Morgunblaðið - 08.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 1984
23
„Hvað skoraði
Rush mörg mörk?“
— spurði Fagan eftir leikinn
Frá blaðamanni Morgunblaðsins, Skapta Hallgrímssyni, í Liverpool.
„Ég get ekki annaö en veriö
ánægöur bæöi meö þennan leik
og veturinn í heild,“ sagöi Joe
Fagan, framkvæmdastjóri Liv-
erpool, eftir leik liösins viö Cov-
entry i gærkvöldi.
Fyrri hálfleikurinn var að visu
slakur hjá okkur, viö áttum varla
skot á markiö fyrr en Rush skoraði
fyrsta markiö undir lok hálfleiksins.
Hvernig var þaö annars, skoraöi
Rush fjögur mörk í leiknum?"
spuröi Fagan mig, og hristi um leiö
höfuöiö. „Guö minn góöur hann er
ótrúlegur þessi drengur. Úrslit í
öörum leikjum, létta vissulega mik-
iö á okkur, viö þurfum nú aöeins
eitt stig úr tveimur leikjum til aö
tryggja okkur titilinn. Þaö var gott
fyrir okkur aö Man. Utd. og QPR
töpuöu. Þeir hafa sennilega búist
viö því aö viö töpuðum líka því aö
úrslitin hafa verið eins hjá okkur
og þeim í síöustu leikjum," sagöi
Fagan.
• Joe Fagan
framkvæmdastjóri
Liverpool
Standard vill
kaupa Lárus
— en óvíst hvort af kaupunum verður
— Ég er nú ekkert sérlega
hress þessa stundina. Mín mál
voru komin á hreint í sambandi
viö sölu, en þá hljop skyndilega
allt í baklás. Þannig er mál meö
vexti aö beigíska liðiö sem vildi
kaupa mig var Standard. Búiö var
aö ganga frá samningum á milli
Waterschei og Standard, eins var
ég búinn aö ná góöum samningi
viö félagið. Þaö var ekkert annaö
eftir en aö skrifa undir. En þá
kom babb í bátinn.
V-þýska knattspyrnusambandiö
tilkynnti aö leikmenn þeir sem
lentu í mútumálinu í Belgíu og
fengu dóm mættu ekki leika í
V-Þýskalandi. Þeir lögöu lika til viö
FIFA aö þeir fengju alþjóðlegt
bann. Og þar stóö hnífurinn í
kúnni.
— Gerets Plessers, fyrrum leik-
maður Standard, sem lenti í mútu-
málinu, var búinn aö gera tveggja
ára samning viö Hamborg SV og
fyrir þá peninga sem Standard átti
aö fá fyrir hann átti meöal annars
aö kaupa mig. En nú getur Stand-
ard ekki selt Plessers til Ham-
borgar og allt er komiö i hnút. Og
þannig standa málin í dag, sagöi
Lárus Guömundsson, er Mbl.
spjallaði viö hann í gærkvöldi.
Lárus sagöi jafnframt aö í vik-
unni yröi viðræðum haldiö áfram
við Bayer Uerdingen og vel gæti
fariö svo aö hann myndi semja viö
þá úr því sem komið væri. En hann
væri leiður, hann var búinn aö gera
þaö upp viö sig aö fara til Stand-
ard.
—ÞR.
• Lárus Guömundsson var búinn
aö ná samkomulagi viö Standard
þegar allt fór í baklás.
# # . W
\ mkr/
Ásgeir í 9. sinn
í liði vikunnar
Fær 1 í einkunn
Ásgeir Sigurvinsson var valinn í níunda sinn í lið vikunnar
hjá „Kicker“ eftir síðasta leik. Hefur enginn leikmaöur í 1.
deildinni í V-Þýskalandi verið valinn oftar. Meira að segja
Karl-Heinz Rummenigge veröur að lúta í lægra haldi, en
hann hefur veriö valinn átta sinnum í lið vikunnar hjá Kick-
er.
Frammistaöa Ásgeirs er mikil og góö landkynning, hann
eflist með hverjum leik og er þaö mál bestu þjálfara
V-Þýskalands, að synd skuli vera að hann sé ekki Þjóðverji.
Ásgeir fær einn í einkunn hjá Welt am Sonntag og er þar
líka í liði vikunnar í níunda skípti. — ÞR.
Hartwig
skoraði
„Brasilíumark“
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttaritara
Mbl. í V-Þýskalandi.
— Leikur Hamborgar og Bay-
ern var bráðskemmtilegur á laug-
ardaginn. Jafntefli heföu verið
sanngjörn úrslit í leiknum. Ham-
borg var mun betri aðilinn í fyrri
hálfleik og skoraði þá tvö mörk.
í síöari hálfleik var Bayern mun
betra liöið og aöeins stórleikur Uli
Stein í markinu kom í veg fyrir að
Bayern næði aö jafna leikinn. Sig-
urinn heföi jafnvel getaö lent hjá
Bayern.
Mark Jimmy Hartwig var sann-
kallaö „Brasilíumark”, hann tók
boltann niöur meö bringunni,
sparkaði honum aftur fyrir sig og
tók hann svo viöstööulaust í loftinu
og skoraöi glæsilega. Óverjandi
fyrir Jean-Marie Pfaff.
Hartwig sagöi eftir leikinn:
„Þetta er í fyrsta sinn sem mér
tekst að skora mark á brasilíska
vísu og í fyrsta sinn sem ég vinn
sigur á Brasilíumönnum,“ en liö
Bayern lék í búningi brasilíska
landsliðsins. Hjátrúin á fullu. En liö
Bayern hafði trú á því að þaö
myndi hjálpa, eins og þegar liöiö
lagöi Kaiserslautern aö velli. Bay-
ern hefur aldrei getaö sigraö Ham-
borg. Og því átti aö reyna aö
skipta um búning og þaö var gert.
Þess má geta aö kvikmynda-
leikkonan Charlene Tilton, „Lucy“ í
Dallas, var mætt á völlinn og vakti
lukku. — ÞR.
16 með
12 rétta
í 34. leikviku Getrauna komu
fram 16 seölar meö 12 réttum og
var vinningurinn fyrir hverja röö
kr. 23.875,00 en 231 röö reyndist
vera meö 11 rétta og var vinning-
ur fyrir hverja röö kr. 708,00.
Lokaumferö ensku deilda-
keppninnar fer fram laugardag-
inn 12. maí og um leið veröa síö-
ustu getraunaleikirnir aö sinni.
Bjarkirnar
fá kínverskan
þjálfara
Fimleikafélagiö Björk í
Hafnarfiröi hefur gengiö frá
ráöningu á kínverskum þjálf-
ara. Er hann væntanlegur til
félagsins í september. Míkíl
gróska hefur verið í starfinu
hjá Björkunum
Essen tapaði í
síðasta leiknum
— Grossvaldstad varð meistari
Frá Jóhanni Inga Gunnarsayni í V-Þýskalandi.
Grosswallstadt varö v-þýskur
meistari í handknattleik um helg-
ina eftir aö hafa sigraö fyrrver-
andi meistara Gummersbach
18—16 í Grosswallstadt.
í hálfleik var staöan 8—7 fyrir
Grosswallstadt. Á sama tíma lék
Essen, liö Alfreös Gíslasonar, við
Swabing. Essen varö aö sigra í
leiknum til þess að ná titlinum.
En svo fór ekki, Swabing sigraöi
13—11 eftir æsipennandi leik.
Essen haföi forystuna í hálfleik,
7—6. i síöari hálfleik komst Swab-
ing tveimur mörkum yfir, en þrjú
mörk Alfreðs Gíslasonar í röö
tryggöu Essen aftur forystuna.
Swabing jafnaöi 10—10, Essen
komst yfir þegar sex mínútur voru
til leiksloka 11 — 10. Næstu tvö
mörk skoraði Swabing, 12—11.
Þá fékk Essen vítakast en mark-
vöröurinn varöi skotiö frá Alfreö
Gíslasyni. Skoraði Swabing svo úr
vítakasti rétt fyrir leikslok.
Lokastaöan í 1. deildinni i hand-
boltanum varö
Grosswallstadt
Essen
Swabing
Kiel
Gummersbach
þessi:
26 19 2 5 538—454
26 18 2 6 480—383
26 15 4 7 525—488
26 15 2 9 537—497
26 14 3 10 491—436 31
—ÞR.
S S £ £