Tíminn - 31.08.1965, Side 1
195. tbl. — Þriðjudagur 31. ágúst 1965 — 49. árg.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum
Hringið í síma 12323-
. áœgkýsing í Tímanum
ke*n«r daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
SELJA ÞEIR
KARTÖFLUR
ÚR BÍLUM?
MB-Reykjavík, mánudag.
Kartöflustríðið svonefnda er
enn í algleymingi. Kaupmenn hafa
nú fengið fisksalafélagið til að aug
lýsa sölubann, en einhverjir með
limir félagsins munu samt blóta
á laun, a. m. k. Fiskhöllin. Græn
metisverzlun Iandbúnaðarins hef
ur nú opnað grænmetismarkað í
Síðumúla og hefur til athugunar
frekari ráðstafanir, m. a. að láta
bíla aka um bæinn og selja úr
þeim.
uninni. Nú í morgun hefði verið
opnaður markaður í húsakynnum
stofnunarinnar i Síðumúla 24. Jó
hann kvaðst reikna með, að ef
kartöflustríð kaupmanna harðn
aði enn yrði gripið til nýrra ráð
stafana, e. t. v. að láta bíla
stofnunarinnar aka um borgar-
hverfin og selja úr þeim.
Jóhann kvað menn hafa vonað
Framhald á 14. siðu
Guðmundur f. Guðmundsson
Emil Jónsson
Þorsteinsson
hann kveður ráðherrastól
hann skiptir um ráðherrastól — hann fær nýjan ráðherrastól
Stokkað upp í stjórninni
Kaupmenn neita enn að selja
kartöflur. Fá þeir þó á áttundu
krónu fyrir það að rétta fimm
kílóa poka yfir búðarborðið, þeir
sem þess þurfa. Kartöflurnar eru
bornar inn í búðirnar til þeirra og
í sumum tilfellum stafla starfs-
menn Grænmetisverzlunarinnar
þeim í grindur þær sem þær eru
geymdar í í kjörbúðunum og þar
taka húsmæður þá. Kaupmenn í
slikum verzlunum þurfa ekkert
annað að gera en taka við pening
unum!
Undanfarið hafa fisksalar selt
kartöflur í verzlunum sinum og
þar sem húsmæður fara ekki fleiri
ferðir í aðrar búðir nægði þessi
þjónusta fisksalanna til þess að
sölubann kaupmanna varð heldur
máttlítið. Nú hefur fisksalafélag
ið gengið í lið með kaupmönnum
í kartöflustríði þeirra og hafa aug
lýst að félagsmenn hætti að selja
kartöflur. Einhverjir munu þó
skerast úr leik og sagði Jóhann
Jónasson, forstjóri Grænmetis
verzlunar landbúnaðarins í viðtali
við blaðið í dag, að Fiskhöllin
myndi eftir sem áður selja kart
öflur í verzlunum sínum.
Jóhann kvað mál þessi nú í
gaumgæfilegri athugun hjá stofn
IGÞ—Ueykjavík, mánudag.
Á ríkisráðsfundi á morgun
þriðjudag, mun verða gengið
frá breytingum á ráðuneyti dr.
Bjarna Beincdiktssonar. Guð-
mundut í. Guðmundsson lætur
af embætti utanríkisráðherra.
Við embætti hans tekur Em
il Jónsson, formaður Alþýðu-
flokksins, núverandi sjávarút-
vegs- og félagsmálaráðherra.
Sæti í ríkisstjórn tekur Egg-
ert G. Þorsteinsson, 12. þin-g-
maður Reykvíkinga. en hann
verður sjávarútvegs- og félags
málaráðherra. Þessar breyt-
ingar fylgja ; kjölfar sam-
þykkta, sem gerðar voru i
þingflokki Alþýðuflokksins á
laugardag og miðstjórn Al-
þýðuflokksins á sunnudag.
Áður en til fyrrgreindra
funda kom í þingflokknum og
miðstjórninni, hafði Guðmund
ur I. Guðmundsson skýrt fi'á
því innan Alþýðuflokksins, að
hann óskaði eftir að draga
sig í hlé frá stjórnarstörfum
og stjórnmálastarfsemi. Auk
ráðherraembættisins sagði
hann af sér varaformennsku
í Alþýðuflokknum og for-
mennsku í blaðstjórn Alþýðu
blaðsins. Váraformaður flokks
ins var kjörinn dr. Gylfi Þ.
Gíslason, menntamálaráðherra.
en hann var áður ritari. Rit-
ari Alþýðuflokksins var kjör-
inn Benedikt Gröndal. alþing- i
ismaður og ritstjóri. Formaður fi
blaðstjórnar Alþýðublaðsins
hefur enn ekki verið kjörinn
í stað Guðmundar, en eins og S
blaðaútgáfu er víðast komið L
hér á landi, mun þar væntan-
lega verða valinn til sá maður |
sem tekinn verður gildur á !
Framhalo á 14. síðu
MANNSLlKAMINNSTÓÐSTPRÓF-
RAUN LENGSTU GEIMFERÐAR
Þessl mynd er af þilfari fiugvélamóðurskipsins, sem flutti geimfarana tll lands eftl velheppnaða lendingu.
MeSan sfóS á geimferSinni töldu geimfararnir sig sjá merkin á þilfarinu og segjast hafa tekiö mynd af þeim-
NTB-Kennedyhöfða, mánudag.
Geimfararnir Cooper og Conrad
komu í dag til Kennedyhöfða. cft
ir að hafa verið lengur í geimnum
en nokkrir menn aðrir. Þeir
flugu til Kennedyhöfða frá flug-
vélarinóðurskipinu Lake Chanipl
ain. Geimferðin stóð i sjö sólar
hringa, 22 klukkustundir og 56
mínútur. Þeir sváfu vel í nótt, og
eru við beztu heilsu. í dag hefst
læknisrannsókn á þeim, sem
stendur í 11 daga. Jafnframt gefa
þeir sérfræðingum upplýsingar
um förina.
„Ég er feginn að hafa fasta
jörð undir fótum aftur“ sagði
Cooper þegar hann kom til
Kennedyhöfða „Það er gott að
vera kominn aftur ti) vinnu. Við
skrifum nú skýrslu um förina,
bæði það. sem gekk vel, og hitt,
sem gekk míður. Það er von okk
ar. að skýrsla okkar verði til
þess að auðvelda geimförunum
siíkar ferðir í framtíðinni,' sagði
hann
Geimföi þessi var fyrst og
fremst farin til þess. að rann-
saka áhrif svo langra ferða á
mannslíkamann Segja læknar að
nú sé augijóst. að mannslíkaminn
þoli slíkar ferðir. En þótt maður
inn sé hæfur til tunglferða sýndi
Gemini V, að tæknin er ekki enn
á því stigi, að hægt sé að senda
mannað geimfar til tunglsins. Hin
ir mörgu tæknilegu gallar, sem
í ljós komu, eru of alvarlegir til
þess að hætt verði á slíka för að
sinni.
Um áramót gera Bandaríkja-
menn aðra tilraun, og er þá reikn
að með. að geimfarar verði svo
vikum skipti á lofti.
Geimfararnir Gordon Cooper og
Charles Conrad lentu geimfarinu
Framhald á bls. 14
Ræðast viö
næstu daga
EJ—Reykjavík, mánudag.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
og fulltrúar bænda í sexmanna-
nefndinni voru á fundum fyrir
helgina og ræddu ákvörðun mið-
stjórnar ASÍ um að hætta þátt-
töku í starfi nefndarinnar. Blaðið
hafði i dag samband við Svein
Trvggvason framkvæmdastjóra
og sagði hann, að málið yrði rætt
nánar næstu daga.