Morgunblaðið - 10.05.1984, Page 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
105. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Khadafy
segir tvo
árásar-
menn á lífi
Róm 9. maí. AP.
ALLT VAK meö kyrrum kjörum í
Trípólí í dag eftir því sem ítalska
fréttastofan ANSA greindi frá, eftir
aö allt aö 15 vopnaöir menn geröu
áhlaup á herbúðir þær þar sem Mo-
ammar Khadafy býr ásamt fjöl-
skyldu sinni. í fyrstu var sagt að allir
heföu verið drepnir, en Líbýu-
leiðtoginn sagöi sjálfur í sjón-
varpsviötali, aö árásarmennirnir
hefðu veriö „eitthvað um tíu, og tveir
voru handteknir".
Engar róstur voru í Trípólí sem
fyrr segir, en loft var lævi blandið,
rétt eins og fólkið vissi ekki út-
komuna úr átökunum. Fátt fólk
var á ferli. Khadafy sagði að Líb-
ýumenn hefðu orðið fyrir barðinu
á „alþjóðlegum hryðjuverkamönn-
um“ og Bretar, Bandaríkjamenn
og Súdanir hefðu í sameiningu
þjálfað mennina sem réðust á
herbúðirnar. Khadafy sagði auk
þess fyrr í dag, í samtali við
franska blaðið Le Monde, að
hryðjuverkahópurinn „Islamska
bræðralagið" hefði staðið fyrir
árásinni, hópurinn vildi bylta líb-
ýska kerfinu og vissi það að eina
leiðin til þess væri að drepa sig.
Khadafy endurtók ekki ásökun
sína á hendur bræðralaginu í sjón-
varpsviðtalinu, heldur endurtók
orð sín um alþjóðlega hryðju-
verkamenn í hópi hverra Ronald
Reagan Bandaríkjaforseti væri
hinn hræðilegasti.
Sjá nánar á bls. 23.
Toppur doll-
ars gagn-
vart pundinu
New York, Lundúnum, 9. maí. AP.
BANDARÍSKIR bankar hafa
hækkað útlánsvexti sína um
hálft prósent, upp í 12,5 pró-
sent og hækkaði dollar mjög
verulega, einkum í dag, er
hann náði sínu hæsta gagn-
vart breska pundinu. í kjöl-
farið á hækkuninni komu
mikil viðskipti með dollurum,
en breskir og vestur-þýskir
bankar réttu af sinn gjaldmið-
il, þeir bresku með því að
hækka grunnvexti af útlánum
um 0,50 upp í 0,75 prósent,
eða upp í allt að 9,25 prósent.
Símamynd AP.
Konald Reagan á fundi í dag meö Juan Antonio Samaranch, forseta alþjóðaólympíunefndarinnar, sem er annar frá
hægri. Einnig cru á myndinni Peter Uberoth, formaöur ólympíunefndar Los Angeles, lengst til hægri, og aöstoöar-
starfsmannastjóri Hvíta Hússins, Michael Deaver, lengst til vinstri.
Búlgarir einnig hættir
við og aðrir íhuga það
Moskvu, Sófíu, Washington og víðar, 9. maí. AP.
BÚLGARIR geröu heyrinkunnugt í
dag, að þeir myndu ekki senda
íþróttamenn til Olympíuleikanna í
Los Angeles í sumar og fylgja þannig
fordæmi Sovétmanna. Forsendurnar
voru hinar sömu og hjá Rússum,
hættuástand rfkti í borginni fyrir
austur-evrópska íþróttamenn auk
Simamynd AP.
Nokkrir árásarmannanna f Trípólí liggja í valnum og áhorfendur slá hring
um þá. Myndin er tekin af sjónvarpsskermi og því ívið óskýr.
þess sem Bandaríkin heföu ekki virt
ólympíusáttmálann. Óvíst er meö
viðbrögð annarra Austur-Evrópu-
landa, en máliö er þar alls staðar
undir smásjánni. Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti lýsti í dag yfir
„miklum vonbrigöum" með
ákvöröun Sovétmanna og Búlgara.
Hinar opinberu fréttastofur
Tékkóslóvakíu, Austur-Þýskalands,
Ungverjalands og Póllands hafa
allar hallmælt Bandaríkjunum í
kjölfarið á ákvörðun bandaríkja
sinna, en frestað ákvörðun þar til
siðar í þessari viku. Rúmenar hafa
á hinn bóginn lýst yfir tilhlökkun
og ánægju með leikana og „þeir
muni að sjálfsögðu senda lið“. Þá
er talið að Júgóslavía sendi einnig
lið en Júgóslavar ásamt Rúmenum,
hafa jafnan farið sínar eigin leiðir
ef þeim hefur það hentað.
Viðbrögð annarra en Austur-
Evrópulanda við þessu hafa flest
verið á einn veg, þau hafa harmað
eða fordæmt, nema hvort tveggja
sé. Sendinefndir frá bandarísku
ólympíunefndinni munu halda til
þeirra tanda sem hafa lýst sig í
vafa og reyna að tala um fyrir
þeim, auk þess sem Juan Antonio
Samaranch, forseti alþjóðaólymp-
íunefndarinnar ætlar til Moskvu að
reyna að telja Rússum hughvarf.
Fjarvera Sovétmanna og hugs-
anlega Austur-Þjóðverja mun ekki
einungis hafa í för með sér að fjöldi
öruggra verðlaunamanna munu
ekki mæta til leiks, heldur verður
fjárhagslegt tjón mótshaldara gíf-
urlegt. Ýmsir leyfa sér að telja að
Sovétmenn muni skipta um skoðun
á þeirri forsendu að þeir hafi sjálf-
ir lagt mikið fé í að undirbúa
íþróttafólk sitt sem allra best. Allt
er þó á huldu um þetta og ógerlegt
að spá um, sérstaklega þar sem
Sovétmenn tilkynntu í dag að
ákvörðun þeirra væri óhagganleg.
Mikil blaðaskrif hafa víðast hvar
verið um hvernig málum er komið.
Er tónninn víðast hvar á þá leið, að
ólympíuleikarnir sem slíkir eigi
sér ekki viðreisnar von á ný, „hat-
ur, græðgi og spilling hafi slökkt
ólympíueldinn" eins og breska
blaðið Daily Mail greindi frá.
Sjá nánar um Olympíuleikana á
bls. 22.
Líbanon:
Nú getur þjóð-
stjórnin fundað
Beirút, 9. inaí. AP.
RASHID Karami, forsætisráöhcrra
Líbanons greindi frá því í dag, aö
hann hefði ráöið fram úr vanda þeim
sem kom í veg fyrir aö fundur hinnar
nýju ríkisstjórnar Líbanons gæti haf-
ist á tilsettum tíma í morgun. Af hon-
Noregur:
Ekki bara landeigendur
heldur landgrunnseigendur
ffcló. 9. maí. Frá Per A RnnrliinH frÁit«rí«». tiki ^
f)sló, 9. maí. Frí Per A. Borglund, fríllaritara
Áfrýjunardómstóll í Björgvin í
Noregi hefur kveöiö upp dóm, sem
vakiö hefur mikla athygli og kann
aö hafa ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar, einkum fyrir þá, sem eiga
land að sjó. Dómsniðurstaöan var
sú, aö sjávarjörðunum tilheyrði allt
landgrunniö svo langt sem lögsag-
Mbl.
an tæki til.
Forsaga þessa máls er sú, að
nokkrir sjávarjarðeigendur í
Bremanger rétt við Björgvin
höfðuðu mál á hendur fiskeld-
ismanninum Kristen Strömmen
og héldu því fram, að hann væri
með átroðning á þeirra landi og
það þótt hann væri með allt sitt
í sjó. Fyrir héraðsrétti var kær-
unni vísað frá en áfrýjunarrétt-
urinn komst hins vegar að
fyrrgreindri niðurstöðu.
Nú bíða menn bara í ofvæni
eftir niðurstöðu hæstaréttar því
að ef hann kemst að sömu niður-
stöðu og áfrýjunarrétturinn
vænkast heldur hagur land-
grunnseigendanna. Þeir geta þá
t.d. skipað olíufélögunum að
hypja sig með allt sitt hafurtask
af landgrunninu eða krafist að
öðrum kosti hlutdeildar í olíu-
gróðanum.
um gat ekki orðið þar sem Walid
Jumblatt og Nabih Berri töldu öryggi
sínu hætt í forsetahöll Amins Gemay-
el. Jumblatt stakk upp á því að fund-
urinn færi fram um borð í bandarísku
eöa frönsku herskipi, „hví ekki í New
Jersey eða Clemenceu," sagöi Jumbl-
att.
Karami sagði að fundurinn
myndi haldinn í sumardvalarhöll
Amins Gemayel forseta við Bik-
faya, 16 kílómetra norðaustur af
Beirút. Svæðið er á yfirráðasvæði
líbanska stjórnarhersins og Kar-
ami sagði að öryggisgæsla yrði
hert til mikilla muna
Berri deildi hart á ísraelsmenn i
dag og sakaði þá um að hafa í
hyggju að kalla herlið sitt skyndi-
lega frá Suður-Líbanon og afhenda
landshlutann „suður-líbanska
hernum“, sem lýtur stjórn Antoin
Lahd, áður Haddads majors, en
her þessi er hliðhollur ísraels-
mönnum. „Ég tel að stjórnarher
Líbanons eigi að verða fyrri til og
sameina landshlutana, það væri
stórt skref í friðarátt og myndi
lægja öldur þær sem þarna eru
stórar," sagði Berri.