Morgunblaðið - 27.05.1984, Qupperneq 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MAÍ 1984
20. þing Slysavamafélags íslands:
Öryggismál sjómanna viða-
mesta viðfangsefni þingsins
Vestmannaeyjum, 20. maí.
HARALDUR Henrýsson var
endurkjörinn forseti SVFÍ á 20.
landsþingi Slysavarnafélags fs-
lands sem haldið var í Vestmanna-
eyjum dagana 18.—20. maí. Er
þetta í fyrsta skipti sem landsþing
SVFÍ er haldið utan höfuðborgar-
innar og jafnframt eitt hið fjöl-
mennasta frá upphafi en þing-
fulltrúar voru um 170. Sagði Har-
aldur Henrýsson í setningarræðu
sinni á þinginu að það hefði þótt
vel til fallið að halda þingið í Vest-
mannaeyjum nú að þessu sinni því
Eyjamenn hefðu verið fyrstir til
þess að mynda með sér samtök um
björgunarmál þegar Björgunarfé-
lag Vestmannaeyja var stofnað ár-
ið 1918 og í ár eru liðin 50 ár frá
stofnun slysavarnadeildarinnar
Eykyndils í Eyjum.
„Öryggismál sjómanna var
viðamesta mál þessa 20. lands-
þings SVFÍ og ljóst að enn þarf
að gera verulegt átak í örygg-
Séð yfir þingsalinn
Morgunblaðið/ Sigurgeir
Haraldur Henrýsson, forseti SVFÍ, afhendir Kjartani Bergsteinssyni,
yfirloftskeytamanni { Vestmannaeyjaradíói, viðurkenningu fyrir störf
starfsmanna loftskeytastöðvarinnar.
ismálum sjómanna," sagði Har-
aldur Henrýsson í samtali við
blm. Mbl. skömmu eftir að hann
hafði verið endurkjörinn forseti
með langvinnu lófaklappi þing-
fulltrúa. „Varðandi öryggismál-
in Ieggjum við áherslu á mennt-
unarmál sjómanna og sérstak-
lega þarf að auka verklega þjálf-
un í störfum um borð í skipum.
Þingið lítur það mjög alvarleg-
um augum ef dregið verður úr
kröfum til menntunar og þjálf-
unar yfirmanna á skipum og
bátum. Allískyggilegar upplýs-
ingar komu fram í athyglisverðu
erindi Agnars Erlingssonar
skipaverkfræðings hér á þingi
um stöðugleika íslenskra skipa
og ljóst að athugunum á stöðug-
leika skipa virðist vera áfátt.
Þarna þarf að gera mikið átak og
mjög brýnt að taka það mál föst-
um tökum.
Annað mál sem veldur okkur
áhyggjum er minnkandi mögu-
leikar Landhelgisgæslunnar til
neyðar- og öryggisþjónustu þar
sem mjög hefur verið dregið úr
útgerð skipa og óvissa ríkir um
þyrlukaup. Það var von okkar að
þyrlur kæmu þarna inn í að
hluta i stað skipanna. Þingið
hefur falið stjórninni að beita
sér af alefli í þessu máli við
stjórnvöld og Alþingi og knýja á
um að tækjakostur Landhelgis-
gæslunnar verði efldur."
— Þú ræddir í setningarræðu
þinni um sérstaka björgunar-
báta?
„Já, það er í tengslum við það
sem ég var að segja um samdrátt
í útgerð Landhelgisgæslunnar og
það vaknar spurning, hvort ekki
sé tímabært að huga að útgerð
sérstakra björgunarskipa eða
-báta, einkum á grunnslóð til að
sinna smærri bátum. Slíkir
björgunarbátar eru reknir af
flestum nágrannaþjóðum. Við
þessar breyttu aðstæður er
vissulega ástæða til að leiða hug-
ann að þessum málum."
— Hvert er brýnasta framtíð-
arverkefni SVFÍ?
„Ef við lítum til náinnar fram-
tíðar er eitt stærsta og mikil-
vægasta verkefnið framundan að
koma á fót þjálfunarmiðstöð þar
sem áhafnir skipa og báta gætu
sótt námskeið í meðferð björg-
unarbúnaðar og fengið verklega
fræðslu um þessi efni. Hugsunin
er sú, að til þess yrði fengið gam-
alt skip, sem yrði rennt á grunn
og notað við kennslu og æfingar
en einnig yrði aðstaða í landi,
t.d. fyrir æfingar með slökkvi-
tæki o.fl. Þessi mál hafa verið
rædd milli SVFÍ, Farmanna- og
fiskimannasambandsins og Sjó-
mannasambandsins. Við ætlum
að halda áfram að vinna að
þessu máli, sem við teljum mjög
mikilvægt, og viljum helst að
slík þjálfunarmiðstöð verði sett
á Iaggirnar eigi síðar en á næsta
ári.“
— Hvað um önnur helstu mál
þessa þings?
„Við ræddum mikið um um-
ferðarmálin og fögnum þeim
árangri er náðist á norræna um-
ferðaröryggisárinu 1983. Við
teljum að þessi árangur sýni
gildi öflugs starfs gegn umferð-
arslysum og að enn beri að efla
þetta starf og vinna markvisst
að góðri umferðarmenningu til
frambúðar. Við fjölluðum einnig
töluvert um heimaslys og teljum
rétt að hugað verði í auknum
mæli að slysum i heimahúsum
og að fræðslustarf félagsins
verði miðað m.a. við fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Á næstunni mun
SVFÍ gefa út handbók fyrir
heimili, þar sem unnt verður að
fletta upp í skyndingu, hvernig á
Forseti SVFÍ ásamt Sigríði Björnsdóttur og Önnu Halldórsdóttur, en þær
hlutu viðurkenningu fyrir mikil og fórnfús störf í þágu SVFÍ og Eykynd-
ils, en þær hafa báðar verið formenn í mörg ár.
Forseti SVFÍ ásamt Kristni Sigurðssyni, formanni Björgunarfélags Vest-
mannaeyja, og Einari Sveini Jóhannessyni, skipstjóra á Lóðsinum frá
Vestmannaeyjum.
að bregðast við ef börn gleypa
lyf eða hættuleg efni í heima-
húsum. Þingið fjallaði um ýmis
innanfélagsmál björgunarsveit-
anna og uppbyggingu þeirra. Á
næstunni verðum við að huga
sérstaklega að búnaði og þjálfun
sjóbjörgunarsveita okkar. Við
þurfum að hyggja að bátaeign
þeirra og er ljóst að víða væri
æskilegt að fá stærri og full-
komnari björgunarbáta en þess-
ir flokkar hafa haft til þessa."
Haraldur Henrýsson sagði að
þetta hefði verið ákaflega
ánægjulegt þing og væri hann
sérlega ánægður með móttökur
og allan aðbúnað í Eyjum og
vildi færa Eykyndilskonum og
Björgunarfélagi Vestmannaeyja
þakkir fyrir frábær störf þeirra
að undirbúningi þingsins.
„Það eru mörg og mikilvæg
verkefni sem bíða úrlausnar en
sem hjá mörgum öðrum er það
fjármagnið sem setur okkur
skorður í starfinu, starfið mark-
ast af því fé sem við höfum úr að
spila hverju sinni. Þetta 20.
landsþing SVFÍ er eitt okkar
fjölmennasta þing til þessa og
það sýnir að félagið er í sókn og
áhugi fólksins f hinum ýmsu
deildum vítt um landið er vak-
andi og starfið virkt. Það er ætl-
un okkar, að gera átak í því að
fjölga félögum og efla félags-
starfið," sagði Haraldur Henrýs-
son.
Landsþing SVFl hófst kl. 16 á
laugardag og þingslit voru undir
kvöld á sunnudag. Þingforseti
var Friðrik Ásmundsson, skóla-
stjóri Stýrimannaskólans í Vest-
mannaeyjum. Itarleg og fróðleg
erindi voru flutt á þinginu.
Mikla athygli vakti erindi Agn-
ars Erlingssonar skipatækni-
fræðings um stöðugleika ís-
lenskra skipa en samkvæmt upp-
láyingum sem þar komu fram er
ástandið í þeim málum mjög al-
varlegt. Pétur Einarsson flug-
málastjri flutti erindi um flug-
öryggismál.
Á þinginu voru fjórir Vest-
manneyingar, sem hafa lengi og
vel unnið að slysavarna- og
björgunarmálum í Vestmanna-
eyjum, kjörnir heiðursfélagar í
SVFÍ. Það voru þau Sigríður
Björnsdóttir, Anna Halldórs-
dóttir, Einar Sveinn Jóhannes-
son og Kristinn Sigurðsson.
Stjórn SVFÍ afhenti starfsfólki
loftskeytastöðvarinnar í Eyjum
áritað heiðursskjal sem þakk-
lætisvott fyrir mikilvægt fram-
lag að slysavarna- og björgun-
armálum, en loftskeytastöðin í
Eyjum mun vera önnur elsta
loftskeytastöðin á landinu. Gest-
ur við setningu þingsins á föstu-
dag var afreks- og þrekmaðurinn
Guðlaugur Friðþórsson og færði
stjórn SVFÍ honum að gjöf
áletraða fánastöng sem virð-
ingarvott fyrir unnið afrek og
sem tákn móttöku þeirra skila-
boða sem hann færði S land er
hann bjargaðist á sundi eftir að
Hellisey VE fórst í vetur. Risu
þingfulltrúar úr sætum og hylltu
Guðlaug með langvinnu lófa-
klappi.
I stjórn Slysavarnafélags ís-
lands eru auk forseta félagsins,
Haralds Henrýssonar, þau Egg-
Friðrik Ásmundsson skólastjóri,
en hann var forseti þessa 20. þings
Slysavarnafélags íslands.
Haraldur Henrýsson, forseti Slysa-
varnafélagsins, afhendir Guðlaugi
Friðþórssyni, sem komst af úr
Helliseyjarslysinu, viðurkenningu.
ert Vigfússon, Selfossi, Einar
Sigurjónsson, Hafnarfirði, Ester
Kláusdóttir, Hafnarfirði, Guð-
rún S. Guðmundsdóttir, Reykja-
vík, Sigurður Guðjónsson, Sand-
gerði og örlygur Hálfdánarson,
Reykjavík. Fulltrúar landshluta
í aðalstjórn eru: Jón Þórisson
fyrir Vesturland, Halldór Magn-
ússon fyrir Vestfirði, Sigrún
Pálsdóttir fyrir Norðurland,
Gunnar Hjaltason fyrir Austur-
land og ólafur Ishólm Jónsson
fyrir Suðurland. I varastjórn
eru: Gunnar Tómasson, Grinda-
vík, Snæbjörn Ásgeirsson, Sel-
tjarnarnesi, Erlingur ólafsson,
Mosfellssveit, Jóhannes Briem,
Maria Gunnarsdóttir og Gréta
María Sigurðardóttir, öll í
Reykjavík. Varafulltrúar lands-
hlutanna eru: Reynir Gústafs-
son, örn Gíslason, Þóranna
Hansen, Ingibjörg Guðmunds-
dóttir og Sigríður Björnsdóttir.
— hkj.