Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 14
MÖftGÚWBLÁö'lÐ, FÖSTUÖÁGtJB' 11. MAf’1384 ‘
14
Spænsku konungshjónin heimsækja Moskvu
Juan Carlos Spánarkonungur og Sofia drottning
komu í gær í opinbera heimsókn til Moskvu. Var
þetta fyrsta heimsókn þjóðhöfðingja á Spáni til
Sovétríkjanna. Stjórnir Spánar og Sovétríkjanna
tóku aftur upp stjórnmálasamband fyrir 7 árum,
en ekkert stjórnmálasamband hafði verið með
ríkjunum í valdatíð Francos hershöfðingja. A
myndinni sjást spænsku konungshjónin fyrir
miðju en til hægri er Konstantin Chernenko, for-
seti Sovétríkjanna og leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins. Yzt til vinstri er Anna
Chernenko, eiginkona sovézka leiðtogans.
Verkföll til stuðnings
35 stunda vinnuviku
í Vestur-Þýskalandi
Fruikfurt, 10. maí. AP.
SAMTÖK verkamanna í stáliðn-
aði í Vestur-i>ýskalandi hyggjast
efna til verkfalla á nokkrum stöð-
um í landinu frá og með næsta
mánudegi til að árétta stuðning
sinn við kröfur verkalýðshreyf-
ingarinnar um 35 stunda vinnu-
viku. Talsmenn atvinnurekenda
og ríkisvalds segja að aðgerðir
þessar verði til þess eins að auka
atvinnuleysi í landinu.
Um 10 þúsund prentarar víðs
vegar um Vestur-Þýskaland
lögðu niður vinnu í dag til þess
að lýsa yfir stuðningi við kröf-
una um fimm tíma styttingu
vinnuvikunnar. Þetta er í fjórða
sinn á einum mánuði sem prent-
arar grípa til slíkra aðgerða.
Samþykkt danska þingsins:
Danir hætta fjárstuðningi
við Evrópueldflaugarnar
Kaupmannahöfn, 10. maí. AP.
DANSKA þingið samþykkti í dag
að stöðva fjárframlög til uppsetn-
ingar kjarnorkueldflauga Atlants-
hafsbandalagsins í Vestur-Evrópu.
Samþykktin var gerð með 49 at-
kvæðum gegn 12, en allir þing-
Sakharov-tónleikamir hafnir:
„V onumst til að koma af
stað skriðu mótmæla“
segja forvígismenn tónleikanna
Koehester, New York, 10. maí AP.
Forvígismenn tónleikahalds, sem
fram á að fara í 14 borgum til
stuðnings sovézka andófsmannin-
um Andrei Sakharov og konu hans,
sögðust í dag vonast til þess að
koma af stað „skriðu mótmæla"
gegn útlegð þeirra hjóna innan-
lands í Sovétríkjunum.
Sakharov, sem á sínum tíma
voru veitt friðarverðlaun Nóbels,
Mannskæðir bar-
dagar milli Kína
og Víetnams
lVking, Ið. maf. AP.
KÍNVEKJAR ásökuðu I dag Víet-
nama um að hafa sent lið hvað eftir
annað inn yfir kínversku landamær-
in frá því 3. maí sl. og að hafa skotið
margoft af fallbyssum á kínverska
landamæraverði, sem rekið hefðu
innrásarmennina af höndum sér og
valdið þeim „miklu manntjóni".
Ekki var þó greint nákvæmlega frá
mannfalli Víetnama eða Kínverja.
Kínverska fréttastofan Xinhua
skýrði svo frá, að 4., 5. og 7. maí
hefðu Víetnamar skotið mörg þús-
und fallbysskúlum á Kínverja og
gert fótgönguliðsárásir á hæð
eina, sem gengur undir nafninu
„Hæð 1019“, en verið reknir á
flótta. í gær hefðu Víetnamar enn
gert mikla árás á þessa hæð en
orðið að hörfa til baka eftir mann-
skæða bardaga.
hefur verið í hungurverkfalli frá
því 2. maí sl. í því skyni að fá
sovézk stjórnvöld til þess að leyfa
konu hans, Yelenu Bonner, að fá
læknismeðferð á Vesturlöndum.
„Ástandið virðist vera mjög al-
varlegt, þar sem Sakharov er
veill fyrir af hjartasjúkdómi",
var haft eftir Tatyana Yankelev-
ich, dóttur Yelenu Bonner, I
Newton í Massachusetts í dag.
Edward Lozansky, sem stjórn-
ar undirbúningi tónleikahaldsins
sagðist í gær álíta, að það ætti
eftir að hafa mest áhrif í Vestur-
Evrópu, þar sem Sovétstjórnin
tæki meira mark á almennings-
álitinu þar en í Bandaríkjunum.
„Við gerum okkur vonir um, að
þetta tónleikahald veki meiri og
meiri athygli og að lokum komi
það af stað skriðu mótmæla,"
sagði Lozansky á fundi með
fréttamönnum í gær, er hann
greindi frá undirbúningi fyrstu
tónleikanna, sem fram áttu að
fara þá um kvöldið í Rochester í
New York-ríki.
Tónleikunum verður síðan
haldið áfram í Toronto, Boston,
Washington og New York, áður
en hljómsveitin heldur för sinni
áfram til Hollands, Belgíu,
Vestur-Þýzkalands, Sviss, Ítalíu
og Bretlands, en síðustu tónleik-
arnir verða haldnir I London 5.
júní.
Lozansky, sem var áður eðlis-
fræðingur í Sovétríkjunum en
tókst að fá konu sína og dóttur til
Bandaríkjanna frá Sovétríkjun-
um 1982, sagði í gær: „Það er
unnt að hafa áhrif á Sovétstjórn-
ina. Það er unnt að þvinga hana
til þess að gera hluti, sem hún vill
ekki.“
menn stjórnarflokkanna fjögurra,
sem eru 77, voru fjarverandi.
Engin opinber skýring hefur
fengist á fjarveru stjórnarþing-
mannanna, en danskir frétta-
skýrendur segja að ríkisstjórn-
in, sem er minnihlutasamsteypa
mið- og hægriflokka, vilji forð-
ast frekari árekstra við jafnað-
armannaflokkinn, höfuðflokk
stjórnarandstæðinga, meðan
reynt er að semja um fjögurra
ára áætlun í varnarmálum
landsins.
Þingmenn stjórnarflokkanna
sátu einnig hjá þegar þingið
samþykkti fyrir viku að stefna
bæri að því að gera Danmörk að
kjarnorkuvopnalausu svæði,
jafnt á friðartímum sem tímum
ófriðar.
Flokkur jafnaðarmanna var
við völd í Danmörku þegar Atl-
antshafsbandalagið ákvað fyrir
fimm árum að koma nýjum
meðaldrægum eldflaugum fyrir
I fimm aðildarríkjum banda-
lagsins í Evrópu til mótvægis
við nýjar SS-20-kjarnorkuflaug-
ar Sovétmanna. Flokkurinn
studdi ákvörðunina og veitti 75
milljónum danskra króna til
verkefnisins. Nú hafa jafnað-
armenn breytt um stefnu og af-
leiðing samþykktar danska
þingsins í dag er sú að þær 48
milljónir danskra króna, sem
Danir áttu eftir að greiða
Atlantshafsbandalaginu, renna
til þeirra eigin varna.
Úrskurður kviðdómsins:
Skotin komu frá
sendiráði Líbýu
I^indon, 10. m*í. Al’.
KVIÐDÓMUR sá, sem rannsakar
öll atvik varðandi atburóina við
sendiráð Líbýu í London, kvað í dag
upp þann úrskurð, að skotunum,
sem urðu lögreglukonunni Yvonne
Fletcher að bana, hefði verið hleypt
af úr hyssu inni í sendiráðsbygging-
unni. Dómurinn var skipaður 9 körl-
um og 9 konum.
Libýumenn hafa neitað því, að
nokkur hafi hleypt af byssu inni í
sendiráðsbyggingunni.
Áður en kviðdómurinn kvaö upp
úrskurð sinn, hlýddi hann á fram-
burð nýrra vitna um skotin, sem
urðu lögreglukonunni að bana og
særðu 11 manns fyrir framan
sendiráðsbyggingu Líbýumanna.
Brian Arnold frá Scotland Yard,
sem er sérfræðingur í skotvopn-
um, sagði í dag, að skotin hefðu
komið úr hríðskotabyssu af
Sterling-gerð, sem framleidd væri
í Bretlandi en fáanleg víða um
heim. Vitað væri um, að hríð-
skotabyssur af þessari gerð hefðu
verið í notkun hjá Líbýuher.
Skotvopn úr líbýska sendiráðinu
Sjö skotvopn ásamt skotfærum fundust, er brezka lögreglan rannsakaði sendiráósbyggingu Líbýumanna í London.
Vopn þessi voru sýnd í aðalstöðvum Scotland Yard í gær. Númer 7 eru hólf fyrir byssuhleðslur í hríðskotabyssur af
Sterling-gerð.