Morgunblaðið - 10.05.1984, Qupperneq 48
Opið öll fimmtudags-, töstudags-.
laugardags- og sunnudagskvöld
AUSTURSTRÆTI22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633
Opió alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
AUSTURSTRÆTI22,
INNSTRÆTI,
SÍMI 11633.
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins:
Slökkviliðs-
FRESTUN tveggja daga verkfalls
flugmanna, sem átti að skella á á
miðnætti nk„ var talin koma til
greina í nótt er Morgunblaðið fór í
prentun, en samningafundir stóðu
þá enn í húsakynnum ríkissátta-
semjara í Borgartúni 22. Þá sögöu
heimildarmenn blaðsins að það stór-
ir samningsliðir væru eftir, að ólík-
legt væri að gengið yrði frá nokkrum
samningum á þeim fundi, en hins
vegar töldu þeir koma til greina að
flugmenn frestuðu verkfaili í Ijósi
þess að nokkuð hefði miðað í sam-
komulagsátt, og að verkfall á þessu
stigi samninganna myndi ekki flýta
fyrir samningsgerð. Eftir kvöldverð-
arhlé hjá ríkissáttasemjara í gær-
kveldi komu aðilar saman á nýjan
leik, og þá höfnuðu Flugleiðir gagn-
tilboði því sem flugmenn höfðu gert
þeim seinni part dags í gær, en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
höfðu flugmenn dregið verulega í
land hvað kröfugerð snertir, en að
mati Flugleiða ekki nóg.
Á tíunda tímanum í gærkveldi
kom svo trúnaðarmannaráð og
stjórn flugmanna til fundar við
samninganefnd flugmanna í Borg-
artúni, og ræddu þeir fram undir
miðnætti til hvaða ráða skyldi
gripið, m.a. með það í huga hvort
staðan leyfði að boðuðu verkfalli,
sem skellur á á morgun að öllu
óbreyttu, yrði frestað.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins stóð aðalágreiningurinn í
viðræðunum í gær um það hvort
Flugleiðir ættu að greiða 1% í sér-
YFIRGNÆFANDI meirihluti, eða
82,2% þeirra sem spurðir voru í
skoðanakönnun Hagvangs í síðasta
mánuði, töldu það góða hugmynd að
færa verkefni frá hinu opinbera yfir
á hendur einkafyrirtækja. Aðeins
12,4% töldu hugmyndina slæma og
5,3% töldu sig ekki geta svarað
spurningunni.
Þá töldu 91,2% þeirra, sem
stakan sjúkrasjóð, en Flugleiðir
höfnuðu þeirri kröfu alfarið, með
þeim rökum að þeir greiði þegar
1% í félagssjóð, sem sé raunar það
sama og sjúkrasjóður, og vitna
Flugleiðamenn í dóma sem fallið
hafa og sýna fram á að hér er um
sams konar sjóði að ræða. Auk
þess vildu Flugleiðir, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, ekki
svöruðu, að hagkvæmni ykist með
því að færa opinberan rekstur yfir
til einkaaðila. Rúmlega 86% töldu
þjónustu batna við þessa breyt-
ingu, en aðeins 47% töldu félags-
legt öryggi aukast við breytta til-
högun.
Þriðji liður könnunarinnar fólst
í því að almenningur var að því
spurður hvaða þætti opinberrar
fallast á kröfu flugmanna um
launajöfnuð til handa yngstu
flugmönnunum á Fokker-vélun-
um, en Flugleiðir segja að slíkur
jöfnuður, fyrir utan allar aðrar
kröfur, þýddi allt að 28% launa-
hækkun fyrir suma flugmann-
anna.
Sjá innlendan vettvang um kjara-
deilu flugmanna á bls. 16.
þjónustu hann kysi helst að einka-
aðilar tækju yfir. Kom þar í ljós,
að mikill meirihluti var hlynntur
því að rekstur opinberra mötu-
neyta, viðhald á byggingum og
eignum hins opinbera og sorp-
hreinsun yrði framkvæmd af
einkaaðilum.
Sjá nánar um könnunina á mið-
opnu blaðsins.
82 % vilja færa ríkis-
rekstur til einkaaðila
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
hreyfði þeirri hugmynd við forsætis-
ráðherra á fundi formanna stjórnar-
flokkanna síðdegis í gær, að skyn-
samlegast væri, ef stjórnarliðar
næðu ekki saman allra næstu daga
um afgreiðslu margra stórmála á Al-
þingi sem mörg hver eru komin í
hnút, að upp úr miðjum mánuðinum
verði gert þinghlé í um hálfan mán-
uð. Þing komi síðan saman á ný t
júnímánuði og gefi sér þá þann tíma
sem þarf til afgreiðslu mála.
Er Mbl. leitaði skýringa hjá
ólafi á þessari hugmynd hans,
svaraði hann: „Mér sýnist orðið
tæknilega ómögulegt að ná öllum
þessum málum í gegn fyrir aðra
helgi, en stefnt hefur verið að
þinglausnum þá.“ Ólafur sagði að
margir þingmenn virtust vera
búnir að binda sig erlendis og við
annað eftir aðra helgi og því teldi
hann beztu lausnina, ef ekki næð-
ist saman um málin á allra næstu
dögum, að þinghlé yrði gert og
mætti í því hléi vinna betur að
mörgum málanna í nefndum. Síð-
an gæti þing komið saman á ný í
júnímánuði og tekið sér þann tíma
sem það þyrfti.
Þingflokkar stjórnarliða fjöll-
uðu um mál þessi sem hnútar eru
á innan stjórnarliðsins á fundum
sínum í gær. Formenn flokkanna
komu síðan saman og ræddu mál-
in, en þau eru, eins og Mbl. hefur
skýrt frá síðustu daga, helst þessi:
Húsnæðismálafrumvarpið vegna
Búseta; fylgimál stjórnarfrum-
varps um ríkisfjármál, svo sem
viðaukatillaga menntamálaráð-
herra og 10% bindiskyldan;
stjórnarskrármálið og kosninga-
lögin, áburðarverð o.fl.
. -
Þjóðarátak
í skógrækt
Fram hefur verið lögð þings-
ályktunartillaga um þjóðarátak í
trjárækt á 40 ára afmæli lýðveldis-
ins. Tillagan felur ríkisstjórninni,
ef samþykkt verður, að hlutast til
um slíkt þjóðarátak, bæði í þétt-
býli og strjálbýli.
í greinargerð er minnst á að
Skógræktarfélag íslands hafi
verið stofnað á Þingvöllum 1930
í tengslum við þúsund ára af-
mæli Alþingis. Við stofnun lýð-
veldis 1944 hafi landsnefnd lýð-
veldiskosninga og Skógræktar-
félagið staðið fyrir stofnun
Landgræðslusjóðs, sem hafi
leyst af hendi mörg mikilvæg
verkefni. Á 1100 ára afmæli ís-
landsbyggðar var gerð sérstök
landgræðsluáætlun fyrir árin
1974—1978. Flutningsmenn
telja við hæfi, á 40 ára afmæli
lýðveldisins í ár, að stjórnvöld
beiti sér fyrir þjóðarátaki í
trjárækt, í samvinnu við rúm-
lega 30 skógræktarfélög í land-
inu.
Flutningsmenn eru úr öllum
þingflokkum. Fyrsti flutnings-
maður er Gunnar G. Schram
Staðan í kjaradeilu flugmanna í nótt:
Búist var við frest-
un boðaðs verkfalls
Þingi verði frestað
komi saman í júní
ÓLAFUR G. Einarsson formaður
menn á æfingu
ÁTJÁN slökkviliðsmenn frá 13
slökkviliðum víðs vegar að af
landinu eru þessa dagana á nám-
skeiði í Hafnarfirði, sem Bruna-
málastofnunin gengst fyrir.
Slökkviliðsmenn voru önnum
kafnir við aö dæla vatni við syðri
hafnargarðinn í Hafnarfirði þeg-
ar Ijósmyndara Mbl. bar að garði
og er ekki annað að sjá, en menn
gangi vasklega fram.
Morgunblaðið/KEE.