Morgunblaðið - 04.05.1984, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.05.1984, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1984 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1984 17 ptor04itimMaíÍj>íft> Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoðarritstjóri Fulltrúar rltstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 20 kr. eintakiö. Kosningaferða- lag til Kína Hvergi í heiminum nema ef til vill í Sovétríkjunum og fylgiríkjum þeirra og þar sem fátækt og fáfræði hamla upplýsingamiðlun komust menn hjá því að fá nasasjón af nýlegri heimsókn Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, til Kína. Raunar fengu Banda- ríkjamenn meira en nasasjón af þessu ferðalagi því að það hefur verið meginuppistaðan í fjölmiðlum þar í landi frá því löngu áður en það hófst og þar til að eftir að því lauk í byrjun þessarar viku. Sú staðreynd að jafnvel Ronald Reagan, sem talinn hefur verið harðskeytt- asti andstæðingur kommún- ista á forsetastóli í Bandaríkj- unum skuli telja sér til fram- dráttar að fara til Kína á kosningaári segir meira um aðstæður í heiminum en það sem Reagan ræddi við ráða- menn í Kína á meðan á ferð- inni stóð. Prófkosningar hjá Demó- krataflokknum eru að komast á lokastig og allt bendir til þess að Walter Mondale, fyrr- um varaforseti Jimmy Carter, verði í framboði á móti Reag- an í kosningunum í nóvember. Þótt kosningaúrslit í Banda- ríkjunum ráðist yfirleitt af því eins og annars staðar hvernig staðan er í buddu kjósenda fer ekki hjá því að utanríkismál komi til álita við kjörborðið. Mondale hefur reynt að færa sér í nyt áróður friðarsinn- anna svonefndu um að Reagan sé hættulegur heimsfriðnum og alltof „herskár" til að sitja í Hvíta húsinu, svo að notað sé orð sem andstæðingum Reag- ans heima og erlendis er tamt. Kínaför Reagans kippir fótun- um undan þeim slagorða- flaumi að forsetinn vilji held- ur kasta sprengjum á komm- únista en ræða við þá. Árangur kosningaferðalags- ins til Kína er þó ekki aðeins bundinn við þau áhrif sem það hefur innan Bandaríkjanna. Viðræður forsetans við kín- verska leiðtoga urðu ekki til að leysa grundvallarágreining milli stjórnanna vegna Form- ósu, sem ráðamenn í Peking gera tilkall til en Reagan segir að eigi að lúta stjórn þeirra sem meirihluti íbúanna kýs. Tilgangur viðræðnanna í Kína var ekki síst sá að auka við- skipti milli Bandaríkjanna og Kína. í raun var þar verið að staðfesta formlega niðurstöð- ur samningaviðræðna um að Kínverjar njóti mun betri kjara í viðskiptum við Banda- ríkjamenn en Sovétmenn, ekki síst að því er samvinnu um kjarnorku til friðsamlegra nota varðar og kaup á há- tæknibúnaði. Þennan grundvallarmun á milli Kína og Sovétríkjanna í verslunarviðskiptum við Bandaríkin má rekja til sjálfr- ar forsendunnar fyrir því að forsetar Bandaríkjanna telja sér það hentugt að fara til Kína á kosningaári: með því eru þeir að styrkja stöðu þeirra þjóða sem vilja sporna gegn útþenslustefnu Sovét- ríkjanna. Vinsamlegri tónn er í yfirlýsingum kínverskra og sovéskra ráðamanna þegar þeir tala hvor um annan nú en áður. Hins vegar er enn grunnt á því góða milli þess- ara nágrannaríkja. Það mun ekki gróa um heilt á meðan bandamenn Sovétríkjanna í Víetnam stunda hernað við suðurlandamæri Kína og sov- éski herinn heldur uppi út- rýmingarhernaði gegn Áfgön- um við vesturlandamæri Kína. Nýjung Sparisjóðs Reykjavíkur Frá því var skýrt nú í vik- unni að frá og með 1L maí næstkomandi verði ávísana- og hlaupareikningar við- skiptavina Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis sameinaðir í hlaupareikning og jafnframt verði þeim sem leggja laun sín reglúlega inn á slíkan reikning boðið upp á að sækja um fastan, allt að 10 þúsund króna, yfirdrátt. Þetta framtak Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis er enn eitt dæmið um aukna samkeppni milli innlánsstofn- ana og sýnir að þessi sam- keppni leiðir til margvíslegra úrbóta í þágu almennings. Sparisjóðurinn stendur traustum fótum og hefur fært út kvíarnar bæði með nýju úti- búi á Seltjarnarnesi og nú með samruna við Sparisjóðinn Pundið. Slík útþensla inn- lánsstofnana hefur verið mik- ilvæg fyrir vöxt þeirra og við- gang miðað við staðlaðar regl- ur um þjónustu og kjör við- skiptavinanna. Nú er að verða sú breyting að annars konar þjónusta banka og sparisjóða við viðskiptavinina og þau kjör sem þeir bjóða mun lík- lega ráða meiru um afkomuna en fjöldi útibúa. Greinilegt er að Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í því efni. Mannbjörg er Kári VE 95 sökk eítir árekstur við Hástein ÁR 8 í gærmorgun: „Furðulegt hversu fljótt — sagði skipstjórinn á UCl %j Ul. 11111 OÍIIVIV Kára, Sævar Sveinsson FIMM MANNA ÁHÖFN vélbátsins Kára VE 95 bjargaðist giftusamlega er skipið sökk eftir árekstur við Hástein ÁR 8 um 1,5 sjómílu út af Stokkseyrarhöfn um kl. 6.30 í gærmorgun. Aðeins tveimur mínútum eftir áreksturinn var Kári horfinn í sæ. Óverulegar skemmdir urðu á Hásteini. Veður á þessum slóðum var hið besta í gærmorgun, hægur andvari og bjartviðri. Kári VE 95. Morgnnbla&iA/ Snorri SnorrwMín. Allir í sjóinn Þrír skipverjanna á Kára sváfu í kojum sínum er áreksturinn varð. Matsveinninn var kominn á stjá og skipstjórinn stóð í brúnni. Bátsverj- um tókst að kasta út gúmbáti og stukku síðan í sjóinn. Þeir komust allir að skammri stundu liðinni í björgunarbátinn og voru litlu síðar teknir um borð í Hástein, sem sigldi rakleiðis til hafnar. Engan úr sjö manna áhöfn Stokkseyrarbátsins sakaði. Hásteinn var á leið út í netaróður frá Stokkseyrarhöfn þegar árekstur- inn varð. Kári var hins vegar að koma úr veiðiferð, þar sem hann hafði fengið 65—70 tonn af góðum fiski í troll í Meðallandsbugt. „Við vorum á leið út héðan en þeir á leið til Þorlákshafnar, þar sem þeir landa aflanum, er áreksturinn varð,“ sagði Henning Frederiksen, skip- stjóri á Hásteini, þegar blm. Mbl. hitti hann að máli við Stokkseyrar- höfn, þar sem verið var að þétta stefni bátsins í gærmorgun. Henning var í brú Hásteins við áreksturinn. „Skyggni var prýðilegt og besta veð- ur, en ég vil ekki tjá mig um atburðarásina að öðru leyti. Hún kemur fram í sjóprófum. Það kom stórt gat á síðuna á Kára við árekst- urinn og hann sökk á innan við tveimur mínútum, enda kjaftfullur af fiski." Neyðarlegt „Það er óneitanlega neyðarlegt að svona nokkuð skuli hafa gerst eins og allar aðstæður voru,“ sagði Sævar Sveinsson, skipstjóri á Kára, er blm. ræddi við hann að heimili hans á Eyrarbakka. „Þetta bar svo brátt að, að ekki var um annað að ræða en drífa mennina upþ á dekk og síðan frá borði. Við fórum allir í kaldan sjóinn og vissulega var það óhugn- anlegt. Við vorum þó ekki lengi í sjónum áður en við komust í björg- unarbátinn. Mér finnst það reyndar furðulegt hve fljótt báturinn sökk.“ Hvorki Henning né Sævar vildu fara nánar út í tildrög slyssins, en í sam- tölum við skipverja óskuðu þeir eftir þvi, að fram kæmi að sleppibúnaður var ekki um borð í Kára. Báðir bátarnir voru úr eik. Há- steinn er 47 tonn að stærð, byggður í Stykkishólmi 1969. Kári var 110 lesta bátur, smíðaður 1949. Hásteinn landaði í Stokkseyri, Kári í Þorláks- höfn, en bæði skipin voru á leigu hjá Hraðfrystihúsi Eyrarbakka og lögðu afla sinn upp þar. Sjópróf í málinu áttu að hefjast hjá sýslumannsembættinu á Selfossi kl. 17 í gær. Skipstjórinn á Hásteini, Henning Frederiksen, fylgist með viðgerðum á stefni skips síns í Stokkseyrarhöfn í gærmorgun. Morgunbladió RAX. % Sinfónía San Francisco: Ashkenazy er meðal umsækjenda um starf hljómsveitarstjóra VLADIMIR Ashkenazy er einn af sautján umsækjendum um stöðu hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar San Francisco og einn af þrem- ur sem „San Francisco Chronicle“ segir að komi helst til greina í stöðuna. Segir ennfremur í frétt blaðsins, að nafn Ashkenazys komi mest á óvart á þeim lista. Hinir tveir umsækjendurnir sem sagðir eru líklegastir eru André Previn og Herbert Blomstedt. Núverandi hljómsveitarstjóri sinfóníuhljómsveitarinnar er Edo de Waart, en hann hættir störfum á árinu 1985. í grein í San Franc- isco Chronicle 28. febrúar sl. er fjallað um stöðuveitinguna og þá þrjá sem blaðið segir helst koma til greina. Segir þar að nafn Ashk- enazy komi einna mest á óvart. Rakinn er æviferill hans og ferill hans sem píanóleikara og sagt að hann sé einn vinsælasti píanisti í heiminum i dag. Þá segir að hann hafi annast hljómsveitastjórn síð- ustu árin, t. d. hjá Fílharmoníu- hljómsveit Lundúnaborgar og að hann hafi staðið sig vel og notið vinsælda sem slíkur. Þess er þó getið, að viðfangsefni Ashkenazys sem hljomsveitarstjóra hafi verið einskorðuð við höfunda eins og Beethoven, Sibelius, Tchaikovsky, Rachmaninoff og nokkurra fleiri, og spurning sé, hvort hann hafi yfir að ráða nægilega víðtækri efnisskrá til að stjórna svo stórri hljómSveit sem Sinfóníuhljóm- sveit San Francisco-borgar sé. Þess er og getið í fréttinni, að þó þessi þrjú nöfn séu nú efst*á lista þeirra, sem velja þurfa úr hópi umsækjendanna sautján, sé alls óvíst, hver hljóta muni hnossið. Þá segir og að til viðbótar geti komið til þess, að hljómsveitin fái ekki þann umsækjenda sem valinn yrði, því fleiri stórar hljómsveitir leiti nú að hljómsveitarstjórum, t.d. Sinfóníuhljómsveitin í Los Angeles. Brúðuheimilið: Færeysk-íslenzka leik- gerðin sýnd BRÚÐUHEIMILIÐ, hin íslenzk fær- eyska leikgerð þess undir stjórn Sveins Einarssonar, verður meðal leikrita, sem sýnd verða á Listahátíð í júní. Hefur aðstandendum þess verið boðið að sýna í Félagsstofnun stúdenta dagana 14. og 15. júní næstkomandi. Leikritið var flutt í Færeyjum fyrir skömmu og þá á íslenzku og færeysku samtimis enda fóru þeir á Listahátíð Pétur Einarsson og Borgar Garð- arsson með tvö hlutverk sýningar- innar, en færeyskir leikendur með önnur hlutverk. Þá er ákveðið að Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið taki þátt í norrænni leiklistarhátíð í byrjun júní í Osló. Verða þar sýnd leikritin Skilnaður eftir Kjartan Ragnarsson og Lokaæfing eftir Svövu Jakobsdóttur. Frá sýningu Louisu vestanhafs. Konan fremst á myndinni til hægri er Temma Bell, dóttir hennar, sem einnig er listmálari. Robert Schoelkopf Gallery í New York flytur í nýtt húsnæði: Louisa Matthías- dóttir með einkasýn- ingu við opnunina Sýning á verkum Louisu á Kjarvalsstöðum í júní Louisa Matthíasdóttir við eina af sjálfsmynd- um sínum á sýningunni ( Robert Schoelkopf Gallery ( New York. Listakonan heldur á Melkorku, yngri dótturdóttur sinni, sem er dóttir Temmu Bell og Ingimundar Kjarvals. HINN 21. aprfl sl. opnaði listmálar- inn Louisa Matthíasdóttir sýningu í Robert Schoelkopf Gallery í New York. Galleríið, sem er virt stofnun í New York, flutti í ný húsakynni og opnaði með fyrrnefndri reinkasýn- ingu Louisu. Þetta er ellefta einka- sýning hennar í þessu galleríi en fyrst sýndi hún þar árið 1964. í frétt frá Listamunahúsinu segir, að margt hafi verið um manninn við opnunina og seldust strax nokkuð á annan tug málvcrka. Verðlag á verkum Louisu hefur stigið mjög í Bandaríkjunum á síðustu árum, enda Louisa orðin mjög þekktur málari þar vestra. Sem dæmi má taka að myndir eftir hana seldust fyrir allt að $22.000 á síðustu sýn- ingu. Á vegum Listmunahússins í Reykjavík og ísmyndar hf. er nú unnið að gerð heimildarmyndar um Louisu Matthíasdóttur og var fyrri hluti myndarinnar tekinn í New York í aprílmánuði. Síðari hluti myndarinnar verður svo tekinn í Reykjavík og á Þingvöll- um í sumar. Lárus Ymis Óskars- son er leikstjóri myndarinnar og sér um alla gerð hennar. í samvinnu Listmunahússins og Listahátíðar í Reykjavík verður opnuð sölusýning að Kjarvals- stöðum 2. júní nk. á verkum Lou- isu og má gera ráð fyrir að sýnd verði milli 50 og 60 olíumálverk eftir hana. Auk hennar sýna níu aðrir íslenskir listamenn, búsettir erlendis, á Kjarvalsstöðum á sama tíma. Listmunahúsið mun sjá um alla sölu á myndverkum Louisu og annast um samninga þar að lútandi. Louisa Matthíasdóttir fæddist 1917 í Reykjavík. Eftir nám í Danmörku gekk hún í skóla hjá málaranum Marcel Gromaire’ í París og fluttist síðan til New York 1941 og stundaði þá nám í skóla Hans Hofmann. Louisa er gift listmálaranum Leland Bell og dóttir þeirra, Temma Bell, er einnig listmálari. Auk framangreindra sýninga í Gallery Schoelkopf hefur Louisa haldið fjölda einkasýninga víða í Bandaríkjunum og auk þess tekið þátt í mörgum samsýningum. Sýning Louisu á Listahátíð að Kjarvalsstöðum í júní nk. er hins vegar lang stærsta sýning hennar hérlendis og fyrsta einkasýning hennar á íslandi. „Bandormur** ríkisstjórnarinnar kominn fram: Niðurskurður — lántökur - lægri búvöruniðurgreiðslur Yfirlit yfir verðlags- og tekjuáhrif aðgerða Áhrif á í ríkisfjarmalum í maíbyrjun 1984 (Tamfærslu vísitðlu % 1. Lækkun niðurgreiðslan um 185 m. kr. 1984 frá maíbvrjun ..... 0.7 2. Aukin þátttaka almennir^gs í lyfja-og lækniskostnaði ... 0.6 3. Nýtt innflutningsgjald af kjarnfóðri. skv. frumvarpinu ..... 0.1 Samtals, upphafsáhrif . .....................,.................. 1.4 Samtals, áhrif á meðalverðlag 1984 ............................. l‘/4 Meðaláhrif að- gerða á verðlag 1984 eru 1,25% Forsætisráðherra lagði ( gær fram á Alþingi stjórnarfumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum, peninga- og lánsfjár- málum 1984, sem gengið hefur undir nafninu „bandormurinn" og spannar viðbrögð stjórnarliða við „fjárlagagati" og tengdum vanda. Efnisatriði frum- varpsins eru þessi: • Heimildarákvæði til niðurskurðar á fjárlagaliðum sem svarar 370 m.kr. (forsætisráðuneyti 6 m.kr., mennta- málaráðuneyti 25 m.kr., utanríkis- ráðuneyti 2 m.kr., landbúnaðarráðu- neyti 5 m.kr, sjávarútvegsráðuneyti 11 m.kr., dóms- og kirkjumálaráðu- neyti 40 m.kr., félagsmálaráðuneyti 5 m.kr., heilbrigðis- og tryggingaráðu- neyti 5 m.kr., fjármálaráðuneyti 45 m.kr., samgönguráðuneyti 25 m.kr., iðnaðarráðuneyti 14 m.kr. og við- skiptaráðuneyti 187 m.kr. (þar af 185 m.kr. lækkun á niðurgreiðslu búvöru- verðs). • Fjárveiting og lántaka vegna Lánasjóðs íslenzkra námsmanna fari ekki yfir 658 m.kr. 1984. • Ekki verði greitt úr ríkissjóði um- fram 468 m.kr. vegna útflutnings bú- vöru. • Innheimtustofnun sveitarfélaga skal greiða Tryggingarstofnun ríkis- ins innheimtufé barnsmeðlaga mán- aðarlega. Jöfnunarsjóður sveitar- félaga greiði Innheimtustofnun það sem á vantar að tekjur hennar nægi til endurgreiðslu til Tryggingastofn- unar. • Greiðslur úr rikissjóði til Jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga af söluskatt- stekjum 1984 skulu ekki nema hærri fjárhæð en 495 m.kr. og greiðslur af verðtollstekjum eigi hærri fjárhæð en 100 m.kr. • Atvinnurekendur beri sjúkra- tryggingarkostnað 14 fyrstu veik- indadaga í stað 10 áður, enda hafi launþegi verið óvinnufær 21 dag í stað 14 áður. Þessi lenging biðtíma eftir sjúkradagpeningum minnkar þann rétt sem atvinnurekendur eiga til sjúkradagpeninga. • Sjúkratryggingar geti hafnað reikningi læknis eða endurgreiðslu lækniskostnaðar til sjúklings, starfi viðkomandi læknir ekki skv. samn- ingi við læknasamtökin. • Sjúkratryggingum ber aðeins að greiða læknisþjónustu sérfræðinga sem starfa skv. samningi við sjúkra- tryggingar. • Tryggingastofnun og sjúkra- samlög skulu þvf aðeins greiða tann- læknakostnað skv. 44. grein, að fyrir liggi um það samningur við viðkom- andi aðila, ella verða greiðslur ákveðnar skv. gjaldskrá sem ráð- herra setur. • Kostnaðarþáttaka almannatrygg- inga í gullfyllingum, krónu- og brúar- gerð sem og tannréttingum lækkar í 25% fyrir 6—15 ára börn (var 37%). Kostnaðarþáttaka í tannviðgerðum 16 ára unglinga lækkar úr 75% í 50%. Fyrir elli- og örorkuþega verður kostnaðarþátttaka trygginga 50%, þó 75% fyrir langsjúkt fólk. Allar al- mennar tannlækningar barna verða áfram greiddar að fullu. • Greiðslur til heimilislækna verða með svipuðum hætti og til heilsu- gæzlulækna (númeragjald aflagt). Tilvísanakerfi til sérfræðinga verður endurskoðað. • Frestað verður um eitt ár því ákvæði grunnskólalaga að síðasta ár skólaskyldu komi til framkvæmda haustið 1984. • í tillögum ASl og VSI virðist geng- ið út frá því að barnabótaauki lækki í stökkum við hverjar byrjaðar 10 þús. krónur. Hér er lagt til að hann lækki jafnt og þétt um 8% af útsvarsstofni umfram 150 eða 220 þúsund krónur. • Á tímabilinu 1. júní — 31. desem- ber 1984 verður lagt sérstakt gjald á fullunnar fóðurblöndur og hráefni til fóðurblöndunar, kr. 1,30 af hverju kílógrammi. (Áætlað er að þetta gjald gefi 60 m.kr. og nýtist til að greiða uppbætur á útfluttar búvör- ur.) • Seðlabanki fái nýja sérstaka heim- ild til að binda fé innlánsstofnana al- mennt að fengu samþykki ríkis- stjórnar, umfram það sem lög ákveða nú. Ákvæði þetta fellur úr gildi í lok ársins. • Heimilað er að dreifa íþyngjandi greiðslukvöðum Jöfnunarsjóðs sveit- arfélaga vegna endurgreiðslna á barnsmeðlögum með 150 m.kr. lán- töku sjóðsins. • Leitað er heimilda til lántöku er nemi 1.222 m.kr., sem þann veg skýr- ist: 719 m.kr. vegna halla ríkissjóðs, 302 m.kr. til A—hluta ríkissjóðs og 190 m.kr. til að endurlána húsnæðis- kerfinu. • Framkvæmdasjóður fá heimild til erlendrar lántöku til samræmis við lánsfjárþörf atvinnuveganna: sjávar- útvegur 300 m.kr., skuldbreyting í landbúnaði 80 m.kr., 150 m.kr vegna skipasmíðastöðva til viðhaldsverk- efna og 150 m.kr. til nýsköpunar í atvinnulifinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.