Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAl 1984 Haukur Haraldsson og Halldór Guðmundsson frá Auglýsingastofunni hf. af- henda Páli Braga Kristjánssyni framkvæmdastjóra Hafskips viðurkenningar- skjal fyrir ársskýrslu 1982, en hún hafnaði í öðru sæti í alþjóðlegri samkeppni um ársskýrslur. Ársskýrsla Hafskips fær alþjóðleg verðlaun Koma Lundúnafílharmóníunnar á Listahátíð: Boeing-727 verður leigð til flutninganna Engin erlend poppsveit að þessu sinni - Comedie Francaise með gestaleik fyrir upplýsingagildi sitt, framsetn- ingu á efni og útlit. Það voru samtök auglýsingastofa (Affi)iated Advertis- ing Agencies International) sem efndu til samkeppni um bestu aug- lýsingar og kynningargögn fyrir árið 1982, en Auglýsingastofan hf. sem sá um hönnun og útlit skýrslunnar sendi hana í samkeppnina. Þetta kemur fram í frétt sem Mbl. hefur borist frá Auglýs- ingastofunni hf. þar sem ennfrem- ur segir að stofan hafi verið aðili að samtökum auglýsingastofa frá árinu 1976. Þá segir að dómnefnd samkeppninnar hafi borist 47 ársskýrslur frá sjö löndum og ársskýrsla Hafskips hafi hlotið 2. verðlaun. Fyrstu verðlaun hlaut Old National Bank í Bandaríkjun- um og þriðju verðlaun hlaut Bank of New Orleans. Alls voru veitt sjö verðlaun og var ársskýrsla Haf- skips sú eina frá landi utan Bandaríkjanna sem hlaut verð- laun i þessari samkeppni. ÁRSSKÝRSLA Hafskips fyrir 1982 hlaut nýverið alþjóðleg verðlaun ÞAÐ ER ekki lítið fyrirtæki að flytja Fílharmóníuhljómsveit Lundúnaborg- ar hingað til lands. Eins og fram hefur komið heldur hljómsveitin tvenna tónleika á Listahátíð. Það varð úr, að Listahátíð tók á leigu Boeing-þotu af gerðinni 727-200 hjá Flugleiðum til þess að koma hljómsveitinni til og frá landinu. Slíkt er umfang flutninganna að taka verður a.m.k. 8 sætaraðir úr vélinni til að koma farangrinum fyrir. Hljómsveitin er nú á tónleika- ferðalagi um Evrópu. Verður hún sótt til Parísar að morgni þess 9. júní. Fyrri tónleikarnir verða sama kvöld í Laugardalshöllinni. Stjórn- ar Vladimir Ashkenazy hljómsveit- inni og verður jafnframt einleikari. Síðari tónleikarnir verða kvöldið eftir og þá stjórnar Ashkenazy en sonur hans, Stefán, verður einleik- ari. Flogið verður með hljómsveit- ina aftur til Parísar að morgni þess 11. „Það ætti í raun að vera útilokað að fá hljómsveit á borð við þessa hingað til lands, þetta dytti engum í hug nema íslendingum. Það er hins vegar alveg ljóst, að ef ekki kæmi til einstakur velvilji Flug- leiða væri koma Fílharmónusveitar Lundúna hingað til lands gersam- lega óframkvæmanleg," sagði Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri Listahátíðar, við blm. Mbl. í gær- kvöldi. Þá er það nánast orðið öruggt að sögn Guðbrands Gíslasonar, blaða- fulltrúa Listahátíðar, að Parísar- leikhúsið Comedie Francaise flytji gestaleikinn Kvennabúrið eftir Moliere á Listahátíð. „Við erum bara að bíða eftir endanlegri stað- festingu en það er ljóst, að mikill fengur er að komu Frakkanna. Leikhús þetta er eitt hið virtasta í gervallri Evrópu," sagði Guðbrand- ur í gærkvöld. Þetta mun í fyrsta sinn, sem leikhúsið sýnir gestaleik á Norðurlöndum. Utséð virðist um að einhver þekkt erlend popphljómsveit komi til landsins í tengslum við Listahátíð auk sveitanna, sem leika á sérstakri norrænni rokkhátíð sunnudaginn 3. júní. Samningaviðræður höfðu staðið í langan tíma við Paul Young og fleiri þegar upp úr þeim slitnaði. Sagði Guðbrandur ekki útilokað, að einhver hljómsveit kæmi til lands- ins á vegum Listahátíðar en það yrði þá ekki fyrr en eftir að sjálfri hátíðinni lýkur. Tékkneskir dagar á Loftleiðum TÉKKNESK kynningarvika hefst á Loftleiðahótelinu í dag og stendur til 30. maí. „Tékkneskir dagar“ eru haldnir á vegum tékkneska sendiráð- sins á íslandi, Hótels Loftleiða og tékkneska kynningarfyrirtækisins Rapid Praha. Þessa viku verða kynnt viðskipti Íslands og Tékkóslóvakíu og gestum gefst kostur á að kynnast tékkneskri framleiðslu, matargerð og tónlist. Einnig verður Tékkóslóvakía kynnt sem ferðamannaland. Sjálfstæöisflokkurinn: 55 ára afmælishappdrætti FYRIR nokkrum dögum hófst vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins 1984 og hafa miðar verið sendir til allra flokksmanna og fjölmargra annarra velunnara flokksins. Þetta happdrætti er tengt afmæli flokksins en hann er 55 ára um þessar mundir. í bréfí formanns, varaformanns og framkvæmda- stjóra flokksins, sem fylgir með happdrættismiðunum, segir m.a.: „Fyrir einu ári axlaði Sjálf- stæðisflokkurinn ríkisstjórnar- ábyrgð og um þessar mundir sér þess stað í nýrri efnahagsstefnu, verðbólgan er komin á viðráð- anlegt stig og meira jafnvægi er í efnahagsmálum. Þessi góði ár- angur er þó enn ekki orðinn tryggur og mikillar varkárni og festu er áfram þörf. Til þess að tryggja áframhaldandi góðan árangur þurfa sjálfstæðismenn hvarvetna að standa traustan vörð um flokkinn og stefnu hans Ekki þarf að fara mörgum orðum um nauðsyn þess að fjár- mál flokksins séu í góðu lagi og mögulegt sé að halda uppi þróttmiklu starfi. í þessum efn- um getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki leitað til annarra en stuðn- ingsmanna sinna og því heitum við á þig að bregðast nú sem endranær vel við og kaupa hjá- lagða happdrættismiða.“ Að venju eru vinningar í happdrættinu fjölmargir og er nú boðið upp á 26 sólarlanda- ferðir, samtals að verðmæti 912 þúsund krónur. Dregið verður í happdrættinu laugardaginn 9. júní næstkomandi. í Reykjavík er skrifstofa happdrættisins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. (Frétutilkynning) m\m 5 mq Ný píata Samhjálpar. Æluráaóði rennur fíímhjálp Þjóðskáldið góða. Hinn mikli lisUmaóur bundins og óhundins máU. Ljóð I — Ljóð II — Ljóð III — Léttara hjal — Myndir og minningar — Menn og minni — Æviþættir og aldarfar I — Æviþættir og aldarfar II —■ Æviþættir og aldarfar III — Æviþættir og aldarfar IV. (ý/h Almenna bókafélagið, Ansturstræti 18, sími 25544. *— Skemmuvegi 36, Kóp. Síml 25544 yy, wAvLxt/on Verö Utb. Innheimtuk. kr. 6.000 - kr. 1.200 - kr 4.800 - kr. 400,- Hringið og við sendum sölumann til ykkar Eftístööv. kr. 5.200 - sem má cjreiöa á sex mánuöum, kr. 867 pr. mánuö.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.