Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 19
 Nú bjóöum vió tréstiga trá stœrstu stigaverksmiöju á Noröuflörvdum, Trðtrappor, i Noröur-Sviþjóö. Stigar sem standast hœstu gaBöakrötur á veröi sem þú ræöur viö. EDA EIGANDI HÚSNÆDIS SEM ÞARFNAST VIOHALDS? ÞÁ LIGGUR LEIDIN TIL OKKAR. ÞVl A 300 FERMETRA GRUNN- FLETI SÝNUM VIÐ HINAR VIDURKENNDU KALMAR-INNRÉTTINGAR ASAMT FJÖLDA ANNARRA VÖRUFLOKKA SEM TENGJAST HÚSBYGGINGUM OG VIÐHALDI HÚSNÆDIS ÞÍNS. , ERT ÞU HUSBYGGJANDI? Líttu Inn — Sjón er sögu ríkarl Kalmar-eidhúsiö hefur löngum veriö í öndvegi haft. Urvaliö er mikiö og veröiö kemur þór á óvart. Raforkuverð á Suðurnesjum lækkar um 15% RAFVEITIFR á Suöurnesjum lækk- uöu taxta sína aö meðtaltali um u.þ.b. 15% frá og með 1. maí. Sagði Sævar Sörensson, rafveitustjóri í Keflavík og formaður stjórnar Rafveitu Reykjaness, að erfitt væri að henda reiður á meðaltalslækkun en ofan- greind tala væri nærri lagi. Lækkunin væri þó ekki alls staðar hin sama hjá rafveitunum sex á Reykjanesi. Sumar lækkuðu taxtana eilítið meira, aðrar aðeins minna. Að sögn Sævars er þessi lækkun m.a. afleiðing af mikilli uppstokk- un gjaldskráa rafveitna á Suður- nesjum. Upphaflega átti að sam- ræma taxtana en þegar til kast- anna kom voru ekki allir á eitt sáttir. Frávikin frá meðaltalinu sagði hann þó vera lítil. Hvað Rafv- eitu Keflavíkur snerti sagði hann t.d., að hæsti taxtinn, sem verið hefði kr. 18,80 á Kw-stund, færi nú niður í kr 4,20. Hér væri um 77% lækkun að ræða, en dæmið væri óvenjulegt. Heimilstaxtar lækkuðu úr kr. 4,77 á Kw-stund í 4,20. Með- altalslækkun til heimila væri þó ekki nema um 5% þegar allt væri tekið með í reikninginn, fastagjald, mælaleiga o.fl. Um ástæðu þessarar lækkunar sagði Sævar, að rafveitur á Suður- nesjum hefðu einfaldlega verið mef hærri taxta en víða um land. „Þeii hæstu voru hreinlega óforsvaran- legir,“ sagði Sævar. Sökum minni útþenslu í raforkukerfinu í Kefla- vík og breyttra efnahagsaðstæðna hefði nú loks gefist tækifæri til lækkunar. Landsvirkjun hækkaði heildsölu- taxta sinn um 5% þann 1. maí og Rafmagnsveitur ríkisins gerðu slíkt hið sama. Hvorki Rafmagns- veitur ríkisins né Rafmagnsveita Reykjavíkur ætla þó að að hækka smásöluverð raforku til hins al- menna kaupanda. Kalmar-baöinnréttlngar eru fáanlegar i þremur mis- munandi geröum Skemmtileg hönnun og létt yfir- bragö. Hér kemur veröió þér einnig þœgilega á óvart. System Flex-innréttingar fyrlr hreyfihamlaöa eru viö- urkennd vara sem uppfyllir allar kröfur sem geröar eru tH slíkra innréttinga. Kalmar SKEIFAN 8 -108 REYKJAVÍK - SlMI 82011 Perstorp System 080 er eitt hentugasta veggjakerfiö tll þess aö stúka af snyrtiaöstööu, búningsklefa og ýmislegt fleira í stœrri byggingum og féiagsaöstööu Weland-hringstigarnír eru framleiddir af stœrsta hringstigaframleiöanda í Evrópu og eru fáanlegir í mörgum mismunandi geröum til notkunar innanhúss og utan Þórshöfn, Færeyjum: íslendingur opnar fyrstu fiskbúðina UM MIÐJAN marzmánuð var opnuð í Þórshöfn í Færeyjum fyrsta eiginlega fiskbúðin í Færeyj- um, Fiskabúðin. Eigendur hennar eru Rosa Winther og Vigfús Jóns- son, en eins og nafnið ber með sér er Vigfús íslenzkur að uppruna, en hann hefur dvalið í Færeyjum í um 8 ár. Vigfús Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að það væru um 8 ár síðan hann hefði komið til Færeyja og nær allan tímann hefði hann unnið í fiski hjá Bacalao. Hann hefði verið orðinn heldur leiður á því og því gripið til þess ráðs að stofna fiskbúð með konu sinni. Hann sagði verzlunina ganga vel og fólk ánægt með að fá þessa þjónustu, sem legið hefði niðri síðan Baca- lao hætti að selja ferskan fisk. Hins vegar yrði ekki aðeins ferskur fiskur til sölu í Fiska- búðinni, heldur einnig saltaðar kinnar, siginn fiskur, fugl og grind, svo eitthvað væri nefnt. Þá yrðu einnig seldar þar kart- öflur og fleira sem málsverði heyrði til. Vigfús sagði, að búðinni hefðu þau komið á fót í samstarfi við frystihúsið Bacalao, Fiskasöluna og Heilsufröðiligu Starvsstov- una, en vörurnar fengi búðin frá Fiskasölunni, Bacalao, Samm- Fisk og smáum dagróðrabátum. Vigfús sagðist bjartsýnn á fram- tíðina og bað að lokum að heilsa heim til íslands. Vlftuháfar, hvitlr, svartir og úr kopar. Fáanlegir á vegg eöa fritt hangandi Margar geröir Múrsteinaklaaöningin frá Kalmar er einstök klaBÖning sem gefur húsinu sérstakt útlit. Viöhaldslaus, einföld randi klæön Perstorp-gólfiö fer sigurför um heiminn Þægiiegt aö leggja. viöhaldslaust og níösterkt. 9 tegundir Kalmar-fataskáparnir eru fáanlegir í mörgum geröum og stæröum, sem aölaga má hvaóa rými sem er. Akureyri: Lionsmað- ur bitinn af hundi lög- reglumanns Akureyri, 30. apríl. LIONSMAÐUR einn á Akur- eyri varð fyrir óskemmtilegri reynslu í gærkvöldi þegar hann var að bera út blað, sem Lionsmenn gefa út í tilefni af landssöfnun sinni til kaupa á augnlækningatækjum til fjórð- ungssjúkrahússins. Er hann kom með blaðið að húsi einu innarlega í bænum tók húsbóndinn þar, sem reyndar er aðstoðaryfirlög- regluþjónn bæjarins, vel á móti honum en það gerði hins vegar ekki tík mikil, sem til- heyrir embættinu. Hún réðst að blaðburðarmanninum og beit hann í handlegginn svo úlpa hans rifnaði án þess þó að hann slasaðist og lá við að tíkin skellti manninum til jarðar. Hann lagði á flótta, komst inn í bíl sinn og ók á brott. Málið mun vera komið til tryggingarfélags hundsins sem greiða verður skaðabæt- ur vegna skemmda á fatnaði. — GBerg. Hinir vinsœlu handklœða- Nýi Topp-ofninn, gæða ofnar í mörgum stærðum. ofn á góðu verði. Þil-ofninn, fallegurog vandaður. H/F OFNASMIÐJAN HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220 SMIÐJUBÚÐIN HÁTEIGSVEGI 7, S: 19562-21220 m

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.