Morgunblaðið - 10.05.1984, Side 15

Morgunblaðið - 10.05.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984 Frá vortónleikum Tónskóla Fljótsdalshéraðs í Egilsstaðakirkju. Ljósm.: Mbl./Ólafur Egilsstaðir: Vorannir hjá tónskólanemum Asmundur Stefánsson, forseti ASI: „Reiði í garð aðgerða ríkisstjórnarinnar“ „ÓÁNÆGJA með það ástand sem við búum við í dag, kom mjög skýrt fram á þessum fundi,“ sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASI í samtali við blm. Mbl. í gær um fund þann sem forystumenn ASÍ, miðstjórn og full- trúar lands- og svæðissambanda héldu á mánudag, þar sem staðan í kjaramálum var rædd og til hvaða að- gerða verkalýðshreyfingin eigi að grípa á næstunni. Asmundur sagði að mikil reiði hefði komið fram á fundinum yfir þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hefði tekið ákvarðanir um þessa síðustu daga, og þá ekki síður yfir því aðgerðaleysi sem ríkt hefði af hálfu ríkisstjórnarinnar hvað varð- ar almenna efnahagsstjórn. „Hvað varðar 1. september," sagði Asmundur, „þá var það sam- dóma álit manna að ef til uppsagna kæmi, þá yrði óhjákvæmilega að fara saman að leggja kröfugerð fram og ákveða til hvaða aðgerða yrði gripið til þess að ná kröfunum fram, samhliða því að samningum yrði sagt upp.“ Ásmundur sagði að fæstir hefðu verið reiðubúnir til þess að taka endanlega afstöðu til þess að svo komnu máli, hvort segja bæri upp samningunum. Menn hefðu talið rétt að um það færi frekari umræða fram innan sam- bandanna og úti í félögunum, áður en endanlegar ákvarðanir yrðu teknar. Úlfur Markússon, formaður BÍL: Frá ferð tónskólanema til Borgarfjarðar eystri. Virðist ekki kunn ugt um lög okkar KgilKstöóum, 7. maí. NÝLIÐIN helgi var annasöm hjá nemendum og kennurum Tón- skóla Fljótsdalshéraðs. Á föstu- dagskvöld voru árlegir vortónleik- ar skólans haldnir í Egilsstaða- kirkju og í gær brugðu nemendur sér ásamt kennurum til Borgar- fjarðar eystri til tónleikahalds. Á vortónleikunum komu nær 50 nemendur fram auk gesta frá Tónlistarskóla Seyðisfjarðar — en góð samvinna hefur tekist með þessum tveimur skólum. Frá Tónlistarskóla Seyðisfjarðar kom m.a. fram blásaratríó og nemendur léku á flautu, gítar og píanó. Níu efnilegir píanóleikarar í Tónskóla Fljótsdalshéraðs komu fram á vortónleikunum auk gít- ar- og flautuleikara. Þá vakti fiðlusveít skólans verðskuldaða athygli að ógleymdum blokk- flautukór og skólahljómsveit- inni. Húsfyllir var á tónleikun- um og flytjendum vel fagnað. í gær héldu nemendur Tón- skóla Fljótsdalshéraðs svo til Borgarfjarðar eystri og léku þar fyrir fullu húsi. Tónskóla Fljótsdalshéraðs verður slitið um miðjan mánuð. Nemendur skólans hafa verið um 100 í vetur. Skólastjóri Tónskóla Fljótsdalshéraðs er Magnús Magnússon. — Ólafur. „SAMKVÆMT lögum Bandalags ís- lenskra leigubílstjóra getur engin ein stöð boðið lægri taxta en kveðið er á um. Hvort framtíðin leiðir það í Ijós, að bandalagið semur um magnafslátt sé um sannanlega vinnuaukningu að ræða, skal ég ekki segja," sagði l'lfur Markússon, formaður BÍL, í samtali við Morgunblaðið. Um ummæli verðlagsstjóra, þar sem hann segir í einu dagblaðanna að ekkert mæli gegn samkeppni leigubifreiðastöðva undir hámarks- verði, sagði Clfur, að verðlagsstjóra virtist alls ekki kunnugt um lög BÍL þótt hann ætti að fara nærri um innihald þeirra. 1 framhalði af þvi sagði Ulfur: „Það kemur ekki til greina, að félögin afsali sér þeim rétti að fara með kaup og kjör. Ger- ist það er þetta komið út í frum- skógarhernað." Efnt verður til fundar í BÍL á föstudag og sagðist Úlfur vonast til þess að hægt yrði að ná fram sam- komulagi án þess að gripa tjl harðra aðgerða. „Fyrst er að ræða málefnalega við menn og ég trúi því og treysti, að menn sjái að sér og virði lög félagsins. Ef opinbert fyrirtæki ætlar að fara að brjóta á okkur er það orðið alvarlegt mál,“ sagði Úlfur Markússon. josmyndafyrirsæta ársins ’84 og insælasta stúlkan sem þátttakendur vcija úr sínum hópi vcrður krýnd annað kvöld í BECAIDWAy. DAGSKRA: Veislan hefst meö freyðandi fordrykk kl. 19.00. Stúlkurn- ar koma fram í síðum kjólum og baðfötum frá Triumph. Flutt verk Gunnars Þórðarsonar, Tilbrigði við fegurð meö dansívafi íslenska dansflokksins. Módel '79 sýna tískufatnað frá Karnabæ. Dansflokkur JSB sýnir frumsamið verk við lög úr Staying Alive. Tónar um fegurðina: Þuríöur Sigurðardóttir og Björgvin Halldórsson syngja. Krýndar verða Ijósmyndafyrirsæta ársins og vinsælasta stúlkan. Allar fá stúlkurnar körfu meö freyöandi Very Cold Duck og Ijósmyndafyrirsæta ársins og vinsælasta stúlkan blóm frá Stefánsblóm. Tryggiö ykkur miða sem fyrst í Broadway í síma 77500

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.