Morgunblaðið - 24.05.1984, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ1984
Hagkaup endursend-
ir 20 tonn af kartöflum
Fullnægjandi heilbrigðisvottorð fékkst ekki
HAGKAUP hefur cndursent 20 tonn af kartöflum sem fyrirtiekið hafði keypt
frá Bretlandi vegna þess að þær uppfylltu ekki þær heilbrigðisreglugerðir sem
hér eru í gildi. Kartöflunum var skipað um borð í Selá sem sigldi af stað til
Brctlands í gær.
Gísli Blöndal, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Hagkaups, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins í
gær að þarna hefðu orðið byrjenda-
mistök, ekki hefði verið gengið nógu
vel frá hlutunum. Þegar til hefði átt
að taka hefði breska landbúnaðar-
o
INNLENT
ráðuneytið ekki treyst sér til að
gefa út heilbrigðisvottorð sem full-
nægði íslenskum heilbrigðiskröfum.
Ákveðið hefði verið að endursenda
farminn vegna þessa og eins vegna
þess að síðan þessar kartöflur voru
keyptar, en þær eru af uppskeru
fyrra árs, hefðu komið til landsins
kartöflur af nýrri uppskeru. Sagði
Gísli að það tjón sem af þessari
kartöflusendingu hefði hlotist bæri
seljandinn úti enda hefðu mistökin
verið hans. Kartöflunum sem hér
um ræðir var skipað upp á þriðju-
dag í síðustu viku og hafa þær legið
á hafnarbakkanum síðan. Þetta var
fyrsta kartöflusendingin sem kom
til landsins utan við Grænmetis-
verslun landbúnaðarins.
Á stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær. Björn Friðfinnsson, formaður, í miðju. KEE.
Stjórnarfundur í síma milli landshlutanna
„HUGMYNDIN er að láta símann
spara okkur sporin," sagði Björn
Friðfinnsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, í samtali
við blaðamann Mbl. um nýstárlegt
form á stjórnarfundi í sambandinu
í hádeginu í gær. Sá fundur fór að
mestu fram í gegnum síma —
stjómarmenn staddir í Reykjavik
voru í símasambandi við stjórn-
armenn á landsbyggðinni, sem
ekki áttu heimangengt.
Póstur og sími býr nú yfir
kanadískum tækjabúnaði, sem
gerir mönnum auðveldara að
ræðast við símleiðis margir í
einu. Nokkuð hefur verið um að
fyrirtæki innanlands hafi haldið
slíka símafundi með erlendum
sendimönnum sínum og við-
skiptavinum. Með hinni nýju
tækni verður auðveldara fyrir
landssamtök og landshlutasam-
tök að halda símafundi og draga
verulega úr útgjöldum.
Sjávarútvegsráðherra um 12%innflutningstoll í Portúgal:
Alvarlegt mál og nán-
ast þvingunaraðgerðir
Þegar hefur verið samið um saltfisksölur að verðmæti 900 millj. kr,
Nýr aðstoðar-
bankastjóri í
Útvegsbanka
AXEL Kristjánsson lögfræðingur var í
gær, 23. maí, ráðinn aðstoðarbanka-
stjóri Útvegsbanka íslands frá 1. júní
næstkomandi. Ákvörðun um ráðning-
una var tekin á fundi bankaráðs
bankans í gær.
Axel Kristjánsson lauk lagaprófi
frá Háskóla íslands 1954 og hóf
störf í Útvegsbankanum 19. mars
sama ár. Hann hefur verið aðal-
lögfræðingur bankans síðan 1. sept-
ember 1963.
„Úg vil leggja á það ríka áherslu að
hér er ekki um nýjan toll að ræða því
hann var lagður á fyrir 78 árum. Á
sínum tíma var því hins vegar frestað
að láta þennan toll koma til fram-
kvæmda á matvæli og ekki bara á
fisk. Á þessu ári var hins vegar tekin
sú ákvörðun að láta þennan toll koma
til framkvæmda og þá ekki aðeins á
matvæli heldur einnig á allar aðrar
vörur,“ sagði Alvaro Barreto, við-
Axel Kristjánsson
skiptamálaráðherra Portúgals, í við-
tali við blaðamann Mbl. eftir frétta-
mannafund, sem portúgalskir ráða-
menn héldu hér í dag.
„Við höfum hins vegar," hélt
Barreto áfram, „veitt tveim löndum
sem látið hafa okkur í té fiskveiði-
réttindi nokkrar lækkanir á þessum
tolli sem uppbót fyrir þessi réttindi.
Við erum hins vegar opnir gagnvart
„ÞETTA er mjög alvarlegt mál, ef
rétt reynist, og virkar nánast eins og
þvingunaraðgerðir. Kanadamenn
hafa gefið Portúgölum veiðiheimild-
ir og telja sig því eiga rétt á sérstök-
um ívilnunum þess í stað. Ég tel
svona vinnubrögð óheiðarleg og
rangt að blanda saman veiðiheimild-
öðrum ívilnunum á móti af hálfu
tslendinga. Við gerum okkur grein
fyrir því að íslendingar geta ekki
látið okkur í té veiðiheimildir. Við
höfum skýrt íslensku sendinefnd-
inni hér frá því að við erum reiðu-
búnir til þess að athuga með hvaða
hætti auka megi verslun milli landa
okkar og það verður aðalmarkmiðið
með fyrirhugaðri heimsókn minni
til íslands í júlí nk.“
um og viðskiptum. Þessi staða er
fyrst og fremst komin upp vegna
hegðunar Kanadamana,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð-
herra, er hann var inntur álits á
ákvörðunum Portúgala um að setja
12% innflutningstoll á saltfi.sk héð-
an.
íslendingar hafa skuldbundið
sig til að selja Portúgölum 15.000
lestir af saltfiski á þessu ári og
nemur það um 70% af áætluðum
heildarútflutningi. Þá er hugsan-
legt að 5.000 lestir til viðbótar
verði seldar til Portúgal á árinu,
verði framleiðsla nægileg hér
heima. Meðalverð á saltfiskinum
til Portúgal er 60.000 krónur fyrir
lestina þannig að heildarverð þess,
sem samið hefur verið um, er ná-
lægt 900 milljónum króna.
Morgunblaðið ræddi ennfremur
við Dagbjart Einarsson, stjórnar-
formann SÍF, sem sér um útflutn-
ing á saltfiski. Sagði hann, að
fréttir þessar hefðu ekki komið
þeim algjörlega í opna skjöldu,
þeim hefði verið kunnugt um það,
að portúgalska stjórnin hefði haft
þetta í hyggju nokkuð lengi. Kaup-
endur okkar í Portúgal hefðu gert
það sem þeir gátu til að hamla
gegn þessu, en það dygði greini-
lega ekki. Það væri vissulega ljóst,
að þetta stefndi viðskiptum þjóð-
anna í voða og í það minnsta yrði
róðurinn nú mun þyngri en áður.
Það ætti til dæmis eftir að koma í
Ijós hver ætti að taka á sig þessa
hækkun. Hvort það yrðum við eða
kaupendur. Eins og staðan væri
nú, seldum við á hærra verði en
keppinautarnir og þessi tollur
gerði okkur því enn erfiðara fyrir
en áður. Ennfremur ylli þetta
kaupendum okkar erfiðleikum því
margir þeirra hefðu einskorðað
sig við innflutning á íslenzkum
saltfiski. Hvort þetta kallaði á
nauðsyn þess, að veita veiðiheim-
ildir hér við land eða verðlækkun
til okkar, yrði einfaldlega að koma
í ljós. Hvort tveggja væri mjög
slæmt og kæmi vonandi ekki til.
Auglýsinga-
teiknarar boða
verkfall frá
30. maí nk.
Auglýsingateiknarar hafa boðað
verkfall frá og með 30. þessa mánað-
ar, hafi samningar þeirra við Sam-
band íslenskra auglýsingastofa ekki
tekist fyrir þann tíma. Deilu þeirra
var vísað til ríkissáttasemjara í gær,
og hefur fyrsti fundur með deiluaðil-
um hjá sáttasemjara verið boðaður kl.
13 á morgun.
Þeir auglýsingateiknarar sem
hafa boðað verkfallið eru félagar í
Félagi grafískra teiknara, en rétt er
að geta þess að verkfallsboðunin
nær ekki til allra félaga í því félagi,
heldur einungis þeirra sem starfa
hjá auglýsingastofu sem er aðili að
Sambandi íslenskra auglýsinga-
stofa.
Stjórnarfor-
maður Man-
ville hér á landi
llúsavík, 23. maí.
STJÓRNARFORSETl Manville-fyrir-
tækisins, J. McKinney, ásamt mörgum
stjórnendum fyrirtækisins í Bandaríkj-
unum og Evrópu heimsækja Kísiliðj-
unv við Mývatn 24. þessa mánaðar.
McKinney er lögfræðingur að mennt
og hefur lengi starfað á vegum fyrir-
tækisins og verið stjórnarforseti þess
um sex ára skeið. Að lokinni heimsókn
í Kísiliðjuna mun hann halda til
Reykjavíkur þar sem hann hittir fjár-
málaráðherra, Albert Guðmundsson.
Sakadómur Reykjavíkur:
Þýsku hjónin dæmd í
Vz milljón króna sekt
ÞÝZKU hjónin voru dæmd í 500 þúsund króna sekt í Sakadómi Reykjavfkur
í gær fyrir að hafa rænt átta fálkaeggjum úr hreiðrum. Miroslav Peter Baly
var dæmdur í 300 þúsund króna sekt og 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Eiginkona hans, Gabrielle Uth-Baly, var dæmd í 200 þúsund króna sekt og
tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá var Peter Baly gert að greiða
málflutningslaun skipaðs verjanda síns, Arnar ('lausen hrl., krónur 20 þús-
und, og þeim var saman gert að greiða aUan sakarkostnað.
Miroslav Peter Baly var við- ákveða hvort dóminum verður
staddur dómsuppsöguna í Saka-
dómi Reykjavíkur, en eiginkona
hans ekki. Hann huldi andlit sitt
þegar dómurinn var kveðinn upp
og flýtti sér að honum loknum út í
bifreið ásamt lögmanni sínum,
Erni Clausen. Dómurinn er hinn
þyngsti, sem kveðinn hefur verið
upp í máli sem þessu, en 1982 voru
samþykkt lög á Alþingi um fugla-
veiðar og fuglavernd og viðurlög
hert að miklum mun og hámarks-
sektarákvæði ákveðin ein miiljón
krónur.
Verjendur hjónanna tóku sér
frest til dagsins í dag til þess að
áfrýjað. Pétur Guðgeirsson, full-
trúi ríkissaksóknara, lýsti því yfir
að ákæruvaldið yndi dóminum og
krafðist farbanns yfir hjónunum
þar til viðunandi trygging hefði
verið sett um greiðslu sektarinn-
ar. Verði sektin eigi greidd innan
fjögurra vikna frá dómsbirtingu
er Miroslav Baly gert að sæta
varðhaldi í 5 mánuði og Gabrielle
í 3 mánuði.
Ákæra ríkissaksóknara var í
fjórum liðum. í fyrsta lagi var
þeim gefið að sök að hafa verið
hér á landi í fyrra í þeim tilgangi
að leita uppi fálkahreiður. Þá var
Miroslav Peter Baly skrifar undir dómabók Sakadóms eftir að hafa hlýtt á
uppsögu dómsins. Við hlið hans eru Örn Clausen, hrl., og Guðmundur
Jónsson, hdl. MorgunblaðiA/Július.
þeim gefið að sök að hafa í lok
aprílmánaðar ferðast um Mý-
vatnssveit, Ásbyrgi og Melrakka-
sléttu og tekið tvö egg úr fálka-
hreiðri í eða við Námafjall og
önnur tvö úr hreiðri í Geitafelli.
Einnig að hafa tekið fjögur egg f
Fellstrandarhreppi. Þá var þeim
gefið að sök að hafa rænt fálka-
hreiður í Dalasýslu, en þau voru
handtekin í lok apríl og fundust
átta egg í fórum Gabrielle. Þá var
Miroslav Baly gefið að sök að hafa
tekið úr sambandi vegmæla í bif-
reiðum, sem þau tóku á leigu.
Jón Erlendsson, sakadómari,
kvað upp dóminn. Pétur Guð-
geirsson, fulltrúi ríkissaksóknara,
flutti málið af hálfu ákæruvalds-
ins. Verjendur hjónanna voru örn
Clausen, hrl., og Guðmundur
Jónsson, hdl.
Viðskiptaráðherra Portúgals f samtali við Mbl.:
Við erum reiðubúnir að
ræða um aukna verzlun
*
— segir það aðalmarkmiðið með heimsókn sinni til Islands í júlí
Viabjr, 23. maí. Frá blaöamanni Mbt, MagnÚKÍ SigurAssyni.