Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 1984 41 NOKKUR knattspyrnufélög hafa nú áhuga á að fá Teit Þórðarson, sem leikur með franska 2. deild- arliöinu Cannes frá samnefndri borg viö Miðjarðarhafið, til liðs við sig. Teitur á eftir eitt ár af samningi sínum viö Cannes — en þrátt fyrir þaö gæti svo fariö að hann færi frá félaginu í vor. Ekki er þó loku fyrir það skotiö að hann verði hjá félaginu út samn- ingstímann. Forráöamenn þriggja franskra fyrstudeildarliöa hafa sett sig í samband viö Teit og sýnt áhuga á aö kaupa hann, forráðamenn liös í þýsku 1. deildinni, „Bundesligunni“ hafa gert slíkt hiö sama, svo og menn frá liöum í Svíþjóö og einu liöi í Sviss. Meöal þeirra sænsku liöa sem áhuga hafa á Teiti er Öst- er, sem hann lék meö viö frábæran Tveir reknir af velli TVEIR leikmenn, Ragnar Gíslason Víkingi og Brynjar Jóhannsson Ármanni, voru reknir af velli í leik liöanna í Reykjavíkurmótinu á Melavelli í gærkvöldi. Liðin skildu jöfn, 1:1. Ögmundur Kristinsson varö fyrir því óhappi aö meiöast í leiknum og varö aö fara af velli. Ekki munu þó meiösli hans al- varleg en hann fékk högg á læriö. Heimir Karlsson skoraöi mark Víkings en Sveinn Guðnason jafnaöi úr víta- spyrnu. j fyrrdag sigraði Valur Fram, 1:0, í Reykjavíkurmótinu. Jón Grétar Jónsson skoraöi eina mark leiksins í mjög sanngjörn- um Valssigri. Staöan í mótinu eru nú þannig: KR Fram Fylkir Þróttur Valur Víkingur Ármann orstír fyrir nokkrum árum. Á þessu stigi er ekki rétt aö nafngreina fleiri liö. Teitur hefur átt í útistööum viö forráöamenn Cannes aö undan- förnu og því ekki viljað ræöa form- lega viö önnur félög á meðan. „Þjálfari Cannes hefur látiö þaö í Ijos aö ég muni ekki vera í 11 manna hópi hjá honum á næsta keppnistímabili og kraföist ég því — segir markvörður Ármanns um sjálfsmarkið fræga, og segist ekki hafa farið með knöttinn inn fyrir línuna — SH. • Heimir Gunnarsson í leiknum við Víking á Melavellinum í gærkvöldi. Morgunblaðið/RAX. Var vankaður eftir tvö spörk í hálsinn Heimis. Þar fékk hann því annaö spark i hálsinn á skömmum tima. „Síöan klöngraöist Fylkismaöurinn yfir mig og inn í markiö,“ til aö ná í vatnsbrúsann fræga. „Ég stóö upp meö boltann í hendinni, studdi honum viö stöngina og teygöi mig inn í markiö til aö ná brúsanum á undan Fylkismanninum. Þá vissi ég ekki fyrr en dómar- inn haföi dæmt mark. Hann sagöi að ég heföi fariö meö boltann inn fyrir miöja stöng (M) og þar af leiö- andi dæmdi hann mark. „Ertu vit- laus maður — hvaö ertu aö gera," sagöi ég þá viö hann, og fyrir þaö rak hann mig af velli, sagöi mér aö fara í bað.“ Heimir sagöist mjög sennilega hafa fengiö snert af heilahristing í fyrra skiptiö er sparkaö var í háls hans — eftir aö hafa fariö í sturtu heföi hann farið beint til síns heima, veriö mjög vankaöur og meö ógleöi. Veturinn 1980 flisaöist úr sjötta og sjöunda hryggjarliö Heimis er hann datt á skíðum og var hann þá frá vinnu í fimm mánuði. Hann lá á sjúkrahúsi í hálfan mánuö og „gekk síðan um meö spelkukraga þar til ég gat byrjaö aö vinna í ágúst. Eftir þaö hef ég veriö hálf smeykur viö svona návígi og þaö þarf ekki mikiö til aö ég vankist," sagöi Heimir í gær. — SH. aö fá að fara. Forráöamenn félags- ins hafa ekki viljaö þaö — þeir vilja aö ég veröi hér út samningstím- ann,“ sagöi Teitur í samtali viö Mbl. í gær. Hann sagðist ekki geta sagt um þaö á þessu stigi málsins hvort hann yröi áfram hjá Cannes. „Þaö getur þó vel farið svo,“ sagöi hann. Æsispennandi bikarleikir Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttamanni Morgunblaösins í Vestur-Þýskalandi. SHALKE 04 og Bayern MUnchen gerði jafntefli, 6:6, í frébærum leik í undanúrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu í gærkvöldi é heimavellí fyrrnefnda liösins í framlengdum leik. Schalke jafn- aöi er aöeins ein sek. var eftir af Wales vann England WALES sigraöi England með einu marki gegn engu í bresku meist- arakeppninni í Wrexham í Wales í gærkvöldi. Það var Manchester United-leikmaðurinn Mark Hugh- es sem skoraöi eina mark leiks- ins, en hann lék þarna sinn fyrsta landsleik, eftir sendingu fré öðr- um United-kappa: Alan Davies. framlengingunni. Eftir venjulegan leiktíma var staðan 4:4. Liðin verða því að mætast aö nýju é Ólympíuleikvanginum í MUnchen í næstu viku til aö fá úr því skoriö hvort þeirra mætir Borussia Mönchengladbach í úrslitum i Frankfurt 31. maí — en Gladbach sigraöi Bremen 5:4 í öörum stór- kostlegum leik í fyrrakvöld. Michael Rummenigge og Dieter Höhness skoruðu tvö mörk hvor fyrir Bayern í gærkvöldi, Karl Heinz Rummenigge og Reinhold Mathy geröu sitt markiö hvor. Leikurinn í gær var stórskemmtilegur — liöin léku bæöi frábæra knattspyrnu, en þess má geta aö Schalke leikur í 2. deild. 70.000 áhorfendur skemmtu sér konunglega. Bayern komst fljótlega í 2:0, Schalke jafnaöi 2:2 og Bayern komst svo í 3:2, og þannig var staöan i teikhléi. Schalke jafnaöi 3:3 og komst yfir, 4:3, en Bayern jafnaði. Þá var framlengt — Bayern komst í 5:4, Schalke jafnaöi, Bayern komst yfir 6:5 einni sek. fyrir leikslok. Dómar- inn flautaöi mark og síöan flautaöi hann til leiksloka. í fyrrakvöld sigraöi Gladbach Werder Bremen 5:4, einnig eftir framlengingu. Þar var sigurmarkiö gert er aöeins örfáar sek. voru til leiksloka. Varamaöurinn Jörg Cri- ens tryggöi Gladbach þá sigur af stuttu færi. Tveir stórskemmtilegir leikir á jafn mörgum dögum. „Þetta er knattspyrna eins og fólk viö sjá. Báöir þessir leikir hafa veriö góö auglýsing fyrir knatt- spyrnuna hér í Vestur-Þýskalandi," sagöi þulur þýska sjónvarpsins í gærkvöldi, er hann var aö lýsa leik Schalke og Bayern. — SH. Dieter Höhness skoraði tvívegis i gær fyrir Bayern. HEIMIR Gunnarsson, markvörður Ármanns í knattspyrnunni, skor- aði eftirminnilegt sjálfsmark í viðureigninni viö Fylki í Reykja- víkurmótinu um helgina, eins og Mbl. greindi frá á þriðjudag. Var það jöfnunarmark Fylkis, 2:2, sem sigraði í leiknum 3:2. „Ég fór aldrei meö boltann inn fyrir línuna," sagöi Heimir er blm. Mbl. ræddi umrætt atvik viö hann í gær. Forsaga þess er sú að fimm mín. áöur fékk Heimir spark i háls- inn og var hálf vankaöur eftir. Síö- an er skotiö var á markið varöi hann knöttinn út viö stöng og lá á vellinum er sóknarmaöur Fylkis fylgdi á eftir og sparkaöi í háls • Teitur Þórðarson Fer Páll til Leverkusen? VESTUR—ÞYSKA handbolta- liðið Bayer Leverkusen vill fá Þróttarann Pál Ólafsson til liðs viö sig fyrir næsta keppnistíma- bil, skv. áreiðanlegum heimild- um Morgunblaðsins. Útsendari liðsins kom hingaö til lands fyrir skemmstu til að fylgjast með Páli í leik í neðri úrslita- keppni 1. deildar — en Páll var ekki með Þrótti í þeim leik. Leverkusen leikur nú í 2. deild- inni þýsku en lék í Bundesligunni fyrir nokkrum árum og þá lék Víkingurinn Viggó Sigurösson með liöinu við mjög góöan orö- stír. Forráöamenn Leverkusen eru nú aö byggja upp nýtt !iö og eru staðráðnir í aö koma félaginu í 1. deild á ný. Þeir telja Pál heppilegan í liðiö og vilja helst fá hann utan á næstunni til aö æfa meö liöinu og fylgjast meö hon- um. Þaö var Klaus Kater, fyrrum markvöröur Gummersbach, sem kom hingaö til lands á dögum í þeim erindagjöröum aö fylgjast meö Páli, en Kater er nú fram- kvæmdastjóri félagsins. — SH. Pýsk, sænsk, frönsk og svissnesk 1. deild- arlið vilja frá Teit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.