Morgunblaðið - 13.05.1984, Side 1
96 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
E1 Salvador:
Skæruliðar með 73 gísla
í 10 klukkustunda herkví
108. tbl. 71. árg.
Ólympíuleikamir:
Fleiri
lönd fara
að dæmi
Sovét-
ríkjanna
Moskvu og Bangkok, 12. maí. AP.
LAOS hefur bæst í hóp þeirra
þjóða sem ætla ekki aö senda liö
til Ólympíuleikanna í Los Angeles
í sumar. Ákvörðun Sovétmanna að
senda ekki lið er farin að draga
dilk á eftir sér; auk Sovétríkjanna
munu Víetnam, Mongólía, Laos,
A-Þýskaland og Búlgaría ekki
senda lið og talið er aö ekki séu
öll kurl komin til grafar.
Stjórnvöld í Póllandi, Mósam-
bík og á Kúbu gáfu í skyn í dag
að þau myndu fylgja fordæmi
Sovétríkjanna og sendiherra
Tékkóslóvakíu í Mexíkó lýsti yfir
fullum fetum, að Tékkóslóvakía
yrði ekki með á leikunum þrátt
fyrir að ekkert í þá átt hafi
formlega heyrst frá stjórnvöld-
um í Prag.
Sovétmenn höfnuðu síðasta
tilboði Ronald Reagans Banda-
ríkjaforseta um að ábyrgjast
fullkomið öryggi sovéskra
íþróttamanna. Sögðu Rússar
þreifingar forsetans líkjast því
helst að hann væri að reyna að
draga „fíkjublað yfir nekt sína í
þessu máli“. Æðstu embættis-
menn alþjóðlegu og bandarísku
ólympíunefndanna, Juan Anton-
io Samaranch og Peter Uber-
roth, hafa lofað að „berjast fram
á síðustu sekúndu" og Jesse
Jackson, eitt þriggja forsetaefna
Demókrataflokksins, ætlar einn-
ig að láta málið til sín taka.
San Kalvador, 12. maí. AP.
FIMM vinstri sinnaðir
skæruliðar, sem héldu 73
óbreyttum borgurum í gísl-
ingu í tíu klukkustundir í
stórri matvöruverslun í suð-
SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
urhluta San Salvador, höfuð-
borgar E1 Salvador, hafa lát-
ið gíslana lausa og fengið
hæli í sendiráði Mexíkó í
borginni.
Skæruliðarnir komu í versl-
unina árla í morgun í þeim til-
gangi að ræna hana. Lögregla
kom hins vegar fljótt á vettvang
og kom þá til skotbardaga og
skæruliðarnir vörpuðu hand-
sprengjum að lögreglunni. Þrír
viðskiptavinir verslunarinnar
særðust, en ekki er ljóst hve al-
varleg sár þeirra eru.
Þegar skæruliðunum, sem eru
félagar í kunnum hryðjuverka-
samtökum, hinum svonefndu
Clara Elisabeth Ramirez Front,
varð ljóst að þeir voru um-
kringdir og við ofurefli var að
etja, kröfðust þeir þess að fá að
fara úr landi og til einhvers
Contadora-landanna, Mexíkó,
Kólombíu, Venezúela eða Pan-
ama.
Eftir samningaviðræður, sem
fulltrúar Rauða krossins tóku
þátt í, var fallist á kröfu skæru-
liðanna, en áður en þeir voru
fluttir í bifreið Rauða krossins í
sendiráð Mexíkó var gengið úr
skugga um að þeir hefðu ekki
gert gíslunum mein.
Endanleg úrslit forsetakosn-
inganna í E1 Salvador, sem fram
fóru fyrir viku, hafa nú verið
gerð opinber. José Napoleon Du-
arte, frambjóðandi kristilegra
demókrata, sigraði og hlaut
53,9% atkvæða. Keppinautur
hans, Roberto d’Aubuisson
Prentsmiðja Morgunblaðsins
LjÓHm. KÖE
frambjóðandi hins hægri sinn-
aða Arena-flokks, hlaut 46,4%
atkvæða. Talsmenn flokksins
hafa neitað að fallast á úrslitin,
án þess þó að gefa skýringu á
þeirri afstöðu sinni.
Sjá: „Úrslitatilraun bjartsýn-
ismanns“ á bls. 52.
Danmörk:
30 sumar-
hús brunnu
Varde, Danmörku, 12. maí. AP.
MIKILL eldsvoði varð í sumar-
húsahvern í Varde í dag, 30
bústaðir eyðilögðust í eldhafi og
það tók 400 brunaliða 5 klukku-
stundir að ráða niöurlögum
eldsins.
Eldsupptökin voru í einu
húsinu, neistaflug frá spennu-
stöð þess læsti sig í glugga-
tjöld og fuðraði húsið bókstaf-
lega upp. Nokkur vindur var
og dreifðust neistar í nær-
liggjandi hús með fyrrgreind-
um afleiðingum. Mesta mildi
þótti, að ekki urðu slys á fólki,
öllum sem innandyra voru
tókst að bjarga sér í tæka tíð.
Páfi eftir ferðalagið:
„Baráttukirkja
í miklum vanda“
Rómaborg, 12. maf. AP.
JÓHANNES Páll páfi 2. lauk í dag tíu daga ferðalagi þar sem hann
heimsótti Suður-Kóreu, Papúa Nýju-Guineu, Salómonseyjar og Thai-
land, auk þess sem hann kom við í Alska og ræddi þar við Ronald
Reagan Bandaríkjaforseta. Páfi hélt hálftíma langan blaðamannafund
um borð í þotu sinni á heimleiðinni og sagði þá að kaþólska kirkjan í
Víetnam væri öflug baráttukirkja, en vissulega stæði hún frammi fyrir
vanda.
Páfi stikaði fram og aftur
meðal fréttamannanna og svar-
aði spurningum þeirra ljúflega á
frönsku, ítölsku, pólsku, ensku,
spænsku og þýsku. Víetnömsku
kirkjuna bar á góma vegna þess
að páfi sendi henni hvatningu í
erindi sem hann flutti frá Fil-
ippseyjum. Hann varði einnig
hörð orð sín um flóttamanna-
vandamálið í Suðaustur-Asíu,
sagði að þetta væri mannlegt
vandamál og taka yrði á því frá-
þeim sjónarhóli. „Ef líf okkar á
að vera mannlegt, verður að
leysa mannlegu vandamálin,"
sagði páfi.
Loks gat hann þess að hann
hefði mikinn hug á því að heim-
sækja Sovétríkin og Kína þó
hæpið væri að stjórnvöld í þeim
ríkjum myndu bjóða hann vel-
Jóhannes Páll páfi II í fullum
skrúða.
kominn. „Ég mun halda áfram
að ferðast til að efla trúna og ég
mun halda áfram að tala máli
flóttamanna, það snart mig
djúpt sem ég sá í Thailandi,"
bætti hann við.