Morgunblaðið - 10.05.1984, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ; FIMMTUPAGUR 10. MAÍ 1984
35
Útlitsteikning af Krísuvíkurhótelinu.
menn virtu það eiginlega ekki við-
lits. Hvernig gátu útlendingar
sagt okkur nokkuð af viti um
okkar eigin mál, sem við einir
þekkjum og skiljum? Hefðu fjár-
málasnillingar Austurlanda gert
slíkt hið sama í okkar sporum, t.d.
þeir í Hong Kong eða Singapore?
í þrjátíu ár hefur borholan í
Seltúni blásið, engum til gagns, og
enn lengur hafa gufustrókar Aust-
urengjahvers stigið til himins. Að
vísu hafa gufumekkirnir glatt
augu margra ferðamanna, inn-
lendra sem erlendra, en orkan fer
forgörðum og svo mun áfram
verða í áratugi ef ekkert er að
gert.
Sjálfsagt fylgir öllu þessu fyrir-
tæki áhætta, nákvæmlega eins og
með stóriðjufyrirtæki. Þessvegna
eigum við ekki að hætta neinu
sjálf, heldur bjóða verkið út meðal
alþjóðlegra hótelhringa. Við get-
um boðið þeim frítt land til að
byggja á og frían hita á staðnum.
Við seljum þeim hinsvegar raf-
magn, nema að þeir virki gufuaflið
á staðnum, og við látum í té vinnu-
afl og hirðum af öllu skatta og
skyldur, sem af öðrum fyrirtækj-
um hér. Okkar ágóði af öllu fyrir-
tækinu gæti orðið stórfenglegur
og öruggur, en áhættan hinsvegar
engin. Þarna yrði ekkert frá okkur
tekið, aðeins verulegur viðbótar-
þáttur í lífsafkomu þjóðarinnar,
væntanlega mikill og nýr straum-
ur ferðamanna til landsins. Ég sé
ekki hvað við þurfum að hræðast í
þessu sambandi. íslendingar sjálf-
ir eiga eignir vítt um veröld, án
þess að innfæddir á hverjum stað
þurfi að 'hræðast þá. Þarna i
Krísuvík eigum við land, sem við
nýtum ekki, og orku, sem við nýt-
um ekki, og er ekki séð fyrir, að
nein breyting verði þar á í náinni
framtíð. Án þess að fórna nokkru
getum við komið öllu þessu í gagn-
ið tiltölulega fljótt.
Það er hinsvegar ekki sjálfgefið,
að einhver af þessum fjársterku,
alþjóðlegu hótelhringum mundi
gleypa agnið í fyrstu lotu. Á það
yrði að reyna. Það er samt stað-
reynd, að útþensla hótelstarfsemi
þessara hringa er mikil, jafnvel
gífurlega mikil, og þessi útþensla
nær einnig til Norður-Evrópu.
Tfmi lúxushótelanna er nefnilega
alls ekki liðinn undir lok og f dag
eigum við ekkert hótel í lúxus-
flokki hér á íslandi.
Það ef vægast sagt ámælisvert
að hafa ekki gefið þessum málum
meiri gaum hingað til. Það skulum
við samt gera okkur ljóst, að eng-
inn erlendur hótelhringur, sem
byggir lúxushótel, leggur út í neitt
Krísuvíkurævintýri nema að hafa
af því hagnaðarvon. Þannig á það
líka að vera. Ef einhver samning-
ur er góður þá græða allir á hon-
um.
Oft hefur heyrst meðal ferða-
málafólks á Islandi á undanförn-
um árum, að engin úttekt hafi far-
ið fram á ferðamálunum, eins og
það er gjarna orðað, og engin
heildarstefna sé til í ferðamálum.
Ég verð nú að játa, að ég skil ekki
alveg þetta tal og hlýt því að verða
þeim ósammála að nokkru leyti.
Margnefnd Checchi-áætlun er ein-
mitt úttekt á ferðamálunum hér á
íslandi, og hún var gerð fyrir 10
árum. Nýlega kom svo á vegum
samgönguráðuneytisins spá eða
umsögn um ferðamálin. Þar fer
mest fyrir skýrslum um það
hvernig hlutirnir hafa verið, sem
er mikilvægt, en minna fer fyrir
því hvað hægt sé að gera og hvað
ætti að gera. Þarna komum við
kannski að stefnuleysinu, sem ég
hef raunar margnefnt í greinum
mínum. Stjórnmálamenn okkar
hafa ekki skilið eða metið rétt
mikilvægi ferðamálanna i efna-
hagsuppbyggingu þjóðarinnar.
011 umræða um ferðamálin er
góð og nauðsynleg, en hún má ekki
verða of margorð og kafna í sjálfri
sér. Á þessu stigi málsins þurfum
við enga nýja úttekt á ferðamál-
unum, heldur skulum við dusta
rykið af Checchi áætluninni og
vinna úr mörgum góðum hug-
myndum, sem komið hafa fram
m.a. á ferðamálaráðstefnum und-
anfarinna ára. Það þarf að losa
um eitthvað af hömlunum, sem
settar hafa verið á þennan mikil-
væga atvinnuveg, og gefa frjálsu
framtaki hæfilega lausan taum-
inn. Ofstjórn er sama sem óstjórn
í þessu sem öðru.
Einar Þ. Oudjohnsen var áður
framkræmdastjóri Ferðafélags fs-
lands og Útivistar.
það fjármagn sem hann hefur get-
að á verðtryggða reikninga. Svona
einfalt er nú þetta mál þegar það
er skoðað niður i kjölinn, þó ekki
skuli fullyrt að bændur hafi not-
fært sér þetta á þennan hátt. Yfir-
leitt láta þeir allt sitt fé i upp-
byggingu á jörðum sínum. Áf
framanrituðu sést ljóslega, að
Kaupfélag Dýrfirðinga er ekkert
annað en nokkurskonar banki hér
um slóðir og það ansi þægilegur
banki oft á tíðum fyrir bændur.
En viðurkenna ber í þessu efni, að
auðvitað eru kaupfélögin misjöfn
og langt frá því að vera einhverjar
heilagar kýr sem ekki má gagn-
rýna.
Það liggur i augum uppi að það
væri ákaflega gaman fyrir bænd-
ur að fá greitt fyrir allar sínar
afurðir sama dag og þær fara frá
búi þeirra. Æskilegast væri að
kaupfélagsstjórarnir stæðu á
tröppunum og teldu seðla i mann-
skapinn um leið og dilkarnir
renna inn í sláturhúsið. En þvi
miður er þetta ekki svona í reynd
og varla framkvæmanlegt. Eða
ber að skilja Guðmund H. Garð-
arsson, blaðafulltrúa Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna svo, að
Eyjólfur ísfeld og þeir góðu menn
hjá Sölumiðstöðinni standi á
bryggjunni með seðlabúntin i
höndunum og borgi fiskframleið-
endum upp í topp um leið og fisk-
urinn er hífður um borð til út-
flutnings? Ef svo er, hlýtur það að
teljast gott fyrir framleiðandann
samkvæmt kenningunni. Ef svo er
hinsvegar ekki, verður ekki annað
séð en S.H. bindi meðlimi sína i
samskonar átthagafjötra og Guð-
mundur H. Garðarsson telur
kaupfélögin binda bændur. Allir
vita að Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna er vel rekið fyrirtæki. En
hvort sá góði rekstur nægir til að
þeir geti borgað sinum mönnum
„contant" væri gaman að fá upp-
lýst við tækifæri.
Þingeyri, 6. apríl 1984.
Hallgrímur Sveinsson er skóla-
stjóri á Hrafnseyri.
Fiskiðn, fagfélag fiskiðnaðarins:
Þegar verði hafizt handa við
nýbyggingu Fiskvinnsluskólans
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
eftirfarandi ályktanir frá aðalfundi
Fiskiðnar, fagfélagi fiskiðnaöarins,
sem haldinn var 7. apríl:
Pundarmenn fagna þeirri
stefnu að verðlagning sjávarafla
fari fram á faglegum grunni og
telur að stefna beri áfram á þeirri
braut er miði að bættum gæðum
sjávarafurða.
Einnig vilja fundarmenn benda
á það hættuástand er skapast hef-
ur í menntunarmálum i fiskiðnaði
sem lýsir sér i aðstöðu og skipu-
lagsleysi þess náms sem f boði er.
Þá krefjast fundarmenn þess, að
þar sem fjárveiting er fyrir hendi
að hafist verði handa við nýbygg-
ingu Fiskvinnsluskólans nú þegar.
Á fundinum var kosin ný stjórn
Fiskiðnar. Sverrir Guðmundsson,
yfirverkstjóri hjá Bæjarútgerð
Hafnarfjarðar, hlaut kosningu
sem næsti formaður Fiskiðnar.
Aðrir í stjórn eru Gísli Jón Krist-
jánsson og Eyjólfur Eyjólfsson.
Fráfarandi formaður Fiskiðnar,
Jón Geirsson, bauð nýkjörinn
formann félagsins velkominn til
starfa.
Leiðrétting
1 FRÉITT Morgunblaðsins um tón-
leika baritónsöngvarans Kristjáns
Elis Jónassonar, sem birtist þann 5.
maí sl., var ranglega farið með dag-
setningu. Tónleikarnir verða haldn-
ir f Norræna húsinu nk. laugardag,
12. maí, kl. 16.00 og mun Kristján
Elís syngja þar við undirleik Vil-
helmínu Olafsdóttur. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á mistökunum.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Bridgefélag
Akureyrar
Síðustu keppninni á þessu ári
er nýlega lokið en þaþ var minn-
ingarmót um Halldór Helgason
en Halldór var meðlimur og
stjórnarmaður BA í áraraðir.
Spiluð var sveitakeppni með
board a match-fyrirkomulagi og
tók 21 sveit þátt í keppninni.
Að þessu sinni sigraði sveit
Páls Pálssonar með miklum yfir-
burðum, sigraði í 19 leikjum og
gerði 1 jafntefli. í sveit Páls eru
ásamt honum: Frímann Frí-
mannsson, ólafur Ágústsson,
Grettir Frímannsson og Soffia
Guðmundsdóttir.
Röð sveitanna varð þessi.
Páll Pálsson 380
Jón Stefánsson 321
Stefán Vilhjálmsson 311
Stefán Ragnarsson 310
Gylfi Pálsson 300
Jón Jónsson Dalvík 299
Hörður Steinbergsson 292
Kristján Guðjónsson 269
Július Thorarensen 262
Anton Haraldsson 255
Keppnisstjóri BA í vetur var
Albert Sigurðsson. Stjórnin
þakkar spilurum ánægjulegar
samverustundir við spilaborðið í
vetur og vonast til að sjá sem
flesta á hausti komanda.
MILLIVEGGJA
PLOTUR stærðr
50x50x 5
50x50x7 cm: 52 kr. pr. stk m/ssk.
RM VAIlAr Heímsending er án endurgjalds innan
U.lfl. wflLLfl r Stór-Reykjavíkursvæðisins.
Pantanir:
Steinaverksmiðja Breiðhöfða 3,
sími: 91-85006
og Iðnverk hf. Nóatúni 17,
símar: 91-25930 og 91-25945
Furusófasett meö leöri
Beyki sófasett
Massífar furukommóður
Húsgagnaverslun Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfirói, sími 54343.