutað 2.610 lestum, en fær nú
3.193.5 lestir. í þriðja dæminu
má nefna Patrek BA, sem hafði
fengið úthlutað 532,5 lestum, en
fær nú 708,5 lestir og Jón Þorð-
arson BA, sem hafði fengið út-
hlutað 532,5 lestum en fær nú
614,5.
MorgunblaAið/RAX.
Björgunaræfing
vid Laugarnestanga
Slysavarnafélag íslands efndi í gærdag til björgunaræfingar við
Laugarnestanga í samvinnu við Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Myndin var tekin við það tækifæri.