Morgunblaðið - 10.05.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
47
\
Fyrri leik Anderlecht og
Tottenham í UEFA-keppninni
lauk með jafntefli, 1—1
ANDERLECHT og Tottenham
gerðu jafntefli 1—1 í fyrri leik lið-
anna í úrslitum UEFA-keppninnar
í knattspyrnu í gœrkvöldi. Leikur
liðanna fór fram í Brussel. í hálf-
leík var staðan 0—0.
Tottenham náöi forystunni í
leiknum á 57. mínútu meö glæsi-
legu skallamarki frá Paul Miller.
Fimm mínútum síðar jafnaöi
danski landsliðsmaðurinn Mort-
en Olsen fyrir Anderlecht. Það
verður því mikil spenna í leik lið-
anna 23. maí er þau mætast í
London.
Anderlecht hóf leikinn af miklum
krafti í gærkvöldi og sótti mjög
stíft í fyrri hálfleiknum, en vörn
Tottenham stóö af sér sóknirnar
og varöist vel. Bæöi liöin léku mik-
ið rangstööuleikaðferö og tókst
hún vel. En þaö varö til þess aö
framherjar liðanna fengu fá mark-
tækifæri.
Besta tækifæriö í fyrri hálfleik
átti Anderlecht-leikmaöurinn
Michel Groote er hann átti þrumu-
skot af 25 metra færi sem sleikti
stöngina utanverða. Anderlecht-
liöið byggöi sóknir sínar mjög vel
upp og lék liðið afar vel en vörn
Tottenham var sterk og gaf aldrei
eftir. Tottenham-liöið átti svo mjög
hættulegar skyndisóknir. Liðin i
gær voru þannig skipuö:
Anderlecht: Jacques Munaron,
Georges Grun, Walter de Greef,
Morten Olsen, Michel de Groote,
Wim Hofkens, Vincenzo Scifo,
Erwin Vandenbergh, Rene Vande-
reycken, Alex Czerniatinski, Kenn-
eth Brylle.
Tottenham Hotspur: Tony
Parks, Danny Thomas, Graham
Roberts, Paul Miller, Chris Hught-
on, Steve Perryman, Mike Hazard,
Gary Stevens, Tony Galvin, Mark
Falco, Steve Archibald.
• Karl Heinz Rummenigge fyrir-
liði Bayern skoraöi fallegt mark í
gær og kom liöi sínu í úrslitin í
v-þýsku bikarkeppninni.
Bayerní
úrslitin
BAYERN Múnchen og Shalcke 04
léku í gærkvöldi í undanúrslitum
v-þýsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu. Bayern sigraöi,
3—2, eftir hörkuskemmtilegan og
spennandi leik. Var þetta í annað
skiptið sem liðin áttust viö í bik-
arnum. Fyrri leik liöanna lauk
með jafntefli, 6—6.
Kristinn og
Jakobína uröu
meistarar
Akureyrarmót í badminton fór
fram um helgina, og voru kepp-
endur um 40. Akureyrarmeistarar
urðu eftirtaldir: Einliðaleikur
karla, Kristinn Jónsson. Tvíliða-
leikur karla, Fjölnir Guðmunds-
son og Þórður Pálmason. Tvíliða-
leikur kvenna, Guðrún Erlends-
dóttir og Jakobína Reynisdóttir.
Einliöaleíkur kvenna, Jakobína
Reynisdóttir. Tvenndarleikur,
Jakobína Reynisdóttir og Kristinn
Jónsson.
AS.
Meistarakeppni KSÍ:
ÍA og ÍBV leika
á Melavellinum
Dagana 27. og 28. apríl var haldiö á Akueyri landsmót í innanhúss-
knattspyrnu lögreglumanna 35 ára og eldri. Sjö liö víös vegar aö af
landinu kepptu og vann Reykjavíkurliöið alla leikina. Á myndinni eru
talið frá vinstri, efri röö: Rúnar Sigurösson, Gunnar Helgi Magnússon,
Haukur Ásmundsson, og Sigurður Snorrason. Neðri röð frá vinstri:
Kristinn Petersen og Óskar Kristjánsson.
NÆSTKOMANDI laugardag fer
fram fyrsti stórleikur sumarsins í
knattspyrnu. Þá leika ísland og
bikarmeistarar íA og ÍBV í meist-
arakeppni KSÍ. Ákveðiö hefur
verið að leikur liöanna fari fram á
Melavellinum. Vellirnir í Laugar-
dal eru enn ekki tilbúnir. Grasið
hefur tekið vel við sér aö undan-
förnu en of hættulegt yrði aö láta
leika strax á þeim þar sem það
gæti hugsanlega skemmt gras-
rótina.
- ÞR
• Steve Perryman fyrirliöi Tott-
enham fókk guit spjald í leiknum
í gærkvöldi gegn Anderlecht og
leikur ekki síöari leikinn sem
fram fer í London 23. maí. Þess
má geta að mikil ólæti voru hjá
aðdáendum Tottenham sem
mættu á leikinn í Brussel. Um 100
voru handteknir fyrir leikinn og
einn aödáandi Tottenham skot-
inn til bana.
KA sigraði
Þór í KRA-
mótinu
KA SIGRAÐI Þór í úrslitaleik
KRA-mótsins í knattspyrnu á
laugardaginn 1—0.
Það var Steingrímur Birgisson
sem skoraöi sigurmark KA undir
lok leiksins eftir að Þórsarar höföu
sótt nokkuð stíft. Steingrímur
skoraði eftir aö hafa fengiö
stungusendingu inn fyrir vörn
Þórs.
Þriðja liöiö í mótinu var Vaskur
og haföi KA sigrað þá 4—0 og Þór
sigraöi Vask 3—0.
AS.
Sagt eftir leikinn:
„Við getum verið
ánægðir með úrslitin"
— sagði Keith Burkinshaw, stjóri Tottenham
AP-Brussel.
„VID GETUM ekki annaö en verið
ánægöir með þessi úrslit, þau
voru hagstæð fyrir okkur. Þaö er
engin hætta á því aö viö leikum
varnarleik í London í síöari leikn-
um. Við ætlum okkur ekkert ann-
aö en sigur í UEFA-keppninni í
ár,“ sagöi Keith Burkinshaw,
framkvæmdastjóri Tottenham,
eftir leikinn í gær. Leikurinn í
London veröur síöasti leikurinn
sem Burkinshaw stjórnar eftir
átta ára starf hjá félaginu.
Aöstoöarframkvæmdastjóri
Tottenham, Peter Shreeves, sagöi
eftir leikinn: „Viö vorum betra liöiö
í síöari hálfleik og markmaöur
þeirra haföi nóg aö gera. Bestu
menn okkar voru Tony Galvin sem
lék ofsalega vel, og Danny Thomas
var sterkur í vörninni, þetta voru
bestu menn Tottenham í leiknum."
Framkvæmdastjóri Anderlecht
Van Himst sagöi: „Mér fannst
framlinumenn okkar ekki hreyfa
sig nægilega mikið og vel í leikn-
um. Viö getum þakkaö fyrir aö
hafa jafnað metin 1 — 1. Viö getum
gert betur en þetta, en leikurinn í
London verður erfiöur.
Fram sigraði
KR í gær 3—2
EINN leikur fór fram í Reykavík-
urmótinu í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Fram sigraði KR 3—2.
Staðan í hálfleik var 0—0.
KR-ingar náðu tvegga marka for-
skoti í síðari hálfieik en Fram
tókst að jafna og sigra.
Jósteinn Einarsson skoraöi fyrra
mark KR og Villum Þórsson þaö
síöara. Guömundur Torfason skor-
aöi næstu tvö mörk fyrir Fram og
mínutu fyrir leikslok tókst Braga
Börnssyni aö skora sigurmark
Fram.
Fram hefur núna forystuna í
Reykjavíkurmótinu meö 12 stig,
KR hefur 10 stig, bæöi liöin hafa
leikið sex leiki. Valsmenn hafa átta
stig og eiga tvo leiki eftir. — ÞR
GARÐYRKJUAHOLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAÐAR
KANTSKERAR
GAROHRÍFUR
GIRÐINGAVÍR, GALV.
GARÐKÖNNUR
VATNSÚDARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUGRINDUR
JÁRNKARLAR
JAROHAKAR
SLEGGJUR
HJÓLBÖRUR, GALV.
•
GARÐSLÖNGUR
20 OG 30 MTR.BT.
GÚMMÍSLÖNGUR
ALLAR STÆRÐIR
PLASTSLÖNGUR
GLÆRAR MEÐ OG
ÁN INNLEGGS
TIL SJÓSTANGAVEIÐI
HANDFÆRAVINDUR
MEÐ STÖNG
SJÓVEIÐISTENGUR
MEO HJÓLI
SJÓSPÚNAR 0G
PILKAR
MJÖG FJÖLBR. ÚRVAL
HANDFÆRAVINDUR
FÆREYSKAR
NÆL0NLÍNUR
HANDFÆRAÖNGLAR
MED GERVIBEITU
HANDFÆRASÖKKUR
1125—2000 GR.
KOLAFÆRI OG VINDUR
•
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓÐARÖNGLAR
•
SILUNGANET
UPPSETT
SILUNGANETASLÖNGUR
FLOTTEINAR
BLÝTEINAR
NETAFLOT
•
BJORGUNARVESTI
FYRIR BÖRN OG FULLORDNA
111-1! I <1
STJÖRNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
FJÖLBRE’yT ÚRVAL
ÁLSTIGAR
2FALDIR
MARGAR LENGDIR
✓ ÁNANAUSTUM
SÍMI 28855
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 9—12
ruM V