Morgunblaðið - 23.05.1984, Qupperneq 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
116. tbl. 71. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flórída:
Kókaín fyrir
1,8 milljarða
gert upptækt
Miami, 22. maí. AP.
Ljóstrað var upp um starfsemi
fullkominnar eiturlyfjaverk-
smiðju á Flórída í dag og fund-
ust í verksmiðjunni eitthundrað
kíló af „afar hreinu" kókaíni að
verðmæti 60 milljóna Banda-
ríkjadollara, eða jafnvirði 1,8
miiljarða króna.
Það var íbúi í nágrenni verk-
smiðjunnar sem kom lögregl-
unni á sporið er hann kvartaði
undan óvenjulegri eterlykt frá
vöruhúsum. 1 áhlaupi á verk-
smiðjuna voru fimm manns
handteknir og hundruð lítra
efna, sem notuð eru við eitur-
efnagerð, gerð upptæk.
Díana prinsessa meðal blóm-
anna á 63. árlegu blómasýn-
ingu konunglega garðræktar-
félagsins. Meðal tiginborinna
gesta voru einnig Elísabet
Englandsdrottning, Karl
prins, Margrét prinsessa og
Michael prins af Kent.
AP/Símamynd
Vilja banna
kjarnavopn
Stokkhólmi, 22. maí. Prá Krik Liden, fréttaritara Mbl.
LEIÐTOtíAK sex rikja skoruðu á
kjarnorkuveldin í dag að hætta
framleiðslu og tilraunum með kjam-
orkuvopn og jafnframt að fækka
verulega vopnum af þessu tagi.
Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar, er í fyrirsvari fyrir sex-
menningunum og birti yfirlýsingu
þeirra, sem er í níu liðum. Hann
sagði hugmyndina að yfirlýsing-
unni fengna frá þingmannasam-
tökum, sem aðsetur hefðu í New
York, og sagði framkvæmdastjóri
Genscher fer
frá Moskvu
vonarlítill
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra V-Þýzkalands, kvaðst
engar vísbendingar hafa fengið á
fundi með Konstantin Chernenko,
leiðtoga sovézka kommúnistaflokks-
ins, um að Kússar myndu íhuga til-
mæli sín um að viðræður um tak-
mörkun og fækkun vígbúnaðar yrðu
hafnar þegar í stað.
Tass-fréttastofan sagði eftir
fundinn að ekki væri hægt að taka
alvarlega óskir vestrænna aðilja
um viðræður um fækkun vopna á
sama tíma og verið væri að koma
fyrir Pershing 2 og stýriflaugum á
skotpöllum í Vestur-Evrópu.
Nánir samstarfsmenn Gensch-
ers sögðu viðræður hans í Moskvu,
sem lauk í kvöld, hafa sannfært þá
um að engar viðræður færu fram á
þessu ári milli stórveldanna um
takmörkun vígbúnaðar.
Genscher kvaðst hafa fært mál
Sakharov-hjónanna í tal við sov-
ézka ráðamenn og beðið um að þau
fengju að leita sér lækninga á
Vesturlöndum. Neitaði hann að
ræða mál þeirra eða undirtektir
við óskir sínar á fundi með frétta-
mönnum.
þeirra að innan skamms myndu
hefjast tilraunir til að hafa áhrif á
háttsetta menn í því skyni að
knýja fram algjöra stöðvun fram-
leiðslu kjarnorkuvopna og síðar
fækkun.
Auk Palme undirrita yfirlýsing-
una Indira Gandhi Indlandsfor-
seti, Miguel de la Madrid Mexfkó-
forseti, Julius Nyerere Tanzaníu-
forseti, Raul Alfonsin Argentínu-
forseti og Andreas Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands. Al-
fonsin tók ekki þátt f samningu
yfirlýsingarinnar en var boðin að-
ild að henni síðar.
Palme sagði yfirlýsingu sex-
menninganna vera beint sérstak-
lega gegn kjarnorkuveldunum
fimm, Bandarikjunum, Sovétríkj-
unum, Stóra Bretlandi, Frakk-
landi og Kína. Tilgangurinn væri
einnig að hafa áhrif á almennings-
álitið.
Duarte öðlast traust
á Bandaríkjaþingi
Washington, 22. maí. AP.
FORSETI fulltrúadeildar Kanda
ríkjaþings, Thomas P. O’Neill, spáði
því að Jose Napoleon Duarte, forseti
El Salvador, mundi fá þá hern-
aðaraðstoð sem hann vildi, þótt
sjálfur myndi hann leggjast gegn
því.
Kvaðst O’Neill álíta að Duarte
hefði tekist að sannfæra nógu
marga þingmenn í þeysireið sinni
um Capitol Hill til þess að neyðar-
aðstoðin, 62 milljónir dollara, yrði
samþykkt í fulltrúadeildinni. Bú-
ist er við að tillagan komi til af-
greiðslu í vikunni.
Þingmenn sögðu í kvöld að Du-
arte hefði verið afar sannfærandi
er hann ávarpaði þingið og á fundi
með utanríkisnefnd þess hefði
hann án efa unnið þingmenn á sitt
band, einkum þá er efast hefðu um
réttmæti aðstoðarinnar.
Duarte, sem formlega tekur við
embætti forseta 1. júní nk., sagði á
fundum með þingmönnum að
hann mundi aldrei óska eftir
beinni þátttöku Bandaríkjahers í
átökunum við skæruliða.
José Napoleon Duarte, forseti El Salvador, (t.v.) rabbar við bandarísku þingmennina Jim Wright, leiðtoga meirihlut-
ans í fulltrúadeildinni, Dante Fascell, formann utanríkisnefndarinnar, og Thomas P. O’Ncill, þingforseta.
AP/Símamynd
Auknar tilraunir til að
hemja Persaflóastríð
Manama, 22. maí. AP.
ARABÍSKIR diplómatar útilokuóu í
kvöld að ríkin við Persaflóa myndu
treysta sér til að biðja Bandaríkja-
menn að veita hernaðarvernd á fló-
anum af ótta við að íranir myndu
færast í aukana og herða árásir sín-
ar á olíuskip á flóanum. Verið er að
hefja umfangsmiklar tilraunir til að
lægja öldur í deilu írana og íraka á
næstunni eftir diplómatískum leið-
um.
Framkvæmdastjóri samtaka
ríkja múhameðstrúarmanna hefur
beitt sér fyrir því að samtökin
reyni ákafar en fyrr að stilla til
Sovétstjórnin sendir 200
manns á Ólympíuleikana
Sovétmenn ætla að senda meira
en 200 manns á Ólympíuleikana í
Los Angeles og hefur þessi
ákvörðun þeirra komið skipuleggj-
endum leikanna svo á óvart, að
þeir „eiga ekki eitt einasta orð“.
Segir frá þessu í breska blaðinu
Daily Telegraph sl. laugardag, 19.
þ.m.
„Ástæðan fyrir því, að Sov-
étmenn hættu við að senda
íþróttafólkið á ólympíuleikana
var sú, að við gátum ekki tryggt
öryggi þess, að því er þeir sögðu.
Nú tilkynna þeir allt í einu komu
200 manna, dómara, embætt-
ismanna og blaðamanna. Þetta
er með öllu óskiljanlegt. Sumir
Hefur engar áhyggj-
ur af öryggi dómara,
embættismanna
og blaðamanna
embættismannanna voru áður
kunnir íþróttamenn en Sovét-
stjórnin virðist ekki óttast um
öryggi þeirra, heldur keppend-
anna, sem hefðu þó búið í sér-
stökum öryggisbúðum,” sagði
Peter Ueberroth, forseti banda-
rísku ólympíunefndarinnar, þeg-
ar hann frétti af komu Rúss-
anna.
Sovétmenn hafa marglýst yfir,
að þeir ætli ekki að reyna að
hafa nein áhrif á aðrar þjóðir í
þeim tilgangi að fá þær til að
hætta við leikana í Los Angeles
en svo virðist sem í því efni gæti
einnig nokkurs tvískinnungs.
Afrísku ólympíunefndinni, sem
aðsetur hefur í Kamerún, barst
nýlega skeyti frá Sovétmönnum
þar sem þeir skýra út ástæður
sínar fyrir að hætta og fara
fram á „stuðning eða að afríska
ólympíunefndin gæti þess að
hafa í heiðri meginreglur og
hugsjónir Ólympíuleikanna”.
friðar við Persaflóa og sendinefnd
Arabaríkja reyndi að fá yfirvöld í
Japan til að knýja frani að samn-
ingaborði. Japanir eru miklir
viðskiptavinir Irana og líklegir til
að geta haft áhrif á þá.
Staðfest var að Richard
Murphy, sérlegur sendimaður
Bandaríkjanna, hefði hitt Fahd,
konung Saudi-Arabíu, og fært
honum bréf Reagans Bandaríkja-
forseta, þar sem boðin var vernd á
Persaflóa gegn loftárásum írana.
Það skilyrði var sett fyrir slíkri
aðstoð að bandarískar flugvélar
fengju að athafna sig á herstöðv-
um í Persaflóaríkjunum.
Fahd konungur sagði að hann
hefði gefið yfirmönnum hersins
fyrirmæli um að búa sig undir og
vera tilbúnir að mæta frekari loft-
árásum írana. Kvaðst hann einnig.
hafa beitt sér fyrir því að dregið
verði úr spennu með friðsamleg-
um aðferðum.
Bandarísk yfirvöld lögðu á það
áherslu í kvöld að þau myndu
freista þess eftir diplómatískum
leiðum að lægja öldur í deilu írana
og Iraka og tryggja siglingar á
Persaflóa. Ymsir embættismenn
ríkja Austurlanda nær, m.a. frá
Pakistan, ráðfæra sig við ráða-
menn í Washington um ástandið
við Persaflóa og þar er bresk
sendinefnd sömu erinda.