Morgunblaðið - 27.05.1984, Qupperneq 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
120. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Saka Búlgari um
tilræði við páfa
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC
segist hafa fyrir því heimildir að í
skýrslu, sem enn hefur ekki verið
gerð opinber, en samin er að tilhlut-
an Antonio Albano, ríkissaksókn-
ara Ítalíu, og fjallar um banatil-
ræðið við Jóbannes Pál páfa á Pét-
urstorgi í Róm vorið 1981, sé fullyrt
að Búlgarir hafi skipulagt tilræðið
vegna ótta um að óháða verka-
lýðshreyfingin í Póllandi, sem sótt
hefur siðferðilegan styrk til páfa,
kynni að breiðast út um alla Aust-
ur-Evrópu.
Fjölmiðlar hafa margsinnis áð-
ur leitt að því getum, eftir heim-
ildum frá rannsóknaraðilum á ít-
alíu, að leyniþjónustur Búlgara
og Sovétmanna hafi ráðið tyrkn-
eska hermdarverkamanninn Ali
Acca, sem nú situr í fangelsi á
Ítalíu, til að myrða Jóhannes Pál
páfa. Stjórnvöld i Búlgaríu hafa
1 vísað þessum staðhæfingum á
Japanir minnast
sigurs á Rússum
Moskvu, 25. maí. AP.
RÚSSAR báru í dag fram opinber mótmæli vegna fyrirætlana Japana
um að minnast sigurs flota síns á sjóher Rússakeisara í ófriðnum
1904—05, sem greiddi fyrir byltingu bolsévíka.
höldunum, en Tass neitar því að
svo sé.
Tass segir að japanskir „þjóð-
rembumenn" ætli að gera sigur-
vegarann, Togo aðmírál, að
„skurðgoði og tákni" japanskrar
stríðsmannahefðar og búa Japani
undir þriðju heimsstyrjöldina. 1
orðsendingu frá Rússum segir að
þeir telji hátíðahöldin fjandsam-
leg.
í orðsendingunni segir að með
þessu móti séu japanska stjórnin
og aðrir aðilar að kynda undir
þjóðrembu- og hefndartilfinn-
ingar í því skyni að ala þjóðina
upp í hernaðaranda og fjandskap
í garð Sovétríkjanna.
Japanska stjórnin segir að ein-
staklingar standi fyrir hátíða-
bug og segja að þær séu liður í
ófrægingarherferð aðila á Vest-
urlöndum gegn kommúnistaríkj-
unum.
Samkvæmt skýrslu ítalska sak-
sóknarans, sem NBC segist hafa
komist yfir, töldu þeir, sem
skipulögðu tilræðið við páfa, að
hann hefði gegnt svo þýðingar-
miklu hlutverki við myndun
óháðu verkalýðshreyfingarinnar í
Póllandi, að nauðsynlegt væri að
ryðja honum úr vegi.
NBC segir, að í sömu skýrslu
komi fram, að Búlgarir hafi ætl-
að að ráða Lech Walesa, leiðtoga
óháðu verkalýðshreyfingarinnar í
Póllandi, af dögum, en hætt við
þá fyrirætlun af ókunnum ástæð-
um.
Búist er við því að i júlí verði
tekin ákvörðun um það hvort þrír
Búlgarir og fjórir Tyrkir verði
ákærðir fyrir hlutdeild í tilræð-
inu við páfa, en tilræðismaðurinn
sjálfur hefur þegar verið dæmdur
í ævilangt fangelsi.
Viðburðatími
Stúdent í vor og faðir innan skarams. Olafur K. Magnússon tók þessa
mynd er verið var að undirbúa brautskráningu stúdenta í Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Hin verðandi móðir hagræðir stúdentshúfunni á
mannsefni sínu.
Japönsk olíuskip hætta
við siglingar til Kuwait
DamiflkuH, 26. mȒ. AP. *
ARABÍSKIR diplómatar gerðu ráð
fyrir því í dag að íranir myndu fljót-
lega hefna síðustu árása Iraka á olíu-
flutningaskip á Persaflóa. f gær sögð-
ust frakar hafa sökkt átta olíuskip-
Símamynd: AP.
Geir Hallgrímsson og Shultz
GEIR Hallgrímsson, utanríkisráðherra, heilsar George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í upphafi
fundar þeirra í Washington í gær. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir og voru vöruflutningar fyrir varnarliðið
á Keflavíkurflugvelli helsta umræðuefnið. Niðurstaða fékkst ekki á fundinum, en eins og fram kom í Mbl. í gær
hyggst Geir Hallgrímsson árétta sjónarmið fslendinga um jafnrétti í vöruflutningum þegar hann hittir Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að máli á þriðjudaginn.
Japanskir skipaeigendur sögðu í
dag að þeir væru hættir að senda
olíuskip til og frá Kuwait og norð-
urhluta Saudi-Arabíu vegna síð-
ustu árása. Hins vegar halda Jap-
anir áfram olíuflutningum til aðal-
olíuhafnar Saudi-Arabíu, Ras
Tannurah, og frá. Ákvörðunin var
tekin til að hlífa mannslífum.
í umræðum öryggisráðs SÞ hafa
fulltrúar arabaríkja hvatt til þess
að franir verði fordæmdir fyrir
árásir á olíuflutningaskip á Persa-
flóa. Fulltrúi írans sagði að íranir
myndu hætta árásunum ef írakar
gerðu slíkt hið sama. Utanríkisráð-
herra Kuwait sagði að stigmögnun
átakanna gæti leitt til árekstra
risaveldanna.
Utanríkisráðherrar NATO koma
saman í næstu viku í Washington á
35 ára afmæli bandalagsins m.a. til
að ræða ástandið á Persaflóa.
Samkomulag er að nást í Banda-
ríkjastjórn um að senda 200
Stinger-loftvarnaflaugar til
Saudi-Arabíu að sögn Washington
Post.
Sýrlendingar sökuðu fraka í dag
um að magna átökin við frani í þvi
skyni að draga Persaflóaríkin inn í
þau. Ásökunin fylgir í kjölfar við-
ræðna Hafez Assads forseta við
Khaddam utanríkisráðherra, sem
er kominn úr sáttaför til Teheran.
Khaddam gefur í skyn að íranir
hafi samþykkt að hætta árásum á
olíuskip, ef frakar hætta þeim líka.
Ritstjóri í Saudi-Arabíu hélt því
fram i dag að Bandaríkjamenn
hefðu fengið írani til að ráðast á
olíuflutningaskip Saudi-Araba og
Kuwaitmanna í vikunni til að und-
irbúa jarðveginn fyrir „bandaríska
íhlutun" á Persaflóasvæðinu.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO,
bauð í dag aðstoð samtaka sinna til
að binda enda á átökin. Þetta gerð-
ist á fundi islamskra þjóðarleið-
toga.
Rúmlega 200
eru fallnir
í Bombay
Bombay, 26. maí. AP.
EFTIR tíu daga harða bardaga
hindúa og múhameðstrúarmanna er
221 fallinn. Þar sem herinn hefur ver-
ið kallaður út virðist hafa tekist að ná
stjórn á ástandinu. Þó er enn nokkuð
um íkveikjur og grjótkast.
Tveir hafa verið stungnir til
bana síðan bæld voru niður snörp
átök hindúa og múhameðstrúar-
manna í tveimur hverfum Bombay
ií gærkveldi. Útgöngubann var
fyrirskipað og þúsundir hermanna
gengu um göturnar.
Sonur Indiru Gandhi, Rajiv
Gandhi, fór um bardagasvæðin og
sagði að ástandið væri að lagast,
þótt fólk væri hrætt við að yfirgefa
hús sín.
Hindúaleiðtoginn Bal Thackerey er
| sakaður um að hafa hrundið óeirð-
unum af stað með því að fara niðr-
andi orðum um spámanninn Mú-
I hameð.