Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984
23
Lögreglubíll með
mótmælagöngum
Pólland:
Simamynd AP.
öflugum vatnskrana dreifir mannfjölda í einni af nokkrum
Samstöðu í Póllandi 1. maí.
Bandaríkin:
Mál von Biilows
tekið upp aftur
HÆSTIRÉTTUR í Rhode Island í Randaríkjunum hefur heimilað endurupptöku
málsins gegn dansk-ameríska auðkýfingnum ('laus von Biilow, en fyrir tveimur
árum var hann dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að hafa tvisvar sinnum revnt að ráða
af dögum konu sína, sem nú liggur meðvitundarlaus á sjúkrahúsi í New York.
Segir í úrskurði hæstaréttar, að von Biilow hafi ekki fengið að njóta allra þeirra
réttinda, sem honum eru tryggð í stjórnarskránni, og auk þess hafi einkaleynilög-
reglumaður leynt verjendur von Biilows mikilsverðum upplvsingum.
Málið gegn von Biilow vákti mikla
athygli árið 1982 og var almennt
kallað „Þyrnirósarmálið“. Var hann
að lokum dæmdur í 30 ára fangelsi
fyrir að hafa tvívegis reynt að drepa
konu sína, Martha Sharp von Biilow,
kallaða „Sunny“, með insúlíni.
Sunny er nú meðvitundarlaus á
sjúkrahúsi og segja læknar, að hún
geti e.t.v. legið þannig í allt að 30 ár.
Sykurmagn í bíóði hennar er allt of
lítið og insúlín stórhættulegt fyrir
hana.
í réttarhöldunum hélt sækjandinn
því fram, að von Bulow hefði átt sér
„LátiÖ lausa alla
pólitíska fanga“
Miklar mótmælaaðgerðir hjá
Samstöðu á verkalýðsdaginn
Varsjá, I. raaí. AP.
PÓLSKA lögreglan beitti í gær vatns-
slöngum, kylfum og táragasi til þess að
dreifa þúsundum andófsmanna úr röð-
um Samstöðu, samtökum hinna frjálsu
verkalýðsfélaga í Póllandi. Fjöldi
manns var handtekinn. Mótmæiaað-
gerðir þessar áttu sér stað í tilefni 1.
maí og fóru fram í 6 stærstu borgum
landsins.
Andófsmennirnir hrópuðu „Solid-
arnosc“, „Walesa" og „Látið alla
pólitíska fanga lausa". í borginni
Gdansk við Eystrasalt tókst Lech
Walesa, leiðtoga Samstöðu, að kom-
ast ásamt 1000 stuðningsmönnum
fram hjá óeirðalögreglu og inn í 1.
maí-göngu hins opinbera. Gekk Wal-
esa og menn hans síðan með öðrum
göngumönnum unz þeir staðnæmd-
ust í aðeins þriggja metra fjarlægð
frá palli þeim, sem ætlaður var
fyrirmönnum. Þar rétti Walesa upp
hönd sína og gerði sigurmerki, en
stuðningsmenn hans breiddu út fána
Samstöðu og tóku að hrópa vígorð
samtakanna frammi fyrir felmtri
slegnum flokksbroddum kommún-
ista.
Haft er eftir vestrænum frétta-
mönnum, sem nærstaddir voru, að
þögn hefði slegið á kommúnistafor-
ingjana er þeir sáu Walesa, þar til
einn þeirra náði að hrópa „Zorno"
(lögregla). Kom þá hópur manna úr
óeirðalögreglunni á vettvang og
réðst á Walesa og fylgismenn hans
hvað eftir annað. Walesa tókst hins
vegar að hverfa inn í mannþröngina
og komst síðan heill á húfi til heim-
ilis síns í úthverfi borgarinnar.
„Þetta var einn árangursríkasti dag-
ur ævi minnar," sagði Walesa á eftir
í símtali við vestrænan fréttamann.
„Við náðum að segja það augliti til
auglitis hvern hug við berum."
Jerzy Urban, talsmaður stjórn-
valda, lýsti hins vegar aðgerðum
Samstöðu sem „vorkunnarverðunT
og að ekki hefðu fleiri en 8.000
manns tekið þátt í þeim. Þá hefðu
þær aðeins átt sér stað í fjórum
borgum.
('laus von Biilow
ástmey og viljað ryðja konu sinni úr
vegi og erfa eignir hennar, sem
metnar eru á 35 milljónir dollara.
Svört taska lék stórt hlutverk í
málflutningi sækjandans en hún
fannst í húsi, sem von Bulow átti út
af fyrir sig. í töskunni var insúl-
insprauta og vottur af insúlíni í
henni. Von Bulow kvaðst ekkert við
þessa tösku kannast og verjandi
hans færði auk þess sönnur á, að
sonur Sunny og stjúpsonur von Búl-
ows, Alexander von Auersberg, hefði
útvegað móður sinni eiturlyf og önn-
ur lyf, nálar og sprautur.
Claus von Búlow hefur ekki farið í
fangelsi enn þrátt fyrir dóminn því
að hann áfrýjaði málinu strax og
greiddi um 30 milljónir ísl. kr. í
tryggingu.
Páfinn kemur til
Suður-Kóreu í dag
Jóhannes Páll páfi II er væntanlegur
til Seoul, höfuðborgar Suður-Kóreu,
síðdegis á morgun, fimmtudag. Verður
það fyrsti áfanginn í 11 daga „píla-
grímsfiir fyrir friði og sáttunT í Aust-
ur-Asíu og Suður-Kyrrahafi, þar sem
páfinn hyggst m.a. heimsækja Nýju-
-Guineu og Sólómonseyjar. Er páfinn
kemur til Seoul er ráðgert að hann
flytji bæn fyrir þeim 269 mönnum, sem
biðu bana, þegar Sovétmenn skutu
niður farþegaþotu frá Suður-Kóreu I.
september sl.
Páfinn mun dveljast 5 dága í
Suður-Kóreu og þann tíma verður
allt lögreglulið landsins — um
100.000 manns — í viðbragðsstöðu.
Fregnir hafa borizt um, að alþjóðleg
hryðjuverkasamtök hyggi á tilræði
við páfann á meðan hann dvelst í
Suður-Kóreu og hefur því verið hert
mjög á varúðarráðstöfunum þar til
verndar páfanum.
Haft var eftir embættismanni ein-
um í Seoul í dag, að varúðarráðstaf-
anir lögreglunnar þar væru enn um-
fangsmeiri nú en fyrir heimsókn
Reagans Bandaríkjaforseta til
Suður-Kóreu á síðasta ári.
Páfinn mun taka 93 kóreska og 10
franska píslarvotta í helgra manna
tölu við helgiathöfn í Suður-Kóreu
og er gert ráð fyrir að meira en hálf
milljón manna verði þar viðstödd.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ........... 14/5
Disarfell ..... 28/5
Dísarfell ..... 11/6
ROTTERDAM:
Disarfell ..... 15/5
Disarfell ..... 29/5
Dísarfell ..... 12/6
ANTWERPEN:
Dísarfell ..... 14/5
Dísarfell ..... 30/5
Dísarfell ..... 13/6
HAMBORG:
Jan ............ 4/5
Dísarfell ..... 17/5
Dísarfell ...... 1/6
Disarfell ..... 14/6
HELSINKI/TURKU:
Hvassafell .... 25/5
LARVIK:
Francop ........ 7/5
Jan ........... 21/5
Jan ............ 4/6
Jan ........... 18/6
GAUTABORG:
Francop ........ 8/5
Jan ........... 22/5
Jan ............ 5/6
Jan ........... 19/6
KAUPMANNAHÖFN:
Francop ........ 9/5
Jan ........... 23/5
Jan ............ 6/6
Jan ........... 20/6
SVENDBORG:
Francop ....... 10/5
Jan ........... 24/5
Jan ............ 7/6
Jan ........... 21/6
ÁRHUS:
Francop ....... 11/5
Jan ........... 25/5
Jan ............ 8/6
Jan ........... 22/6
FALKENBERG:
Mælifell ....... 4/5
Helgafell ..... 11/5
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell .... 24/5
Skaftafell .... 24/6
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell .... 25/5
Skaftafell .... 25/6
SKIPADEILJD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
PtRMA’DRI
18 ára
á Islandi
Málning hinna
vandlátu
Utanhússmálning
Olíulímmálning 18 litir
KEN-DRI notast á alla lágrétta og áveöursfleti áöur en málaö er.
(silicon)
PttMA-DRI hentar vel bæöi á nýjan og málaöan stein.
PERMA-DRI er í sérflokki hvaö endingu á þök snertir.
Næsta sending
hækkar um 10%
Greiðslukjör. Sendum í póstkröfu.
Smiðsbúð
Smiðsbúö 8, Garðabæ.
Sími 91-44300.
Sigurður Pálsson.