Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
Stjórn Alpan hf. með sýnishorn af framleiðslu pönnuverksmiðja félagsins. Á myndinni eru (f.v.) Jón Búi
Guðlaugsson, Þórður H. Hilmarsson, Þór Hagalín, Jón Bjarni Stefánsson, Haraldur Haraldsson, Þorsteinn
Ásmundsson og Önundur Ásgeirsson stjórnarformaður. Morgunbiaðið/Júiius
Sýnishorn af framleiðslu verk-
smiðja Alpan hf.
Alpan hf., fyrirtæki að 92% í eigu íslendinga:
Reisir pönnuverksmiðju á Eyrar-
bakka og rekur aðra í Danmörku
Fönnuverksmiðja tekur vænt-
anlega til starfa á Eyrarbakka um
næstkomandi áramót, en það er
hlutafélagið Alpan, sem reisir
verksmiðjuna. Alpan, sem er að
92% í eigu íslenzkra fyrirtækja og
einstaklinga, hefur jafnframt
keypt samskonar verksmiðju í
Lystrup við Árósa í Danmörku og
tók við rekstri hennar 1. maí sl.
Búist er við að verksmiðjan á Eyr-
arbakka veiti fyrst um sinn 25
mönnum atvinnu, en að starfs-
mönnum fjölgi við stækkun um og
upp úr miðju ári 1985. Stofnkostn-
aður fyrirtækisins er um 80 millj-
ónir króna, en þar er átt við 1.
áfanga pönnuverksmiðju á Eyrar-
bakka og kaupin á verksmiðjunni í
Lystrup.
Forsaga þessa máls er sú, að
danskt iðnráðgjafarfyrirtæki
hafði unnið í samvinnu við Sam-
band sunnlenzkra sveitarfélaga
(SASS) að ráðgjöf og hag-
kvæmniáætlunum um uppsetn-
ingu verksmiðju til framleiðslu á
pönnum og öðrum varningi úr
áli. Haustið 1983 tók fiskverkun-
arfyrirtækið Einarshöfn hf. á
Eyrarbakka, sem ráðgerir að
leggja niður núverandi starfsemi
sína vegna aflaleysis, við málinu
úr höndum SASS. Hugðist fyrir-
tækið nýta húsnæði sitt, um
2.000 fermetra hús, sem verk-
smiðjuhús fyrir hina nýju
starfsemi.
Snemma á þessu ári komst
skriður á málið er fleiri sam-
starfsaðilar komu til skjalanna,
og á framhaldsstofnfundi 17.
marz sl. var síðan ákveðið að
kaupa Look a/s-pönnuverk-
smiðjuna í Danmörku og halda
starfseminni þar áfram
óbreyttri, einnig var ákveðið að
láta hefja hönnun og innkaup á
vélum fyrir verksmiðju á Eyr-
arbakka er fljótlega yrði tvöfalt
stærri en verksmiðjan ytra, svo
og ákveðið að yfirtaka húseignir
og aðrar eignir Einarshafnar er
notaðar verða við rekstur verk-
smiðju á Eyrarbakka.
Verksmiðjan í Lystrup er rek-
in með sama starfsfólki og áður,
en Sigurður R. Þórðarson, annar
eigenda Einarshafnar hf., tók
þar við verksmiðjustjórn 1. maí
sl. Gert er ráð fyrir að nýtt
starfsfólk á Eyrarbakka verði
sent til þjálfunar í Lystrup, og
að vanir menn frá Lystrup komi
hingað til þjálfunar starfsliðs
Eyrarbakkaverksmiðjunnar.
Einnig er gert ráð fyrir að
framleiðsluvörur Alpan hf. verði
unnar úr áli frá ísal í Straums-
vík. í dag, fimmtudag, fer pönt-
un af áli frá ísal til Lystrup til
reynslu. Fram kom á fundi
stjórnar Alpan með blaða-
mönnum að gert er ráð fyrir að
framleiðslukostnaður verksmiðj-
unnar á Eyrarbakka verði
4—5% lægri en verksmiðjunnar
í Danmörku. 1 því sambandi eru
bundnar vonir við að hagstæðir
samningar náist við ísal, en
einnig er launakostnaður lægri
hér en í Danmörku. Raforka til
framleiðslunnar mun hins vegar
dýrari hér en ytra, að sögn fund-
armanna.
Verksmiðjan í Lystrup hefur
framleitt um 180 þúsund pönnur
á ári, en engan veginn annað eft-
irspurn, en markaður er í Evr-
ópu fyrir 20 milljónir panna.
Miðað við 6.000 tonna fram-
leiðslu væri útflutningsverð-
mæti Eyrarbakkaverksmiðjunn-
ar um 80 milljónir króna á ári.
Áætlanir miðast við að fram-
leiðsla Eyrarbakkaverksmiðj-
unnar verði í framtíðinni seld í
Bandaríkjunum. Fyrrum eigandi
verksmiðjunnar í Lystrup, Peter
Schaarup, er hluthafi í Alpan hf.
og verður hann söluforstjóri fé-
lagsins fyrir Evrópu. Vörur
fyrirtækjanna verða seldar und-
ir vörumerkinu Look.
Alpan hf. mun framleiða
pönnur með sérstakri háþrýsti-
aðferð, þar sem fljótandi álið er
steypt við 200 tonna þrýsting. í
botnfletinum eru stálþræðir sem
auka hitaleiðni pönnunnar.
Kváðu forráðamenn Alpan að-
eins eitt annað fyrirtæki hafa
náð tökum á þessari aðferð við
pönnugerð. Sögðu þeir pönnurn-
ar í hærri gæðaflokki en pönnur,
sem framleiddar væru með öðr-
um aðferðum.
Meðal hluthafa í Alpan hf. eru
Einarshöfn, Hafskip, Nesskip,
Andri, Suðurgarður á Selfossi,
Ofnasmiðja Suðurlands, Eyrar-
bakkahreppur o.fl. Hlutafé nem-
ur 30 milljónum. Stjórnarfor-
maður Alpan er Önundur Ás-
geirsson, fyrrum forstjóri OLÍS.
Tekið tilboði í ríkisvíxla:
Ársvextir jafngilda 25,95 %
Tilboð í ríkisvíxla að upphæð 30
milljónir króna voru opnuð í dag.
Alls bárust 35 gild tilboð og 2 ógild.
Aðalfundur
Islands — Isra-
els f kvöld
Aðalfundur félagsins ís-
land-ísrael veður haldinn í
Hailgrímskirkju í kvöld, 10.
maí kl. 20.30. Áð ioknum aðal-
fundarstörfum veðrur fundur-
inn opnaður gestum kl. 21.30
og þá verða sýndar litskyggn-
ur frá ferðalagi um Ísrael,
hlýtt á tónlist og drukkið
kaffi.
Gildu tilboðin eru í 183 sett pf víxl-
um, hvert að nafnverði 250.000 kr.,
samtals 45.750.000 kr., segir í frétt
frá fjármálaráðuneytinu.
Tekið var tilboðum í samtals 26
millj.kr. að nafnvirði. Kaupverðið
er 24.543.000 kr. sem jafngildir
25,95% meðalársvöxtum reiknuð-
um eftir á. Tekið var tilboðum á
bilinu frá 235.500 til 236.500 kr. í
hvert víxlasett.
Næsta útboð ríkisvíxla er fyrir-
hugað miðvikudaginn 13. júní
1984.
Fimm tilboð bárust
jr
í vegagerð í Oshlíð
FMM tilboð bárust í fyrirhug-
aða endurbyggingu og lagfær-
ingar á Óshlíðarvegi milli ísa-
fjarðar og Bolungarvíkur.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma,
SIGRÍDUR HALLDÓRSDÓTTIR,
Laufbrekku 25, Kópavogi,
lést í Landspítalanum að morgni 9. maí.
Þorvaröur Guöjónsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Fyrirhugað er að endurbyggja í
sumar og lagfæra um IV2 kíló-
metra vegarins, 1 kflómetra
yst í hlíðinni, næst Bolungar-
vík, og um '/2 kflómetra við
Hvanngjá.
Tilboðin eru: Ellert Skúlason
bauð 17,6 milljónir króna í
verkið, Hagvirki 8,8 milljónir
króna, Vélaeigendur á ísafirði
9,5 milljónir, Istak 8,8 milljónir
og Höttur sf. í Strandasýslu 9,6
milljónir króna. Kostnaðar-
áætlun Vegagerðar ríkisins
hljóðar upp á 8,9 milljónir
króna.
Lionsmenn
selja mold
Lionsklúbburinn Muninn í Kópa-
vogi verður með sína árlegu mold-
arsölu laugardaginn 12. maí og
sunnudaginn 13. maí.
í Reykjavík, Kópavogi og á
Seltjarnarnesi verður bílhlassið af
mold selt á 1.000 krónur, en í
Garðabæ, Hafnarfirði og Mos-
fellssveit á 1.200 krónur.
Allur ágóði af moldarsölunni
rennur til líknarmála. Nánari
upplýsingar og pantanir í símum:
41538, 43216 og 44983 frá klukkan
9.00 á laugardag og sunnudag.
Punktar frá
bæjarstjórn
Akureyrar
Akureyri, 9. maí.
Tilnefning í
stjórn ÚA
Á fundi bæjarstjórnar í gær
var samþykkt tillaga bæjar-
ráðs um að bæjarstjóra yrði
falið að fara með umboð Akur-
eyrarbæjar á aðaifundi Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.,
sem haldinn verður 14. maí nk.
Jafnframt var samþykkt að
leggja til að eftirtaidir yrðu
aðalmenn í stjórn félagsins:
Bjarni Jóhannesson, Þóra
Hjaltadóttir, Þorgerður
Hauksdóttir, Kristján P. Guð-
mundsson og Sverrir Leósson.
Varamenn: Sigurður Jóhann-
esson, Ásgeir Arngrímsson,
Gunnhildur Bragadóttir,
Knútur Karlsson og Pétur
Antonsson.
Vatnsveitan borg-
ar gamla skuld
í bókun vatnsveitustjórnar
frá 4. maí sl. kemur fram, að
„vatnsveitustjórn geri ráð
fyrir að greiða Framkvæmda-
sjóði skuld vatnsveitunnar við
sjóðinn frá árinu 1965, að upp-
hæð kr. 1.217.045.- eða nýkr.
12.170.45 og felur formanni
vatnsveitustjórnar og vatn-
sveitustjóra að ræða við bæj-
aryfirvöld um framreiknun á
lánsupphæðinni, sem síðan
yrði lagt fyrir vatnsveitu-
stjórn til endanlegrar af-
greiðslu."
Nýr skólastjóri
— annar í leyfi
í bókun skólanefndar frá 3.
maí kemur fram að borist
hafa staðfestingar frá
menntamálaráðuneyti á því,
að Ingólfur Ármannsson hefur
verið settur skólastjóri til eins
árs við Síðuskóla frá og með 1.
júní. Jafnframt, að Indriða
Úlfssyni, skólastjóra Oddeyr-
arskóla, hafi verið veitt leyfi
frá skólastjórastarfi, án
skerðingar fastra launa, dag-
ana 13.—30. mars nk. vegna
ferðar til Kína til að kynnast
þar kennsluháttum og æsku-
lýðsstarfsemi.
Áfanganafn-
breyting
Bygginganefnd Verk-
menntaskólans á Akureyri
gerði svofellda bókun 2. maí
sl.: „Samþykkt að 2. áfangi B
nefnist hér eftir 3. áfangi."
Mjólkursala í
Hafnarstræti
Heilbrigðisnefnd Akureyrar
hefur fyrir sitt leyti samþykkt
umsókn frá Brauðgerð Kr.
Jónssonar, Hafnarstræti 98,
um mjólkursöluleyfi og gildir
leyfið fyrir brauðbúð fyrir-
tækisins í Hafnarstræti 98.
GBerg
„Kikk“
í Safarí
Hljómsveitin „Kikk“ heldur
hljómleika í Safarí í kvöld,
fimmtudagskvöld, og leikur þar
lög af hljómplötu sem væntanleg
er á markaðinn innan skamms.