Morgunblaðið - 10.05.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
31
Óvenjulegur
en frábær
Hljóm-
plotur
Siguröur Sverrisson
Tom Waits
Swordfishtrombone
Ísland/Fálkinn
Tom Waits er einn þeirra
manna í poppinu, sem aldrei
hafa hlotið það lof og þá hylli,
sem þeir eiga í raun skilið.
Vissulega á Tom Waits sína að-
dáendur og þá jafnt hér á landi
sem annars staðar en mig grun-
ar að þeir séu allt of fáir, sem
ekki hafa heyrt af þessum sér-
stæða tónlistarmanni.
Swordfishtrombone heitir nýj-
asta plata Waits og er reyndar
ekki svo voðalega ný af nálinni.
Kom út síðasta haust, en var að
mestu tekin upp árið 1982. í mín-
um eyrum er þetta ein sérkenni-
legasta og þá um leið skemmti-
legasta plata, sem rekið hefur á
fjörur mínar um nokkurt skeið.
Ekki aðeins eru lögin hvert öðru
skemmtilegra heldur eru útsetn-
ingarnar margar hverjar frá-
bærar, jafn einfaldar og þær
flestar eru. Ofan á allt saman
bætist svo hin ráma rödd Waits.
Svo aftur sé vikið að útsetn-
ingunum og þá um leið hljóð-
færaskipaninni er hvort tveggja
óvenjulegt mjög. í einu laginu
notar Waits aðeins kontrabassa
sem undirspil við söng sinn, í
öðru rafbassa og píanó. Hann
notar marimba með góðum
árangri i nokkrum laganna og
einnig bregður fyrir ýmsum
blásturshljóðfærum, sekkjapípu
og gömlu pumpu-orgeli (fót-
stignu orgeli væri kannski nær
að segja).
Saman -við þetta allt hrærir
Waits áhrif úr jassi og blús og
útkoman verður á köflum listi-
lega góð. Vissulega eru lögin
nokkuð misjöfn að gæðum, enda
14 talsins. Sé Waits góður laga-
smiður er hann engu síðri texta-
höfundur á köflum. í hans eigii^
flutningi verða lögin enn
skemmtilegri en ella og af mörg-
um góðum finnst mér Down,
Down, Down, Swordfishtrom-
bone, Frank’s Wild Years og
Shore Leave bestu lögin.
Swordfishtrombone er plata
sem ekki má fara fram hjá nein-
um þeim, sem kann að meta hið
óvenjulega en um leið frábæra í
poppheiminum.
Það hvílir mikil ábyrgð á herðum verkfræðinga, hönnuða. og iðnaðarmanna í hinum ymsu atvinnu-
greinum þegar ákvörðun skal tekin um festingu hluta. Kannski er það satt að „ekkert er sterkara en
veikasti hlekkurtnn". Bresti veikur hlekkur eyðileggjast verðmæti svo tugum skiptir. Með þessa
staðreynd í huga ákváðum við að spyrja Ólaf Kr. Guðmundsson, c/o Trévirki hf, nokkurra spuminga um
reynslu hans af Thorsmans boltum:
„Ólafur, hvað ert þú búinn að nota'jCŒsIsMBHZSbolta lengi?“
„Það er farið að skipta árum. Ég held það hafi verið 1977 sem ég tók nokkra bolta til reynslu og hef notað þá
síðan.“
,, Hvernig eru 'ÖCEISSÍÍ3XE© boltar frábmgnir öðmm boltum?“
„Tvær hulsur þenjast út við herslu og þar af leiðandi gefa þeir betri festingu. Eðlilega eru til aðrar gerðir en þær duga
bara ekki. Það er hólkurinn, eða hulsan, á Thorsmans boltum sem gerir reginmuninn og öll útfærsla þessara bolta.
Þess vegna hefur maður tekið þá fram yfir aðra, því þeir hafa reynst best. “
„Nú ert þú fagmaður, — hvaða dæmi getur þú nefnt um ágætiffilíluMbolta?"
„Ég tel það kost t. d. þegar maður gengur frá útihurðum, sem eru stærri og þyngri en innihurðir að geta rekið bolta í
gegnum borgat í karmi. Stillir bara af og rekur bolta í gegn og er þess vegna helmingi fljótari að vinna verkið. Nú ég veit
líkaað járniðnaðarmenn ogaðrir hafa notaðþessabolta mikiðogeru méralvegsammála umgildiThorsmansbolta^
Og talandi um ágæti, þá get ég minnst á það hér að hönnuðir hafa bókstaflega krafist,
þess að notaðir séu þessir boltar, og engir aðrir. “
„Þú getur sem sagt með góðri samvisku mælt með ÆMsMuGCS boltum í]
hvers konar festingu?”
„Já, alveg hundrað prósent. “
„Nú er oft talað um ÍJlXlIIMjlíIIIjE fjölskylduna, þ. e. a. s. um boltana, 1
tappana og rafstokkana. Kannast þú við tappana og rafstokkana?“
„Ég hef séð rafstokkana, en ég hef hvorki séð né prófað Thorsmans tappana. En ef ]
þessir tappar eru litlu bræður boltanna, þá ætla ég svo sannarlega að prófa og dæma. ‘
jrac
51 Sundaborg
HF. Sími 84000- 104 Reykjavfk
Komið
og kynnist hinum frábæru OPEL-bílum
Reynsluakiö Opel Ascona og Opel Corsa
Opið í kvöld til kl. 22.00
# BIFREIDADEILD SAMBANDSINS m
af eigin raun
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVÖRUM