Morgunblaðið - 03.05.1984, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.05.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS nri/JMnto-uM-VU fíinir íullorönu vilja ekki bruggun bjórs Árni Helgason skrifar frá Stykk- ishólmi: „Áfram heldur umræða um vímuefni og gott eitt við það að menn skuli vera að vakna um þann skaða sem þau gera þjóðinni. En minna ber á því að valdhafar og þeir sem eiga að leiða þjóðina til hagsældar geri nokkuð til að vernda einstaklinginn fyrir þess- um ófögnuði, heldur er það eina sem þeir sjá til að auka vandann. Koma upp fleiri freistingamið- stöðvum og ekki nóg með það, heldur gera þær þannig úr garði að þær verði virkar, þannig að veiklundaður maður og leiðitamur sé öruggur með að lenda í snör- unni. Og nú er það bjórinn. Formaður neytendafélagsins notar sitt fyrsta tækifæri á þingi til að hjálpa þessum bölvaldi skorðulaust inn í landið og rökin fyrir því eru nú heldur bágborin og ætli sumir af bestu leiðtogum vorum hefðu ekki talað um falsrök í þessu sambandi. Ég hlustaði á viðtal' frétta- manns við þá Jón Magnússon og Karl Steinar um daginn og þökk sé Karli fyrir hans sterku rök og einarða framkomu, enda er hann í nálægð Keflavíkurflugvallar og þekkir vel þann skaða sem bjór- flóðið veldur þjóðinni. Ég hefi hvergi komið í þau lönd sem bjór- inn er leyfður óhindraður að hann hafi ekki verið þar böl. Og enginn meðmælandi hans hér hefir leyft sér að vefengja að bjórinn veldur böli, er lúmskur en vinnur sitt verk eins og maurarnir. Rök eða rökleysa Jóns fólst í því að bjórinn væri hér fyrir og því væri betra að gefa hann alveg frjálsan. Hvað myndi Jón segja um heiðvirta húsmóður sem sæi ryk í hluta síns húss og í stað þess að hreinsa til, dreifði hún ryki um allt húsið, þá bæri minna á rykinu og allt væri slétt og fellt. Það má nefnilega aldrei á þessum vett- vangi hreinsa tii. Þá sagði Jón og hafði það eftir Helga Seljan að aldur þeirra sem neyttu vímuefna færðist stöðugt neðar og þess vegna finnst Jóni sjálfsagt að bæta við og kannski það sé hans hugsjón að koma aldrinum niður í 7—9 ár. Það virtist liggja í loftinu. Hann gat um skoðanakannanir þar sem menn vildu bjórinn og þar kom fram að þeir fullorðnu og reyndu voru flestir andvígir hl Arvahuf. Rayk)av<k FramkvanK>Ml)óri Haraldur Svemaaon RHM|órar Matlhia* Johanrwaaan. Aguat tngi Jóniaon Auglysmoaat|Ori Baldvln Jónaaon W1*t|órn og slmlstdlur AóalstraMl 6. aimi 10100 Auolyalngar Aó- atatraan 6. simi 22400 Algraiósia SkaMunn 10. alml 83033 Aaknh- argiald 2S0 kr a manuói mnanlands I lausasólu 20 kr emtakið Velvakanda hefur borist eftir- farandi limra í tilefni stöðuveit- inga á Morgunblaðinu. Telur höfundur að með fjölgun „silki- húfna“ lengist blaðhausinn og gangi þar á rými leiðaranna. I»«U sífollt fjölgi silkihúfum ei sorgar gætir hjá lesondum. Af ánægju a*rast því eitt er þeim kæraat þessi langþráöa stytting á leiöurum. „Nú þykjast þessir menn vera á móti áfengisnotkun. Hvflík hræsni." bruggun bjórs og streymi hans um landið. Sem sagt reynslan var á móti, en það er aukaatriði í dag- legu lífi nú að taka mark á reynsl- unni, heldur á að ganga í blindni áfram, hvað sem það kostar. Nú þykjast þessir menn vera á móti áfengisnotkun. Hvílík hræsni og þeir tala tárvotum augum um böl það sem vímuefni valda, en hvenær hreyfast þeir hinir sömu til varnar þessum voða. Jafnvel fulltrúar höfuðborgarinnar sem verða að annast og bera kostnað þeirra sem flækst hafa í netinu vaða eld og brennistein til að koma fleirum í netið — fjölga þeim stöðum sem rækta aum- ingjaskapinn. Þetta þættu léleg vísindi hjá heilbrigðu fólki. Öll reynsla og hið daglega líf er alltaf að staðfesta betur og betur þann skaða sem víman veldur. Og það eitt er víst að ráðamenn þjóð- arinnar væru ekki að glíma við „fjárlagagatið" í dag, ef þeir hefðu verið iðnari við að auka heilbrigt líf, hættu að veita áfengi í veislum og byrjuðu þar sparnað, en heimt- uðu ekki af þjóðinni sem þeir gera ekki sjálfir. Fordæmið verkar best og hvern- ig væri að hætta utanferðum á kostnað þjóðarinnar með öllum þeim flottræfilshætti sem þar er á ferð, og margt annað mætti tína til. Menn verða að byrja á sjálfum sér áður en dengt er í aðrar áttir. Og formanni Neytendasamtak- anna í Iandinu væri sæmra, ef hann vill stuðla að minnkun sterkra drykkja í þjóðfélaginu, að flytja frumvarp um að hætt verði við innflutning þeirra inn í landið, en til þess þarf manndóm og ef til vill er þar ekki nóg af slíku. Það er lítill vandi að fylgja því sem bend- ir niður í þjóðfélaginu og eykur skaða og heilsuleysi sem keypt er dýrum dómum. Já, það er hægara að skunda niður hjarnið en klífa bratta mannbóta og farsældar. Áfengisauðvaldið er sterkt og það er ekki í vandræðum með að fá sjálfboðaliða til að breiða ósóm- ann út. Þess vegna er vá og böl í landi voru.“ Vertu sjálfum þér samkvæmur Gestur kom að máli við Vel- vakanda og vildi koma þessari speki, tileinkaðri traustinu, á framfæri: „Breyttu svo við aðra einsog væru þeir bræður þínir og syst- ur. Þó að til geti komið að níðst sé á vinsemd þinni muntu samt ætíð ávinna þér miklu meira en þú hefur misst. Það verður svo heilnæmt og gott loftið í kring- um þig, þar sem þú laðar að þér svo mikið af vingjarnlegum til- finningum. Umfram allt verður þú að vera sjálfum þér samkvæmur og þolgóður í tilraunum þínum, annars ávinnur þú ekki neitt. Það dugir ekki að vera glaðlegur og vingjarnlegur annan daginn, en fúll og önugur hinn daginn, ekki heldur að reyna að vinna hylli manns annan daginn en láta sér vera sama um hann hinn daginn. Jafnlyndi er bráðnauðsynlegt til þess að þroska sterka og áreiðanlega mannveru. Enginn fær traust á þeim manni sem hefur orð á sér fyrir að vera duttlungafullur og mislyndur." SIEMENS Vestur-þýsk í húd og hár Nýja S/WAMAT Siemens- þvottavélin fyrirferöarlítil en fullkomin og tekur 4,5 kg Aðeins: 67 sm á hæð, 45 sm á breidd. Sparnaðarkerfi. Frjálst hitastigsval. Vinduhraðar: 350/700/850 sn./mín. SIWAMAT 640 SIEMENS EINKAUMBOÐ SMITH & NORLAND H/F., Nóatúni 4,105 Reykjavík. Sími 28300. SIEMENS Einvala liö: Siemens- heimilistækin Úrval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem hvert tæki leggur þér liö viö heimilisstörfin. Öll tæki á heimilið frá sama aöila er trygging þín fyrir góöri þjónustu og samræmdu útliti. SMITH & NORLÁND HF. NÓATÚNI 4, SÍMI 28300. SIG6A V/öGA £ A/LVtgAN Gullkorn , Konur eru vitrari en karlmenn, vegna þess að þær vita minna, en skilja fleira. — J. Stephen (1859—1892) var enskur rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.