Morgunblaðið - 10.05.1984, Page 14

Morgunblaðið - 10.05.1984, Page 14
MORGÚNBLÁÐIÐ, 'Éíl^MTUDÁÓÚtt 10. MÁf ífeí' Morgunblaöid/Árni. Jóhannes Árnason sýslumaóur tekur á móti sænsku gestunum. Stykkishólmur: Fimmtíu sænskir gestir StjkkÍHhólini, 6. m»i. UNDANFARNA daga hafa dvalið hér á landi um 50 manns frá Gauta- borg I Svíþjóð og nágrenni og hafa þeir verið að kynna sér ýmis mál hér og kynnast landi og viðhorfum. Um þessa helgi hafa þeir ferðast í tveim rútum um Snæfellsnes, annan daginn voru þeir heppnir með veður en í dag hefir veður ver- ið misjafnt og meðal annars komið él. Hiti hefir því verið um frost- mark. Leiðsögumenn hafa fylgt þeim um Nesið og þeir hafa skoðað ýmsa staði, komið við á sveitabýl- um, m.a. Snorrastöðum f Kolbeins- staðahreppi, Laugagerðisskóla, Lýsuhóli o.s.frv. í gær óku þeir fyrir Snæfellsnes og gistu í Ólafs- vík. Hingað I Hólminn komu þeir svo fyrir hádegi, en þar fagnaði þeim sýslumaður okkar, Jóhannes Árnason, sem tók á móti þeim við sýslumannshúsið hér og sagði þeim í nokkrum orðum frá ýmsu hér i sýslunni og frá landinu í heild, lýsti fyrir þeim störfum sýslunefnda og embættisins, og sagði þeim frá merkum byggingum hér og uppbyggingu Stykkishólms, gömlum minjum og þjóðlífi. Einn af komumönnum þakkaði sýslu- manni og færði honum til minja veglega myndabók frá Svíþjóð. Á eftir var hádegisverður snæddur í Hóteli Stykkishólms. Óli Guömundsson sjúkrahúslæknir, sem lengi starfaöi í Svíþjóð, mætti þar í fjarveru sveitarstjóra og ávarpaði komumenn og ræddi við þá. Héðan fara komumenn svo til Reykjavíkur en ferðinni lýkur á morgun en þá verður flogið til baka. Gestirnir létu vel af för sinni um Snæfellsnes, kvörtuðu ekkert þótt veður hefði verið með kaldara móti. Hafa ef til vill mætt vorhreti áður. Voru hrifnir af byggðum Snæfellsness og viðmótið og góðar móttökur bæta upp veðurfar. Sem sagt, þeir fóru ánægðir til baka. Vextir hækka á nokkr- um verð- og gengistryggð- um innlánsreikningum BANKASTJÓRN Seðlabankans hefur ákveóið að hækka vexti nokkurra verðtryggðra og gengisbundinna liða við inníánsstofnanir frá og með II. maí nk. Nemur hækkunin 1—2% eins og sýnt er á meðfylgjandi yfirliti. Verð- trygging hefur einkum náð til langra lána og bundinna innlána. Vextirnir hafa lítið breytzt frá því að til verð- tryggingar var stofnað í innlánsstofn- unum. Hafa þeir verið fremur lágir, en að verðbótum meðtöldum báru þessir liðir þó hæstu vaxtakjörin þegar verð- bólgan var mikil. Undanfarna má.iuði hefur dæmið snúist við, því að raun- vextir óverðtryggðra liða hafa hækkað mikið og eru nú hærri en verið hefur um áratuga skeið. Vaxtabreytingin nú er gerð til að samræma kjör verð- tryggðra og óverðtryggðra skuldbind- inga, en einnig felst í henni að kjör langra lána innlánsstofnana eru færð til betra samræmis við lán fjárfest- ingarlánasjóða. Auk framangreindra vaxtabreyt- inga er nú stofnaður nýr flokkur út- lána við innlánsstofnanir, fyrir endurlán innstæðna á innlendum gjaldeyrisreikningum. Svo sem kunnugt er hafa reglur um innlenda gjaldeyrisreikninga verið rýmkaðar þannig að fleiri stofnanir en áður bjóða nú upp á slíka reikninga. Hinn 1. marz sl. setti Seðlabankinn reglur um þessi innlán, sem m.a. fela f sér að innlánsstofnunum verður heimilt Verðtryggðir 6 mán. innlánsreikn. Verðtryggð lán, lánstími allt að 2'/i ár Verðtryggð lán, lánstlmi minnst 2Ví ár Innst. á innl. gjaldeyrisreikn. Innstæður I Kandaríkjadollurum Innstæður í dönskum krónum Kndurlán innstæðna á innlendum gjali að endurlána að hluta þetta fé inn- lendum aðilum annars vegar vegna framleiðslu til útflutnings og hins vegar í stað erlendra lána sam- kvæmt reglum, sem um þau gilda hverju sinni. Lán þessi verða bundin gengi erlendra gjaldmiðla og verða vextirnir miðaðir við svonefnda LIBOR-vexti auk álags, sem má vera hæst 1,75%. LIBOR eru milli- bankavextir, sem kenndir eru við London (London Interbank Offered Rate), en notkun þeirra er mjög al- menn á erlendum lánamörkuðum. Frá OK meá Fyrír 11. mai 1984 breyliugu 2,5% 14% 4,0% 24% 5,0% 3,5—4% 9,0% 7% 9,0% 7% I.IBOR + 1,75% Jón Magnússon, formaður Neytendasamtakanna: Grænmetisverslun land- búnaðarins tímaskekkja „GRÆNMETISVERSLUN landbún aðarins er tímaskekkja,“ sagði Jón Magnússon, formaður Neytenda- samtakanna, m.a. í ræðu sinni á ráðstefnu Stjórnunarfélags íslands í gær, þar sem fjailað var um ríkis- og einkarekstur. Fór Jón hörðum orð- um um Grænmetisverslunina. Sagði forráðamenn hennar ekki hirða um þótt tugum tonna óætra kartaflna væri mokað í neytendur. Jón sagði jafnframt, að afar erf- itt væri fyrir Neytendasamtökin að kljást við ríkisfyrirtæki eða önnur fyrirtæki, sem nytu vernd- unar hins opinbera, þegar kvart- anir bætust frá neytendum. Ráða- menn stæðu við bakið á undir- mönnum sínum hvað sem tautaði og raulaði og skipti þá engu þótt áþreifanlegar sannanir lægju til grundvallar umkvörtunum. Sagði Jón talsvert vanta á, að hið opin- bera gerði sömu kröfur til sinna eigin fyrirtækja og annarra, sem væru í einkaeigu, hvað þetta snerti. Neytendasamtökin hafa ákveðið að krefjast opinberrar rannsóknar á kartöfluviðskiptum Grænmet- isverslunarinnar við Finnland, enda reyndust kartöflurnar að stórum hluta skemmdar og óhæf- ar til neyslu. Sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytend- afélags Reykjavíkur og nágrennis, að fjöldi kvartana hefði borist til Neytendasamtakanna á undan- förnum vikum vegna finnsku kart- aflnanna. „Ýmsir innflytjendur ávaxta hafa lýst því yfir, að þeim standi til boða ný uppskera frá sunnan- verðri Evrópu og komið hefur fram í fjölmiðlum, að Hagkaup getur flutt inn gæðakartöflur frá Hollandi. Grænmetisverslunin hefur brugðist og það er því tíma- bært að losa um þær viðjar, sem sala á þessari vöru hefur verið I, svo tryggja megi neytendum ætar kartöflur," sagði Jóhannes. „Þyrfti mjög kostnað- arsamar breytingar“ — segir formaður útvarpsráðs um hugmyndir um íbúðir í nýja útvarpshúsinu „HÚSIÐ hefur verið byggt upp með tilliti til útvarps- og sjónvarpsstarf- semi, þannig að ég held að það sé af og frá að þetta verði nokkurn tfma rekið sem hagkvæmt íbúðarhús- næði. Til þess þyrfti mjög kostnaðar- samar breytingar," sagði Markús Örn Antonsson, formaður útvarps- ráðs, er Mbl. bar undir hann þings- ályktunartillögu Eyjólfs K. Jónsson- ar. í tillögunni leggur þingmaður- inn til að ríkisstjórninni verði fal- ið að stöðva framkvæmdir við nýja útvarpshúsið og athugun gerð á þvl hvernig hagnýta megi það sem best, t.d. með tilliti til smáíbúða, áður en framkvæmdir hefjist að nýju. „Menn gáfu sér ákveðnar tækni- legar forsendur við byggingu þessa húss. Þetta er sérstaklega hannað fyrir ákveðna starfsemi. Sem dæmi má nefna, að þarna er gert ráð fyrir stóru sjónvarpsstúd- íói, gluggalausu vel að merkja, I miðju húsi. Það yrði erfiðleikum bundið að koma þarna upp íbúð- arhúsnæði. Ég held að fram- kvæmdir séu komnar það langt, að ekki verði aftur snúið úr þessu," sagði Markús Örn. Hvað varðaði gagnrýni Eyjólfs K. Jónssonar á stærð byggingar- innar sagði formaður útvarpsráðs, að hann ásamt fleirum hefðu bent á þennan þátt þegar í upphafi. Húsið væri reyndar minna en upp- haflega var ætlað. „Ég taldi á sín- um tima ýmislegt þarflegra en að ráðast í þessa byggingu," sagði Markús örn en benti jafnframt á, að það væri ekki á valdi útvarps- ráðs að stöðva byggingarfram- kvæmdir. Slíkt yrðu aðrir að ákveða. Djass í Þórscafé: „Djammrsessjón“ Jazzklúbbur Reykjavíkur heldur „djamm-sessjón" í samvinnu við Jazzvakningu í Þórscafé í kvöld, fimmtudagskvöld. í fréttatilkynningu frá Jazz- klúbbi Reykjavíkur segir maðal annars, að úrval jazzleikara komi fram í mörgum sveitum og fjöl- breyttum stíltegundum, þar á meðal Big band ’81 og Trad komp- aní Kristjáns Magnússonar og fé- laga. Aðgangseyrir er kr. 100. Big band ’8I verftur meftal þeirra hljómsveita sem leika á „djammscssjón” f Þórscafé í kvöld. Erlendir gestir á sam- komum Hjálpræðishersins Hjálpræftisherinn í Reykjavík verftur heimsóttur um helgina af kommandör Will Pratt og eiginkonu hans, Kathleen, sem eru leifttogar Hjálpræftishersins í vestra umdæmi Bandaríkjanna. Þau hjónin flytja fagnaðar- boðskapinn á samkomu Hjálpræð- ishersins að Kirkjustræti 2 annað kvöld, föstudagskvöld, auk þess sem þau verða aðalræðumenn á samkomum sunnudagsins fyrir hádegi og um kvöldið. Annar erlendur gestur Hjálp- ræðishersins, kommandör Karst- en Anker Solhaug, sem nú er staddur hér á landi, mun tala á samkomu í Herkastalanum í kvöld, fimmtudagskvöld, en hann var I mörg ár leiðtogi Hjálpræð- ishersins í Noregi, Færeyjum og á ístandi. Kökusala á Lækjartorgi KVENNADEILD Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík efnir til kökusölu á Lækjartorgi á morgun, föstudag, og hefst salan kl. 8 árdegis. Kvennadeildin befur starfaft í 18 ár og hefur styrkt flugbjörgunarsveitina í Reykjavík með kaupum á tækjum og ýmsum búnaði fyrir starf sveitarinnar að björgunar- málum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.