Morgunblaðið - 05.05.1984, Síða 22

Morgunblaðið - 05.05.1984, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1984 Genscher til Washington Bonn, 4. maí. AP. Hans-Dietrich Genscher utanríkisráðherra Vestur-I'ýzkalands heldur í kvöld til Bandaríkjanna og í Washington mun hann kvnna bandarískum valdhöfum áhyggjur ríkja EBE vegna áforma stjórnar Reagans um að færa vígbúnaðarkapp- hlaupið út fyrir gufuhvolf jarðar, að sogn embættismanna í Bonn. Genscher mun einnig hvetja Bandaríkjamenn til að auðsýna á ný vilja sinn til að bæta samskipti aust- urs og vesturs. Mun hann ræða sér- staklega við Reagan og Shultz utan- ríkisráðherra um samband Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Ferð Genschers hefur hlotið mikilvægi sakir þess að síðar í mánuðinum fer hann einnig til Moskvu til viðræðna við ráðamenn þar. Embættismaður, sem er náinn samstarfsmaður Genschers, kvað stjórnvöld í Bonn og Washington hafa skiptst á skoðunum varðandi tillögur Bandaríkjamanna um smíði vopna til notkunar úti í geimnum. Áætlun Bandaríkjamanna varðaði ekki einvörðungu samband Banda- ríkjanna og Rússa, heldur einnig ör- yggishagsmuni Evrópuríkja. Sagði embættismaðurinn að stjórnin í Bonn hvetti til þess að Bandaríkjamenn og Rússar hæfu samningaviðræður um geimvígbún- að þegar í stað, þótt vígbúnaður af þessu tagi væri ekki á næstu grösum. Vopnafundi Líbýu- manna vísað á bug London, 4. maí. AP. STJÓRNVÖLD í Líbýu segjast hafa fundið fimm skammbyssur, skotfæri, táragassprengjur og gasgrímur f pen- ingaskáp, sem brotinn hafi verið upp í byggingu þeirri þar sem scndiráð Breta í Tripoli var áður til húsa. Var frá þessu skýrt í sjónvarpsútsendingu í Líbýu í dag. Tekið var fram, að tveir starfsmenn ítalska sendiráðsins í Trip- oli hefðu verið viðstaddir er peninga- skápurinn var opnaður. Ítalía gætir nú hagsmuna Breta í Líbýu eftir að þeir slitu stjórnmálasambandi við landið. Brezka utanríkisráðuneytið vísaði í dag algerlega á bug staðhæfingum Líbýustjórnar um vopnafund í sendi- ráðsbyggingunni. Lýsti talsmaður ráðuneytisins þessum staðhæfingum sem „fáránlegum". Fyrst þegar ít- öisku sendimennirnir komu til bygg- ingarinnar, þá hefði enginn Líbýu- maður verið þar til staðar til þess að taka á móti þeim. ítalirnir voru svo aftur boðaðir á vettvang í gær eftir að Lfbýumenn sögðust hafa fundið vopnin. „Það ert augljóst, að Líbýu- menn komu vopnunum fyrir í sendi- ráðsbyggingunni i millitíðinni,“ sagði talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins í dag. íbúar í Langasundi í Noregi æfir: Hvíta ráðhúsið skal rauðmálað Osló, 4. maí. Krá Jan Krik Lauré, fréttaritara Mbl. ÍBI ARNIR í langasundi í Noregi ná ekki upp í nef sér fyrir bræði og sjá rautt í bókstaflegri merkingu. Bæjarstjórnin hefur nefnilega samþykkt að niála gamla, hvíta ráóhúsið í bænum rautt, og brjóta með því gamla hefð á þessum slóðum. Langasund er allnokkuð fyrir sunnan Ósló, á Suðurlandinu eins og sagt er, en þar hefur það verið ófrávíkjanleg regla um langan ald- ur, að hús og byggingar séu hvít. Þess vegna er Suðurlandsströndin stundum kölluð „hvíta ströndin". Ráðhúsið í Langasundi er rúm- lega aldargamalt og á lista yfir norskar þjóðminjar, þannig að það má ekki rffa eða breyta nema með leyfi þjóðminjavarðar. Fram að síðustu aldamótum var húsið rautt en þá var það málað hvítt og hefur haft þann lit f rúm 80 ár. Þjóð- minjavörður vill hins vegar hafa það rautt eins og það var fyrir aldamót og bæjarstjórnin féllst á það. íbúarnir í Langasundi voru ekki spurðir ráða og þeir ætla ekki að láta þjóðminjavörð eða nokkurn annan komast upp með að spilla hvíta litnum. Málararnir í bænum hafa neitað að koma nálægt verkinu og margir hafa á orði að komið verði í veg fyrir, að húsið verði vanhelgað með rauðum lit. w * *r Frá heimsókn páfa í Suður-Kóreu. Jóhannes Páll páfi II. heilsar kristn- um konum klæddum þjóðbúningi Kóreu. Fordæmdi hryöjuverk Seoul, 4. maí. AP. JÓHANNES Páll páfi II heimsótti í .dag holdsveikrabúðir í Suður- Kóreu og sagði, að Jesús hefði framar öðrum borið þá sem þjást fyrir brjósti. í öðru ávarpi, sem páfinn flutti erlendum sendistarfsmönnum, sagði hann, að binda yrði enda á „skefjalaust ofbeldi". Fordæmdi hann sprengjutilræði þau, sem áttu sér stað í Burma í fyrra, en þá biðu margir af helztu stjórnmálamönnum Suður-Kóreu bana. Á morgun, laugardag, er gert ráð fyrir því, að páfinn fari m.a. til borgarinnar Pusan í suðurhluta landsins, þar sem hann hyggst flytja útimessu. Er gert ráð fyrir, að allt að 300.000 manns verði þar viðstaddir. Rás tvö vel tekið í Noregi Osló, 4. maí. Frá Jan Erik Laure fréttaritara Mbl. Rás tvö hjá norska útvarpinu hefur hlotið góðar viðtökur og virðist sem fleiri hlusti á rás tvö en þá einu sem fyrir var. Samkvæmt skoðanakönnun um páskana tóku 56% Norðmanna rás tvö fram yfir rás eitt, meðan 30% vildu frekar hlusta á rás eitt en tvö. Rás tvö flytur fyrst og fremst léttmeti, þar sem tónlist skipar mikinn sess, meðan rás eitt flytur „alvarlegri" dagskrá. Unnið er að uppbyggingu og skipulagi dagskrár rásar tvö og því eru útsendingar aðeins hluta úr degi enn sem komið er. Eftir um það bil ár verða útsendingar á rás tvö jafn lengi og á rás eitt. Stjórnendur rásar eitt kveðast ekki undrandi á niðurstöðum könnunarinnar, en hyggjast fara í meiri samkeppni við rás tvö með dagskrárbreytingum til þess að endurheimta hluta hlustendanna. Faraldur dregur 1500 menn til dauða Delhí. 4. maf. AP. RÚMLEGA 1.500 manns hafa dáið og nærri 30 þúsund þjáðst með ýmsum hætti úr sjúkdómi, sem orsakast af mcnguðu drykkjarvatni, sem inniheld- ur bakteríur er valda bólgum ( þörm- um, lifur og maga. Fyrst varð sjúkdómsins vart í febrúar, en hann hefur breiðst út sem faraldur síðan. Flestir hinna látnu eru börn á aldrinum eins til þriggja ára. Sjúkdómurinn hefur verið hvað skæðastur f fylkinu Vestur-Bengal í austurhlut \ Ind- lands. Fundur frú Thatcher og Mitterrands í gær Tekst að leysa deilurnar í EBE? Parí-s, 4. maí. AP. FRÚ Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, kom til Parísar í dag og hélt þcgar til Elysée hallar til afar mikilvægra viðræðna við Víetnamar segjast hafa fellt hundruð hermanna Kína Bangkok, 4. maí. AP. VÍETNAMAR héldu því fram í dag að hundruð kínverskra hermanna hefðu verið felldir, særðir eða teknir til fanga í vikunni, er kínverskar innrásarsveitir réðust inn í landa- mærahéraðið Ha Tuyen í norður- hluta Víetnam. Hið opinbera máigagn komm- únistaflokks Víetnam, Nhan Dan, sagði fjölmennt herlið Kínverja hafa ráðist inn í Víetnam og hafi komið til harðra bardaga. Engar fregnir fóru af mannfalli í liði Ví- etnama eða hvort kínversku inn- rásarsveitirnar, sem svo eru nefndar, hefðu verið hraktar til baka. Blaðið sagði mikla spennu ríkja á landamærunum. Kínverjar hefðu safnað þar saman gífurlega fjölmennu herliði og lýst viðbún- aðarástandi á stróum svæðum. Blaðið sakaði Kínverja um dagleg- ar árásir á víetnamskt land á þessum slóðum frá aprílbyrjun. Segir biaðið árásirnar standa í beinu sambandi við Kínaferð Ron- alds Reagan, Bandaríkjaforseta, sem er nýlokið. Sagði blaðið að í kjölfar Bandaríkjaferðar Dengs Xiaoping 1979 hafi 600 þúsund manna herlið Kínverja ráðist inn í sex landamærahéruð í norður- hluta Vietnam. Á blaðið þar við sex vikna stríðið, sem blossaði upp milli Kínverja og Víetnama í kjölfar innrásar þeirra síðar- nefndu í Kambódíu. Grunnt hefur verið á því góða með Kínverjum og Víetnömum upp frá því. Francois Mitterrand Frakklands- forseta um deilu þá, sem óleyst er varðandi framlög Breta til Efna- hagsbandalags Evrópu (EBE). Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, og Roland Dumas, Evr- ópumálaráðherra Frakklands, tóku einnig þátt í þessum viöræðum. Frú Thatcher og Mitterrand hittust síðast á fundi æðstu manna EBE í Brussel í marz, en þar náðist ekki samkomulag um þá kröfu Breta, að framlög þeirra til EBE verði minnkuð að mun. Var Mitterrand, sem nú fer með embætti forseta ráðherranefnd- ar bandalagsins, mjög andvígur öllum tillögum frú Thatcher á þessum fundi. Umsóknir Spánverja og Portú- gala um aðild að Efnahags- bandalaginu voru einnig til með- ferðar á fundi þeirra frú Thatch- er og Mitterrands nú. Hvernig getur gjörbreytt garðinum þínum...

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.