Morgunblaðið - 11.05.1984, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.05.1984, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984 8 Sjálfstæöisflokkur- inn og húsnæðismálin — eftir Friðrik Friðriksson Hart er deilt á mannamótum og langhundar eru settir á í blöð- um um réttarstöðu félagasam- taka sem byggja leiguíbúðir. Á alþingi er deilt um túlkun á 33. gr. frumvarps til laga um Hús- næðisstofnun ríkisins, en sú grein skilgreinir hvaða aðilar eigi rétt á lánum úr Byggingarsjóði verka- manna. Mikið er í húfi, hags- munalega séð fyrir marga. Ef félagasamtök sem byggja leigu- íbúðir, s.s. Búseti, fá lán úr Bygg- ingarsjóði verkamanna er verið að tala um 80% verðtryggð lán til 42 ára með 'h % vöxtum. Ef félög eins og Búseti falla á hinn bóginn utan við verka- mannabústaðakerfið þurfa þeir að sæta kjörum hins almenna húsnæðislánamarkaðar, þar sem iánin eru nú tæplega 30%, til 26 ára, verðtryggð með 2,5% vöxt- um. Stefna Sjálf- stæðisflokksins Grundvallarstefna Sjálfstæðis- flokksins í húsnæðismálum er sú, að sérhverri fjölskyldu verði gert kleift að eignast og búa í eigin húsnæði. Aðgerðir allra vinstri stjórna á Islandi hafa verið and- stæðar þessari stefnu. Stefna fé- lagsmálaráðherra síðustu ríkis- stjórnar var að knýja ungt fólk til þess að leita á náðir ríkiskerf- isins. Dregið var verulega úr lán- um til þeirra er vildu kaupa eða byggja sjálfstætt og fólki beint inn í hið svokallaða félagslega kerfi. Það er stefna Sjálfstæðis- flokksins, að lán til þeirra ein- staklinga sem eignast íbúð í fyrsta sinn verði í áföngum hækkuð í 80% af kostnaðarverði, og lánstími lengdur, hvort sem um er áð ræða nýbyggingu eða kaup á eldra húsnæði. í tíð núverandi ríkisstjórnar hafa spor verið stigin í þessa átt. Hin almennu lán Byggingarsjóðs ríkisins hafa hækkað úr 19,7% í 29,1% af staðalíbúðarverði. Það er því mikið verk enn óunnið, fólk bíður of lengi eftir afgreiðslu lána, allt lánið kemur til útborg- unar á of löngum tíma. Þetta þarf að bæta og Sjálfstæðisflokkurinn leggur höfuðáherslu á, að til þess að ofangreint meginmarkmið ná- ist þurfi umfram allt að bæta fjárhag Byggingarsjóðs ríkisins. Einungis á þann hátt verður lánshlutfall til húsnæðismála hækkað og afgreiðslu flýtt. Ef t.a.m. Búseta er hleypt inn í hið félagslega kerfi gerist annað tveggja: Að færri verkamannabú- staðir eða húsnæði á almennum markaði verður byggt á meðan. Tökum fyrra tilvikið. Að því gefnu að peningarnir spretta ekki á trjánum munu 100 nýjar Bú- setaíbúðir fela í sér að 100 færri íbúðir eru byggðar í verkamanna- bústöðum. Vilja menn það? Hitt tilvikið leiðir til svipaðrar niðurstöðu að því gefnu að fram- lög til Byggingarsjóðs verka- manna verði óskert, þrátt fyrir Búseta. Þá kemur þessi viðbót niður á hinu almenna kerfi. Það vill segja, að hækkað lánshlutfall, sem er okkar markmið, næst seinna, tafirnar á afgreiðslu lán- anna lengjast. Getur flokkur einkaframtaks og eigin húsnæðis staðið að lagasetningu sem hyglir einum aðila á kostnað annars, á kostnað einstaklinganna sem vilja eignast eigið húsnæði? Nei. Og það er af þessum sökum sem Sjálfstæðisflokkurinn skapar sér sérstöðu innan þingsins við af- greiðslu þessa frumvarps. Tvö kerfi í stað þriggja Við höfum tvö kerfi í húsnæðis- málum í dag. Hið almenna lána- kerfi Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóð verkamanna. Til þess að njóta sérkjara Bygg- ingarsjóðs verkamanna verða umsækjendur að uppfylla tvö meginskilyrði. Tekjumörk eru til- tekin og umsækjandi má ekki eiga íbúð fyrir. í lögum Búseta er Friðrik Friðriksson „Grundvallarstefna Sjálfstæðisflokksins í húsnæðismálum er sú, að sérhverri fjölskyldu verði gert kleift að eign- ast og búa í eigin hús- næði.“ ekki að finna ákvæði af þessu tagi. M.ö.o. félagar í Búseta geta bæði verið hátekjumenn og íbúð- areigendur. Ef Búseti fær aðgang að útsölufjármagni úr Bygg- ingarsjóði verkamanna opnast allar flóðgáttir og kerfin verða þrjú í stað tveggja. Þá geta í raun hverjir sem vilja stofnað með sér svipuð félög og fallið undir hið félagslega kerfi, alþingismenn jafnt sem kennarar, ungir sjálf- stæðismenn jafnt sem ungir framsóknarmenn. Er ekki nær að efla kerfin tvö sem fyrir eru og efna loforðin um að kjörin á al- mennum lánum Byggingarsjóðs ríkisins batni. Búseti á fullan rétt á sér, en ... f sjálfstæðisstefnunni felst frelsi til að velja um gerð hús- næðis jafnt öðru. Sigtúnshópur- inn sem hávær var sl. haust var hópur húsbyggjenda, hann krafð- ist hærri lána í hinu almenna kerfi í samræmi við kosningalof- orð stjórnarflokkanna. Búseta- hópurinn sem nú er hávær krefst aðildar og aukinna framlaga til hins félagslega kerfis. Hann vill láta lögbinda mismunun sér til handa og maður spyr: Hvar er Sigtúnshópurinn nú? Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki snúist gegn Búseta. Hann styður framtak fólks og sjálfs- bjargarviðleitni, en ekki á kostn- að annarra. Sjálfstæðisflokkur- inn vill að kerfin verði tvö, al- mennt kerfi og félagslegt kerfi. Búseti verður að ganga til þessa leiks samkvæmt sömu leikreglum og aðrir, mismunun ber ekki að líða. Með jafnri aðstöðu og aðgangi að fjármagni kemur í ljós hverjir vilja búa í eigin húsnæði og hverjir vilja leigja. Þá er ég viss um að margir munu velja Búseta- fyrirkomulagið, frjálst val án mismununar. Á þessu grundvall- ast afstaða Sjálfstæðisflokksins á túlkun 33. gr. frumvarpsins um Húsnæðisstofnun ríkisins. Frá þeirri afstöðu verður ekki hvikað. Friðrik Frióriksson er fram- kræmdastjóri þingflokks sjálf- stæóismanna og 1. raraformaður Sambands ungra sjilfstæðis- manna. Sverrir Kristjánsson Hús Verslunarinnar 6. hæö. Logm Hafsteinn Baldvinsson hrl. ) Engihjalli — 4ra herb. Til sölu ca. 100 fm ibuö á 7. hæö. Skipti á 2ja—3ja herb. ibúö i austurbæ koma mjög vel til greina. 3ja herb. íbúöir Háaleitisbraut Til sölu 127 fm 4ra herb. íbúö á 4. hæö. Rúmg. innb. bílskúr. Stórar suöursvalir. Mikiö útsýni. íbúöin í mjög góöu ástandi. Ákv. sala. Margar aörar eignir á söluskrá Einbýli Heiðvangur Hf. — Einb. Ca. 290 fm hús á tveimur hæöum ásamt 45 fm bilskúr Á hæöinni er forstofa, gesta wc., hol, stofa, eldhús, búr. Á sérgangi er þvottaherb., stórt baö, lín- herb., 3 svefnherb. í kjallara 3 herb., stofa, sauna, geymslur o.ffl. Möguleiki á séribúö. Til greina kemur aö taka minni eign uppi. Vantar — Vantar Hef kaupanda aö góöu einbýlishúsi i Reykjavík. Raðhús Kjarrmóar — Raðhús Ca.170 fm fallegt raöhús m. 4 svefn- herb Utsýni. Vantar — Vantar Hef kaupanda aö góöri 5 herb. íb. eöa hæö innan Elliöaáa. Bárugata — 3ja herb. Til sölu nýuppgerö og glæsileg 3ja herb. ibúö á 1. hæö i steinhúsi. 1. flokks innr. m.a. á gólfum, flísar, marmari, parket. Fallega innréttaö baö og eldhús Engihjalli — 3ja herb. Falleg 3ja herb. íbúö á 8. hæö. Tvennar svalir. Mikiö útsýni. Langholtsv. — 3ja herb. Ca. 80 fm jaröh. Laus fljótt. 5 herb. íbúðir Skipholt — 5 herb. Góö ibúö á 1. hæö. Suöursvalir. Laus í ág., sept Breiðvangur Hf. - 5 herb. Til sölu 122 fm góö ibúö á 3. hæö. Suöursvalir. Þvottaherb. og búr innaf eldhusi. Utsýni. Laus fljótt. Ákv. sala. Gaukshólar — 5 herb. 135 fm á 4. hæö í lyftuhúsi ásamt bil- skúr. 4 svefnherb. 4ra herb. íbúðir Ugluhólar — 4ra herb. Til sölu mjög rúmgóö 4ra herb. íbúö á 2. hæö. Baldursgata — risíbúð Falleg nýendurb. 3ja herb. ibúö suöursvalir, arinn í stofu. Laus fljótlega. 2ja herb. íbúðir Einstakl.íbúðir við Álfhólsveg Kóp. og Lindargötu. Reykás — 2ja herb. í smíöum Ca. 80 fm. Afh. tilb. undir tróverk. Verö 1400 þús. Efstaland — 2ja herb. Ca. 50 fm jaröhæö Sér lóö. Laus. Austurberg — 2ja herb. 65 fm 4 hæö suöur svalir. Laus fljótt. Verö 1350 þús. Vantar eignir í sölu I i loíruíiml U Askrifkirshninn er 83033 Sumar-vetrarbústaður Vorum aö fá til sðlu óvenju vandaöan bústaö í nágrenni borgarinn- ar. Um er aö ræða 45 fm bústaö og 19 fm hús sem er smíöastofa, geymsla og rými fyrir sauna-bað. Stór verönd. 4ra ha eignarland. Vegna staösetningar er auövelt að stunda vinnu í bænum en njóta alls þess er sveitin býður upp á. Gæti verið kjöriö fyrir hestamenn. Verð aöeins 1 millj. sem má greiöa á nokkrum árum. Fdsteignaþjónustan Austurstræti 17, s. 26600 Kári F. Guðbrandsson Þorsteinn Steingrímsson lögg. fasteignasali. Raðhús viö Hlíöarbyggö Garöabæ Vorum að fá til sölu 137 fm vandaö raöhús. Húsiö skiptist m.a. í rúmgóöa stofu, vandaö eldhús meö þvottaherb. og búri innaf. 3 góö svefnherb. Vandaö baöherb. Gesta baö. Innb. bílskúr. íbúöarherb. og wc. í kjallara. Fallegur garöur. Verð 4 millj. FASTEIGNA ff MARKAÐURINN Oömsgotu 4, simsr 11540—21700. Jón Guömundss , L*ó E. Lóve lögfr Ragnar Tómmon hdl. usava FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 i Snorrabraut 2ja herb. kjallaraíbúö. Ný teppi á stofu og gangi. Nýr dúkur á svefnh. Sór geymsla. Eigna- hlutdeild i þvottah. Laus strax. Verö 900 þús. Hveragerði Raðhús viö Heiðabrún. Tilbúin undir tréverk og máln. 5 herb. Bílskúr. Skipti á íbúö í Reykja- vík kemur til greina. Einbýlishús í Vogum á Vatnsleysuströnd 5 herb. 140 fm. Bílskúr 50 fm. Verötilboð óskast. Hesthús í Mosfellssveit fyrir 6 hesta ásamt hlööu. Sumarbústaður Til sölu sem er skammt frá Hálsi i Kjós, 35 fm. 2 herb. og eldhús. Lóö 'h hektari. Holgi Ólafsson, löggiltur fasteignasali, kvöidsimi: 21155. Þú s\rilar lestraiþörf dagsins Tilboð sem verður ekki endurtekiö Gildir til 19. maí ’84. 30% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum verzlunarinnar ATH: OPIÐ: alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 opið frá kl. 10—3 e.h. Tilboðið veröur ekki endurtekið. K.M. Húsgögn Langholtsvegur 111 — Símar 3701 0— 37144 — Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.