Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984 ~39 fólk f >» fréttum L Mér finnst ég vera Pétur Pan — segir Michael Jackson og móðir hans óttast um andlega heilsu hans + Michael Jackson á næstum því allt, sem hægt er að fá fyrir pen- inga. Hann á eftirlíkingu af mið- aldakastala, sinn eigin dýragarð, hann hefur unnið með frægu fólki á borð við Paul McCartney og Barbra Streisand og hann hefur unnið tii 12 Grammy-verðlauna, Óskarsverðlauna hljómplötuiðn- aðarins. Besti vinur hans er söngkonan Diana Ross en ef hún er ekki viðlátin leitar hann til Brooke Shields eða Jane Fonda. Þrátt fyrir allt þetta er Michael Jackson ekki hamingjusamur. Foreldrar hans skildu þegar hann var lítill og hann ólst upp hjá föð- ur sínum, mjög ströngum manni, sem hefur verið umboðsmaður hans frá því að hann sló fyrst í gegn. Sambandið milli þeirra mun hins vegar ekki vera allt of gott. Michael og hans fólk eru í sértrúarsöfnuði, borða ekki kjöt og hvorki reykja né drekka. Þrisv- ar í viku sækir hann fundi í söfn- uðinum og fastar á sunnudögum. Sjálfum finnst honum hann vera Pétur Pan lifandi kominn. — Mér finnst ég vera Pétur Pan, segir Michael. Ég er með myndir af honum upp um alla veggi og ég hef lesið hvert einasta orð, sem höfundur hans, J.M. Barrie, hefur skrifað. Leikstjórinn Steven Spielberg veit um þessa áráttu Michaels og hefur nú á prjónunum að leyfa + Móðir Michael Jacksons segir, að hann þurfi fremur á hjálp geðlæknis að halda en fleiri hljómleikum. COSPER Við höfum tíma til að taka eina skák áður en við förum í háttinn. honum að leika þetta átrúnaðar- goð hans. Eins og kunnugt er gerði Spielberg myndina um E.T. og þá mynd hefur Michael séð sex sinn- um. Móðir Michael Jacksons hefur hins vegar áhyggjur af andlegri heilsu hans. Hún segir, að hann sé að hverfa smám saman inn í sinn eigin ævintýraheim og þurfi meira á hjálp geðlæknis að halda en öll- um hljómleikunum, sem faðir hans ákveður fyrir hann. — Ég veit, að Michael líður eins og dýri í búri fyrir framan áhorf- endur og í hvert sinn sem hann kemur fram á sviðinu stígur hann enn eitt skref inn í þessa gerviver- öld sína. Ég er hrædd um, að hinn raunverulegi Michael hverfi alveg í æðisgenginni græðgi föður hans í meiri peninga og frægð, segir móðir Michael Jacksons. J.R. berst fyrir „reyk- lausri kynslóð“ + í flestra augum er Larry Hagman sami maðurinn og sá undirförli bragðarefur J.R. Ewing, en í raun og veru er hann allt önnur persóna. Hann hefur t.d. mikla skömm á reykingum og tekur nú þátt í áróðursherferð á hendur sígarettunni í Bandaríkjun- um. Aðalslagorðið er „Reyk- laus kynslóð" og er fengið að láni frá Svíum en þangað hef- ur Larry sótt ýmislegt annað, t.d. konuna sína. „Sænsk æska er nú í far- arbroddi fyrir þeim, sem vilja lifa lífinu lausir við reykjarkófið," segir Larry Hagman. tJb ORÐSENDING TIL FORELDRA í REYKJAVÍK í þessari viku fá nemendur grunnskóla í hendur bæklinginn: Sumarstarf/ börn og unglinga 1984 með upplýsingum um framboð á sumarstarfi borgarstofnana og félaga í Reykjavík. Foreldrar eru hvattir til að skoða bæklinginn vandlega með börnum sínum Gleðilegt RflSSKSSr sumar. mazoa eigendur! Varahlutirnir eru ódýrastir hjá okkur! Dæmi um verð: á Kerti frá kr. 42.00 é f Platínur — — 68.00 P Á Kveikjulok — — 137.00 á P Kveikjuhamar ... — — 40.00 P A Þéttar — — 80.00 á 1 Bensínsíur — — 90.00 P á Olíusíur — — 140.00 á 1 Loftsíur — — 163.00 P á Viftureimar — — 64.00 á $ Kúplingsdiskar .. — — 668.00 p a Bremsuborðasett — — 476.00 á 1 Bremsuklossasett — — 726.00 | é- —— — — — — — Á Notið eingöngu EKTA MAZDA VARAHLUTI eins og framleiðandinn mælir fyrir um. ÞAÐ MARGBORGAR SIG. BÍLABORG HF Smiöshöföa 23, sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.